Hæstiréttur íslands
Mál nr. 831/2015
Lykilorð
- Kærumál
- Nauðungarvistun
|
|
Föstudaginn 11. desember 2015. |
|
Nr. 831/2015.
|
A (Unnsteinn Örn Elvarsson hdl.) gegn Velferðarsviði Reykjavíkurborgar (Kristbjörg Stephensen hrl.) |
Kærumál. Nauðungarvistun.
Staðfest var niðurstaða héraðsdóms um nauðungarvistun A á sjúkrahúsi, sem ákveðin hafði verið af innanríkisráðuneytinu.
Dómur Hæstaréttar.
Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Markús Sigurbjörnsson, Benedikt Bogason og Viðar Már Matthíasson.
Sóknaraðili skaut málinu til Hæstaréttar með kæru 4. desember 2015, en kærumálsgögn bárust réttinum 7. sama mánaðar. Kærður er úrskurður Héraðsdóms Reykjavíkur 3. desember 2015, þar sem staðfest var ákvörðun innanríkisráðuneytisins 27. nóvember sama ár um nauðungarvistun sóknaraðila á sjúkrahúsi. Kæruheimild er í 4. mgr. 31. gr., sbr. 1. mgr. 16. gr., lögræðislaga nr. 71/1997. Sóknaraðili krefst þess að ákvörðun innanríkisráðuneytisins verði felld úr gildi og þóknun skipaðs talsmanns hans vegna meðferðar málsins fyrir Hæstarétti greidd úr ríkissjóði.
Varnaraðili krefst staðfestingar hins kærða úrskurðar.
Með vísan til forsendna hins kærða úrskurðar verður hann staðfestur.
Samkvæmt 1. mgr. 17. gr. lögræðislaga greiðist úr ríkissjóði þóknun talsmanns sóknaraðila vegna meðferðar málsins fyrir Hæstarétti, sem ákveðin verður að meðtöldum virðisaukaskatti eins og í dómsorði greinir.
Dómsorð:
Hinn kærði úrskurður er staðfestur.
Þóknun talsmanns sóknaraðila, Unnsteins Arnar Elvarssonar héraðsdómslögmanns, 124.000 krónur, greiðist úr ríkissjóði.
Úrskurður Héraðsdóms Reykjavíkur 3. desember 2015.
Með kröfu, móttekinni 30. nóvember 2015, hefur sóknaraðili, A, [...], Reykjavík, farið þess á leit að felld verði úr gildi ákvörðun innanríkisráðuneytisins frá 27. sama mánaðar um að hann skuli vistast á sjúkrahúsi. Jafnframt krefst sóknaraðili þess að málskostnaður skipaðs talsmanns síns verði greiddur úr ríkissjóði, sbr. 1. mgr. 17. gr. lögræðislaga nr. 71/1997. Málið var þingfest í dag og tekið til úrskurðar.
Varnaraðili, velferðarsvið Reykjavíkurborgar, krefst þess að kröfu sóknaraðila verði hafnað og áðurnefnd ákvörðun innanríkisráðuneytisins um vistun sóknaraðila á sjúkrahúsi verði staðfest. Um aðild varnaraðila vísast til 20. gr., sbr. d-lið 2. mgr. 7. gr., laga nr. 71/1997.
Málavextir:
Með kröfu varnaraðila um nauðungarvistun til innanríkisráðuneytisins frá 27. nóvember 2015 fylgdi læknisvottorð B geðlæknis, dagsett 26. s.m. Þar kemur fram að sóknaraðili, sem er 25 ára, hafi komið á geðdeild LSH í lögreglufylgd að morgni 26. nóvember 2015 eftir að aðstandendur óskuðu eftir aðstoð. Þetta sé í fyrsta sinn sem sjúklingur er lagður inn á geðdeild. Hann hafi einangrað sig í heimi tölvuleikja og kannabisneyslu. Verið „aggressívur“ og ógnandi í hegðun og haft ranghugmyndir og aðsóknarkennd. Hefði hann m.a. hent steini inn um glugga nágranna sinna. Læknirinn kveðst hafa reynt að ræða við sóknaraðila, en hann hafi varla verið til viðræðu vegna lyfjamóks en honum höfðu verið gefin lyf á sjúkrahúsinu. Í niðurstöðu vottorðsins kemur fram að sóknaraðili sé í geðrofsástandi en ekki sé hægt að meta með góðu móti hvort hann sé með undirliggjandi geðsjúkdóm eða hvort núverandi ástand sé tengt mikilli vímuefnaneyslu. Það sé brýn nauðsyn á að hann fái viðeigandi meðferð. Læknirinn staðfesti vottorð sitt í símaskýrslu fyrir dóminum. Hann kvað sóknaraðila hafa verið í geðrofi er hann hafi verið lagður inn og því óhjákvæmilegt að vista hann á geðdeild. Læknirinn kvaðst ekki hafa séð sóknaraðila síðan 26. nóvember sl. og gæti því ekki borið um ástand hans í dag með vissu.
C geðlæknir, sem hefur verið læknir sóknaraðila í núverandi innlögn hans á deild 32C, gaf einnig símaskýrslu fyrir dóminum. Fram kom í máli hennar að nauðsynlegt væri að sóknaraðili yrði áfram nauðungarvistaður svo að hægt væri að veita honum viðeigandi meðferð. Sóknaraðili væri enn með geðrofseinkenni þótt honum færi batnandi. Nauðsynlegt væri fyrir hann að ná góðum bata áður en hann yrði útskrifaður af geðdeild. Læknirinn taldi samt mögulegt að hann yrði útskrifaður en umbeðinn sviptingartíminn liði.
Sóknaraðili talaði máli sínu fyrir dóminum. Hann viðurkenndi að hafa verið í slæmu ástandi er hann hafi verið lagður inn en taldi sig vera fullbata nú og vinnufær. Hann myndi fara í sálfræðiviðtöl. Hann lýsti því að hann teldi að nágrannar hans hefðu verið að fylgjast með því hvað hann væri að gera í tölvunni og töluðu í gegnum veggi til að ná til hans.
Talsmaður sóknaraðila vísar til þess að skilyrði 19. gr. laga nr. 71/1997 um nauðungarvistun sóknaraðila séu ekki fyrir hendi og því beri að fella ákvörðun innanríkisráðuneytisins úr gildi.
Talsmaður varnaraðila krefst þess að ákvörðun innanríkisráðuneytisins um nauðungarvistun sóknaraðila verði staðfest. Skilyrði nauðungarvistunar séu og hafi verið uppfyllt og vísar hann um það til framlagðs vottorðs og símaskýrslna geðlækna fyrir dóminum.
Niðurstaða:
Fyrir liggur vætti tveggja lækna um að sóknaraðili hafi við komu á bráðamóttöku geðdeildar verið í geðrofsástandi sem má jafna til alvarlegs geðsjúkdóms. Meðhöndlandi læknir C bar að að sóknaraðili væri enn með geðrofseinkenni og þyrfti frekari meðferð inni á lokaðri geðdeild. Í ljósi þessa verður að telja að uppfyllt séu skilyrði 3. mgr., sbr. 2. mgr., 19. gr. laga nr. 71/1997 hvað varðar ástand sóknaraðila. Enn er brýn nauðsyn á að hann dvelji áfram á sjúkrahúsi og fái þar viðeigandi meðferð. Nauðungarvistun hans er því óhjákvæmileg og verður ekki séð að vægari úrræði dugi. Með vísan til 3. mgr. 19. gr. laga nr. 71/1997, og með hagsmuni sóknaraðila sjálfs í huga og líkur hans á bata með inngripi nú, verður því að staðfesta ákvörðun innanríkisráðuneytisins um að hann skuli vistast á sjúkrahúsi.
Málskostnað, þar með talda þóknun skipaðs verjanda sóknaraðila, Unnsteins Arnar Elvarssonar hdl., 124.000 krónur, ber að greiða úr ríkissjóði.
Kolbrún Sævarsdóttir héraðsdómari kvað upp þennan úrskurð.
Úrskurðarorð:
Staðfest er ákvörðun innanríkisráðuneytisins frá 27. nóvember 2015 um að sóknaraðili, A, skuli vistast á sjúkrahúsi.
Kostnað af málinu, þ.m.t. þóknun skipaðs verjanda sóknaraðila, Unnsteins Arnar Elvarssonar hdl., 124.000 krónur, ber að greiða úr ríkissjóði.