Hæstiréttur íslands

Mál nr. 203/2011


Lykilorð

  • Kærumál
  • Gæsluvarðhald. A. liður 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008


Föstudaginn 1. apríl 2011.

Nr. 203/2011.

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu

(Jón H.B. Snorrason saksóknari)

gegn

X

(Erlendur Þór Gunnarsson hrl.)

Kærumál. Gæsluvarðhald. A. liður 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008.

Úrskurður héraðsdóms um að X skyldi gert að sæta gæsluvarðhaldi, á grundvelli a. liðar 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála, var staðfestur.

Dómur Hæstaréttar.

Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Ólafur Börkur Þorvaldsson, Páll Hreinsson og Viðar Már Matthíasson.

Varnaraðili skaut málinu til Hæstaréttar með kæru 31. mars 2011, sem barst réttinum ásamt kærumálsgögnum 1. apríl sama ár. Kærður er úrskurður Héraðsdóms Reykjaness 31. mars 2011, þar sem varnaraðila var gert að sæta gæsluvarðhaldi allt til fimmtudagsins 7. apríl 2011, klukkan 16 og einangrun meðan á gæsluvarðhaldi stendur. Kæruheimild er í l. lið 1. mgr. 192. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála. Varnaraðili krefst þess aðallega að hinn kærði úrskurður verði felldur úr gildi en til vara að gæsluvarðhaldinu verði markaður skemmri tími.

Sóknaraðili krefst þess að hinn kærði úrskurður verði staðfestur.

Með vísan til forsendna hins kærða úrskurðar verður hann staðfestur.

Dómsorð:

Hinn kærði úrskurður er staðfestur.

                                                                 

Úrskurður Héraðsdóms Reykjaness 31. mars 2011.

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu hefur í dag krafist þess að X, kt. [...], [...], [...], verði með úrskurði gert að sæta gæsluvarðhaldi allt til fimmtudagsins 7. apríl 2011, kl. 16:00. Þá er þess krafist að kærði sæti einangrun á meðan á gæsluvarðhaldinu stendur.

Í kröfu lögreglustjórans kemur m.a. fram að með bréfi barnaverndar [...], dagsettu 25. mars sl. hafi verið óskað eftir lögreglurannsókn á meintum kynferðisbrotum Y gegn syni hans A sem fæddur sé árið [...].

Móðir A og kærði hafi skilið árið [...] en frá árinu [...] hafi Y verið í reglulegri umgengni við A. Síðast hafi hann verið í umgengni helgina 4.-6. mars sl. Grunsemdir um kynferðisbrot Y gegn A hafi vaknað hjá móður þegar farið hafi að bera á ýmis konar andlegri og líkamlegri vanlíðan hjá honum. Í skýrslu hennar hjá lögreglu 29. mars sl. hafi hún greint frá því að A hafi fengið martraðir, magaverki og [...] í skólanum. Hafi hún gengið á hann eftir skýringum og hafi hann greint henni smám saman frá kynferðislegri misnotkun föður síns. Hafi hann lýst grófu kynferðislegu ofbeldi gagnvart sér sem Y hafi stundum beitt í félagi við annan nafngreindan mann, kærða X. Einnig hafi hann lýst myndatökum sem farið hafi fram þegar ofbeldinu hafi verið beitt.

Í kjölfar þessa hafi móðir A haft samband við barnavernd [...] og hafi verið tekið óformlegt viðtal við hann í skólanum 24. mars sl. Hafi hann þá í meginatriðum greint á sama veg og lýst því m.a. að Y hefði [...] [...] [...] [...] [...] [...] og í [...]. Þá hafi hann kveðið kærða hafa tekið þátt í misnotkuninni með Y.

Í dag hafi verið gerð húsleit á heimili kærða og hann verið handtekinn. Við yfirheyrslu hafi hann neitað sök. Þá hafi meðkærði einnig verið handtekinn og húsleit gerð á heimili hans. Á báðum stöðum hafi fundist fíkniefni sem hald hafi verið lagt á. Jafnframt hafi verið lagt hald á tölvubúnað, myndavélar og annars konar tæknibúnað sem verði nú rannsakaður.

Eins og rakið hafi verið séu nú á frumstigi rannsóknar ætluð kynferðisbrot kærða gegn A sem varði allt að 16 ára fangelsi. Samkvæmt lýsingum drengsins megi ætla að um langvarandi misnotkun sé að ræða eða mörg skipti. Þá komi einnig fram í lýsingum hans að hluti meintra brota hafi verið framin í félagi við meðkærða Y. Fyrir hendi séu því skilyrði 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008 um rökstuddan grun um að kærði hafi framið verknað sem fangelsisrefsing sé lögð við. Auk þess krefjist rannsóknarhagsmunir þess að kærða verði gert að sæta gæsluvarðhaldi. Taka þurfi skýrslu fyrir dómi af A og hafi beiðni þess efnis verið lögð fram. Mikilvægt sé að kærði geti ekki náð til A eða annarra vitna á meðan rannsókn málsins sé á viðkvæmu stigi enda hætt við að kærði muni torvelda rannsókn þess. Jafnfram sé nauðsynlegt að koma í veg fyrir að kærði og meðkærði geti rætt saman og samræmt framburði sína.

Með vísan til framangreinds, framlagðra gagna og a. liðar 1. mgr. 95. gr. og b. liðar 1. mgr. 99. gr. laga um meðferð sakamála nr. 88/2008 sé þess krafist að krafan nái fram að ganga.

Með vísan til alls framanritaðs og gagna málsins, svo og dóms Hæstaréttar í málinu nr. 463/2008, er fallist á það með lögreglu að kærði sé undir rökstuddum grun um að hafa framið brot sem fangelsisrefsing liggur við. Rannsókn málsins er á frumstigi. Haldi kærði óskertu frelsi sínu gæti hann torveldað rannsókn málsins, m.a. með því að hafa áhrif á framburð vitorðsmanna eða vitna. Með vísan til a. liðar 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála er því fallist á kröfu lögreglustjóra um gæsluvarðhald eins og hún er fram sett og nánar greinir í úrskurðarorði. Þá verður með sömu rökum og rakin eru hér að framan og með vísan til b. liðar 1. mgr. 99. gr. laganna fallist á kröfu lögreglustjóra um að kærði sæti einangrun á meðan hann sætir gæsluvarðhaldi.

Barbara Björnsdóttir settur héraðsdómari kveður upp þennan úrskurð.

Ú R S K U R Ð A R O R Ð:

Kærði, X, sæti gæsluvarðhaldi allt til fimmtudagsins 7. apríl 2011 kl. 16.00.

Kærði skal sæta einangrun á meðan á gæsluvarðhaldsvist hans stendur.