Hæstiréttur íslands
Mál nr. 108/2000
Lykilorð
- Kærumál
- Gæsluvarðhald. 2. mgr. 103. gr. laga nr. 19/1991
|
|
Mánudaginn 20. mars 2000. |
|
Nr. 108/2000.
|
Ákæruvaldið(Kolbrún Sævarsdóttir settur saksóknari) gegn Sverri Þór Gunnarssyni (Helgi Jóhannesson hrl.) |
Kærumál. Gæsluvarðhald 2. mgr. 103. gr. laga nr. 19/1991.
Úrskurður héraðsdóms um að S skyldi sæta gæsluvarðhaldi á grundvelli 2. mgr. 103. gr. laga nr. 19/1991 um meðferð opinberra mála var staðfestur.
Dómur Hæstaréttar.
Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Haraldur Henrysson, Arnljótur Björnsson og Markús Sigurbjörnsson.
Varnaraðili skaut málinu til Hæstaréttar með kæru 14. mars 2000, sem barst réttinum ásamt kærumálsgögnum 16. sama mánaðar. Kærður er úrskurður Héraðsdóms Reykjavíkur 14. mars 2000, þar sem varnaraðila var gert að sæta gæsluvarðhaldi allt til miðvikudagsins 26. apríl 2000 kl. 16. Kæruheimild er í 1. mgr. 142. gr. laga nr. 19/1991 um meðferð opinberra mála. Varnaraðili krefst þess aðallega að hafnað verði kröfu sóknaraðila um gæsluvarðhald, en til vara að sér verði þess í stað bönnuð för úr landi þar til dómur gengur í málinu. Þá er krafist kærumálskostnaðar.
Sóknaraðili krefst þess aðallega að úrskurður héraðsdómara verði staðfestur, en til vara að varnaraðila verði gert að sæta farbanni.
Með vísan til forsendna hins kærða úrskurðar verður hann staðfestur.
Dómsorð:
Hinn kærði úrskurður er staðfestur.
Úrskurður Héraðsdóms Reykjavíkur 14. mars 2000.
Ríkissaksóknari hefur krafist þess með vísan til 2. mgr. 103. gr. laga nr. 19/1991 að Sverri Þór Gunnarssyni, kt. 220572-4719, með lögheimili að Sporðagrunni 4, Reykjavík, verði gert að sæta áfram gæsluvarðhaldi þar til dómur fellur í máli hans þó eigi lengur en til miðvikudagsins 26. apríl nk., kl. 16.00.
[...]
Samkvæmt því sem hér að framan hefur verið rakið er rannsókn málsins lokið og bárust málsgögn embætti ríkissaksóknara þann 2. mars sl.
Í málinu þessu hefur kærði gengist við því að hafa átt aðild að innflutningi á verulegu magni fíkniefna til landsins sem ætlað var til sölu. Er því sterkur grunur um að kærði hafi framið brot sem varðað geti hann allt að 10 ára fangelsi samkvæmt 173. gr. a almennra hegningarlaga nr. 19/1940. Þá þykir hafa verið færð fyrir því viðhlítandi rök að brotið sé þess eðlis að gæsluvarðhald teljist nauðsynlegt með tilliti til almannahagsmuna enda þykir farbann ekki vernda þá hagsmuni sem stefnt er að með kröfu ríkissaksóknara. Ákæra mun verða gefin út alveg á næstu dögum samkvæmt gögnum málsins.
Mál þetta er verulega umfangsmikið og eðlilegt að nokkurn tíma taki að vinna að útgáfu ákæru og leggja á það dóm. Telst tímalengd gæsluvarðhalds samkvæmt kröfu ríkissaksóknara því eðlileg í því sambandi. Með vísan til þess sem hér hefur verið rakið þykja uppfyllt skilyrði 2. mgr. 103. gr. laga um meðferð opinberra mála nr. 19/1991 þannig að fallast ber á kröfu ríkissaksóknara. Kærði er því úrskurðaður til að sæta áframhaldandi gæsluvarðhaldi þar til dómur gengur í máli hans en þó eigi lengur en til miðvikudagsins 26. apríl 2000 kl. 16.00.
Valtýr Sigurðsson héraðsdómari kvað upp úrskurðinn.
Úrskurðarorð:
Kærði, Sverrir Þór Gunnarsson, kt. 220572-4719, sæti gæsluvarðhaldi þar til dómur gengur í máli hans en þó eigi lengur en til miðvikudagsins 26. apríl 2000, kl. 16:00.