Hæstiréttur íslands

Mál nr. 39/2012


Lykilorð

  • Kærumál
  • Gæsluvarðhald. A. liður 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008


                                     

Mánudaginn 16. janúar 2012.

Nr. 39/2012.

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu

(Jón H.B. Snorrason saksóknari)

gegn

X

(Hjálmar Blöndal hdl.)

Kærumál. Gæsluvarðhald. a. liður 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008.

Úrskurður héraðsdóms um að X skyldi sæta gæsluvarðhaldi, á grundvelli a. liðar 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála, var staðfestur.

Dómur Hæstaréttar.

Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Ólafur Börkur Þorvaldsson, Eiríkur Tómasson og Þorgeir Örlygsson.

Varnaraðili skaut málinu til Hæstaréttar með kæru 12. janúar 2012 sem barst réttinum ásamt kærumálsgögnum degi síðar. Kærður er úrskurður Héraðsdóms Reykjaness 12. janúar 2012, þar sem varnaraðila var gert að sæta gæsluvarðhaldi allt til fimmtudagsins 19. sama mánaðar klukkan 16 og einangrun meðan á gæsluvarðhaldinu stendur. Kæruheimild er í l. lið 1. mgr. 192. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála. Varnaraðili krefst þess aðallega að hinn kærði úrskurður verði felldur úr gildi, en til vara að gæsluvarðhaldi verði markaður skemmri tími.

Sóknaraðili krefst staðfestingar hins kærða úrskurðar.

Með vísan til forsendna hins kærða úrskurðar verður hann staðfestur.

Dómsorð:

Hinn kærði úrskurður er staðfestur.

                                                                 

Úrskurður Héraðsdóms Reykjaness 12. janúar 2012.

Lögreglustjórinn á Suðurnesjum hefur í dag krafist þess X, kt. [...], verði gert að sæta gæsluvarðhaldi, allt til fimmtudagsins 19. janúar 2012, kl. 16.00. Þá er gerð krafa um að kærði sæti einangrun á meðan á gæsluvarðhaldinu stendur.

Í greinargerð með kröfunni kemur fram að lögregla hafi fengið tilkynningu um að fara að [...] nr. [...], íbúð [...], í [...] vegna slagsmála. Fram hafi komið í tilkynningunni að einn væri meðvitundarlaus. Þegar lögregla hafi komið inn í íbúðina hafi hún séð hvar A lá meðvitundarlaus á gólfinu við sjónvarpsrýmið. Þegar lögregla hafi athugað lífsmörk hafi A komið til meðvitundar en ekki getað svarað spurningum. Hafi hún verið flutt með sjúkrabifreið á slysadeild til aðhlynningar. Töluvert hafi verið af blóði inni í íbúðinni ásamt hárlokkum úr A.

Lögregla hafi rætt við vitnið B á vettvangi og hafi hann tjáð lögreglu að hann hefði verið í heimsókn hjá A þegar tveir menn og ein kona hefðu ráðist inn í íbúðina. Honum hefði verið ýtt út úr íbúðinni og hann læstur úti. Hefði hann verið fyrir utan fyrir utan íbúðina í smá tíma og síðan séð árásáraðilana yfirgefa íbúðina og læsa á eftir sér. Þá hefði hann bankað á hurðina og A komið alblóðug og skríðandi til dyra og opnað fyrir honum. Hefði hann í kjölfarið farið og fengið að hringja í neyðarlínuna hjá nágrönnum þar sem árásaraðilarnir höfðu tekið símann hans. B kvað annan karlmanninn hafa verið lítinn, hálf sköllóttan með rauðbirkið hár, en konan hefði verið með sítt, dökkt hár og heiti Y. Í greinargerðinni segir að B hafi ekki getað lýst þriðja aðilanum þar sem hann hefði verið með eitthvað fyrir andlitinu. Kvað hann fólkið hafa flúið af vettvangi á rauðri bifreið af gerðinni [...]. Í greinargerðinni segir að lögregla hafi í kjölfarið farið að [...] í [...] þar sem Y, kt. [...], sé skráð með lögheimili. Þar fyrir utan hafi staðið rauð [...] bifreið sem Z, kt. [...], sé skráður fyrir. Hafi þau Y og Z verið handtekin þar.

Þá segir í greinargerð að samkvæmt skýrslum, sem teknar hafi verið af brotaþola, hafi hún tjáð lögreglu að hún hefði verið í íbúð sinni ásamt B og X þegar tveir karlmenn og ein kona hefðu allt í einu hafa ruðst inn í íbúðina. Hefðu það verið Y og Z og með þeim annar karlmaður sem brotaþoli kvaðst ekki vita hver væri þar sem hann hefði verið með hulið andlit. Fólkið hefði ýtt B út úr íbúðinni og síðan hefðu þau öll þrjú ráðist á hana. Kvaðst hún hafa verið slegin nánast strax í rot, sparkað hefði verið í hana liggjandi, bæði í höfuð og líkama og hún tekin kverkataki. Kvað hún þau hafa lamið sig með plastkylfu, reynt hefði verið að klippa af henni fingurinn með klippum auk þess sem hníf hefði verið beitt. Einnig hefði hún verið beitt grófu kynferðisofbeldi og hótunum. Brotaþoli hafi borið um að kærði hafi átt þátt í atlögunni, en hann hafi komið rétt á undan árásarmönnunum og hleypt þeim inn í íbúðina, þ.e. opnað hurðina fyrir þeim. Þá hafi hann verið áhorfandi að árásinni allt til enda. Hann hafi verið síðastur út úr íbúðinni og skilið brotaþola eftir í blóði sínu.

Einn sakborninganna, sem nú sitji í gæsluvarðhaldi, hafi sagt í skýrslutökum nú í vikunni að kærði hafi farið og opnað fyrir þeim inn í íbúðina.

Í greinargerðinni segir að samkvæmt læknisvottorði hafi brotaþoli verið lurkum lamin um allan líkamann, bæði á höfði, brjóstkassa, kvið og baki. Þá hafi hún verið með sjáanlega áverka á andliti og höfði og verið með einhverja skallabletti á þessu svæði. Einnig hafi hún verið aum alls staðar í andliti og upp á höfuðleður og með eymsli niður á hálsinn beggja vegna við þreifingu. Yfirborðsmar  hafi verið á hægra kjálkabarði og á hálsinum hægra megin og eymsli verið víðs vegar um líkamann. Hægra megin á baki hafi verið áverkar sem gætu samrýmst því að vera bitfar. Þá hafi verið 2 cm alldjúpur skurður á hægri vísifingri, sem samræmist því að vera eftir klippur.

Þá segir að í vottorði neyðarmóttöku vegna kynferðisbrota komi fram að áverkar á endaþarmi og leggöngum samrýmist því að brotaþoli hafi verið beitt því kynferðisofbeldi sem hún hafi lýst.

Í greinargerð lögreglustjóra segir að samkvæmt upplýsingum sem aflað hafi verið með rannsókn lögreglu hafi kærði verið á staðnum þegar árásarmennirnir komu á vettvang. Þá þyki lögreglu nokkuð ótvírætt að kærði X hafi greitt árásarmönnunum leið inn í íbúðina þar sem árásarþoli hefði verið búin að ganga úr skugga um að íbúðin væri læst þar sem búið hefði verið að hóta henni árás líkt og gengið hefði eftir. Þá hefur lögregla einnig gögn sem beri ótvírætt með sér að kærði X hafi vitað um að árás á brotaþola væri yfirvofandi og í aðsigi. Þá hafi lögregla upplýsingar um að kærði hafi verið áhorfandi að árásinni allt þar til yfir lauk og árásarmennirnir yfirgáfu íbúðina  Eftir að árásarmennirnir, sem verið hafi þrír, fóru af vettvangi hafi kærði X hringt í þá þar sem þeir voru akandi í bifreið á leið í burt og óskað eftir því að vera sóttur af þeim. Fyrir liggi að það hafi verið gert og að X hafi verið ekið í bifreið árásarmannanna þriggja á heimili vinkonu hans í [...]. Þá beri símagögn með sér að kærði X hafi verið í símasambandi við árásarmennina fyrir og eftir árásina, sem og aðra einstaklinga sem taldir séu tengjast málin með refsiverðri aðild.

Í greinargerðinni segir að kærði X hafi játað að hafa verið á staðnum þegar árásarmennirnir komu en framburður hans hafi verið mjög á reiki allt frá fyrstu yfirheyrslu og í mörgu afar ótrúverðugur. Þá stangist framburður kærða á við aðra í veigamiklum atriðum auk þess sem kærði beri við minnisleysi um margt vegna ölvunar sinnar.

Kærði sé undir rökstuddum grun um að hafa veitt kærðu Z, Y og Þ liðveislu þegar þau réðust inn á heimili brotaþola þar sem þau réðust að henni og veittu henni bjargarlausri alvarlega áverka. Um sé að ræða mjög fólskulega atlögu þar sem ruðst hafi verið inn á heimili brotaþola og ráðist á hana með sérstaklega hættulegri aðferð en bareflum, garðklippum og hnífi hafi verið beitt og sparkað hafi verið í hana liggjandi, auk þess sem hún hafi verið beitt grófu kynferðisofbeldi. Brotin séu talin varða við 231. gr., 2. mgr. 218. gr., og 194. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 . Brot kærða sé talið varða við sömu ákvæði, sbr. 22. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940. Brot gegn 2. mgr. 218. gr. og 194. gr. varði allt að 16 ára fangelsi.

Í greinargerðinni segir að rannsókn málsins, þ. á m. á þætti kærða, sé ekki lokið. Rannsóknin hafi leitt í ljós að fleiri aðilar en þeir, sem ráðist hafi inn í íbúðina og á brotaþola, kunni að eiga að því refsiverða aðild. Sjáist það vel af símagögnum sem lögregla hafi aflað og öðrum samskiptum, sem lögregla hafi undir höndum og öðrum gögnum sem lögreglan vinni nú að því að afla. Telji lögregla ljóst að árásin tengist skipulagðri glæpastarfsemi og að fleiri aðilar en þeir, sem setið hafi í gæsluvarðhaldi, hafi komið að skipulagningu hennar og hafi jafnvel veitt fyrirmæli um hana. Lögregla muni næstu daga taka þá fyrir sem taldir séu tengjast árásinni en hafi ekki setið í gæsluvarðhaldi.

Þá beri mikið í milli í lýsingum sakborninga og vitna þ.á m. brotaþola, á því sem gerðist umrætt sinn og þurfi lögregla nauðsynlega að taka frekari skýrslur af vitnum og sakborningum til þess að reyna að varpa skýrara ljósi á það sem átti sér stað.

Að mati lögreglu sé ljóst að ef kærði verður látinn laus muni hann eiga þess kost að torvelda rannsókn málsins. Afar mikilvægt sé að þeir aðilar sem sitji í gæsluvarðhaldi geti ekki rætt við þá aðila, sem lögregla telji ljóst að tengist þessu máli, og samræmt framburð sinn. Þá sé mikilvægt að þeir geti ekki haft áhrif á framburð sakborninga, vitna og brotaþola í fyrirhuguðum skýrslutökum. Málið sé afar umfangsmikið og hafi undið upp á sig við rannsóknina. Er nauðsynlegt fyrir lögreglu að fá frekara svigrúm til þess að rannsaka alla anga þess og þá sé mikilvægt fyrir lögreglu að fá sama svigrúm hvað kærða varðar og aðra sakborninga sem sitji nú í gæsluvarðhaldi. Málið sé því enn á það viðkvæmu stigi að hætta sé talin á því að sakborningur geti torveldað rannsókn málsins gangi hann laus

Kærði er undir rökstuddum grun um brot, sem varðað getur fangelsisrefsingu. Rannsókn málsins er ekki lokið. Samkvæmt rannsóknargögnum eru fleiri undir grun um aðild að málinu en þeir sem nú sæta gæsluvarðhaldi vegna málsins. Hætta þykir á því að kærði kunni að torvelda rannsókn málsins með því að hafa áhrif á vitni og samseka gangi hann laus. Með vísan til framangreinds, alvarleika brotsins og rannsóknarhagsmuna þykir því fullnægt skilyrðum a-liðar 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/ 2008 um meðferð sakamála. Verður því fallist á kröfu lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu eins og hún er fram sett og nánar greinir í úrskurðarorði.

Kærði sæti einangrun meðan á gæsluvarðhaldinu stendur.

Úrskurð þennan kveður upp Ragnheiður Bragadóttir héraðsdómari.

ÚRSKURÐARORÐ

Kærði, X, sæti áfram gæsluvarðhaldi allt til fimmtudagsins 19. janúar 2012, kl. 16:00.

Kærði sæti einangrun meðan á gæsluvarðhaldinu stendur.