Hæstiréttur íslands

Mál nr. 217/2009


Lykilorð

  • Kærumál
  • Gæsluvarðhald. A. liður 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008


Miðvikudaginn 6

 

Miðvikudaginn 6. maí 2009.

Nr. 217/2009.

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu

(Jón H. B. Snorrason,saksóknari)

gegn

X

(Sveinn Andri Sveinsson hrl.)

 

Kærumál. Gæsluvarðhald. A. liður 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008.

Úrskurður héraðsdóms um að X skyldi gert að sæta gæsluvarðhaldi, á grundvelli a. liðar 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála, var staðfestur.

 

Dómur Hæstaréttar.

Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Ólafur Börkur Þorvaldsson og Jón Steinar Gunnlaugsson og Viðar Már Matthíasson settur hæstaréttardómari. 

Varnaraðili skaut málinu til Hæstaréttar með kæru 30. apríl 2009, sem barst réttinum ásamt kærumálsgögnum 5. maí sama ár. Kærður er úrskurður Héraðsdóms Reykjaness 30. apríl 2009, þar sem varnaraðila var gert að sæta gæsluvarðhaldi allt til þriðjudagsins 12. maí 2009 kl. 16. Kæruheimild er í l. lið 1. mgr. 192. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála. Varnaraðili krefst þess aðallega að hinn kærði úrskurður verði felldur úr gildi en til vara að gæsluvarðhaldi verði markaður skemmri tími og að henni verði ekki gert að sæta einangrun á gæsluvarðhaldstíma. Sóknaraðili krefst þess að hinn kærði úrskurður verði staðfestur.

Með vísan til forsendna hins kærða úrskurðar verður hann staðfestur.

Dómsorð:

Hinn kærði úrskurður er staðfestur.

 

Úrskurður Héraðsdóms Reykjaness 30. apríl 2009.

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu hefur krafist þess að X, kt. [...], verði gert að sæta gæsluvarðhaldi, allt til þriðjudagsins 12. maí 2009, kl. 16:00.  Þess er krafist að X verði látin vera í einrúmi á meðan á gæsluvarðhaldi stendur.

Í greinargerð lögreglustjóra segir að lögreglustjórinn hafi haft til rannsóknar ætlað mansal og milligöngu vændis kærðu, þ.e. að hún hafi flutt til Íslands stúlkur sem hún hafi síðan haft milligöngu um að stundi vændi og taki hluta þóknunar sem greidd er fyrir.  Við rannsókn málsins hafi stúlkur borið um að þær starfi við vændi á vegum X og að hún fái hluta þóknunar, þ.e. að hún hafi milligöngu um vændi þeirra hér á landi.

Þann 12. febrúar sl. hafi X farið til Hollands með kærasta sínum, Y.  Hafi lögreglu borist upplýsingar um að þau hygðust koma með mikið magn fíkniefna til baka úr ferðinni.  X hafi komið aftur til Íslands fyrr en áætlað hafi verið og hefði Y verið handtekinn í Amsterdam fyrir innflutning til Hollands á 12 kg af kókaíni.  X hafi í kjölfarið verið úrskurðuð í gæsluvarðhald á grundvelli hins ætlaða fíkniefnamáls og ætlaðs mansals og milligöngu vændis. 

Rannsókn lögreglu hafi frá þeim tíma einnig beinst að ætluðum stórfelldum fíkniefnabrotum X.  Á grundvelli rannsóknar lögreglu hafi aðilar, sem taldir eru hafa komið hingað til lands á vegum X, verið handteknir við komu til landsins með fíkniefni innvortis, samtals um 400-500 g af kókaíni og hafi fengið dóma fyrir að flytja efnin til landsins.  Greind efni hafi verið flutt til landsins 2. og 12. apríl sl.  Lögregla hafi upplýsingar um tengingu X við greinda aðila og ferðir þeirra hingað til lands.  Sé flutningur efnanna hingað til lands talinn tengjast umfangsmeiri fíkniefnabrotum sem til rannsóknar séu.

Rannsókn lögreglu miði að því að finna ætlaða samverkamenn X, yfirheyra þá og vitni og finna út hvernig staðið hafi verið að skipulagningu og fjármögnun á ætluðum brotum.  Þurfi í því sambandi meðal annars að afla upplýsinga frá erlendum lögregluyfirvöldum.

 Rökstuddur grunur sé um stórfellt fíkniefnabrot og milligöngu vændis, X.  Nauðsynlegt sé talið að hún sæti gæsluvarðhaldi vegna málsins, svo henni sé fyrirmunað að setja sig í samband við ætlaða vitorðsmenn og/eða vitni og/eða að hún geti komið undan gögnum sem sönnunargildi hafi í málinu og hafa ekki verið haldlögð.  Þykir þannig nauðsynlegt að vernda rannsóknarhagsmuni málsins með því að X sæti gæsluvarðhaldi og að hún verði látin vera í einrúmi á meðan á gæsluvarðhaldi stendur.

Til rannsóknar séu ætluð brot gegn 173. gr. a og 206. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 ásamt síðari breytingum, en fyrrgreinda brotið getur varðað allt að 12 ára fangelsi. Um heimild til gæsluvarðhalds er vísað til a liðar 1. mgr. 95. gr. laga um meðferð sakamála nr. 88/2008 og til b liðar 1. mgr. 99. gr. sömu laga hvað varðar kröfu um einangrun.

Samkvæmt rannsóknargögnum málsins er kærða undir rökstuddum grun um aðild að fíkniefnabrotum 2. og 12. apríl sl., og öðrum málum sem eru til rannsóknar. Brot ákærðu geta varðað fangelsisrefsingu. Haldi kærða óskertu frelsi sínu með á rannsókn stendur gæti hún torveldað rannsókn með því að hafa áhrif á framburð vitorðsmanna eða vitna. Með vísan til a-liðar 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála er því fallist á kröfu lögreglustjóra um gæsluvarðhald eins og hún er fram sett og nánar greinir í úrskurðarorði. Þá verður með sömu rökum og rakin eru hér að framan og með vísan til b-liðar 1. mgr. 99. gr. laga nr. 88/2008 fallist á kröfu lögreglustjóra um að kærða sæti einangrun á meðan hún sætir gæsluvarðhaldi samkvæmt úrskurði þessum.

Sandra Baldvinsdóttir héraðsdómari kveður upp úrskurð þennan.

Úrskurðarorð:

Kærða, X, sæti gæsluvarðhaldi allt til þriðjudagsins 12. maí 2009 kl. 16:00.

Kærða skal sæta einangrun í gæsluvarðhaldinu.