Hæstiréttur íslands
Mál nr. 311/2002
Lykilorð
- Kærumál
- Viðurlagaákvörðun
- Kærufrestur
- Frávísun frá Hæstarétti
|
|
Mánudaginn 2. september 2002. |
|
Nr. 311/2002. |
Ákæruvaldið(Bogi Nilsson ríkissaksóknari) gegn Guðmundi Sveinbirni Brynjólfssyni (enginn) |
Kærumál. Viðurlagaákvörðun. Kærufrestur. Frávísun máls frá Hæstarétti.
Ákæruvaldið kærði til Hæstaréttar viðurlagaákvörðun héraðsdómara í máli þess gegn G. Hæstiréttur vísaði málinu frá þar sem kæran barst að liðnum þriggja sólarhringa kærufresti.
Dómur Hæstaréttar.
Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Markús Sigurbjörnsson, Árni Kolbeinsson og Gunnlaugur Claessen.
Sóknaraðili skaut málinu til Hæstaréttar með kæru 1. júlí 2002, sem barst réttinum ásamt kærumálsgögnum 8. sama mánaðar. Kærð er ákvörðun Héraðsdóms Reykjavíkur 12. júní 2002 um viðurlög varnaraðila í máli ákæruvaldsins á hendur honum. Af hálfu ákæruvalds er um kæruheimild vísað til 2. mgr. 124. gr. laga nr. 19/1991 um meðferð opinberra mála og þess krafist að viðurlagaákvörðun héraðsdómara verði ónýtt.
Varnaraðili hefur ekki látið málið til sín taka fyrir Hæstarétti.
Lögreglustjórinn í Reykjavík höfðaði mál þetta á hendur varnaraðila með ákæru 27. maí 2002, þar sem honum var gefið að sök umferðarlagabrot með því að hafa ekið tiltekinni bifreið 5. sama mánaðar undir áhrifum áfengis. Málið var þingfest fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur 12. júní 2002. Varnaraðili mætti á dómþingi og gekkst við broti sínu. Færði héraðsdómari í þingbók að sækjandi hafi þá lagt til að málinu yrði lokið með viðurlagaákvörðun samkvæmt 1. mgr. 124. gr. laga nr. 19/1991. Hafi varnaraðili samþykkt þau viðurlög, sem sækjandinn lagði til, og dómari talið þau hæfileg. Málinu var því lokið með þeirri ákvörðun að varnaraðili skyldi greiða 130.000 krónur í sekt en sæta ella fangelsi í 24 daga, hann skyldi sviptur ökurétti í eitt ár og greiða 12.500 krónur í sakarkostnað. Ríkissaksóknari kærði þessa ákvörðun til Hæstaréttar. Í rökstuðningi fyrir kærunni vísaði hann til þess að við meðferð málsins fyrir héraðsdómi hafi legið fyrir sakavottorð varnaraðila, þar sem kom fram að 7. maí 1998 hafi hann gengist undir viðurlög hjá sýslumanninum í Kópavogi fyrir brot gegn 1. mgr., sbr. 3. mgr. 45. gr. umferðarlaga nr. 50/1987. Við ákvörðun viðurlaga nú hafi sýnilega ekki verið tekið tillit til ítrekunaráhrifa af því broti og viðurlög varnaraðila því orðið fjarstæð.
Meðal gagna málsins fyrir Hæstarétti er bréf frá embætti ríkissaksóknara til Héraðsdóms Reykjavíkur 25. júní 2002, þar sem segir eftirfarandi: „Vegna áfrýjunar óskast frumgögn ofangreinds máls og endurrit dómsmeðferðar send embættinu eins fljótt og kostur er.“ Af þessu er ljóst að ríkissaksóknara var að minnsta kosti á þeim degi orðið kunnugt um hina kærðu ákvörðun. Samkvæmt 2. mgr. 144. gr. laga nr. 19/1991 er kærufrestur þrír sólarhringar frá því að kæranda varð kunnugt um þá úrlausn, sem hann vill kæra. Gildir sá frestur meðal annars um slíka kæru ríkissaksóknara, sem um ræðir í 2. mgr. 124. gr. sömu laga. Kæra í máli þessu barst Héraðsdómi Reykjavíkur 4. júlí 2002. Með því að kærufrestur var samkvæmt framansögðu þá liðinn verður að vísa málinu sjálfkrafa frá Hæstarétti.
Dómsorð:
Máli þessu er vísað frá Hæstarétti.
Ákvörðun Héraðsdóms Reykjavíkur 12. júní 2002
Ár 2002, miðvikudaginn 12. júní, er dómþing Héraðsdóms Reykjavíkur sett og haldið í Dómhúsinu við Lækjartorg af Jóni Finnbjörnssyni héraðsdómara. Fyrir er tekið: Sakamálið nr. 1706/2002: Ákæruvaldið gegn Guðmundi Sveinbirni Brynjólfssyni.
Af hálfu ákæruvaldsins sækir þing Jóhann Hauksson fulltrúi lögreglustjórans í Reykjavík.
Kl. 10.25 mætir í dóminn ákærði, Guðmundur Sveinbjörn Brynjólfsson, kt. 201164-4439, Safamýri 47, Reykjavík.
Sækjandinn gerir grein fyrir ákæru.
Gætt er ákvæða 3. mgr. 32. gr. laga nr. 19/1991.
Ákærði óskar ekki eftir að halda uppi vörnum í málinu og óskar ekki eftir að sér verði skipaður verjandi. Ákærði játar að hafa framið það brot sem hann er ákærður fyrir og kveður atvikalýsingu í ákæru rétta.
Brot ákærða varðar við 1. mgr., sbr. 3. mgr. 45. gr., sbr. 1. mgr. 100. gr. umferðarlaga nr. 50/1987, sbr. 1. gr. laga nr. 48/1997 og 3. gr. laga nr. 57/1997. Sækjandi leggur til að málinu verði lokið með viðurlagaákvörðun dómara samkvæmt 1. mgr. 124. gr. laga nr. 19/1991. Ákærði samþykkir þau viðurlög sem sækjandi leggur til og telur dómari þau hæfileg. Málinu er lokið með þessari
Á k v ö r ð u n
Ákærði, Guðmundur Sveinbjörn Brynjólfsson, greiði 130.000 krónur í sekt til ríkissjóðs innan fjögurra vikna, en sæti ella fangelsi í 24 daga.
Ákærði er sviptur ökurétti 1 ár frá deginum í dag að telja.
Ákærði greiði 12.500 krónur í sakarkostnað.
Ákærða eru kynnt ítrekunaráhrif þessarar viðurlagaákvörðunar.