Hæstiréttur íslands

Mál nr. 581/2013


Lykilorð

  • Kærumál
  • Gæsluvarðhald. A. liður 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008


                                     

Þriðjudaginn 3. september 2013.

Nr. 581/2013.

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu

(Jón H.B Snorrason saksóknari)

gegn

X

(Sveinn Andri Sveinsson hrl.)

Kærumál. Gæsluvarðhald. A. liður 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008.

Úrskurður héraðsdóms um að X skyldi sæta gæsluvarðhaldi, á grundvelli a. liðar 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála, og einangrun meðan á því stæði var staðfestur.

Dómur Hæstaréttar

Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Benedikt Bogason og Helgi I. Jónsson og Ingveldur Einarsdóttir settur hæstaréttardómari.

Varnaraðili skaut málinu til Hæstaréttar með kæru 30. ágúst 2013 sem barst réttinum ásamt kærumálsgögnum 2. september sama ár. Kærður er úrskurður Héraðsdóms Reykjaness 30. ágúst 2013 þar sem varnaraðila var gert að sæta gæsluvarðhaldi allt til föstudagsins 6. september sama ár klukkan 16 og einangrun meðan á því stendur. Kæruheimild er í l. lið 1. mgr. 192. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála. Varnaraðili krefst þess að hinn kærði úrskurður verði felldur úr gildi, en til vara að gæsluvarðhaldi verði markaður skemmri tími og að hann verði ekki látinn sæta einangrun.

Sóknaraðili krefst staðfestingar hins kærða úrskurðar.

Svo sem rakið er í hinum kærða úrskurði eru til rannsóknar hjá lögreglu fjöldi þjófnaðarmála þar sem rökstuddur grunur beinist að varnaraðila. Auk þeirra mála sem þar eru rakin beinist rannsóknin jafnframt að fjölda annarra mála þar sem grunur hefur fallið á varnaraðila, en í rannsóknargögnum kemur meðal annars fram að í farsíma hans séu myndir af þýfi úr þessum málum. Samkvæmt þessu en að öðru leyti með vísan til forsendna hins kærða úrskurðar verður hann staðfestur.

Dómsorð:

Hinn kærði úrskurður er staðfestur.

Úrskurður Héraðsdóms Reykjaness 30. ágúst 2013.

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu hefur krafist þess að Héraðsdómur Reykjaness úrskurði að X, kt. [...], sæti gæsluvarðhaldi, allt til föstudagsins 6. september nk. kl. 16:00. Þá er gerð krafa um að kærði sæti einangrun meðan á gæsluvarðhaldinu stendur. Í greinargerð lögreglustjóra er vísað til eftirfarandi:

Mál 007-2013-31327, innbrot og þjófnaður að [...] í Reykjavík.

Þann 16. júní sl. hafi lögregla verið kölluð að íbúðarhúsinu við [...] en þar hafi verið brotist inn og stolið peningakassa úr stáli, $1.000 og evrum að verðmæti 550.000 kr. auk skartgripa. Sonur tjónþola þekki kærða og hann segi að kærði hafi komið og bankað upp á hjá foreldrum sínum að [...] daginn fyrir innbrotið. Við húsleit að [...] hjá kærða hafi fundist munir úr innbrotinu.

Mál 007-2013-32058, innbrot og þjófnaður að [...] í Garðabæ.

Þann 19. júní hafi lögregla verið kölluð að íbúðarhúsinu við [...] en þar hafi gluggi í stofu verið spenntur upp og þaðan stolið tveimur fartölvum, spjaldtölvu, myndavél, armbandsúri, ray ban sólgleraugum auk bakpoka merktum Stjörnunni. Við húsleit hjá kærða hafi fundist bakpokinn en tjónþoli segi hann auðþekktan þar sem slíkur bakpoki hafi ekki verið seldur á almennum markaði.

Mál 007-2013-38087, farið inn í herbergi sem skilið hafi verið eftir ólæst á meðan tjónþoli brá sér á salernið. Tekin Macbook air fartölva,  iPhone 4 sem og evrur. Einnig Samsung Galaxy, en sá sími hafi hugsanlega verið tekinn daginn áður.

Mál 007-2013-38931, innbrot og þjófnaður að [...] í Kópavogi.

Þann 28. júlí sl. hafi lögregla verið kölluð að íbúðarhúsinu við [...] í Kópavogi en þar hafi verið farið inn um svalahurð á húsnæðinu og þaðan stolið fartölvu, leikjatölvu, Tivoli tæki undir ipod nano og ipod nano. Tjónþolar þekki til kærða. Við húsleit að [...] hafi fundist fartölva úr innbrotinu sem unnt hafi verið að rekja til A, en lögreglu gruni að hún hafi verið í félagi með X í þessu og fleirum brotanna. Munirnir hafi ekki fundist en X sé grunaður um þjófnaðinn í félagi við A en lögregla hafi fengið upplýsingar þess efnis, í framburðarskýrslu m.a. B, að þau hafi stolið frá túristum á hótelinu.

Mál 007-2013-38919, innbrot og þjófnaður að [...] í Reykjavík.

Þann 28. júlí  sl. hafi lögregla verið kölluð að íbúðarhúsinu við [...] en þar hafi verið spennt upp útihurð og þaðan stolið sjónvarpi, myndavél, fartölvu, og Bang&Olufsen dokku ásamt peningum úr sparibaukum. Tjónþolar þekki til kærða og þá hafi kærði haft samband við tjónþola skömmu eftir innbrotið er tjónþoli hafi lýst eftir tölvu með persónulegum myndum á facebook og kvaðst myndu hugsanlega getað reddað honum tölvunni gegn greiðslu. Símagögn sem lögreglan hafi undir höndum styðji þetta.

Mál 007-2013-39221, innbrot og þjófnaður í bifreið framan við Bláa Lónið að Svartsengi.

Þann 30. júlí hafi verið tilkynnt um innbrot og þjófnað úr bifreið en þaðan hafi verið stolið Nikon myndavél en myndavélin hafi fundist við húsleit að [...] í gær.

Mál 007-2013-39413, innbrot og þjófnaður á [...] við [...] í Reykjavík.

Þann 30. júlí hafi lögregla verið kölluð að [...] en þar hafi verið brotist inn á eitt hótelherbergi og þaðan stolið myndavélum sem og bifreiðinni [...] sem sé hvít VW Polo bifreið. Lögregla hafi fundið bifreiðina í námunda við [...] í gær en þá hafi hún verið á stolnum númeraplötum bæði að framan og aftan en þó með sitthvoru númerinu. Sjónarvottur hafi sagt að umráðamaður bifreiðarinnar gangi ávallt inn í [...], en kærði hafi neitað að hafa verið á bifreiðinni. Þá hafi grunaður samverkamaður greint lögreglu frá því að munir sem fundust í bifreiðinni tilheyri honum.

Mál 007-2013-38929 og -40085, innbrot og þjófnaður að [...] við [...] í Reykjavík.

Dagana 28. júlí og 2. ágúst hafi verið brotist inn á hótelherbergi að [...]. Við húsleit að [...] hafi fundist farsími í sama herbergi og kærði hafi verið handtekinn í en farsíminn sé talinn vera úr innbrotinu þann 28. júlí sl.

Mál 007-2013-40432, innbrot og þjófnaður að [...] í Kópavogi.

Þann 5. ágúst sl. hafi lögregla verið kölluð að íbúðarhúsinu við [...] en þar hafi verið skrúfuð rúða úr útidyrahurð íbúðarinnar og þaðan stolið peningaveski með 6.000 kr. í reiðufé, tveimur gullhringum og gullhálsmeni. Sjónarvottur hafi lýst því að maður hafi verið með borvél framan við íbúðina að morgni 4. ágúst og lýst geranda skilmerkilega en lýsingin passi við kærða. Þá þekki tjónþoli kærða.

Mál 007-2013-40569, þjófnaður að [...] í Reykjavík á tímabilinu 26. – 31. júlí.

Kærði hafi viðurkennt í skýrslutöku hjá lögreglu að hafa farið til [...] og stolið þaðan 500.000 kr. í reiðufé. En þaðan sé einnig saknað 6.000 evra sem kærði neiti að hafa tekið.

Mál 007-2013-40552, innbrot og þjófnaður að [...] í Garðabæ.

Þann 6. ágúst sl. hafi lögregla verið kölluð að íbúðarhúsinu að [...] en þar hafi verið spenntur upp gluggi í kjallara og farið inn í húsið um nótt á meðan heimilismenn sváfu og stolið þaðan tveimur farsímum, fartölvu og Rolex armbandsúri. Framan við húsnæðið hafi sést hvítur Polo en kærði sé grunaður um að hafa ekið um á stolinni bifreið af sama lit og gerð.

M. 007-2013-40312, innbrot og þjófnaður af heimili að [...]. 

Teknir munir, Apple TV, Apple macbook pro 13“,  Xbox leikjatölva, ipod Touch, bíllyklar og eldsneytiskort.  Einnig teknir peningar og iphone 4 farsími. Samkvæmt framburði vitnis þekki X til húsráðenda. Það sé grunur lögreglu að X hafi farið inn í íbúðina að [...].  

Mál 007-2013-40461, innbrot og þjófnaður í fimm herbergi á [...] við [...] í Hafnarfirði.

Þann 6. ágúst sl. hafi lögregla verið kölluð að [...] vegna innbrots í fimm herbergi hótelgesta. Úr fjórum herbergjanna hafi verðmætum verið stolið. Tilkynnandi hafi sagt að um kvöldmatarleytið daginn áður hafi íslenskur maður verið að þvælast um hótelið en engir íslenskir gestir hafi verið bókaðir á hótelinu. Allar fimm hurðarnar hafi verið spenntar upp með einhverju verkfæri. Í öryggismyndavélakerfi hótelsins hafi X sést ganga inn í hótelið en þangað hafi hann komið á bifreiðinni [...]. Þá hafi bakpoki og í honum munir frá einum hótelgestanna fundist í þessari sömu bifreið kærða.

Mál 007-2013-41200, þjófnaður í garði við [...] í Reykjavík.

Þann 2. ágúst sl. hafi verið tilkynnt um stolið Jet Ski sem hafi verið á kerru í garði við [...]. Aðili á bifreiðinni [...], sem kærði hafi viðurkennt að hafa verið með til umráða, hafi sést á vettvangi stuttu fyrir þjófnaðinn. Brotaþoli hafi endurþekkt kærða á mynd.

M. 007-2013-41682, þjófnaður af heimili að [...]. Fartölvu stolið.

Umrædd fartölva, DELL, hafi fundist í fórum B en hún hafi sagt að X hefði komið með þessa tölvu á heimili sitt, mál nr. 007-2013-41207. Tölvan hafi verið eign [...] en þar starfi tjónþoli.

Þann 9. ágúst hafi kærði verið handtekinn að [...] í [...] vegna gruns um aðild að framangreindum málum. Daginn eftir hafi hann verið úrskurðaður í gæsluvarðhald á grundvelli a. liðar 1. mgr. 95. gr. laga um meðferð sakamála til 21. ágúst. Sá úrskurður hafi verið staðfestur með dómi Hæstaréttar í máli nr. 536/2013. Þann 21. ágúst hafi kærði svo verið úrskurðaður í áframhaldandi gæslu á grundvelli rannsóknarhagsmuna til dagsins í dag. Sá úrskurður hafi einnig verið staðfestur með dómi Hæstaréttar.

Kærði neiti enn sök fyrir utan aðild að máli 007-2013-40569. Hann hafi ekki gefið haldbærar skýringar á því hvernig meint þýfi komst í hans vörslur, en lögregla hafi náð að tengja kærða við fjölda þessara innbrota. Frá því kærði var síðast úrskurðaður í gæsluvarðhald hafi lögregla unnið markvisst að því að endurheimta þýfi og m.a. farið í sex húsleitir á höfuðborgarsvæðinu í fyrradag þar sem lagt hafi verið hald á marga muni og aðilar yfirheyrðir. Málið sé því enn að vinda upp á sig og umfang þess orðið afar mikið, en lögregla hafi á síðustu dögum einnig haldlagt muni úr áður óupplýstum innbrotum og þjófnaðarmálum og sé sú vinna á frumstigi (mál nr. 007-2013-3096, 7465, 16718, 19556, 20508, 20617, 24878, 25876, 27080 og 27254). Enn sé því nokkuð í land og nauðsynlegt að lögregla fái ráðrúm til frekari rannsóknar, svo sem að fara í fleiri húsleitir, taka skýrslur af mögulegum samverkamönnum sem tekið hafi við þýfi, auk þess sem enn eigi eftir að greina muni sem haldlagðir hafa verið. Þá sé lögregla enn að vinna úr símagögnum sem aflað hafi verið við rannsókn málsins en vinnsla þeirra hafi fram að þessu verið afar mikilvæg við að endurheimta muni. Einnig hafi lögregla ekki enn náð að handtaka mögulegan samverkamann kærða, A, en lögreglu gruni að hún hafi verið með honum að verki í einhverjum af þeim innbrotum sem til rannsóknar eru.

Ljóst sé því að rannsókn málanna sé enn ekki lokið, enda mikið magn þýfis sem ekki hafi tekist að endurheimta.

Það sé mat lögreglu að verði kærði látinn laus muni hann eiga þess kost að torvelda rannsókn málanna, sérstaklega með því að koma undan munum, en einnig með því að hafa áhrif á framburð samverkamanna og vitna. Lögregla telur það brýnt fyrir framgang málsins að fallist verði á framkomna kröfu um gæsluvarðhald á grundvelli rannsóknarhagsmuna svo unnt sé að rannsaka málið án hættu á að kærði getið spillt rannsókn þess.

Sakarefni málsins sé talið varða við 244. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940  og eða eftir atvikum 254. gr. sömu laga sem og við 259. gr. sömu laga. Kærði sé undir rökstuddum grun um aðild að málunum samkvæmt rannsókn lögreglu. Það sé því brýnt og nauðsynlegt með vísan til alls framanritaðs og gagna málsins að öðru leyti að kærða verði með vísan til a-liðar 1. mgr. 95. gr. laga um meðferð sakamála nr. 88/2008 gert að sæta gæsluvarðhaldi til föstudagsins 6. september kl. 16.00 og til að sæta einangrun samkvæmt b-lið 1. mgr. 99. gr. sömu laga.

Eins og rakið hefur verið hefur kærði sætt gæsluvarðahaldi frá 10. ágúst sl. á grundvelli rannsóknarhagsmuna. Rannsókn lögreglu er ekki lokið en hún er umfangsmikil og hún hefur undið upp á sig. Lögregla rannsakar nú m.a. mál nr. 007-2013-20508, 19556, 43142, 20617, 27254, 24878, 7465, 25876, 27080, 16718 og 3096, en í öllum þeim málum benda rannsóknargögn eindregið til aðildar kærða að þeim. Haldi kærði óskertu frelsi sínu gæti hann torveldað rannsókn lögreglu með því að koma sönnunargögnum undan eða hafa áhrif á samseka og vitni. Samkvæmt framansögðu og með vísan til a-liðar 1. mgr. 95. gr. og b-liðar 1. mgr. 99. gr. laga nr. 88/2008, um meðferð sakamála, er því fallist á kröfu lögreglustjóra, eins og nánar greinir í úrskurðarorði.

Úrskurð þennan kveður upp Sandra Baldvinsdóttir héraðsdómari.

Úrskurðarorð:

Kærði, X, sæti gæsluvarðhaldi allt til föstudagsins 6. september 2013, klukkan 16:00. Kærði skal sæta einangrun meðan á gæsluvarðhaldinu stendur.