Hæstiréttur íslands

Mál nr. 393/2014


Lykilorð

  • Kærumál
  • Gæsluvarðhald. C. liður 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008


                                     

Föstudaginn 6. júní 2014.

Nr. 393/2014.

 

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu

(Stefán Eiríksson lögreglustjóri)

gegn

X

(Stefán Karl Kristjánsson hdl.)

 

Kærumál. Gæsluvarðhald. C. liður 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008.

Staðfestur var úrskurður héraðsdóms þar sem X var gert að sæta gæsluvarðhaldi á grundvelli c. liðar 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála.

 

Dómur Hæstaréttar

Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Helgi I. Jónsson og Benedikt Bogason og Ingveldur Einarsdóttir settur hæstaréttardómari.

Varnaraðili skaut málinu til Hæstaréttar með kæru 5. júní 2014, sem barst réttinum ásamt kærumálsgögnum sama dag. Kærður er úrskurður Héraðsdóms Reykjavíkur 5. júní 2014, þar sem varnaraðila var gert að sæta áframhaldandi gæsluvarðhaldi meðan á áfrýjunarfresti stendur, þó eigi lengur en til fimmtudagsins 3. júlí 2014 klukkan 16. Kæruheimild er í b. lið 2. mgr. 1. mgr. 192. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála. Varnaraðili krefst þess aðallega að hinn kærði úrskurður verði felldur úr gildi, en til vara að gæsluvarðhaldi verði markaður skemmri tími.

Sóknaraðili krefst staðfestingar hins kærða úrskurðar.

Samkvæmt 3. mgr. 97. gr. laga nr. 88/2008 lýkur gæsluvarðhaldi þegar héraðsdómur hefur verið kveðinn upp í málinu, en eftir kröfu ákæranda getur dómari þó úrskurðað að gæsluvarðhald skuli haldast meðan á áfrýjunarfresti samkvæmt 199. gr. stendur. Varnaraðili var með dómi Héraðsdóms Reykjavíkur 4. júní 2014 sakfelldur fyrir fjölmörg brot sem framin voru á tímabilinu frá nóvember 2013 til febrúar 2014 og dæmdur í tveggja ára fangelsi. Er því fullnægt skilyrði c. liðar 1. mgr. 95. gr. fyrrgreindra laga um að ætla megi að varnaraðili muni halda áfram brotum meðan á áfrýjunarfrestinum stendur. Verður hinn kærði úrskurður því staðfestur.

Dómsorð:

Hinn kærði úrskurður er staðfestur.

 

Úrskurður Héraðsdóms Reykjavíkur 5. júní 2014.

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu hefur krafist þess að  Héraðsdómur Reykjavíkur úrskurði að X, kt. [...], verði gert að sæta áframhaldandi gæsluvarðhaldi meðan á áfrýjunarfresti stendur þó eigi lengur en til fimmtudagsins 3. júlí 2014, kl. 16.00, á grundvelli c.-liðar 1. mgr. 95., sbr. 3. mgr. 97. gr. laga um meðferð sakamála nr. 88, 2008.

Í greinargerð lögreglu kemur fram að í dag 5. júní 2014 hafi verið kveðinn upp dómur við Héraðsdóm Reykjavíkur yfir dómfellda í máli S-324/2014 og hlaut dómfelldi tveggja ára, óskilorðsbundinn fangelsisdóm fyrir fjölmörg brot samkvæmt ákæruskjali lögreglustjóra frá 20.  mars sl. Um hafi verið að ræða yfir þriðja tug brota, þar sem dómfelldi var sakfelldur einn og í félagi, fyrir fjölmörg auðgunarbrot, þjófnaði, gripdeild, hylmingu, skjalabrot, nytjastuld, hótun og líkamsárás og umferðar- og fíkniefnalagabrot.

Brotahrinan hófst í byrjun nóvember 2013 og hafi staðið fram til 13. febrúar sl., þegar dómfelldi var handtekinn og í framhaldi úrskurðaður í gæsluvarðhald.. Dómfelldi hafi sætt gæsluvarðhaldi frá 14. febrúar 2014, seinast með úrskurði Héraðsdóms Reykjavíkur frá 23. maí 2014, mál R-155/2014, sem staðfestur hafi verið með dómi Hæstaréttar 28. maí sl. í máli nr. 361/2014, sbr. fyrri gæsluvarðhaldsúrskurði héraðsdóms Reykjavíkur í málum R-115/2014 frá 25. apríl síðastliðnum, R-90/2014 frá 28. mars, R-53/2014 frá 28. febrúar og R-40/2014 frá 14. febrúar sl., sem staðfestur hafi verið með dómi Hæstaréttar í máli nr. 116/2014, 19. febrúar 2014, en þar hafi dómfellda verið gert að sæta gæsluvarðhaldi. Dómfelldi hafi fyrst verið úrskurðaður í gæsluvarðhald á grundvelli rannsóknarhagsmuna og síbrota, sbr. a- og c. lið 1. mgr. 95. gr. sakamálalaga, og síðar á grundvelli c. liðar sömu laga.

Brotaferill dómfellda hafi verið samfelldur frá byrjun nóvember og fram til 13. febrúar er dómfelldi var handtekinn. Dómfelldi hafi sagt að hann hafi verið í neyslu fíkniefna á meðan á brotahrinunni stóð og það virðist því vera að dómfelldi hafi framfleytt sér með afbrotum og til að fjármagna ætlaða fíkniefnaneyslu. Með vísan til brotaferils dómfellda, en hann hafi nú hlotið fangelsisrefsingu, sé það mat lögreglustjóra að yfirgnæfandi líkur séu á því að dómfelldi muni halda áfram brotastarfsemi fari hann frjáls ferða sinna og það sé brýnt fyrir lögreglu að dómfelldi sæti gæsluvarðhaldi á meðan að áfrýjunarfrestur vari.

Með vísan til framangreinds, framlagðra gagna og  c.-liðar 1. mgr. 95. gr., sbr. 3. mgr. 97. gr. laga 88, 2008 um meðferð sakamála sé þess krafist að krafan nái fram að ganga eins og hún er sett fram.

Niðurstaða:

                Dómfelldi hefur sætt gæsluvarðhaldi frá 14. febrúar sl., fyrst á grundvelli a- og c-liða 1. mgr. 95. gr. laga um meðferð sakamála nr. 88/2008 en síðar á grundvelli c-liðar 1. mgr. 95. gr. Í dag var hann dæmdur til tveggja ára óskilorðsbundinnar fangelsisrefsingar vegna flestra þeirra brota sem honum var gefið að sök í ákæruskjali, þar sem ákæra er sett fram í 23 liðum,  sbr. dóm héraðsdóms Reykjavíkur nr. S-324/2014. Sakarferill dómfellda er rakinn í framangreindum dómi héraðsdóms og kemur þar m.a. fram að dómfelldi hafi rofið skilorð tveggja dóma. Þá hefur Hæstiréttur áður fallist á að fullnægt sé skilyrði c-liðar 1. mgr. 95. gr, með vísan til sakarferils dómfellda og fjölda ákæruliða í því máli sem dómur féll í í dag, sbr. dóm réttarins í máli nr. 361/2014. Niðurstaða dómsins í dag breytir engu um það að enn verður að telja að skilyrði gæsluvarðhalds á grundvelli c-liðar 1. mg. 95. gr. laga nr. 88/2002, sbr. 3. mgr. 97. gr. sömu laga séu fyrir hendi. Með vísan til þessa verður krafa Lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu tekin til greina eins og nánar greinir úrskurðarorði. 

         Ingibjörg Þorsteinsdóttir héraðsdómari kveður upp úrskurð þennan.

ÚRSKURÐARORÐ:

                Dómfelldi, X, kt. [...], [...] í [...], skal áfram sæta gæsluvarðhaldi meðan á áfrýjunarfresti stendur þó eigi lengur en til fimmtudagsins 3. júlí 2014, kl. 16.00.