Hæstiréttur íslands
Mál nr. 272/2017
Lykilorð
- Kærumál
- Gæsluvarðhald. C. liður 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008
Reifun
Dómur Hæstaréttar.
Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Helgi I. Jónsson og Karl Axelsson og Ingibjörg Benediktsdóttir settur hæstaréttardómari.
Varnaraðili skaut málinu til Hæstaréttar með kæru 30. apríl 2017, sem barst réttinum ásamt kærumálsgögnum 3. maí sama ár. Kærður er úrskurður Héraðsdóms Reykjavíkur 27. apríl 2017, þar sem varnaraðila var gert að sæta gæsluvarðhaldi allt til miðvikudagsins 24. maí 2017 klukkan 16. Kæruheimild er í l. lið 1. mgr. 192. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála. Varnaraðili krefst þess að hinn kærði úrskurður verði felldur úr gildi.
Sóknaraðili krefst staðfestingar hins kærða úrskurðar.
Varnaraðili, sem hefur samkvæmt sakavottorði á tímabilinu frá 4. nóvember 1992 til 22. nóvember 2012 sætt samtals hartnær 14 ára óskilorðsbundinni fangelsisrefsingu samkvæmt 16 dómum, er undir undir rökstuddum grun um að hafa gerst sekur um fjölmörg brot, sem varða fangelsisrefsingu, þar af sex brot í mars og apríl 2017. Samkvæmt þessu er fullnægt skilyrðum c. liðar 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008 til þess að varnaraðili sæti gæsluvarðhaldi eins og krafist er. Verður hinn kærði úrskurður því staðfestur.
Dómsorð:
Hinn kærði úrskurður er staðfestur.
Úrskurður Héraðsdóms Reykjavíkur 27. apríl 2017.
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu hefur krafist þess að Héraðsdómur Reykjavíkur úrskurði að X, kt. [...], verði gert að sæta gæsluvarðhaldi til miðvikudagsins 24. maí 2017 kl. 16.00.
Í greinargerð saksóknarfulltrúa kemur fram að klukkan 02.54 í nótt hafi verið tilkynnt um karlmann og konu við Grensásveg sem hafi verið að lýsa inn í bíla með vasaljósi. Þegar lögreglumenn komu á vettvang hafi þeir séð kærða ásamt konunni. Þegar lögreglumennirnir hafi gengið í átt að kærða og konunni hafi þau hlaupið í burtu en lögreglumennirnir fljótlega náð þeim og handtekið kærða og konuna. Við öryggisleit á vettvangi hafi hnífur í hulstri fundist á kærða, bundið við ökkla hans. Á kærða og konunni hafi einnig fundist ýmsir munir sem kærði segði vera úr bifreið sem þau hefðu brotist inn í skammt frá. Lögreglumenn hafi síðan fundið umrædda bifreið skammt frá, en þar hafi mátt sjá muni úr bifreiðinni liggja á jörðinni og að búið væri að róta til í bifreiðinni. Í skýrslutöku hjá lögreglu hafi kærði síðan játað að hafa tekið ljós úr umræddri bifreið.
Í greinargerð saksóknarfulltrúa segir einnig að auk þessa máls sé kærði grunaður um eftirtalin brot sem framin hafi verið á undanförnum vikum og mánuðum:
„[...] - Þjófnaður
Þann 20. apríl sl. barst lögreglu tilkynning um mann sem væri að reyna að komast inn í bifreiðar við Síðumúla. Lögregla fór á vettvang og hitti kærða sem samsvaraði við lýsingu tilkynnanda á geranda. Kærði framvísaði veski og sólgleraugum án þess að geta tilgreint hvaðan hann hefði fengið umrædda muni. Rannsókn lögreglu leiddi síðar í ljós að veskið hafði verið tekið úr bifreið við Síðumúla [...] en búið var að brjóta rúðu í bifreiðinni. Kærði neitaði sök í skýrslutöku hjá lögreglu en sagðist hafa reynt að fara inn í nokkrar bifreiðar þarna við.
[...] – Misnotkun skjals og umferðarlagabrot
Þann 19. apríl sl. stöðvar lögregla kærða við akstur bifreiðar. Kærði er grunaður um akstur undir áhrifum fíkniefna ásamt því að vera sviptur ökuréttindum ævilangt. Þá voru röng skráningarnúmer á bifreiðinni en kærði viðurkenndi fyrir lögreglumönnum að hafa sett röng númer á bifreiðina.
[...] - Þjófnaður
Þann 15. apríl sl. barst lögreglu tilkynning um innbrot í bifreið við Hamraborg en tekin voru m.a. verkfæri úr bifreiðinni. Á myndbandsupptökum frá vettvangi má sjá par brjótast inn í bifreiðina en lögreglumenn hafa þekkt kærða sem geranda af þessum upptökum. Kærði neitaði sök í skýrslutöku hjá lögreglu.
[...] - Þjófnaður
Þann 31. mars sl. barst lögreglu tilkynning um yfirstandandi innbrot í heimahús við [...] í Hafnarfirði. Skömmu síðar komu upplýsingar um að gerandi væri farinn út úr húsnæðinu og hafi geymt muni þar skammt frá. Kærði var síðan handtekinn heima hjá félaga sínum eftir að hlaupið í burtu frá lögreglumönnum skammt frá vettvangi. Í skýrslutöku hjá lögreglu viðurkenndi kærði sök og gat vísað á hluta þýfisins.
[...] – Nytjastuldur ökutækis og misnotkun skjals
Þann 19. mars sl. hafði lögregla afskipti af kærða vegna tilkynningar borgara um að maður í annarlegu ástandi hefði komið akandi á bifreið að húsnæði við Háaleitisbraut. Röng skráningarmerki voru á bifreiðinni en bifreiðinni hafði verið stolið eða hún tekin í heimildarleysi daginn áður. Kærði viðurkenndi sök í skýrslutöku hjá lögreglu.
[...] - Þjófnaður
Kæra berst frá [...] vegna þjófnaðar þann 23. nóvember sl. á snyrtivöru og matvælum samtals að verðmæti 13.084 kr. Lögreglumenn hafa þekkt kærða á myndum sem geranda. Kærði hefur játað sök hjá lögreglu.
[...] – Þjófnaður
Kærði játar að hafa brotist inn í bifreið á [...] við Sundhöllina og stolið þaðan munum þann 3. janúar 2017.
[...] - Þjófnaður
Kærði játar að hafa brotist inn í bifreið á [...] við Nettó við Sundhöllina og stolið þaðan munum þann 3. janúar 2017.
[..] – Þjófnaður
Þann 3. janúar 2017 var tilkynnt um kærða og annan mann vegna þjófnaðar á hátölurum úr verslun [...]. Málið var afgreitt með vettvangsskýrslu þar sem kærði játaði sök.
[...] –Þjófnaður
Þann 5. desember sl. var tilkynnt um innbrot í bílskúr við [...]. Lögregla handtók kærða skammt frá vettvangi en hann var með muni sem teknir voru í innbrotinu. Kærði játaði sök í skýrslutöku hjá lögreglu.
[...] – Þjófnaður
Kærði játar að hafa brotist inn í bifreið við Háaleitisbraut og tekið úr henni smámynt þann 4. september sl.
[...] – Gripdeild
Kærði játar að hafa farið inn á veitingastaðinn [...] og tekið þaðan ófrjálsri hendi fartölvu og ipad. Lögregla hafði afskipti af honum skammt frá vettvangi og kærði afhenti munina. Þá var kærði með smáræði af amfetamíni á sér.
[...] – Þjófnaður og vopnalagabrot
Þann 31. júlí sl. var tilkynnt um kærða í annarlegu ástandi fyrir utan Laugadalshöll. Á honum fannst ætlað þýfi. Kærði játaði að hafa brotist inn í tvær bifreiðar þarna skammt frá og tekið umrædda muni. Þá var kærði með rafbyssu meðferðis og smáræði af amfetamíni.
[...] – Þjófnaður
Kærði viðurkennir að hafa tekið eina tösku ófrjálsri hendi sem voru fyrir utan heimili hans við [...] þann 29. febrúar 2016.“
Þá er þess getið í greinargerð saksóknarfulltrúa að lögreglustjóri hafi einnig til meðferðar fjölmörg fíkniefnalagabrot og umferðarlagabrot kærða, m.a. að hafa ekið bifreið í sjö skipti sviptur ökuréttindum og í sex skipti undir áhrifum ávana- og fíkniefna.
Saksóknarfulltrúi áréttar að síðustu að kærði eigi að baki langan sakarferil og hafi hlotið fjölmarga dóma, þ.m.t. fyrir auðgunarbrot, en samkvæmt sakavottorði sé ferill hans nánast óslitinn frá árinu 1991. Við rannsókn mála kærða hjá lögreglu hafi komið í ljós að hann sé í neyslu fíkniefna og megi ætla að hann fjármagni fíkniefnaneyslu sína með afbrotum. Með vísan til brotaferils kærða á undanförnum vikum og mánuðum sé það einnig mat lögreglustjóra að yfirgnæfandi líkur séu á því að kærði muni halda áfram brotastarfsemi fari hann frjáls ferða sinna en nauðsynlegt sé að ljúka þeim málum sem séu til meðferðar hjá lögreglu sem fyrst.
Með vísan til framangreinds, framlagðra gagna og c-liðar 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamálamála, sé þess krafist að krafan nái fram að ganga.
Niðurstaða:
Svo sem ljóst er af því sem fram kemur í greinargerð lögreglustjóra og sakavottorði kærða er hann síbrotamaður og hefur hann margoft verið dæmdur til óskilorðsbundinnar fangelsisrefsingar. Lögreglan hefur nú til rannsóknar fjölmörg brot sem kærði er samkvæmt framlögðum rannsóknargögnum undir rökstuddum grun um að hafa framið og hefur hann játað sök í sumum þeirra. Meðal þeirra eru brot sem varða fangelsisrefsingu og er í ljósi sakarferils kærða þess vart að vænta að refsing yrði skilorðsbundin verði hann fundinn sekur um þau með dómi.
Með vísun til framangreinds er fallist á það með lögreglustjóra að ætla megi að kærði haldi áfram afbrotum hafi hann óskert frelsi. Því er fallist á að fullnægt sé almennum skilyrðum 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008 og einnig sérstökum skilyrðum c-liðar sömu málsgreinar til að kærða verði gert að sæta gæsluvarðhaldi og verður fallist á kröfuna svo sem nánar greinir í úrskurðarorði.
Ú R S K U R Ð A R O R Ð
Kærði, X, kt. [...], skal sæta gæsluvarðhaldi til miðvikudagsins 24. maí 2017 kl. 16.00.