Hæstiréttur íslands

Mál nr. 235/2009


Lykilorð

  • Kærumál
  • Gæsluvarðhald. A. liður 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008


       

Föstudaginn 15. maí 2009.

 

Nr. 235/2009.

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu

(Arnþrúður Þórarinsdóttir, aðstoðarsaksóknari)

gegn

X

(Brynjar Níelsson hrl.)

 

Kærumál. Gæsluvarðhald. A. liður 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008.

Úrskurður héraðsdóms um að X skyldi gert að sæta áfram gæsluvarðhaldi, á grundvelli a. liðar 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála, var staðfestur.

  

Dómur Hæstaréttar.

Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Jón Steinar Gunnlaugsson og Hjördís Hákonardóttir og Viðar Már Matthíasson settur hæstaréttardómari.

Varnaraðili skaut málinu til Hæstaréttar með kæru 11. maí 2009, sem barst réttinum ásamt kærumálsgögnum 12. sama mánaðar. Kærður er úrskurður Héraðsdóms Reykjavíkur 11. maí 2009, þar sem varnaraðila var gert að sæta áfram gæsluvarðhaldi allt til þriðjudagsins 2. júní 2009 klukkan 16. Kæruheimild er í l. lið 1. mgr. 192. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála. Varnaraðili krefst þess að hinn kærði úrskurður verði felldur úr gildi.

Sóknaraðili kærði úrskurð héraðsdóms fyrir sitt leyti með kæru 12. maí 2009. Hann krefst þess að úrskurðinum verði breytt þannig að varnaraðila verði gert að sæta gæsluvarðhaldi allt til mánudagsins 8. júní klukkan 16.

Með vísan til forsendna hins kærða úrskurðar verður hann staðfestur.

Dómsorð:

Hinn kærði úrskurður er staðfestur.

 

Úrskurður Héraðsdóms Reykjavíkur 11. maí 2009.

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu hefur krafist þess að Héraðsdómur Reykjavíkur úrskurði að X, kt. [...], verði áfram gert að sæta gæsluvarðhaldi, allt til mánudagsins 8. júní 2009, kl. 16:00.  Þess er krafist að X verði látinn vera í einrúmi á meðan á gæsluvarðhaldi stendur.

Í greinargerð lögreglu kemur fram að lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu hafi til rannsóknar ætlað stórfellt fíkniefnabrot. Þann 18. apríl 2009 hafi lögreglu borist upplýsingar um seglskútu er sigldi eins og í átt til lands. Hafi sama dag verið fylgst með ferðum þriggja manna á tveimur bílum sem voru staddir á Djúpavogi, en þeir hafi verið með slöngubát með utanborðsvél með sér.  Síðar hafi komið í ljós að tveir af mönnunum og báturinn voru horfnir en einn mannanna verið á ferð um Djúpavog.  Um kvöldið hafi sést til ferða slöngubátsins, þar sem honum hafi verið siglt inn í höfn í Gleðivík, vestan við aðalhöfnina á Djúpavogi.  Sá mannanna sem hafi verið á ferð um Djúpavog hafi komið akandi að höfninni þar sem báturinn kom að landi. Hafi töskur verið teknar út úr bátnum og þeim komið fyrir í bifreiðinni. Bifreiðinni hafi í framhaldinu verið ekið á brott.  Við Höfn hafi bifreiðin verið stöðvuð og  ökumaður bifreiðarinnar verið A.  Í bifreiðinni hafi verið töskur sem innihéldu verulega mikið magn af ætluðum fíkniefnum, um 109 kg af efnum sem hafi gefið svörun hjá tæknideild lögreglustjórans á höfuðborgar­svæðinu sem fíkniefni; amfetamín, MDMA, hass og marihuana.

Slöngubátnum hafi verið siglt úr höfninni í Gleðivík og inn í höfnina á Djúpavogi.  Fylgst hafi verið með tveimur mönnum sem voru um borð í bátnum og þeir síðar um kvöldið verið handteknir á bifreiðinni Y.  Ökumaður hafi verið kærði og farþegi B 

Kærði hafi borið hjá lögreglu að hann hafi verið beðinn um fyrir nokkru síðan af ónafngreindum aðila að sækja töskur, sem áttu að innihalda stera.  Hafi hann átt að nálgast töskurnar út í skútu og verið gefin upp hnit hvað það varði. Hafi hann fengið meðkærðu B og A til að koma með sér og hafi ætlað að borga þeim þóknun fyrir verkið.

Rannsókn lögreglu miði að því að finna út hver/hverjir séu eigendur hinna ætluðu fíkniefna sem haldlögð hafi verið. Rannsaka þurfi þætti er snúi að aðdraganda brotsins, skipulagningu og fjármögnun.  Sé gagnaöflun í fullum gangi og mikil vinna við úrvinnslu þeirra gagna sem þegar liggi fyrir.

Rökstuddur grunur sé um stórfellt fíkniefnabrot kærða. Nauðsynlegt sé talið að hann sæti gæsluvarðhaldi vegna málsins, svo honum sé fyrirmunað að setja sig í samband við ætlaða vitorðsmenn og/eða vitni og/eða að hann geti komið undan gögnum sem sönnunargildi hafi í málinu og hafi ekki verið haldlögð. Þyki þannig nauðsynlegt að vernda rannsóknarhagsmuni málsins með því að kærði sæti gæsluvarðhaldi og að hann verði látinn vera í einrúmi á meðan á gæsluvarðhaldi stendur.

Til rannsóknar er ætlað brot gegn 173. gr. a almennra hegningarlaga nr. 19/1940 ásamt síðari breytingum, sem getur varðað allt að 12 ára fangelsi. Er fallist á með lögreglu að brýnir hagsmunir séu fyrir því að kærða verði gert að sæta gæsluvarðhaldi á meðan mál hans er til rannsóknar, enda geti hann torveldað rannsókn málsins með því að koma undan sönnunargögnum eða hafa áhrif á vitni eða samseka, gangi hann laus. Með vísan til framangreinds, hjálagðra gagna og a- liðar 1. mgr. 95. gr. laga um meðferð sakamála nr. 88/2008, er krafa lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu tekin til greina, eins og hún er fram sett þó þannig að kærði sæti gæsluvarðhaldi allt til þriðjudagsins 2. júní nk. kl. 16.00. Þá er með sömu rökum fallist á að kærði sæti einangrun skv. b- lið 1. mgr. 99. gr. laganna.

Anna M. Karlsdóttir settur héraðsdómari kvað upp úrskurðinn.

Úrskurðarorð:

Kærði, X, kt. [...], skal sæta áfram gæslu­varðhaldi, allt til þriðjudagsins 2. júní 2009, kl. 16:00.  Kærði skal sæta einangrun meðan á gæsluvarðhaldi stendur.