Hæstiréttur íslands
Mál nr. 577/2007
Lykilorð
- Kærumál
- Gæsluvarðhald. 2. mgr. 103. gr. laga nr. 19/1991
|
|
Mánudaginn 5. nóvember 2007. |
|
Nr. 577/2007. |
Ríkissaksóknari(Bogi Nilsson, ríkissaksóknari) gegn X (Sveinn Andri Sveinsson hrl.) |
Kærumál. Gæsluvarðhald. 106. gr. laga nr. 19/1991.
Úrskurður héraðsdóms um að X skyldi sæta gæsluvarðhaldi meðan máls hans væri til meðferðar fyrir Hæstarétti Íslands var staðfestur, þó eigi lengur en til föstudagsins 14. desember 2007.
Dómur Hæstaréttar.
Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Ólafur Börkur Þorvaldsson, Hjördís Hákonardóttir og Jón Steinar Gunnlaugsson.
Varnaraðili skaut málinu til Hæstaréttar með kæru 2. nóvember 2007, sem barst réttinum ásamt kærumálsgögnum 5. sama mánaðar. Kærður er úrskurður Héraðsdóms Reykjavíkur 2. nóvember 2007, þar sem varnaraðila var gert að sæta áfram gæsluvarðhaldi meðan mál hans er til meðferðar fyrir Hæstarétti Íslands, þó eigi lengur en til föstudagsins 21. desember 2007 kl. 16. Kæruheimild er í 1. mgr. 142. gr. laga nr. 19/1991 um meðferð opinberra mála. Varnaraðili krefst þess að hinn kærði úrskurður verði felldur úr gildi.
Sóknaraðili krefst staðfestingar hins kærða úrskurðar.
Með vísan til forsendna hins kærða úrskurðar verður hann staðfestur á þann hátt sem í dómsorði greinir.
Dómsorð:
Varnaraðili, X, sæti áfram gæsluvarðhaldi á meðan mál hans er til meðferðar fyrir Hæstarétti, þó eigi lengur en til föstudagsins 14. desember 2007 kl. 16.
Úrskurður Héraðsdóms Reykjavíkur 2. nóvember 2007.
Ríkissaksóknari hefur krafist þess að Héraðsdómur Reykjavíkur úrskurði að X, kennitala [...], til heimilis að [...], Reykjavík, verði gert að sæta áframhaldandi gæsluvarðhaldi meðan máls hans er til meðferðar fyrir Hæstarétti Íslands, þó eigi lengur en til föstudagsins 21. desember 2007, kl. 16.00.
Í greinargerð ríkissaksóknara kemur fram að með dómi Héraðsdóms Reykjavíkur uppkveðnum 21. júní 2007 í máli nr. S-899/2007 hafi dómfelldi verið sakfelldur og dæmdur í 6 ára fangelsi fyrir brot gegn 211., sbr. 20. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, með því að hafa að kvöldi þriðjudagsins 3. apríl sl., í íbúð [...] að Y, Reykjavík, veist að A og stungið hann tvívegis með hnífi í brjóstkassa. Hafi önnur stungan gengið í gegnum brjóstvegg og komið við það gat á framvegg hjartans sem olli lífshættulegri blæðingu út í gollurshús.
Dómfelldi hafi sætt gæsluvarðhaldi frá 4. apríl sl. á grundvelli 2. mgr. 103. gr. laga nr. 19/1991, sbr. úrskurði Héraðsdóms Reykjavíkur í málum nr. R-210/2007, 253/2007, 291/2007, 304/2007 og 350/2007 og dóma Hæstaréttar í málum nr. 256/2007 og 312/2007. Yfirlýsing dómfellda um áfrýjun ofangreinds dóms hafi borist embætti ríkissaksóknara 6. júlí sl. og áfrýjunarstefna hafi verið gefin út 9. s.m. Hinn 10. júlí sl. hafi verið óskað eftir frumgögnum frá Héraðsdómi Reykjavíkur og þau borist embættinu 17. október sl. Ágrip hafi þegar verið sent Hæstarétti og sé málið á dagskrá réttarins 28. nóvember nk.
Almannahagsmunir krefjist þess að dómfelldi verði í gæsluvarðhaldi uns endanlegur dómur gangi í máli hans og sé því til stuðnings m.a. vísað í fyrrnefnda dóma Hæstaréttar. Með vísan til 2. mgr. 103. gr. laga um meðferð opinberra mála nr. 19/1991, sbr. 106. gr. sömu laga, með hliðsjón af alvarleika sakarefnis og á grundvelli fyrirliggjandi dóms þyki nauðsynlegt að dómfelldi sæti gæsluvarðhaldi á meðan mál hans er til meðferðar fyrir Hæstarétti.
Með dómi Héraðsdóms Reykjavíkur uppkveðnum 21. júní sl., var dómfelldi dæmdur til að sæta fangelsi í sex ár. Til frádráttar refsingunni kom gæsluvarðhaldsvist hans frá 4. apríl 2007. Dómfelldi hefur nú áfrýjað dóminum til Hæstaréttar.
Samkvæmt 106. gr. laga nr. 19/1991, lýkur gæsluvarðhaldi þegar dómur hefur verið kveðinn upp í málinu. Eftir kröfu ákæranda getur dómari þó úrskurðað að gæsluvarðhald skuli haldast meðan mál er til meðferðar fyrir æðra dómi. Dómfelldi hefur áður sætt gæsluvarðhaldi á grundvelli 2. mgr. 103. gr. laganna vegna rökstudds gruns um afbrot sem hann hefur verið sakfelldur fyrir samkvæmt greindum dómi Héraðsdóms Reykjavíkur. Fyrir liggur að Hæstiréttur hefur tvívegis áður í dómum um gæsluvarðhald yfir dómfellda talið skilyrðum 2. mgr. 103. gr. vera fullnægt. Með tilliti til þess og með því að skilyrði 106. gr. eru uppfyllt, verður krafan tekin til greina eins og hún er fram sett.
Kristjana Jónsdóttir héraðsdómari kvað upp úrskurðinn.
Úrskurðarorð:
Dómfelldi, X, kt. [...], skal sæta áfram gæsluvarðhaldi meðan máls hans er til meðferðar fyrir Hæstarétti Íslands, þó eigi lengur en til föstudagsins 21. desember 2007, kl. 16.00.