Hæstiréttur íslands
Mál nr. 174/2013
Lykilorð
- Kærumál
- Gæsluvarðhald. A. liður 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008
|
|
Mánudaginn 18. mars 2013. |
|
Nr. 174/2013.
|
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Jón H.B. Snorrason saksóknari) gegn X (Ómar Örn Bjarnþórsson hdl.) |
Kærumál. Gæsluvarðhald. A. liður 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008.
Úrskurður héraðsdóms um að X skyldi áfram sæta gæsluvarðhaldi, á grundvelli a. liðar 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála, var staðfestur.
Dómur Hæstaréttar.
Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Greta Baldursdóttir og Helgi I. Jónsson og Ingveldur Einarsdóttir settur hæstaréttardómari.
Varnaraðili skaut málinu til Hæstaréttar með kæru 14. mars 2013, sem barst réttinum ásamt kærumálsgögnum degi síðar. Kærður er úrskurður Héraðsdóms Reykjaness 14. mars 2013, þar sem varnaraðila var gert að sæta áfram gæsluvarðhaldi allt til fimmtudagsins 28. mars 2013 klukkan 16 og einangrun meðan á því stendur. Kæruheimild er í l. lið 1. mgr. 192. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála. Varnaraðili krefst þess aðallega að hinn kærði úrskurður verði felldur úr gildi, en til vara að gæsluvarðhaldi verði markaður skemmri tími og að honum verði ekki gert að sæta einangrun.
Sóknaraðili krefst staðfestingar hins kærða úrskurðar.
Svo sem greinir í hinum kærða úrskurði er varnaraðili undir rökstuddum grun um að hafa framið brot sem varðað getur að lögum 12 ára fangelsi. Er því fullnægt skilyrði 3. málsliðar 2. mgr. 98. gr. laga nr. 88/2008 til að varnaraðila verði gert að sæta einangrun í gæsluvarðhaldi lengur en fjórar vikur. Að þessu gættu en að öðru leyti með vísan til forsendna hins kærða úrskurðar verður hann staðfestur.
Dómsorð:
Hinn kærði úrskurður er staðfestur.
Úrskurður Héraðsdóms Reykjaness 14. mars 2013.
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu hefur krafist þess fyrir í dag fyrir Héraðsdómi Reykjaness með vísan til a. liðar 1. mgr. 95 gr., b. liðar 1. mgr. 99. gr. og 3. ml. 2. mgr. 98. gr. laga um meðferð sakamála nr. 88/2008 að X, kt. [...], skuli áfram sæta gæsluvarðhaldi allt til fimmtudagsins 28. mars 2013, kl. 16:00. Þá er þess krafist að honum verði gert að sæta einangrun á meðan á gæsluvarðhaldinu stendur.
Kærði mótmælir kröfunni. Hann krefst þess að gæsluvarðhaldinu verði hafnað en til vara að því verði markaður skemmri tími en krafist er. Þá er þess krafist að kröfu um að kærði verði látinn sæta einangrun verði hafnað.
Krafan er reist á því að kærði sé undir grun um brot gegn lögum nr. 173. gr. a almennra hegningarlaga nr. nr. 19/1940.
Í kröfu lögreglustjórans segir m.a. að ávana- og fíkniefnadeild lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu hafi nú til rannsóknar stórfelldan innflutning fíkniefna frá Kaupmannahöfn. Um sé að ræða tæp 20 kíló af amfetamíni og tæpa 2 lítra af amfetamínvökva, sem flutt hafi verið hingað til lands með pósti, en lögregla hafi lagt hald á sendingarnar 21. og 24. janúar sl.
Í þágu rannsóknar málsins hafi lögregla handtekið og yfirheyrt átta sakborninga, þ.m.t. kærða X, og sæti nú alls sex einstaklingar gæsluvarðhaldi m.t.t. rannsóknarhagsmuna málsins.
Lögregla hafi undir höndum myndbandsupptökur þar sem sjá megi meðkærðu, A, B og C, póstleggja þann 18. janúar sl. þær sendingar er innihéldu umrædd 20 kíló af amfetamíni. Lögregla bíði hins vegar enn myndbandsupptaka úr pósthúsi þar sem amfetamínvökvinn hafi verið póstlagður þann 22. janúar sl.
Þann 20. febrúar hafi kærði X verið handtekinn grunaður um aðild að umræddum fíkniefnainnflutningi og hann úrskurðaður í gæsluvarðhald sem síðan hafi verið framlengt til dagsins í dag, sbr. dóm Hæstaréttar Íslands nr. 153/2013. Í skýrslutökum hjá lögreglu hafi kærði neitað allri aðild sinni að málinu.
Í málinu liggi fyrir mikil símasamskipti milli meðkærða A og kærða X, þá daga sem A hafi verið staddur í Kaupmannahöfn í umrætt sinn. Af símagögnum megi sjá nokkurn fjölda SMS-skeyta þeirra á milli þá daga sem innflutningurinn hafi átt sér stað og hafi þeim skeytum verið eytt úr símum þeirra. Hvorki A né X hafi getað upplýst lögreglu um innihald skeytanna. Þá megi sjá af símagögnum að aðeins tuttugu mínútum eftir að A póstleggur pakkana í Kaupmannahöfn hringir hann í X, en X muni lítið sem ekkert eftir því símtali.
Þá liggi og fyrir að kærði X hafi sótt meðkærða A er hann kom til landsins 23. janúar sl. og hafi lögregla fylgst með því hvar kærði hafi tekið A upp í bifreið sína við Keflavíkurflugvöll og ekið honum að heimili hans við [...] í Hafnarfirði. Þaðan hafi þeir ekið upp í Hádegismóa í Reykjavík, þar sem lögregla hafi fylgst með þeim ganga um móana.
Við rannsókn málsins hafi komið fram, í framburði tveggja sakborninga, þ.e. D og B, sem báðir sæti nú einangrun vegna málsins, að A hafi greint þeim frá því að hann væri með mann á sínum vegum, starfsmann tollsins, sem hafi átt að tryggja að umræddar póstsendingar kæmust í gegnum tollafgreiðslu. Kváðu þeir báðir að umræddur starfsmaður tollsins væri frændi A, hann væri með fíkniefnahund, hann væri sköllóttur og æki um á [...] bifreið. Kærði, A, sem er tollvörður með fíkniefnaleitarhund, sé móðurbróðir A, þá sé hann hárlaus á höfði og aki um á [...].
Í málinu liggi fyrir að eftir samskipti A og kærða X þann 23. janúar hafi A greint meðkærða B frá því að lögregla væri búin að haldleggja póstsendingarnar og jafnframt að lögregla fylgdist með ferðum A. Sé það grunur lögreglu að kærði X hafi upplýst A um haldlagningu fíkniefnanna og að lögregla fylgdist með ferðum hans.
Við skoðun á fjármálagögnum kærða og framburði hans sjálfs megi sjá að kærði er í miklum fjárhagsvandræðum. Föstudaginn áður en A og B fara til Kaupmannahafnar taki X smálán. Á mánudeginum eftir, sama dag og þeir fara út, greiði X allt í einu reikninga fyrir 50 þúsund krónur. Þetta komi saman við framburði B og D um að A hafi ætlað að láta vin sinn, tollarann, hafa 100 þúsund krónur áður en þeir færu út til Kaupmannahafnar. Framburður X um tilurð þessa 50 þúsund króna sé að mati lögreglu ótrúverðugur.
Þá hafi einnig komið fram í framburði D að honum skildist sem svo að þeir A og tollarinn ættu að fá þrjátíu prósent í sinn hlut.
Við skýrslutöku hjá lögreglu hafi verið borinn undir X grunur lögreglu um neyslu hans á fíkniefnum. X hafi neitað því. Við leit í bílskúr X hafi komið í ljós efnisleifar í litlum skammtapokum sem gáfu svörun fyrir amfetamíni og kókaíni. Við skýrslutöku hjá lögreglu sagði X að um væri að ræða æfingaefni fyrir fíkniefnaleitarhundinn.
Við skýrslutökur hjá lögreglu beri X mikið fyrir sig minnisleysi, þá sérstaklega þegar komi að samskiptum hans við frænda sinn og meðkærða, A. Framburðir X sem liggja fyrir í málinu séu að mati lögreglu ótrúverðugir. Þeir komi ekki saman við framburði annarra aðila er koma að málinu né þau gögn sem liggja fyrir í málinu.
Í framburði meðkærðu B og D í gær hafi komið fram upplýsingar um þriðja aðila sem lögreglu gruni að hafa staðið að baki innflutningnum, fjármögnun og skipulagningu hans.
Um er að ræða mjög umfangsmikið og stórt fíkniefnamál sem hafi að hluta til verið unnið í samstarfi við lögregluna í Danmörku. Í ljósi ofangreinds sé ljóst að taka þurfi frekari skýrslur af kærðu, þá þurfi að kanna með aðild annarra aðila að málinu, frekari yfirheyrslur og að afla enn frekari gagna. Það sé því nauðsynlegt að lögregla fái frekara svigrúm til að ná utan um rannsókn málsins. Þá gætir ennþá mikils ósamræmis í framburði kærða og annarra sakborninga. Enn eigi eftir að afla frekari gagna, vinna úr þeim og bera sjálfstætt undir aðila málsins.
Kærði sé undir rökstuddum grun um aðild að afbroti sem allt að 12 ára fangelsisrefsing er lögð við. Um sé að ræða stórfelldan innflutning fíkniefna, sem víst þyki að hafi átt að fara í sölu- og dreifingu hér á landi.
Með vísan til framangreinds sé það mat lögreglustjóra að lagaskilyrðum rannsóknargæslu sé fullnægt. Með skírskotun til þess, framlagðra gagna, a. liðar 1. mgr. 95. gr., b. liðar 1. mgr. 99. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála sé þess krafist að krafan nái fram að ganga.
Kærði var handtekinn 20. febrúar sl. og úrskurðaður í gæsluvarðhald í framhaldi af því. Rökstuddur grunur er kominn fram um að kærði hafi gerst sekur um háttsemi sem fangelsisrefsing er lögð við. Ljóst þykir að lögregla þurfi frekara svigrúm til þess að ná utan um rannsóknina og tryggja rannsóknarhagsmuni málsins, enda er málið mjög umfangsmikið. Verður því að telja brýnt að kærði sæti áfram gæsluvarðhaldi þannig að hann fái ekki tækifæri til að torvelda rannsókn málsins með því að hafa áhrif á aðra samseka eða vitni. Með vísan til a. liðar 95. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála er því fallist á kröfu lögreglustjórans um gæsluvarðhald eins og hún er fram sett og nánar greinir í úrskurðarorði. Jafnframt er fallist á þá kröfu lögreglustjóra að kærði sæti einangrun meðan á gæsluvarðhaldinu stendur.
Finnbogi H. Alexandersson héraðsdómari kveður upp úrskurð þennan.
Úrskurðarorð:
Kærði, X, skal sæta áfram gæsluvarðhaldi allt til fimmtudagsins 28. mars 2013, kl. 16:00.
Kærði skal sæta einangrun á meðan á gæsluvarðhaldinu stendur.