Hæstiréttur íslands

Mál nr. 767/2015

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Jón H. B. Snorrason saksóknari)
gegn
X (Sigurður Freyr Sigurðsson hdl.)

Lykilorð

  • Kærumál
  • Gæsluvarðhald. A. liður 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008

Reifun

Staðfestur var úrskurður héraðsdóms um að X skyldi sæta gæsluvarðhaldi á grundvelli a. liðar 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála.

Dómur Hæstaréttar.

Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Benedikt Bogason og Karl Axelsson og Ingveldur Einarsdóttir settur hæstaréttardómari.

Varnaraðili skaut málinu til Hæstaréttar með kæru 10. nóvember 2015, sem barst réttinum ásamt kærumálsgögnum degi síðar. Kærður er úrskurður Héraðsdóms Reykjaness 10. nóvember 2015, þar sem varnaraðila var gert að sæta áfram gæsluvarðhaldi allt til þriðjudagsins 1. desember 2015 klukkan 16 og einangrun meðan á því stendur. Kæruheimild er í l. lið 1. mgr. 192. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála. Varnaraðili krefst þess aðallega að hinn kærði úrskurður verði felldur úr gildi, til vara að gæsluvarðhaldi verði markaður skemmri tími, en að því frágengnu að einangrun verði aflétt.

Sóknaraðili krefst staðfestingar hins kærða úrskurðar.

Fallist verður á það með héraðsdómi að fullnægt sé skilyrðum a. liðar 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008 til að varnaraðila verði gert að sæta áfram gæsluvarðhaldi og einangrun meðan á því stendur, sbr. 2. mgr. 98. gr. laganna. Mál þetta er umfangsmikið og hefur þurft við rannsókn þess að leita atbeina erlendra lögregluyfirvalda. Þótt veita verði lögreglu nokkurt svigrúm við rannsóknina er þess að gæta að varnaraðili hefur setið í gæsluvarðhaldi í einangrun frá 29. september 2015. Að því gættu þykir hæfilegt að gæsluvarðhaldinu verði markaður sá tími sem greinir í dómsorði.

Dómsorð:

Varnaraðili, X, sæti gæsluvarðhaldi allt til þriðjudagsins 24. nóvember 2015 klukkan 16 og einangrun meðan á því stendur.

 

Úrskurður Héraðsdóms Reykjaness 10. nóvember 2015.

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu hefur í dag krafist þess að kærða, X, kt. [...], verði áfram gert að sæta gæsluvarðhaldi allt til þriðjudagsins 1. desember nk., kl. 16.00. Þá er þess krafist að kærða verði gert að sæta einangrun meðan á gæsluvarðhaldinu stendur.

Kærði mótmæli kröfunni.

Í greinargerð lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu segir að lögreglan hafi til rannsóknar stórfellt fíkniefnalagabrot er varði innflutning á sterkum fíkniefnum hingað til lands. Hinn 28. september sl. hafi lögreglan lagt hald á rúmlega 19,5 kg af amfetamíni og rúmlega 2,5 kg af kókaíni sem fundist hafi í bifreið sem staðsett hafi verið við gistiheimili að [...] í [...]. Tveir erlendir menn hafi verið handteknir í húsnæðinu grunaðir um aðild að innflutningi fíkniefnanna til landsins. Lögreglan hafi haft eftirlit með bifreiðinni sem innihélt fíkniefnin í nokkra daga. Við það eftirlit hafi lögreglan ítrekað orðið vör við aðra bifreið sem virst hafi fylgt hinni bifreiðinni eftir. Um hafi verið að ræða bílaleigubifreiðir sem meðkærði Y hafi verið skráður leigutaki að. Þá hafi lögreglan einnig borið kennsl á kærða X í bifreiðinni. Kærði hafi verið handtekinn þennan sama dag ásamt fleirum og sæti nú gæsluvarðhaldi í þágu rannsóknar málsins.

                Við skoðun á þeim gögnum sem haldlögð hafi verið í málinu hafi margt komið fram sem styrki grun lögreglu um aðild kærða að innflutningnum. Til að mynda hafi fundist við skoðun á myndavél kærða minniskort sem notað hafi verið í farsíma hans. Á því korti hafi fundist myndir frá því fyrr í sumar af [...] áður en henni er lagt að bryggju og myndir sem sýni akstur bifreiða frá [...] og umhverfið í kringum skipið. Í bifreið kærða hafi fundist kassi utan af Blackberry síma sem meðkærði Y hafi verið með við handtöku en lögreglan ætli að sá sími hafi verið notaður í samskiptum við meinta samverkamenn í [...]. Í bifreið kærða hafi einnig fundist blað þar sem fram komi upplýsingar sem lögreglan telji tengjast ofangreindum innflutningi fíkniefnanna hingað til lands, en þar hafi m.a. verið númer á Ikortum sem lögreglan telji að hafi verið notuð til að greiða fyrir fíkniefnasendinguna. Með heimild Héraðsdóms Reykjaness hafi lögreglan skoðað síma og fjármálagögn kærða. Við þá skoðun hafi margt komið fram sem styrki grun lögreglu. Ljóst sé að kærði hafi nokkuð fjármagn í höndunum og virðist vera sem mikið fjármagn fari á milli kærða og meðkærða Y hér á landi og erlendis. Við skoðun lögreglu á fjármálagögnum kærða og meðkærða Y hafi komið í ljós að á tímabilinu 21. ágúst til 25. ágúst hafi kærði lagt inn rúmlega 4,3 milljónir króna á Ikort. Alls hafi verið lagðar inn rúmlega níu milljónir króna  inn á 30 Ikort á tímabilinu frá 22. júlí til 10. september. Þá hafi rúmlega sjö milljónir verið teknar út af kortunum í hraðbönkum erlendis. Lögreglan hafi í höndum gögn sem sýni úttektir af Ikortum í hraðbönkum í [...] dagana 12.-17. september sl. en fíkniefnin hafi verið flutt hingað til lands 22. september. Við leit í bifreið kærða hafi einnig fundist símanúmer, en það símanúmer hafi verið notað til að virkja hluta þeirra Ikorta sem lögreglan hafi lagt hald á. Lögreglan telji að þessir peningar hafi verið notaðir til að greiða fyrir fíkniefnasendinguna.

                Kærði hafi neitað sök við skýrslutöku hjá lögreglu. Framburði kærða beri ekki saman við þau gögn sem lögreglan hafi undir höndum, framburð meðkærða og vitna. Varðandi framburð kærða sé nánar vísað í framburðarskýrslur og önnur gögn sem liggi fyrir hjá dómnum. Í framburðum meðkærðu hjá lögreglu hafi komið fram að erlendir aðilar hafi tekið þátt í skipulagningu innflutningsins og hafi þeir verið í samskiptum eða í samstarfi við aðila hér á landi sem hafi fylgst með ferðum bifreiðarinnar.

                Kærði hefur sætt gæsluvarðhaldi í þágu rannsóknar málsins frá 29. september sl., nú síðast með úrskurði Héraðsdóms Reykjaness í málinu nr. [...]/2015, sem staðfestur hafi verið með dómi Hæstaréttar Íslands í málinu nr. [...]/2015.

                Rannsókn lögreglu sé að hluta til unnin í samstarfi við erlend yfirvöld. Rannsókn lögreglu beinist nú helst að því að hafa upp á samverkamönnum kærðu í [...], en einnig hafi verið óskað eftir aðstoð annarra erlendra lögregluyfirvalda. Í framburðum meðkærðu komi fram að tveir [...] aðilar hafi staðið að skipulagningu innflutningsins og telji lögreglan að þeir hafi gert það í samstarfi við íslenska samverkamenn. Óskað hafi verið eftir því við [...] yfirvöld að þessir einstaklingar verði færðir til yfirheyrslu hjá lögreglu og að framkvæmdar verði húsleitir á heimili þeirra til að afla frekari sönnunargagna og leggja hald á muni sem skipt geti máli við rannsókn málsins. Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu vinni nú að þessu í samstarfi við [...] yfirvöld. [...] yfirvöld hafi upplýst íslensku lögregluna um það að farið verði fram á húsleit á heimili annars þeirra nú á næstu dögum og muni hann í kjölfarið vera boðaður í skýrslutöku. Nauðsynlegt sé á þessu stigi máls að kærði sæti áfram gæsluvarðhaldi svo hægt sé að koma í veg fyrir að kærði geti sett sig í samband við meinta samverkamenn eða þeir sett sig í samband við hann. Þá geti kærði einnig komið undan gögnum með sönnunargildi sem lögreglan hafi ekki lagt hald á nú þegar. Þyki þannig brýnt að vernda rannsóknarhagmuni á þessu stigi málsins.

                Með vísan til framangreinds, framlagðra gagna og a. liðar 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála og b. liðar 1. mgr. 99. gr. sömu laga er þess krafist að krafan nái fram að ganga eins og hún sé sett fram.

               

Með vísan til þess sem fram kemur í greinargerð lögreglu og rannsóknargögnum málsins þykir kominn fram rökstuddur grunur um að kærði eigi aðild að innflutningi á miklu magni af sterkum fíkniefnum til landsins. Án vafa er að fíkniefnin hafi verið ætluð til sölu og dreifingar hér á landi og hefur lögreglan upplýsingar um það að fleiri aðilar tengist málinu. Rannsókn málsins er umfangsmikil og er unnið að henni í samstarfi við [...] yfirvöld. Telur lögreglan brýnt að kærði sæti á þessu stigi áfram gæsluvarðhaldi þar sem ljóst sé að hann geti sett sig í samband við meinta samverkamenn gangi hann laus eða þeir sett sig í samband við hann. Þá geti kærði einnig komið undan sönnunargögnum sem lögreglan hafi ekki lagt hald á nú þegar og afmáð ummerki eftir brot. Fallist er á þessa ályktun lögreglu. Skilyrðum a. liðar 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála er því fullnægt.

Kærði hefur sætt einangrun í gæsluvarðhaldinu frá 29. september síðastliðinn. Til verndar rannsóknarhagsmunum þykir brýnt að skýrslur verði teknar af ætluðum samverkamönnum og vitnum í [...] áður en einangrun kærða verður aflétt. Með heimild í 2. mgr. 98. gr. laga nr. 88/2008 er fallist á að kærði sæti enn um sinn einangrun í gæsluvarðhaldinu, en brot það sem kærði er sakaður um getur varðað meira en 10 ára fangelsi.

Með vísan til framangreinds er fallist á kröfu lögreglustjóra um að kærða verði gert að sæta áfram gæsluvarðhaldi, og einangrun eins og krafist er, sbr. b. lið 1. mgr. 99. gr. laga nr. 88/2008, og nánar greinir í úrskurðarorði.

                Úrskurð þennan kveður upp Jón Höskuldsson héraðsdómari.

Úrskurðarorð:

Kærði, X, skal sæta gæsluvarðhaldi allt til þriðjudagsins 1. desember nk., kl. 16:00.

Kærði sæti einangrun meðan á gæsluvarðhaldinu stendur.