Hæstiréttur íslands

Mál nr. 566/2002


Lykilorð

  • Kærumál
  • Gæsluvarðhald. 2. mgr. 103. gr. laga nr. 19/1991


Föstudaginn 27

 

Föstudaginn 27. desember 2002.

Nr. 566/2002.

Lögreglustjórinn í Reykjavík

 

(Egill Stephensen saksóknari)

 

gegn

 

X

 

(Ólafur Sigurgeirsson hrl.)

 

Kærumál. Gæsluvarðhald. 2. mgr. 103. gr. laga nr. 19/1991.

X var gert að sæta gæsluvarðhaldi á grundvelli 2. mgr. 103. gr. laga nr. 19/1991.

 

Dómur Hæstaréttar.

Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Markús Sigurbjörnsson, Árni Kolbeinsson og Gunnlaugur Claessen.

Varnaraðili skaut málinu til Hæstaréttar með kæru 20. desember 2002. Kærumálsgögn bárust réttinum 23. sama mánaðar. Kærður er úrskurður Héraðsdóms Reykjavíkur 20. desember 2002, þar sem varnaraðila var gert að sæta gæsluvarðhaldi allt til föstudagsins 7. febrúar 2003. Kæruheimild er í 1. mgr. 142. gr. laga nr. 19/1991 um meðferð opinberra mála. Varnaraðili krefst þess aðallega að hinn kærði úrskurður verði felldur úr gildi, en til vara að gæsluvarðhaldi verði markaður skemmri tími.

Sóknaraðili krefst þess að úrskurður héraðsdómara verði staðfestur.

Með vísan til forsendna hins kærða úrskurðar verður hann staðfestur.

Dómsorð:

Hinn kærði úrskurður er staðfestur.

 

 

Úrskurður Héraðsdóms Reykjavíkur 20. desember 2002

                                Lögreglustjórinn í Reykjavík hefur krafist þess að kærða, X, verði áfram gert að sæta gæsluvarðhaldi meðan máli hans er ekki lokið en þó eigi lengur en til föstudagsins 7. febrúar 2003 klukkan 16. 

                [...]

Kærði er undir sterkum grun um að hafa framið brot sem getur varðað allt að 12 ára fangelsi, sbr. 173. gr. a almennra hegningarlaga nr. 19/1940, sbr. 1. gr. laga nr. 32/2001. Er um mjög alvarlegt brot að ræða sem lýtur að innflutningi á miklu magni fíkniefna í hagnaðarskyni. Ber þar sérstaklega að hafa í huga aðild kærða að innflutningi tæpra 900 g af geysisterku afmetamíni í [...]. Kærði var dæmdur í 4 ára fangelsi í [...] fyrir stórfelld fíkniefnabrot. Lauk hann afplánun [...] og er á reynslulausn af 480 daga eftirstöðvum refsingar skilorðsbundið í 2 ár. Brotastarfsemi sú, sem hér um ræðir, hófst skömmu eftir að kærði losnaði úr fangelsi. Þykir ljóst að kærði hefur ekki látið þungan refsidóm sér að kenningu verða. Þegar framangreint er virt er það mat dómsins að gæsluvarðhald sé nauðsynlegt með tilliti til almannahagsmuna. Verður því að telja að fullnægt sé skilyrðum 2. mgr. 103. gr. laga nr. 19/1991 fyrir gæsluvarðhaldi yfir kærða. Er krafan tekin til greina eins og hún er fram sett og nánar greinir í úrskurðarorði.

Helgi I. Jónsson héraðsdómari kvað upp úrskurðinn.

Úrskurðarorð:

                Kærði, X, sæti gæsluvarðhaldi meðan máli hans er ólokið en þó eigi lengur en til föstudagsins 7. febrúar 2003 klukkan 16.