Hæstiréttur íslands
Mál nr. 98/2008
Lykilorð
- Kærumál
- Gæsluvarðhald. A. liður 1. mgr. 103. gr. laga nr. 19/1991
|
|
Þriðjudaginn 19. febrúar 2008. |
|
Nr. 98/2008. |
Lögreglustjórinn á Suðurnesjum(Alda Hrönn Jóhannsdóttir, fulltrúi) gegn X (Karl Georg Sigurbjörnsson hrl.) |
Kærumál. Gæsluvarðhald. A. liður 1. mgr. 103. gr. laga nr. 19/1991.
Úrskurður héraðsdóms um að X sætti áfram gæsluvarðhaldi á grundvelli a. liðar 1. mgr. 103. gr. laga nr. 19/1991 um meðferð opinberra mála var staðfestur.
Dómur Hæstaréttar.
Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Ólafur Börkur Þorvaldsson, Jón Steinar Gunnlaugsson og Páll Hreinsson.
Varnaraðili skaut málinu til Hæstaréttar með kæru 15. febrúar 2008, sem barst réttinum ásamt kærumálsgögnum 18. sama mánaðar. Kærður er úrskurður Héraðsdóms Reykjaness 15. febrúar 2008, þar sem varnaraðila var gert að sæta áfram gæsluvarðhaldi allt til föstudagsins 7. mars 2008 kl. 16. Kæruheimild er í 1. mgr. 142. gr. laga nr. 19/1991 um meðferð opinberra mála. Varnaraðili krefst þess aðallega að hinn kærði úrskurður verði felldur úr gildi en til vara að gæsluvarðhaldi verði markaður skemmri tími.
Sóknaraðili krefst staðfestingar hins kærða úrskurðar.
Með vísan til forsendna hins kærða úrskurðar verður hann staðfestur.
Dómsorð:
Hinn kærði úrskurður er staðfestur.
Úrskurður Héraðsdóms Reykjaness 15. febrúar 2008.
Lögreglustjórinn á Suðurnesjum hefur krafist þess í dag fyrir Héraðsdómi Reykjaness, með vísan til a liðar 1. mgr. 103. gr. laga nr. 19/1991 um meðferð opinberra mála, að X, kt. [...], verði með úrskurði gert að sæta gæsluvarðhaldi allt til föstudagsins 7. mars 2008 kl. 16.00.
Kærði krefst þess aðallega að kröfunni verði hafnað en til vara að gæsluvarðhaldstíma verði markaður styttri tími.
Krafan er reist á því að kærði sé undir rökstuddum grun um brot gegn lögum um ávana- og fíkniefni nr. 65/1974 og 173. gr. a almennra hegningarlaga nr. 19/1940. Kærði var úrskurðaður í gæsluvarðhald 31. janúar 2008 til dagsins í dag. Síðastliðna nótt slapp hann úr haldi lögreglu en fannst fyrir stundu. Er nú krafist áframhaldandi gæsluvarðhalds.
Í kröfu lögreglustjórans kemur m.a. fram að hann hafi um nokkurt skeið rannsakað innflutning á um 4,6 kg af amfetamíni og 600 g af kókaíni sem fundist hafi við eftirlit lögreglu og tollgæslu í bifreið á vegum hraðflutningsfyrirtækisins Z í húsakynnum á Keflavíkurflugvelli þann 15. nóvember sl. Rannsókn málsins hafi leitt í ljós að starfsmaður fyrirtækisins, A, hafi haldið innflutningsleið fíkniefna opinni í gegnum þetta flutningsfyrirtæki. Þá sé sterkur grunur um að þessi innflutningsleið hafi verið notuð áður og til hafi staðið að nota hana á ný. Þann 7.-11. janúar hafi lögreglunni borist áreiðanlegar upplýsingar um að nota ætti þessa sömu leið aftur og ætti B að taka á móti vörusendingu hjá Z við Y í Hafnarfirði. Það hafi hins vegar ekki gengið eftir en í þágu rannsóknar málsins hafi lögreglan handtekið þann 23. og 24. janúar sl. fimm aðila sem tengjast málinu. Það séu m.a. ofangreindir B og A svo og C og hafi þessir þrír verið úrskurðaðir í gæsluvarðhald. Kærði X hafi verið handtekinn 30. janúar sl. og einnig úrskurðaður í gæsluvarðhald. Hann sé grunaður um að vera viðriðinn innflutning á þessum fíkniefnum og vera sá aðili sem hafi skipulagt innflutninginn.
Rannsókn málsins sé í fullum gangi en nokkuð langt í land að henni ljúki. Lögreglan hafi þegar sent beiðni um upplýsingar erlendis frá. Þá sé verið að rannsaka umfang þess innflutnings sem farið hafi í gegnum hraðflutningsþjónustuna Z á síðustu mánuðum og árum og hverjir séu eigendur sendinganna. Lögreglan hafi unnið að því að skoða þann tölvubúnað sem haldlagður hafi verið og með það markmið að finna út samskipti hinna kærðu og hafi lögreglunni orðið nokkuð ágengt í þeim efnum. Enn sé beðið eftir upplýsingum frá viðskiptabönkum kærðu og símfyrirtækjum og því sé ljóst að mikil vinna sé framundan. Þá þyki lögreglu ljóst að fleiri kunni að vera viðriðnir þennan innflutning og sé eftir að taka skýrslu af þeim.
Að öllu framangreindu virtu, sem og gögnum málsins að öðru leyti, verður fallist á það með lögreglustjóra að fyrir hendi sé rökstuddur grunur um að kærði hafi framið afbrot sem þung fangelsisrefsing er lögð við. Verður einnig fallist á með lögreglu að rannsóknarhagsmunir krefjist þess að kærði sæti áframhaldandi gæsluvarðhaldi. Með vísan til a liðar 1. mgr. 103. gr. laga nr. 19/1991 verður krafa lögreglustjórans á Suðurnesjum tekin til greina eins og hún er fram sett og kærða gert að sæta gæsluvarðhaldi allt til föstudagsins 7. mars 2008 kl. 16.00.
Gunnar Aðalsteinsson héraðsdómari kveður upp úrskurð þennan.
Úrskurðarorð:
Kærði, X, sæti áframhaldandi gæsluvarðhaldi allt til föstudagsins 7. mars 2008 kl. 16:00.