Hæstiréttur íslands

Mál nr. 119/2010


Lykilorð

  • Kærumál
  • Gæsluvarðhald. 2. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008


Miðvikudaginn 3. mars 2010.

Nr. 119/2010.

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu

(Sigríður Elsa Kjartansdóttir saksóknari)

gegn

X

(Sigmundur Hannesson hrl.)

Kærumál. Gæsluvarðhald. 2. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008.

Úrskurður héraðsdóms um að X skyldi gert að sæta áfram gæsluvarðhaldi, á grundvelli 2. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála, var staðfestur.

Dómur Hæstaréttar.

Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Ólafur Börkur Þorvaldsson, Hjördís Hákonardóttir og Jón Steinar Gunnlaugsson. 

Varnaraðili skaut málinu til Hæstaréttar með kæru 26. febrúar 2010, sem barst réttinum ásamt kærumálsgögnum 1. mars 2010. Kærður er úrskurður Héraðsdóms Reykjaness 26. febrúar 2010, þar sem varnaraðila var gert að sæta áfram gæsluvarðhaldi allt til föstudagsins 12. mars 2010 klukkan 16. Kæruheimild er í l. lið 1. mgr. 192. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála. Varnaraðili krefst þess aðallega að hinn kærði úrskurður verði felldur úr gildi, en til vara að varnaraðili verði einungis látinn sæta farbanni.

Sóknaraðili krefst þess aðallega að varnaraðila verði gert að sæta áfram gæsluvarðhaldi til föstudagsins 26. mars 2010 klukkan 16 en til vara að hinn kærði úrskurður verði staðfestur.

Sóknaraðili hefur ekki kært úrskurð héraðsdóms og kemur aðalkrafa hans því ekki til meðferðar fyrir Hæstarétti.

Með vísan til forsendna hins kærða úrskurðar verður hann staðfestur.

Dómsorð:

Hinn kærði úrskurður er staðfestur.

Úrskurður Héraðsdóms Reykjaness 26. febrúar 2010.

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu hefur í dag krafist þess að Héraðsdómur Reykjaness úrskurði að X, kt. [...], verði áfram gert að sæta gæsluvarðhaldi, allt til föstudagsins 26. mars 2010, kl. 16:00.

Í greinargerð lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu segir að ávana- og fíkniefnadeild lögreglustjórans hafi haft til rannsóknar mál er varði ætlaðan innflutning á miklu magni af amfetamíni hingað til lands. Rannsókn lögreglu hafi hafist er henni hafi borist upplýsingar um að X og Y væru að skipuleggja innflutning á fíkniefnum til landsins. Samkvæmt þeim upplýsingum sem lögreglu hafi borist hafi átt að flytja fíkniefnin til landsins með skipinu A, en X sé skipverji um borð í skipinu. Skipið hafi komið til landsins 12. janúar sl. Daginn eftir, 13. janúar sl., hafi X verið handtekinn í þágu rannsóknar málsins. Við leit á honum hafi fundist rúmlega 4 kg af amfetamíni. Að sögn X hafi hann átt að afhenda fíkniefnin í íbúð að M. Fíkniefnunum hafi verið skipt út fyrir gerviefni og hafi þau verið afhent undir eftirliti lögreglu. Í íbúðinni hafi Y verið. Hann hafi verið handtekinn í framhaldinu og hafi þeir sætt gæsluvarðhaldi vegna málsins frá 14. janúar sl.

Við skýrslutökur hjá lögreglu hafi X viðurkennt að hafa flutt inn til landsins ofangreind fíkniefni. Að sögn X hafi hann hitt Y fyrir tilstilli annars óþekkts aðila. Þeir hafi átt nokkra fundi saman og rætt um að X myndi taka að sér að flytja inn fíkniefni með skipinu A til Íslands. Hlutverk X hafi verið að taka við fíkniefnunum úti í Rotterdam af Y, flytja þau inn til landsins með skipinu A og afhenda þau síðan Y að M. X hafi rætt um það við Y að fá rúmlega 1- 2 milljónir fyrir verkið, en að sögn X hafi endanleg ákvörðun um þóknun átt að liggja fyrir eftir komu hans með efnin að M. X hafi sagt að hann hafi ekki vitað nákvæmlega hver tegund efnisins var, en viðurkennt þó að hafa vitað að um amfetamín eða kókaín hafi verið að ræða.

Y og X hafi báðir sætt gæsluvarðhaldi á grundvelli rannsóknar­hagsmuna frá 14.– 29. janúar. Þá hafi þeir sætt gæsluvarðhaldi á grundvelli almannahagsmuna frá 29. janúar sl. Rannsókn málsins sé nú lokið og hafi málið verið sent til viðeigandi meðferðar hjá embætti ríkissaksóknara fyrr í dag. Lögreglustjórinn á höfuðborgar­svæðinu krefjist nú áframhaldandi gæsluvarðhalds fyrir hönd ríkissaksóknara.

Kærði þyki vera undir sterkum rökstuddum grun um aðild að broti sem geti varðað allt að 12 ára fangelsi. Meint aðild kærða þyki mikil en hún sé talin tengjast skipulagningu og flutningi fíkniefnanna hingað til lands. Lögregla telji nær öruggt að fíkniefnin hafi átt að fara í sölu og dreifingu til ótiltekins fjölda manna hér á landi. Þá sé einnig lagt til grundvallar kröfu um áframhaldandi gæsluvarðhald að um mjög mikið magn hættulegra fíkniefna sé að ræða. Hið ætlaða brot kærða þyki mjög alvarlegt. Með tilliti til hagsmuna almennings þyki þannig nauðsynlegt að kærði sæti áfram gæsluvarðhaldi á meðan mál hans sé til meðferðar en telja verði að ef sakborningur, sem orðið hafi uppvís að jafn alvarlegu broti og kærði, gangi laus áður en máli lýkur með dómi þá valdi það hneykslun í samfélaginu og særi réttarvitund almennings. Staða kærða í málinu þyki sambærileg stöðu sakborninga í öðrum svipuðum málum, sbr. mál Hæstaréttar nr. 56/2010, 551/2009, 136/2008, 306/2008, 635/2007, 376/2006, 377/2006, 378/2006, 154/2006, 368/2005, 93/2005, 488/2004, 269/2004, 417/2000 og 471/1999, þar sem sakborningum hafi verið gert að sæta gæsluvarðhaldi fram að uppkvaðningu dóms þegar legið hafi fyrir rökstuddur grunur um beina aðild að innflutningi að miklu magni fíkniefna í ágóðaskyni. Ekki sé talin ástæða til að ætla að refsimat og réttarvitund almennings í slíkum málum hafi breyst frá því téðir dómar voru uppkveðnir, og sé talið að skilyrðum 2. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála sé fullnægt í því máli sem hér um ræðir.

Til rannsóknar sé ætlað brot gegn 173. gr. a almennra hegningarlaga nr. 19/1940 ásamt síðari breytingum, sem geti varðað allt að 12 ára fangelsi. Um heimild til gæsluvarðhalds sé vísað til 2. mgr. 95. gr. laga um meðferð sakamála nr. 88/2008.

Til rannsóknar sé ætlað brot gegn 173. gr. a almennra hegningarlaga nr. 19/1940, ásamt síðari breytingum, sem geti varðað allt að 12 ára fangelsi ef sök sannast.

Um heimild til gæsluvarðhalds sé vísað til a-liðar 1. mgr. 95. gr. laga um meðferð sakamála nr. 88/2008 og til b-liðar 1. mgr. 99. gr. sömu laga hvað varðar kröfu um einangrun.

Samkvæmt þeim gögnum sem fyrir liggja er kærði undir sterkum grun um innflutning á rúmlega 4 kg af amfetamíni. Hann hefur sætt gæsluvarðhaldi frá 14. janúar sl., fyrst á grundvelli rannsóknar­hagsmuna en svo með vísan til almannahagsmuna, sbr. 2. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála. Rannsókn málsins er nú lokið og hefur málið verið sent til embættis ríkissaksóknara. Með hliðsjón af því magni amfetamíns sem um ræðir verður með vísan til 2. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008, um meðferð sakamála, fallist á kröfu lögreglustjóra um gæsluvarðhald, en ástæða þykir til að marka því skemmri tíma eins og nánar greinir í úrskurðarorði.

Úrskurð þennan kveður upp Sandra Baldvinsdóttir héraðsdómari.

Úrskurðarorð:

Kærði, X, kt. [...], sæti áfram gæsluvarðhaldi allt til föstudagsins 12. mars nk. kl. 16:00.