Hæstiréttur íslands
Mál nr. 307/2009
Lykilorð
- Kærumál
- Gæsluvarðhald. 2. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008
|
|
Mánudaginn 8. júní 2009. |
|
Nr. 307/2009. |
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu(Jón
H. B. Snorrason saksóknari) gegn X (Jón
Egilsson hdl.) |
Kærumál.
Gæsluvarðhald. 2. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008.
Úrskurður héraðsdóms um að X skyldi gert að sæta
áfram gæsluvarðhaldi, nú á grundvelli 2. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008 um
meðferð sakamála, var staðfestur.
Dómur Hæstaréttar.
Mál þetta dæma
hæstaréttardómararnir Jón Steinar Gunnlaugsson og Hjördís Hákonardóttir og
Viðar Már Matthíasson settur hæstaréttardómari.
Varnaraðili skaut málinu til Hæstaréttar með kæru 4. júní 2009, sem barst réttinum ásamt kærumálsgögnum degi síðar. Kærður er úrskurður Héraðsdóms Reykjavíkur 4. júní 2009, þar sem varnaraðila var gert að sæta áfram gæsluvarðhaldi allt til fimmtudagsins 2. júlí 2009 klukkan 16. Kæruheimild er í l. lið 1. mgr. 192. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála. Varnaraðili krefst þess aðallega að hinn kærði úrskurður verði felldur úr gildi en til vara að gæsluvarðhaldi verði markaður skemmri tími.
Sóknaraðili krefst staðfestingar hins kærða úrskurðar.
Í greinargerð sóknaraðila fyrir Hæstarétti er vísað til þess að gagnaöflun standi enn yfir í máli því sem varnaraðili er grunaður um aðild að. Þetta hefur ekki þýðingu fyrir kröfu sóknaraðila, sem er aðeins reist á 2. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008. Þá er í málatilbúnaði sóknaraðila endurtekið vísað til þess að rökstuddur grunur beinist að varnaraðila um þátttöku í brotinu. Skilyrði gæsluvarðhalds samkvæmt 2. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008 er að sterkur grunur leiki á að sakborningur hafi framið það afbrot sem um ræðir og uppfyllt séu skilyrði ákvæðisins að öðru leyti.
Með vísan til forsendna hins kærða úrskurðar verður hann staðfestur.
Dómsorð:
Hinn kærði úrskurður er staðfestur.
Úrskurður
Héraðsdóms Reykjavíkur 4. júní 2009.
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu hefur krafist þess
að Héraðsdómur Reykjavíkur úrskurði að kærða, X, kt. [...], verði áfram gert að
sæta gæsluvarðhaldi, allt til fimmtudagsins 2. júlí 2009, kl. 16:00.
Í greinargerð lögreglu kemur fram að lögreglustjórinn á
höfuðborgarsvæðinu hafi til rannsóknar ætlað stórfellt fíkniefnabrot. Þann 18. apríl 2009 hafi lögreglu borist
upplýsingar um að seglskútu sé sigldi eins og í átt til lands. Hafi sama dag verið fylgst með ferðum
þriggja manna á tveimur bílum sem hafi verið staddir á Djúpavogi, en þeir hafi
verið með slöngubát með utanborðsvél með sér.
Síðar hafi komið í ljós að tveir af mönnunum og báturinn hafi verið
horfnir en einn mannanna var á ferð um Djúpavog.
Hafi um kvöldið sést til ferða slöngubátsins, þar sem
honum hafi verið siglt inn í höfn í Gleðivík, vestan við aðalhöfnina á
Djúpavogi. Sá mannanna sem hafði verið
á ferð um Djúpavog kom akandi að höfninni þar sem báturinn kom að landi. Voru töskur teknar út úr bátnum og þeim
komið fyrir í bifreiðinni. Bifreiðinni
var í framhaldinu ekið á brott. Við
Höfn var bifreiðin stöðvuð og var ökumaður bifreiðarinnar Y. Í bifreiðinni voru
töskur sem inniheldu verulega mikið magn af ætluðum fíkniefnum, um 109 kg af
efnum sem hafa gefið svörun hjá tæknideild lögreglustjórans á
höfuðborgarsvæðinu sem fíkniefni; amfetamín, MDMA, hass og marihuana.
Slöngubátnum hafi verið siglt úr höfninni í Gleðivík og
inn í höfnina á Djúpavogi. Fylgst var
með tveimur mönnum sem voru um borð í bátnum og voru þeir síðar um kvöldið
handteknir á bifreiðinni [...].
Ökumaður var Z og farþegi X.
X hafi borið um hjá lögreglu að meðkærði Z hafi beðið
hann að koma með sér í köfunar- og veiðiferð út á land. Hafi hann beðið X að útvega jeppa til
ferðarinnar. Þegar til kom hafi þeir
ekið á Djúpavog og sjósettu bát er var með í för daginn eftir. Hafi þeir svo siglt út frá Djúpavogi að
skútu, þaðan sem þeir móttöku nokkrar töskur.
Hafi Z sagt að töskurnar innihéldu stera.
Rannsókn þessa máls, sem sé mjög umfangsmikil, hafi miðað
ágætlega. Lögregla miði nú að því að finna út hver/hverjir eru eigendur hinna
ætluðu fíkniefna sem haldlögð voru. Rannsaka þarf þætti er snúa að aðdraganda
brotsins, skipulagningu og fjármögnun. Gagnaöflun er í fullum gangi og hafa nú
þegar verið sendar út réttarbeiðnir þar sem óskað sé eftir aðstoð erlendra
yfirvalda við ýmsa þætti er snúa að rannsókninni. Sem stendur hafa ekki öll
gögn borist lögreglu erlendis frá en munu berast á næstunni. Þá liggi einnig
fyrir mikil vinna við úrvinnslu þeirra gagna sem þegar liggja fyrir.
Kærði þyki vera undir sterkum rökstuddum grun um aðild að
stórfelldu fíkniefnabroti. Kærði hafi sætt gæsluvarðhaldi frá 19. apríl sl. en
með úrskurði héraðsdóms frá 19. apríl 2009 nr. R-140/2009 hafi kærði verið
úrskurðaður í gæsluvarðhald á grundvelli a- liðar 1. mgr. 95. gr. laga um
meðferð sakamála nr. 88/2008, til 11. maí sl. Sá úrskurður var staðfestur Með
úrskurði héraðsdóms nr. R-184/2009 þann 11. maí sl. var kærði úrskurðaður í
áframhaldandi gæsluvarðhald, einnig á grundvelli a-liðar 1. mgr. 95. gr. laga
nr. 88/2008, til 29. maí sl. Sá úrskurður var staðfestur með dómi Hæstaréttar
nr. 234/2009. Með úrskurði héraðsdóms nr. 227/2009 þann 29. maí var kærði
úrskurðaður í áframhaldandi gæsluvarðhald til 5. júní, á grundvelli a-liðar 1.
mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008.
Meint aðild kærða þyki mikil en hún sé að minnsta kosti
talin tengjast móttöku fíkniefnanna hér á landi. Einnig er lagt til grundvallar
að um er að ræða mjög mikið magn fíkniefna. Nær öruggt þykir að fíkniefnin hafi
átt að fara í sölu og dreifingu til ótiltekins fjölda manna hér á landi. Hið
meinta brot kærða þykir mjög alvarlegt. Með tilliti til hagsmuna almennings
þykir þannig nauðsynlegt að kærði sæti áfram gæsluvarðhaldi á meðan mál hans er
til meðferðar en telja verður að ef sakborningur, sem orðið hefur uppvís að
jafn alvarlegu broti og kærði, gangi laus áður en máli lýkur með dómi þá valdi
það hneykslun í samfélaginu og særi réttarvitund almennings. Staða kærða í
málinu þyki sambærilega stöðu sakborninga í öðrum svipuðum málum, sbr. mál
Hæstaréttar nr. 635/2007, 376/2006, 377/2006, 378/2006, 154/2006, 368/2005,
93/2005, 488/2004, 269/2004, 417/2000 og 471/1999, þar sem sakborningum hefur
verið gert að sæta gæsluvarðhaldi fram að uppkvaðningu dóms þegar legið hefur
fyrir rökstuddur grunur um beina aðild að innflutningi að miklu magni fíkniefna
í ágóðaskyni. Ekki er talin ástæða til að ætla að refsimat og réttarvitund
almennings í slíkum málum hafi breyst frá því téðir dómar voru uppkveðnir, og
er talið að skilyrðum 2. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála sé
fullnægt í því máli sem hér um ræði.
Til rannsóknar er ætlað brot gegn 173. gr. a almennra
hegningarlaga nr. 19/1940 ásamt síðari breytingum, sem geti varðað allt að 12
ára fangelsi. Um heimild til gæsluvarðhalds er vísað til 2. mgr.
95. gr. laga um meðferð sakamála nr. 88/2008.
Með vísan til þess sem fram kemur í greinargerð lögreglustjóra og þess sem rannsóknargögn bera með sér er fallist á að kærði sé undir sterkum grun um að hafa átt aðild að broti á 173. gr. a hegningarlaga. Brot þetta getur varðað allt að 12 ára fangelsisrefsingu. Með því að um er að ræða stórfellt fíkniefnabrot er fallist á það með lögreglustjóra að skilyrði 2. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008 séu uppfyllt. Eins og hér stendur á verður samkvæmt framansögðu fallist þá kröfu lögreglustjóra að kærða verði gert að sæta áfram gæsluvarðhaldi eins og nánar greinir í úrskurðarorði.
Allan V. Magnússon héraðsdómari kvað upp úrskurðinn.
Úrskurðarorð:
Kærði, X, kt. [...], skal sæta áfram að gæsluvarðhaldi,
allt til fimmtudagsins 2. júlí 2009, kl. 16:00.