Hæstiréttur íslands

Mál nr. 608/2008


Lykilorð

  • Kærumál
  • Gæsluvarðhald. A. liður 1. mgr. 103. gr. laga nr. 19/1991


                                     

Miðvikudaginn 12. nóvember 2008.

Nr. 608/2008.

Lögreglustjórinn á Suðurnesjum

(Aldra Hrönn Jóhannsdóttir, fulltrúi)

gegn

X

(Unnar Steinn Bjarndal hdl.)

 

Kærumál. Gæsluvarðhald. A. liður 1. mgr. 103. gr. laga nr. 19/1991.

Úrskurður héraðsdóms um að X skyldi sæta áfram gæsluvarðhaldi á grundvelli a. liðar 1. mgr. 103. gr. laga nr. 19/1991 um meðferð opinberra mála var staðfestur.

Dómur Hæstaréttar.

Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Ólafur Börkur Þorvaldsson, Jón Steinar Gunnlaugsson og Páll Hreinsson.

Varnaraðili skaut málinu til Hæstaréttar með kæru 10. nóvember 2008, sem barst réttinum ásamt kærumálsgögnum degi síðar. Kærður er úrskurður Héraðsdóms Reykjaness 10. nóvember 2008, þar sem varnaraðila var gert að sæta áfram gæsluvarðhaldi allt til föstudagsins 14. nóvember 2008 kl. 16. Kæruheimild er í 1. mgr. 142. gr. laga nr. 19/1991 um meðferð opinberra mála. Varnaraðili krefst þess aðallega að hinn kærði úrskurður verði felldur úr gildi en til vara að gæsluvarðhaldi verði markaður skemmri tími.

Sóknaraðili krefst staðfestingar hins kærða úrskurðar.

Fallist er á með sóknaraðila að fram sé kominn rökstuddur grunur um að varnaraðili hafi framið þann verknað sem rannsókn sóknaraðila beinist að. Af gögnum málsins verður dregin sú ályktun að hætta kunni að vera á að varnaraðili geti torveldað rannsókn málsins verði ekki fallist á kröfu sóknaraðila. Með vísan til a. liðar 1. mgr. 103. gr. laga nr. 19/1991 verður hinn kærði úrskurður því staðfestur.

Dómsorð:

Hinn kærði úrskurður er staðfestur.

 

Úrskurður Héraðsdóms Reykjaness 10. nóvember 2008.

Lögreglustjórinn á Suðurnesjum hefur krafist þess að kærða, X, kt. [...], [heimilisf.], Hafnarfirði, verði gert að sæta gæsluvarðhaldi, allt til föstudagsins 14. nóvember 2008, kl. 16.00.

Í greinargerð lögreglustjóra segi að honum hafi borist beiðni þann 4. nóvember sl. um lögreglurannsókn á ætluðu kynferðisbroti gegn barninu A, þriggja ára dóttur kærða, sem lúti forsjá hans. Hafi strax þótt rökstuddur grunur um að kærði, faðir barnsins, hefði brotið gegn barninu kynferðislega. Hafi kærði verið handtekinn og úrskurðaður í gæsluvarðhald frá 6. nóvember sl. til dagsins í dag kl. 16.00. Er vísað nánar til rannsóknargagna málsins og úrskurðar í máli nr. R-546/2008.

Í greinargerðinni segir að frá því að rannsókn málsins hófst hjá lögreglu hafi verið unnið hörðum höndum að því að afla gagna í málinu og þar á meðal að taka skýrslur af mögulegum vitnum auk þess að framkvæma húsleitir og rannsaka haldlögð gögn. Þá hafi bæði kærði og þolandi sætt læknisrannsókn og er sérstaklega vísað til niðurstöðu og læknisvottorðs Jóns R. Kristinssonar barnalæknis.

Með hliðsjón af þeirri rannsókn, sem fram hafi farið hjá lögreglu og sé enn í gangi, telji lögregla að sterkur grunur sé um að þolandi hafi sætt kynferðislegu ofbeldi. Með vísan til gagna málsins og atvika allra telji lögregla jafnframt að rökstuddur grunur sé um að kærði, faðir þolanda, hafi beitt þolanda kynferðislegu ofbeldi.

Í greinargerð lögreglu segir ennfremur að rannsókn málsins sé í fullum gangi. Lögreglustjóri telji brýna nauðsyn á að kærða verði gert að sæta gæsluvarðhaldi áfram, svo lögreglu gefist tími til að rannsaka meinta háttsemi kærða, sem lögregla telji mjög alvarlega og enn sé ekki ljóst hversu umfangsmikil og tíð ætluð brot kærða séu, en þau kunni að varða við XXII. kafla almennra hegningarlaga nr. 19/1940, einkum 200. gr. laganna með áorðnum breytingum. Lögregla telji að gangi kærði laus megi ætla að hann geti torveldað rannsókn málsins með því að koma undan gögnum, sem haft geti þýðingu við framhald rannsóknarinnar, auk þess að geta haft áhrif á vitni og hugsanlega samverkamenn sína.

Með vísan til þess sem nú hefur verið rakið og þá sérstaklega með hliðsjón af skýrslu barnsins hér fyrir dómi og áðurgreinds læknisvottorðs, er kærði undir rökstuddum grun um að hafa brotið gegn 200. gr. almennra hegningarlaga. Rannsókn málsins er ekki lokið og á eftir að afla frekari gagna og rannsaka haldlögð gögn. Hætta þykir á því að kærði kunni að torvelda rannsóknina fari hann frjáls ferða sinn. Með vísan til a-liðar 1. mgr. 103. gr. laga nr. 19/1991 eru því lagaskilyrði fyrir hendi til að kærði sæti áframhaldandi gæsluvarðhaldi. Að því virtu er fallist á kröfu lögreglustjóra eins og hún er fram sett og nánar greinir í úrskurðarorði.

Ragnheiður Bragadóttir héraðsdómari kveður upp úrskurðinn.

Úrskurðarorð

Kærði, X, kt. [...], sæti gæsluvarðhaldi allt til föstudagsins 14. nóvember 2008 kl. 16:00.