Hæstiréttur íslands
Mál nr. 520/2017
Lykilorð
- Kærumál
- Vistun á stofnun
Reifun
Dómur Hæstaréttar.
Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Helgi I. Jónsson, Eiríkur Tómasson og Ólafur Börkur Þorvaldsson.
Varnaraðili skaut málinu til Hæstaréttar með kæru 21. ágúst 2017 sem barst réttinum ásamt kærumálsgögnum samdægurs. Kærður er úrskurður Héraðsdóms Reykjaness 18. ágúst 2017 þar sem varnaraðila var gert að sæta vistun á viðeigandi stofnun allt til föstudagsins 15. september 2017 klukkan 16. Kæruheimild er í l. lið 1. mgr. 192. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála. Varnaraðili krefst þess að hinn kærði úrskurður verði felldur úr gildi, en að öðrum kosti verði honum markaður skemmri tími.
Sóknaraðili krefst staðfestingar hins kærða úrskurðar.
Samkvæmt 5. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008 má ekki úrskurða sakborning yngri en 18 ára í gæsluvarðhald nema telji megi víst að önnur úrræði sem vísað er til í 100. gr. laganna eða mælt er fyrir um í barnaverndarlögum nr. 80/2002 geti ekki komið í stað þess. Í samræmi við þetta lagaákvæði og að öðru leyti með vísan til forsendna hins kærða úrskurðar verður hann staðfestur, þó þannig að rétt þykir að vistun varnaraðila standi ekki lengur en til 14. september 2017 klukkan 16, sbr. 1. mgr. 97. gr. og 1. mgr. 100. gr. laga nr. 88/2008.
Dómsorð:
Varnaraðili, X, sæti vistun á viðeigandi stofnun allt til fimmtudagsins 14. september 2017 klukkan 16.
Úrskurður Héraðsdóms Reykjaness föstudaginn 18. ágúst 2017
Héraðssaksóknari hefur í dag krafist þess að Héraðsdómur Reykjaness úrskurði að X kt. [...], verði gert að sæta áframhaldandi gæsluvarðhaldi á meðan mál hans er til meðferðar fyrir héraðsdómi, þó eigi lengur en til föstudagsins 15. september 2017, kl. 16:00.
Í greinargerð með kröfunni segir að embætti héraðssaksóknara hafi þann 15. júní sl. borist rannsóknargögn í ofangreindu máli sem varða meinta tilraun ákærða X til manndráps. Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu hafi verið tilkynnt um það að kvöldi 3. apríl sl. að maður hefði verið stunginn í bakið með hnífi fyrir utan veitingastaðinn [...] í [...]. Ákærði og félagi hans hafi verið handteknir skömmu síðar. Ákærði hafi viðurkennt við skýrslutöku hjá lögreglu að hafa stungið brotaþola með hnífi fyrir utan veitingastaðinn og vísað lögreglu á þann stað þar sem hann hafði losað sig við hnífinn. Þá liggi fyrir framburðir vitna að atburðarásinni auk þess sem eftirlitsmyndavélar úr útibúi [...] sýni atvik ágætlega.
Með ákæru héraðssaksóknara, dags. 22. júní sl., sé ákærða gefið að sök tilraun til manndráps, með því að hafa að kvöldi mánudagsins 3. apríl 2017, utandyra við veitingastaðinn [...] í [...], stungið A með hnífi í bakið vinstra megin með þeim afleiðingum að A hlaut lífshættulega blæðingu í brjósthol og í kviðarhol, djúpan skurð á vinstra nýra og minniháttar loftbrjóst. Við þingfestingu málsins þann [...] júlí sl. hafi ákærði neitað sök og muni aðalmeðferð í málinu fara fram [...] september n.k.
Ákærði hafi sætt gæsluvarðhaldi á grundvelli almannahagsmuna og vistunar á viðeigandi stofnun frá 4. apríl sl. til dagsins í dag, sbr. síðast úrskurð Héraðsdóms Reykjanes í máli nr. R-384/2017. Að mati ákæruvaldsins sé ákærði undir sterkum grun um að hafa framið brot sem varði allt að ævilöngu fangelsi en hann hafi eins og áður segir játað að hafa stungið brotaþola. Með hliðsjón af því og með tilliti til almannahagsmuna sé það mat ákæruvaldsins að nauðsynlegt sé að tryggja að ákærði gangi ekki laus á meðan mál hans er til meðferðar fyrir dómstólum.
Með vísan til aldurs ákærða, sem sé einungis 17 ára, telji ákæruvaldið að forsendur séu til þess að í stað gæsluvarðhalds verði honum gert að sæta vistun á viðeigandi stofnun, sbr. 2. mgr. 95. gr. og 100. gr. laga um meðferð sakamála.
Samkvæmt framansögðu hefur ákærði játað hjá lögreglu að hafa stungið brotaþola með hnífi. Að mati lögreglu var um lífshættulegan áverka að ræða. Ákæra hefur nú verið gefin út á hendur ákærða og er aðalmeðferð í máli hans fyrirhuguð [...] september nk. Með tilliti til almannahagsmuna er á það fallist að brot ákærða sé þess eðlis að nauðsynlegt sé að tryggja að hann gangi ekki laus á meðan mál hans er til meðferðar fyrir dómi. Að þessu og að gögnum sakamálsins virtum verður að fallast á það með héraðssaksóknara að skilyrði séu til að ákærði sæti áframhaldandi gæsluvarðhaldi á grundvelli almannahagsmuna, sbr. 2. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála. Vegna ungs aldurs ákærða þykir rétt að beita heimild 1. mgr. 100. gr. laga nr. 88/2008 og mæla fyrir um vistun kærða á viðeigandi stofnun, svo sem nánar greinir í úrskurðarorði.
Úrskurð þennan kveður upp Gunnar Aðalsteinsson héraðsdómari.
Úrskurðarorð:
Ákærða, X, er gert að sæta vistun á viðeigandi stofnun allt til föstudagsins 15. september 2017, kl. 16:00.