Hæstiréttur íslands
Mál nr. 54/2004
Lykilorð
- Kærumál
- Gæsluvarðhald. A. liður 1. mgr. 103. gr. laga nr. 19/1991
|
|
Þriðjudaginn 3. febrúar 2004. |
|
Nr. 54/2004. |
Sýslumaðurinn á Selfossi (Ásta Stefánsdóttir fulltrúi) gegn X (Guðjón Ægir Sigurjónsson hdl.) |
Kærumál. Gæsluvarðhald. A. liður 1. mgr. 103. gr. laga nr. 19/1991.
Hæstiréttur staðfesti úrskurð héraðsdóms um að X skyldi sæta gæsluvarðhaldi á grundvelli a. liðar 1. mgr. 103. gr. laga nr. 19/1991 um meðferð opinberra mála.
Dómur Hæstaréttar.
Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Gunnlaugur Claessen, Árni Kolbeinsson og Ingibjörg Benediktsdóttir.
Varnaraðili skaut málinu til Hæstaréttar með kæru 31. janúar 2004. Kærumálsgögn bárust réttinum 2. febrúar sama árs. Kærður er úrskurður Héraðsdóms Suðurlands 31. janúar 2004, þar sem varnaraðila var gert að sæta gæsluvarðhaldi allt til miðvikudagsins 4. febrúar 2004. Kæruheimild er í 1. mgr. 142. gr. laga nr. 19/1991 um meðferð opinberra mála. Varnaraðili krefst þess að hinn kærði úrskurður verði felldur úr gildi. Þá krefst hann kærumálskostnaðar.
Sóknaraðili krefst þess að úrskurður héraðsdómara verði staðfestur.
Með vísan til forsendna hins kærða úrskurðar verður hann staðfestur.
Kærumálskostnaður verður ekki dæmdur.
Dómsorð:
Hinn kærði úrskurður er staðfestur.
Úrskurður Héraðsdóms Suðurlands 31. janúar 2004.
Lögreglustjórinn á Selfossi hefur krafist þess að X, nú í haldi lögreglunnar á Selfossi, verði á grundvelli a-liðar 1. mgr. 103. gr. laga um meðferð opinberra mála nr. 19/1991 gert að sæta gæsluvarðhaldi allt til mánudagsins 9. febrúar 2004, kl. 16:00.
[...]
Kærði er grunaður um aðild að tilraun til íkveikju og fjársvika, sbr. 164. og 248. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, liggur fangelsisrefsing við brotunum ef sök sannast. Kærði hefur neitað sakargiftum, en rannsóknargögn þau sem fyrir liggja veita sterka vísbendingu um aðild hans að málinu. Kærði mætti samkvæmt boðun á lögreglustöð í Reykjavík og var handtekinn þar. Grunur leikur á að tilraun hafi verið gerð til íkveikju í tengslum við tryggingasvik og gat almannahætta stafað af háttseminni. Verður að fallast á það með fulltrúa lögreglustjóra að rannsóknargögn bendi til þess að kærði tengist meintum brotum. Hann er eigandi þeirrar eignar sem tilraun var gerð til að kveikja í. Verður að fallast á það með fulltrúa lögreglustjóra að rökstuddur grunur um aðild kærða að framangreindri háttsemi sé til staðar í málinu. Með hliðsjón af því að rannsókn málsins er á byrjunarstigi, meint brot eru alvarleg og kærði neitar sök, enn á eftir að yfirheyra nánar þá aðila sem því tengjast og vitni og afla frekari gagna, þá verður að telja að hætta sé á því að kærði geti torveldað rannsókn málsins fari hann frjáls ferða sinna, með því að hafa samband við aðra sem kunna að tengjast meintum brotum og hann hefur tengsl við og torvelda öflun gagna, þykja skilyrði a-liðar 1. mgr. 103. gr. laga nr. 19/1991 um meðferð opinberra mála því vera fyrir hendi og ber að taka til greina kröfu lögreglustjórans á Selfossi um að kærði sæti gæsluvarðhaldi, en hæfilegt þykir að marka því tíma til miðvikudagsins 4. febrúar n.k. kl. 16:00.
Hjördís Hákonardóttir héraðsdómari kvað upp úrskurðinn.
Ú R S K U R Ð A R O R Ð
Kærði, X, skal sæta gæsluvarðhaldi allt til miðvikudagsins 4. febrúar 2004, kl. 16:00.