Hæstiréttur íslands
Mál nr. 40/2008
Lykilorð
- Kærumál
- Gæsluvarðhald. 2. mgr. 103. gr. laga nr. 19/1991
|
|
Miðvikudaginn 30. janúar 2008. |
|
Nr. 40/2008. |
Ákæruvaldið(Sigríður J. Friðjónsdóttir, saksóknari) gegn X (Björgvin Jónsson hrl.) |
Kærumál. Gæsluvarðhald. 2. mgr. 103. gr. og 106. gr. laga nr. 19/1991.
Úrskurður héraðsdóms um að X skyldi sæta áfram gæsluvarðhaldi á grundvelli 2. mgr. 103. gr. laga nr. 19/1991 um meðferð opinberra mála, sbr. 106. gr. sömu laga, var staðfestur.
Dómur Hæstaréttar.
Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Ólafur Börkur Þorvaldsson, Jón Steinar Gunnlaugsson og Páll Hreinsson.
Varnaraðili skaut málinu til Hæstaréttar með kæru 25. janúar 2008, sem barst réttinum ásamt kærumálsgögnum 28. sama mánaðar. Kærður er úrskurður Héraðsdóms Reykjavíkur 25. janúar 2008, þar sem varnaraðila var gert að sæta áfram gæsluvarðhaldi allt til föstudagsins 22. febrúar 2008 kl. 16. Kæruheimild er í 1. mgr. 142. gr. laga nr. 19/1991 um meðferð opinberra mála. Varnaraðili krefst þess að hinn kærði úrskurður verði felldur úr gildi.
Sóknaraðili krefst staðfestingar hins kærða úrskurðar.
Upplýst er fyrir Hæstarétti að varnaraðili hafi 25. janúar 2008 lýst yfir áfrýjun á dómi Héraðsdóms Reykjavíkur þann sama dag, sem getið er í hinum kærða úrskurði. Skýra verður úrskurðarorðin svo að varnaraðili skuli sæta gæsluvarðhaldi þann tíma sem hann hafði við birtingu nefnds héraðsdóms til að lýsa yfir áfrýjun hans, þannig að yfirlýsing um áfrýjun, áður en sá frestur rann út, bindi ekki sjálfkrafa enda á gæsluvarðhald yfir honum.
Með vísan til forsendna hins kærða úrskurðar verður hann staðfestur.
Dómsorð:
Hinn kærði úrskurður er staðfestur.
Úrskurður Héraðsdóms Reykjavíkur 25. janúar 2008.
Ríkissaksóknari hefur krafist þess að Héraðsdómur Reykjavíkur úrskurði að X, [kt.], litháiskur ríkisborgari, til heimilis að [...], sæti áfram gæsluvarðhaldi á meðan áfrýjunarfrestur varir, þó eigi lengur en til föstudagsins 22. febrúar 2008, klukkan 16:00.
Með dómi Héraðsdóms Reykjavíkur uppkveðnum í dag var dómfelldi dæmdur í fimm ára fangelsi vegna brota á 1. mgr. 194. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940. Frá refsingunni dregst óslitið gæsluvarðahald frá 12. nóvember 2007. Dómfelldi tók sér frest til ákvörðunar um áfrýjun.
Samkvæmt 106. gr. laga nr. 19/1991 lýkur gæsluvarðhaldi þegar dómur hefur verið kveðinn upp í málinu. Eftir kröfu ákæranda getur dómari þó úrskurðað að gæsluvarðhald skuli haldast meðan á fresti skv. 2. mgr. 151. gr. laganna stendur. Dómfelldi hefur sætt gæsluvarðhaldi á grundvelli 2. mgr. 103. gr. laganna vegna gruns um afbrot sem hann hefur nú verið sakfelldur fyrir. Með vísan til 2. mgr. 103. gr. laga nr. 19/1991 og 106. gr. sömu laga verður krafan því tekin til greina eins og hún er fram sett og nánar greinir í úrskurðarorði.
Ekki þykja efni til þess að verða við kröfu dómfellda um að hann sæti aðeins farbanni á meðan á áfrýjunarfesti stendur.
Ingimundur Einarsson héraðsdómari kvað upp úrskurðinn.
Ú R S K U R Ð A R O R Ð :
Dómfelldi, X, sæti áfram gæsluvarðhaldi á meðan áfrýjunarfrestur varir, þó eigi lengur en til föstudagsins 29. febrúar 2008, klukkan 16:00.