Hæstiréttur íslands
Mál nr. 124/2013
Lykilorð
- Kærumál
- Gæsluvarðhald. A. liður 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008
|
|
Mánudaginn 25. febrúar 2013. |
|
Nr. 124/2013.
|
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Jón H.B. Snorrason saksóknari) gegn Z (Haukur Örn Birgisson hrl.) |
Kærumál. Gæsluvarðhald. a. liður 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008. Gæsluvarðhaldsúrskurður staðfestur.
Staðfestur var úrskurður héraðsdóms þar sem X var gert að sæta áfram gæsluvarðhaldi á grundvelli a. liðar 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála.
Dómur Hæstaréttar.
Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Viðar Már Matthíasson og Benedikt Bogason og Ingveldur Einarsdóttir settur hæstaréttardómari.
Varnaraðili skaut málinu til Hæstaréttar með kæru 21. febrúar 2013, sem barst réttinum ásamt kærumálsgögnum degi síðar. Kærður er úrskurður Héraðsdóms Reykjaness 21. febrúar 2013, þar sem varnaraðila var gert að sæta áfram gæsluvarðhaldi allt til fimmtudagsins 7. mars 2013 klukkan 16 og einangrun meðan á því stendur. Kæruheimild er í l. lið 1. mgr. 192. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála. Varnaraðili krefst þess aðallega að hinn kærði úrskurður verði felldur úr gildi, en til vara að gæsluvarðhaldi verði markaður skemmri tími og að honum verði ekki gert að sæta einangrun.
Sóknaraðili krefst staðfestingar hins kærða úrskurðar.
Svo sem greinir í hinum kærða úrskurði er varnaraðili undir grun um að hafa framið brot sem varðað getur 12 ára fangelsi. Er því fullnægt skilyrði 3. málsliðar 2. mgr. 98. gr. laga nr. 88/2008 til að varnaraðila verði gert að sæta einangrun í gæsluvarðhaldi lengur en í fjórar vikur. Að þessu gættu en að öðru leyti með vísan til forsendna hins kærða úrskurðar verður hann staðfestur.
Dómsorð:
Hinn kærði úrskurður er staðfestur.
Úrskurður Héraðsdóms Reykjaness 21. febrúar 2013.
Lögreglustjórinn á Suðurnesjum hefur krafist þess fyrir dóminum í dag að Héraðsdómur Reykjaness úrskurði að Z, kt. [...], verði gert að sæta gæsluvarðhaldi allt til fimmtudagsins 7. mars 2013 kl. 16:00. Þá er þess krafist að honum verði gert að sæta einangrun á meðan á gæsluvarðhaldinu stendur.
Kærði hefur mótmælt gæsluvarðahaldskröfunni.
Í greinargerð lögreglustjóra segir að ávana- og fíkniefnadeild lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu hafi til rannsóknar stórfelldan innflutning á fíkniefnum frá Kaupmannahöfn. Um hafi verið að ræða tæp 20 kíló af amfetamíni og tæpa tvo lítra af amfetamínvökva, sem flutt hafi verið hingað til lands með pósti, en lögregla hafi lagt hald á sendingarnar 21. og 24. janúar sl.
Í þágu rannsóknar málsins hafi lögregla handtekið og yfirheyrt átta sakborninga, þ.m.t. kærða [...], og sæti nú alls fimm einstaklingar gæsluvarðhaldi vegna rannsóknarhagsmuna málsins.
Lögregla hafi undir höndum myndbandsupptökur þar sem sjá megi kærða Z og meðkærðu Y og Þ póstleggja þann 19. janúar sl. þær sendingar er innihaldið hafi umrædd 20 kíló af amfetamíni. Lögregla bíði hins vegar enn eftir myndbandsupptökum úr pósthúsi þar sem amfetamínvökvinn hafi verið póstlagður þann 22. janúar sl.
Mánudaginn 28. janúar sl. hafi meðkærði Æ sótt eina sendingu í póstafgreiðslu við Stórhöfða í Reykjavík. Lögregla hafi fylgst með því þegar hann afhenti ofangreindum Þ sendinguna við matsölustaðinn [...] við [...] og séð áðurgreindan Þ ganga með póstsendinguna áleiðis að Elliðaám þar sem hann hafi losað sig við hana. Hafi hann verið handtekinn strax í kjölfarið. Þá hafi lögregla einnig fylgst með því og tekið eftir að meðkærði Ý hélt sig í námunda við pósthúsið og virtist fylgjast með afhendingu pakkans.
Í greinargerð lögreglustjóra segir að kærði hafi verið handtekinn 24. janúar sl. vegna gruns um aðild að fíkniefnainnflutningnum og hafi hann verið úrskurðaður í gæsluvarðhald, nú síðast með dómi Hæstaréttar Íslands nr. 107/2003.
Í skýrslutökum hjá lögreglu hafi kærði borið um það að hann hafi átt afar takmarkaðan þátt í brotinu. Hann hafi vitað hvað til stæði og hans hlutverk hafi fyrst og fremst verið að halda meðkærða Y félagsskap úti í Kaupmannahöfn og aðstoða hann við að koma sendingunum í póst. Þá hafi hann borið um það að bróðir hans, meðkærði X, hafi verið aðalskipuleggjanda innflutningsins og að X hafi afhent honum fjármuni til kaupa á flugmiðum og gistingu. Kærði Z hafi einnig greint frá því að hann hafi hitt meðkærða Y á heimili þess síðarnefnda hinn 23. janúar. Þar hafi Y upplýst hann um að lögregla væri búin að leggja hald á sendingarnar og að fylgst væri með ferðum þeirra. Þá hafi hann tekið við miða úr hendi Y með svokölluðu tracking-númeri einnar póstsendingarinnar og að Y hafi beðið hann um að koma miðanum til meðkærða Þ. Þá hafi Y einnig beðið hann um að koma skilaboðum til meðkærða X um að lögregla væri búin að haldleggja sendingarnar. Loks hafi kærði Z borið um að hafa gert hvoru tveggja, en hvorki X né Þ hafi kannast við að hafa hitt kærða Z.
Í greinargerðinni segir að það sé grunur lögreglu að kærði hafi ásamt fleiri mönnum staðið að innflutningi mikils magns sterkra fíkniefna hingað til lands. Rannsókn lögreglu sé hvergi nærri lokið og sé nauðsynlegt að yfirheyra kærða frekar og að hafa uppi á og taka skýrslur af fleiri einstaklingum sem kunni að tengjast málinu. Þá sé einnig beðið frekari gagna frá Danmörku. Eins vinni lögregla nú að rannsókn á banka- og símaupplýsingum kærða og annarra sakborninga.
Mikilvægt sé í þágu rannsóknarinnar að unnt sé að bera upplýsingar undir kærða sjálfstætt á meðan hann sætir gæsluvarðhaldi og að hann sæti einangrun á þessu stigi rannsóknarinnar. Gangi kærði laus geti hann torveldað rannsókn málsins, svo sem með því að koma undan munum sem hafa sönnunargildi í málinu eða hafa áhrif á aðra samverkamenn.
Mál þetta sé stórt í sniðum og allumfangsmikið. Málið teljist á engan hátt upplýst. Það sé því afar brýnt að lögregla fái frekara svigrúm til að ná utan um rannsókn málsins. Enn gæti mikils ósamræmis í framburði sakborninga og vitna og því sé nauðsynlegt fyrir lögreglu að taka frekari skýrslur af sakborningum, auk þess sem afla þurfi frekari gagna eins og ofan greinir.
Kærði sé undir rökstuddum grun um aðild að afbroti, sem varðað geti allt að 12 ára fangelsi. Um sé að ræða stórfelldan innflutning fíkniefna, sem víst þyki að hafi átt að fara í sölu- og dreifingu hér á landi. Þyki þannig brýnt að vernda rannsóknarhagmuni á þessu stigi málsins með því að varna því að kærði gangi laus. Í málinu liggi fyrir mat Hæstaréttar Íslands um að lagaskilyrðum a. liðar 1. mgr. 95. gr. sé fullnægt og hafi ekkert nýtt komið fram í málinu sem breytt geti því mati.
Með vísan til framangreinds sé það mat lögreglustjóra að lagaskilyrðum rannsóknargæslu sé fullnægt. Með skírskotun til þess, framlagðra gagna, a. liðar 1. mgr. 95. gr., b. liðar 1. mgr. 99. gr. og 3. ml. 2. mgr. 98. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála sé þess krafist að krafan nái fram að ganga.
Kærði er undir rökstuddum grun um brot, sem varðað getur allt að 12 ára fangelsi. Ljóst þykir að rannsókn málsins er umfangsmikil og teygir m.a. anga sína út fyrir landsteinana. Alls hafa átta sakborningar verið úrskurðaðir í gæsluvarðhald vegna málsins, þar af sæta sex þeirra enn gæsluvarðhaldi, en sá síðasti var handtekinn í gær. Rannsókn málsins er ekki lokið, en talsverðs ósamræmis gætir í framburði kærða og annarra sakborninga í málinu og á eftir að taka frekari skýrslur af þeim og vitnum í málinu. Þá eiga eftir að berast frekari gögn frá Kaupmannahöfn, m.a. ljósmyndir úr eftirlitsmyndavél á pósthúsi þar sem síðari fíkniefnasendingin var póstlögð. Einnig eiga eftir að berast gögn frá bönkum og öðrum fjármálastofnunum um bankaviðskipti kærða og annarra sakborninga, og þá er unnið að rannsókn á gögnum frá síma- og fjarskiptafyrirtækjum að því varðar símasamskipti hinna grunuðu. Með hliðsjón af framangreindu þykir því mega ætla að kærði geti torveldað rannsókn málsins með því að skjóta undan munum eða hafa áhrif á vitni eða samseka fari hann frjáls ferða sinna. Með vísan til alls framangreinds þykir fullnægt skilyrðum a. liðar 1. mgr. 95. gr. og b. liðar 1. mgr. 99. gr., sbr. 3. ml. 2. mgr. 98. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála, til að verða við kröfu lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu um að kærði sæti gæsluvarðhaldi og einangrun eins og nánar greinir í úrskurðarorði.
Ragnheiður Bragadóttir héraðsdómari kveður upp úrskurð þennan.
Úrskurðarorð:
Kærði, Z, skal sæta gæsluvarðhaldi allt til fimmtudagsins 7. mars nk. kl. 16:00.
Kærði skal sæta einangrun meðan á gæsluvarðhaldinu stendur.