Hæstiréttur íslands
Mál nr. 567/2016
Lykilorð
- Kærumál
- Gæsluvarðhald. A. liður 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008
Reifun
Dómur Hæstaréttar.
Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Ólafur Börkur Þorvaldsson, Helgi I. Jónsson og Karl Axelsson.
Varnaraðili skaut málinu til Hæstaréttar með kæru 8. ágúst 2016, sem barst réttinum ásamt kærumálsgögnum degi síðar. Kærður er úrskurður Héraðsdóms Reykjavíkur 8. ágúst 2016, þar sem varnaraðila var gert að sæta gæsluvarðhaldi allt til föstudagsins 12. ágúst 2016 klukkan 16 og einangrun meðan á því stendur. Kæruheimild er í l. lið 1. mgr. 192. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála. Varnaraðili krefst þess að hinn kærði úrskurður verði felldur úr gildi. Þá krefst hann kærumálskostnaðar.
Sóknaraðili krefst staðfestingar hins kærða úrskurðar.
Með vísan til forsendna hins kærða úrskurðar verður hann staðfestur.
Kærumálskostnaður verður ekki dæmdur, sbr. 3. mgr. 220. gr. laga nr. 88/2008.
Dómsorð:
Hinn kærði úrskurður er staðfestur.
Úrskurður Héraðsdóms Reykjavíkur 8. ágúst 2016
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu hefur krafist þess að Héraðsdómur Reykjavíkur úrskurði að X, kennitala [...], verði gert að sæta gæsluvarðhaldi allt til mánudagsins 15. ágúst nk. kl. 16.00. Þá er þess krafist að kærða verði gert að sæta einangrun á meðan á gæsluvarðhaldinu stendur.
Í greinargerð aðstoðarsaksóknara kemur fram að lögreglan hafi síðastliðið föstudagskvöld verið kölluð að [...] að [...] í Reykjavík um kl. 20.42, þar sem tilkynnt hafi verið um tvo aðila sem skotið hefðu úr haglabyssu á [...] bifreið. Vitni hafi borið að þau hefðu heyrt tvo skothvelli og að aðilar hefðu hlaupið bak við [...]. Einnig kvæðust vitni hafa séð átök milli karlmanna. Lýstu vitnin öðrum aðilanum sem sköllóttum manni í rauðum bol og svörtum buxum. Hann hefði verið með haglabyssu með stuttu hlaupi og haft byssuna í íþróttatösku. Hann hafi síðan hlaupið á bak við [...].
Annað vitni, sem búi í húsnæði við [...] og með svalir sem snúi að porti þar á bak við, kvæðist hafa séð karlmann, þrekinn, í rauðum bol og með íþróttatösku meðferðis, hlaupa í átt að [...] og farið þar inn í húsnæðið, [...], sem sé heimili móður kærða og meðkærða. Lögregla hafi síðar fengið tilkynningu frá aðila að [...] um að byssa hefði fundist í rennu fyrir rusl blokkarinnar og telji lögregla sig hafa fundið ætlað skotvopn, sem notað hafi verið við árásina.
Þá er þess getið að við leit lögreglu beint fyrir aftan [...] við [...] hafi fundist ónotað skothylki. Annað vitni á vettvangi segði að kærði og meðkærði hefðu fyrst skotið upp í loftið en síðan hefði meðkærði skotið í gegnum bílrúðu. Á vettvangi við [...] hafi verið mikið af fólki, m.a. mikið af börnum og ungmennum enda á þeim tíma sólarhrings. Gera megi því ráð fyrir að margt fólk hafi verið á ferli þegar skotum hafi verið hleypt af. Þannig hafi kærði og meðkærði eftir atvikum stofnað lífi og heilsu fólks í augljósa hættu.
Aðstoðarsaksóknari nefnir einnig að fyrr um kvöldið þann 5. ágúst, kl. 19.46, hafi lögregla haft afskipti að tveimur aðilum, þ.e. kærða og meðkærða, sbr. mál lögreglu, nr. 007-2016-[...], en um hafi verið að ræða tilkynningu um fjöldaslagsmál. Þeir hafi sagt að fyrir utan [...] hefði verið hópur [...] sem hefði ætlað að ráðast á þá. Kærði og meðkærði hafi verið í annarlegu ástandi og mjög spenntir. Þegar lögregla hafi haft afskipti af kærðu hafi meðkærði verið klæddur í gallabuxur og stuttermabol og eitthvað húðflúraður en kærði verið snoðaður, talsvert húðflúraður, klæddur í rauðan bol og í svörtum buxum. Eftir að hafa yfirgefið vettvang hafi lögregla ekið um hverfið. Haft hafi verið upp á aðilum sem verið hafi í [...] bifreiðinni, sem skotið var á og hafi bifreiðin verið tekin til rannsóknar. Vitnin kvæðu sig hafa séð aðila við[...] halda á skotvopni og hafi annað vitnið farið að bifreiðinni, og í framhaldinu heyrt skothvell. Hafi vitnin ekið burt og síðan hring til baka. Í kjölfarið hafi verið skotið á glugga bifreiðarinnar, hliðarrúðu hægra megin, en þar hafi annað vitni setið í farþegasætinu og hefði rúðan brotnað og glerbrotum rignt yfir vitnin og vitnið í farþegasætinu skorist vegna þess. Vitnin hafi talið að miðað hefði verið á bifreiðina. Vitnin hafi lýst aðilum sem hafi verið tveir saman og lýst þeim á svipaðan veg og lögregla. Vitnin hafi lýst því að báðir aðilar hafi skotið úr byssunni.
Þá kemur fram í greinargerð aðstoðarsaksóknara að kærði hafi verið handtekinn kl. 10.30 í morgun, 8. ágúst, en hann hafi verið eftirlýstur af lögreglu síðan á aðfaranótt laugardagsins 7. ágúst sl. Kærði játi að hafa verið á vettvangi en neiti að hafa skotið úr haglabyssu, en segir meðkærða hafi skotið úr byssunni. Meðkærði hafi verið handtekinn í fyrrinótt kl. 2.12 fyrir utan [...] í Reykjavík ásamt öðrum aðila. Meðkærði játi að hafa verið á vettvangi og hafa skotið einu skoti en kvæðist hafa tekið vopnið af öðrum aðila og hleypt af einu skoti. Meðkærði neiti að gefa upplýsingar um hlutverk kærða í árásinni.
Aðstoðarsaksóknari telur að til rannsóknar sé brot gegn, 211. gr., sbr. 20. gr. og eftir atvikum, 2. mgr. 218. gr. og 4. mgr. 220. gr. almennra hegningarlaga nr. 19, 1940, sem varðað geti fangelsi allt að 16 árum og ævilangt eftir atvikum. Lögregla telji að ríkir rannsóknar- og almannahagsmunir séu fyrir því að ætlað brot upplýsist, en kærði sé undir grun um að hafa skotið úr haglabyssu á umrædda bifreið og þannig stofnað lífi og limum í augljósan háska. Kærði sé og undur rökstuddum grun um aðild að skotárás/líkamsárás. Rannsókn málsins sé á frumstigi. Lögregla telji ljóst að fleiri gætu tengst þessu máli og þurfi að hafa upp á þeim og taka af þeim skýrslur. Að mati lögreglu megi ætla að ef kærði verði látinn laus muni hann eiga þess kost að torvelda rannsókn málsins, svo sem með því að ræða við samverkamenn, vitni og hafa áhrif á framburð þeirra. Rannsókn málsins sé því á viðkvæmu stigi og afar brýnt að krafa lögreglustjóra verði tekin til greina.
Að mati lögreglu sé sakarefnið talið geta varðað við 211. gr., sbr. 20. gr., og eða 2. mgr. 218. gr. og 4. mgr. 220. gr. alm. hgl. en brot gegn 218. gr. varði allt að 16 ára fangelsi. Það sé því nauðsynlegt með vísan til alls framanritaðs og gagna málsins að öðru leyti að kærða verði með vísan til a-liðar 1. mgr. 95. gr. laga um meðferð sakamála nr. 88, 2008 gert að sæta gæsluvarðhaldi til mánudagsins 15. ágúst nk. kl. 16.00 og til að sæta einangrun samkvæmt b-lið 1. mgr. 99. gr., sbr. 2. mgr. 98. gr. sömu laga.
Niðurstaða
Með vísan til greinargerðar lögreglu og rannsóknargagna málsins þykir kominn fram rökstuddur grunur um að kærði hafi gerst sekur um háttsemi sem fangelsisrefsing liggur við. Kærði flúði af vettvangi og gaf sig ekki fram við lögreglu þótt honum mætti vera kunnugt um að hans væri leitað. Lögregla hafði afskipti af kærðu fyrr um daginn. Ekki verður betur séð en að áhöld séu um það miðað við framkomnar upplýsingar og lýsingu á skotmanninum, hvort það hafi verið kærði eða meðkærði sem hleypti af skotum.
Kærði er grunaður um alvarleg brot sem varðað geta við 211. gr., sbr. 20. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, eða eftir atvikum 2. mgr. 218. gr. og 4. mgr. 220. gr. laganna. Brot á 2. mgr. 218. gr. getur varðað allt að 16 ára fangelsi. Rannsókn málsins er á byrjunarstigi, enda gerðust þeir atburðir sem til rannsóknar eru aðfararnótt sl. laugardags. Samt hefur rannsókn miðað áfram, en eðli máls samkvæmt lítið tækifæri gefist til að yfirheyra kærða.
Af því sem fram hefur komið fyrir dómi þykir og ljóst að rannsóknarhagsmunir krefjist þess að kærða verði gert að sæta gæsluvarðhaldi meðan frekari rannsókn fer fram. Ætla má að kærði muni reyna að torvelda rannsókn málsins gangi hann laus, svo sem með því að afmá merki eftir brot eða hafa áhrif á vitni og brotaþola. Skilyrðum a-liðar 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála er því fullnægt svo fallast megi á kröfu lögreglustjórans um að kærði sæti gæsluvarðhaldi. Eins og máli þessu er háttað koma önnur úrræði ekki í stað gæsluvarðhaldsins. Hins vegar verður talið að ekki sé að svo stöddu ástæða til að halda kærða í gæsluvarðhaldi lengur en til þess tíma er gæsluvarðhaldi meðkærða var markaður.
Þá hefur sækjandi fært að því fullnægjandi rök, sbr. og skilyrði b. liðar 1. mgr. 99. gr., sbr. 2. mgr. 98. gr. sakamálalaga nr. 88/2008 að nauðsynlegt sé að kærði sæti einangrun meðan á gæsluvarðhaldi standi.
Verður, að öllu framangreindu virtu, krafan tekin til greina eins og í úrskurðarorði greinir.
Ú R S K U R Ð A R O R Ð
Kærði, X, kennitala [...], skal sæta gæsluvarðhaldi allt til föstudagsins 12. ágúst nk. kl. 16.00. Kærði skal sæta einangrun á meðan á gæsluvarðhaldinu stendur.