Hæstiréttur íslands

Mál nr. 595/2017

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Katrín Ólöf Einarsdóttir aðstoðarsaksóknari)
gegn
X (Björgvin Jónsson hrl.)

Lykilorð

  • Kærumál
  • Gæsluvarðhald
  • Útlendingur

Reifun

Staðfestur var úrskurður héraðsdóms um að X skyldi sæta gæsluvarðhaldi á grundvelli a. og b. liðar 1. mgr. 115. gr. laga nr. 80/2016 um útlendinga.

Dómur Hæstaréttar.

Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Helgi I. Jónsson, Greta Baldursdóttir og Karl Axelsson.

Varnaraðili skaut málinu til Hæstaréttar með kæru 18. september 2017, sem barst réttinum ásamt kærumálsgögnum 19. sama mánaðar. Kærður er úrskurður Héraðsdóms Reykjavíkur 18. september 2017, þar sem varnaraðila var gert að sæta áfram gæsluvarðhaldi allt til mánudagsins 2. október 2017 klukkan 16. Kæruheimild er í l. lið 1. mgr. 192. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála. Varnaraðili krefst þess að hinn kærði úrskurður verði felldur úr gildi.

Sóknaraðili krefst staðfestingar hins kærða úrskurðar.

Með vísan til forsendna hins kærða úrskurðar verður hann staðfestur.

Samkvæmt 1. mgr. 38. gr. laga nr. 88/2008 greiðist úr ríkissjóði þóknun skipaðs verjanda varnaraðila, sem ákveðin verður að meðtöldum virðisaukaskatti eins og í dómsorði greinir.

Dómsorð:

Hinn kærði úrskurður er staðfestur.

Þóknun verjanda varnaraðila, Björgvins Jónssonar hæstaréttarlögmanns, vegna meðferðar málsins fyrir Hæstarétti, 124.000 krónur, greiðist úr ríkissjóði.    

 

 

Úrskurður Héraðsdóms Reykjavíkur mánudaginn 18. september 2017

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu hefur krafist þess að Héraðsdómur Reykjavíkur úrskurði að útlendingur sem kveðst heita X, uppgefinn fæðingardagur [...] verði með úrskurði Héraðsdóms Reykjavíkur gert að sæta áframhaldandi gæsluvarðhaldi allt til mánudagsins 2. október 2017, kl. 16:00.

Í greinargerð lögreglu kemur fram að X hafi sótt um hæli á Íslandi í september 2015 og hafi þá kvaðst heita X og vera frá Marokkó, m.a. hafi komið fram í viðtali hans að hann kvaðst hafa setið í fangelsi í Marokkó í fimm mánuði vegna þátttöku sinnar í andspyrnuhreyfingu. X hafi staðfest nafn sitt í viðtalinu og við lögreglu. Búið sé að taka ákvörðun um hælisumsókn X og hafi honum verið synjað um vernd síðast með ákvörðun kærunefndar útlendingamála þann 26. janúar 2017. Unnið sé að því brottvísa X frá Íslandi og embætti Ríkislögreglustjóra sé í því skyni í samskiptum við yfirvöld í móttökulandinu. X hafi verið úrskurðaður í gæsluvarðhald til dagsins í dag með úrskurði Héraðsdóms Reykjavíkur nr. R-296/2017.

             Lögregla hafi ítrekað haft afskipti af X undanfarna mánuði vegna m.a. hótana, ógnandi og annarlegrar hegðunar hans, ofbeldis og fíkniefnalagabrota. Í kjölfar þess hafi farið fram ógnarmat á X hjá embætti Ríkislögreglustjóra þar sem m.a. hafi verið óskað eftir upplýsingum frá erlendum löggæslustofnunum um X. Við gerð matsins hafi komi í ljós að X hafi birt mynd á Facebooksíðu sinni þann 1. ágúst sl. tengda hryðjuverkasamtökunum Ríki íslams og ritað Ísland undir myndina.

Einnig hafi komi í ljós að X hafi ekki gefið upp eftirnafn sitt við íslensk yfirvöld, eftirnafn hans muni vera X og hann hafi því villt á sér heimildir með því að leyna eftirnafni sínu. Þá hafi einnig komið fram upplýsingar að hann hefði gefið upp nokkur mismunandi nöfn og útgáfur af nafni sínu og annað fæðingarár, m.a. í Noregi, Belgíu, Hollandi og Frakklandi. Þá hafi fylgt upplýsingar frá alþjóðlegum löggæslustofnunum um að X hafi gerst sekur um þjófnaði í Noregi á árinu 2014, notað fölsuð ferðaskilríki í Hollandi, brotið útlendingalög í Frakklandi á árinu 2008 og sé hann skráður í málaskrá lögreglu í Marokkó fyrir ofbeldi og hótanir í garð foreldra sinna árið 2012. Niðurstaða ógnarmats RLS hafi verið að X sé brotamaður og fullt tilefni til að lögregla ynni í hans málum vegna ógnandi og undarlegs atferlis hans.

             Mál sem séu til meðferðar og rannsóknar lögreglu undanfarna mánuði séu eftirfarandi:

[...] – 6. júlí 2017.

Lögreglu hafi borist tilkynning um kærða þar sem hann hafi verið nakinn og blóðugur og gengið berserksgang.  Kærði hafi m.a. brotið topplúgu á bifreið og tekið um andlit manns, rifið af honum gleraugun og klínt blóði í fötin hans. Kærði hafi sagst hafa neytt lyfja og reykt maríjúana áður en þetta gerðist og því hafi hann ekki getað ráðið við sig og ekki geta útskýrt hegðun sína.

[...] – 2. ágúst 2017.

Kærði hafi verið tekinn við að reykja maríjúana.  Efnin hafi verið tekin af honum.

[...] – 2. ágúst 2017.

Tilkynnt hafi verið um kærða þar sem hann hafi verið með óspektir í íbúð fyrir hælisleitendur. Hafi hann neytt mikils magns af áfengi og neytt maríjúana.

[...] – 10. ágúst 2017.

Starfsmaður hjá hælisteymi Reykjavíkurborgar hafi tilkynnt um undarlega hegðun hælisleitanda og talið hann vera í geðhvörfum.  Hafi kærði þar brotið rúðu og viðurkenndi það þar sem verkamenn hafi verið að vinna í húsinu fyrr um daginn.

[...] – 10. ágúst 2017.

Starfsmaður hjá hælisteymi Reykjavíkurborgar hafi tilkynnt  um fíkniefnaneyslu kærða á heimili fyrir hælisleitendur á [...].  Þá hafi starfsmaðurinn jafnframt viljað leggja fram kæru á hendur kærða fyrir eignaspjöll, en kærði hafi eyðilagt fánastöng einhverjum dögum áður. Kærði hafi játað vörslur kannabisefna sem hafi fundist á honum sem og eignaspjöllin.

[...] – 16. ágúst 2017.

Starfsmaður í húsnæði fyrir hælisleitendur hafi tilkynnt um kærða.  Hafi starfsmenn verið að vísa honum úr húsnæðinu en hann hafi einnig vörslur fíkniefna.  Hafi hann verið að reykja maríjúana þegar lögreglan kom á vettvang og kastaði frá sér poka með efnum í, sem lögreglan hafi handlagt.

[...] – 16. ágúst 2017.

Þá hafi verið tilkynnt um mann með ólæti á samkomustaðnum Ground Zero, Grensásvegi 16. Hafi kærði verið þar í annarlegu ástandi, æstur og gestir og starfsfólk Ground Zero hafi verið hrætt við hann. Hafi hann verið handtekinn fyrir brot á lögreglusamþykkt Reykjavíkurborgar.

[...] – 24. ágúst 2017.

Starfsmaður hælissviðs hafi tilkynnt um að kærði hafi sagt við sig: „Perhaps I need to get a gun and kill somebody to be able to get in jail, I want to be in jail“.  Þó hafi kærði verið yfirvegaður þegar hann hafi látið þessi orð falla.

[...] – 2. september 2017.

Sjúkrabíll hafi verið fenginn til að aðstoða kærða, sem hafi verið með brjóstverk.  Í sjúkrabílnum á leiðinni á slysadeild hafi hann sýnt af sér afbrigðilega hegðun sökum vímuástands og ekki hafi verið hægt að sinna honum á slysadeild vegna þessa. Hafi hann verið vistaður í fangaklefa. Í fangaklefa hafi hann neitað að fá föt til að klæðast eða mat og einungis drukkið eitt vatnsglas.

[...] – 2. september 2017

Tilkynnt um mann á sölustað Dominos Pizza í Skeifunni. Var þar um kærða að ræða. Hafði hann beðið um að fá að fara á salerni en ekki fengið. Varð hann þá ósáttur og heimtaði að fá gaffal. Var honum einnig neitað um það og hótaði hann þá að eyðileggja posa á staðnum ef hann fengi ekki gaffal.  Þegar honum var aftur neitað, reif hann í snúrur sem voru í posum í afgreiðslunni og eyðilagði tvo posa.  Þá fór hann út og reif rúðuþurrku af bifreiðinni [...] sem stóð fyrir utan staðinn. Er lögregla kom á staðinn var hann farinn af vettvangi, en fundu lögreglumenn hann í Hagkaup, Skeifunni. Sáu þeir hann ganga rakleiðis framhjá afgreiðslukössum verslunarinnar. Handtóku þeir hann, en við handtökuna datt svitalyktareyðir undan úlpu hans og vildi kærði meina að lögreglumenn hefðu komið þessu fyrir á honum. Við handtökuna spurði kærði lögreglumenn hvort þeir væru ekki vopnaðir byssum og hvort þeir gætu ekki skotið hann.

Þá hafi einnig verið bókanir í lögreglukerfinu frá 30. ágúst til 1. september sl. þar sem lögregla hafi þurft að hafa afskipti af kærða vegna hegðunar hans, en hann hefi t.d. neitað að yfirgefa húsnæði Lofthostel, Bankastræti, verið með hótanir við starfsfólk og gesti tjaldsvæðisins í Laugardal og hótað öryggisverði Securitas sem starfi í þjónustumiðstöð fyrir hælisleitendur líkamsmeiðingum. Þá hafi kærði einnig verið handtekinn fyrir þjófnað á rakspíra þann 5. október 2015 í máli nr. [...]. Þá beri að geta þess að þar sem kærða hafi verið vísað úr húsnæði fyrir hælisleitendur fyrr í mánuðinum sökum hegðunar sé hann húsnæðislaus sem stendur.

Þann 1. september sl. hafi verið tekin ákvörðun á grundvelli a. og b. liðar 114. gr. um að kærða yrði gert að sæta tilkynningarskyldu á lögreglustöð, en honum hafði áður verið vísað úr húsnæði á vegum Útlendingastofnunar. Lögregla hafi þurft að hafa afskipti af kærða og handtaka hann vegna ástands og brota í tvígang þann 2. september sl. og þyki því ljóst að kærði léti ekki af hegðun sinni þrátt fyrir að reynt hafi verið að beita vægari úrræðum.

Að mati lögreglu séu skilyrði a. og b. liðar 115. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016 uppfyllt enda liggi fyrir að X hafi reynt að villa á sér heimildir með því að fela eftirnafn sitt, þá hafi hann sýnt af sér hegðun sem gefi til kynna að hann ógni almannahagsmunum bæði með ofbeldishneigðri hegðun, ógnandi og annarlegrar háttsemi og ítrekuðum hótunum gagnvart starfsmönnum og almennum borgurum. Talið sé fullt tilefni til að taka hótunum hans alvarlega, sem og ofbeldishegðun hans undanfarna mánuði, þar sem lögregla hafi margítrekað haft af honum afskipti. Vegna framangreinds sé að mati lögreglu nauðsynlegt að X verði gert að sæta gæsluvarðhaldi en ekki verði talið að vægari ráðstafanir hafi eða nái ætluðum tilgangi til að vernda almannahagsmuni og koma í veg fyrir ofbeldishegðun, sem og sjálfskaðandi hegðun, með vísan til 2. mgr. 115. gr. sömu laga.

 Með vísan til alls framangreinds, gagna málsins, a. og b. liðar 115. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016, sé þess beðist að krafan nái fram að ganga.

Niðurstaða:

         Með vísan til greinargerðar lögreglu, gagna málsins og þess sem rakið hefur verið er fallist á það mat lögreglu að skilyrði a. og b. liðar 115. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016 séu, uppfyllt. Þá er fallist á það mat lögreglu að nauðsynlegt sé að kærða verði gert að sæta gæsluvarðhaldi en ekki verður talið með vísan til hegðunar kærða í gær, sem rakin er í greinargerð lögreglu, að vægari ráðstafanir nái tilætluðum tilgangi til þess að vernda almannahagsmuni og koma í veg fyrir sjálfskaðandi hegðun, sbr. 2. mgr. 115. gr. sömu laga.

 Með vísan til alls framangreinds, gagna málsins og a. og b. liðar 115. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016, er fallist á kröfu lögreglu eins og hún er fram sett og nánar greinir í úrskurðarorði. Ekki þykja efni til að marka gæsluvarðhaldinu skemmri tíma.

Þóknun skipaðs verjanda kærða fyrir rekstur málsins hingað til og að meðtöldum virðisaukaskatti skal greidd úr ríkissjóði eins og nánar greinir í úrskurðarorði.

Ú R S K U R Ð A R O R Ð

Kærði, útlendingur sem kveðst heita X, uppgefinn fæðingardagur [...] skal sæta áframhaldandi gæsluvarðhaldi allt til mánudagsins 2. október 2017, kl. 16:00.

Þóknun verjanda kærða, Björgvins Jónssonar hrl., 168.640 krónur skal greidd úr ríkissjóði.

                                                                   Arngrímur Ísberg