Hæstiréttur íslands
Mál nr. 174/2010
Lykilorð
- Kærumál
- Gæsluvarðhald. 2. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008
|
|
Fimmtudaginn 18. mars 2010. |
|
Nr. 174/2010. |
Ákæruvaldið (Valtýr Sigurðsson ríkissaksóknari) gegn X (Björgvin Þorsteinsson hrl.) |
Kærumál. Gæsluvarðhald. 2. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008.
Úrskurður héraðsdóms um að X skyldi gert að sæta gæsluvarðhaldi, á grundvelli 2. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála, var staðfestur.
Dómur Hæstaréttar.
Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Ólafur Börkur Þorvaldsson og Hjördís Hákonardóttir og Viðar Már Matthíasson settur hæstaréttardómari.
Varnaraðili skaut málinu til Hæstaréttar með kæru 16. mars 2010, sem barst réttinum ásamt kærumálsgögnum 17. sama mánaðar. Kærður er úrskurður Héraðsdóms Reykjaness 16. mars 2010, þar sem varnaraðila var gert að sæta áfram gæsluvarðhaldi á meðan mál hans er til meðferðar fyrir Hæstarétti, þó eigi lengur en til miðvikudagsins 26. maí 2010 klukkan 16. Kæruheimild er í l. lið 1. mgr. 192. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála. Varnaraðili krefst þess að hinn kærði úrskurður verði felldur úr gildi.
Sóknaraðili krefst staðfestingar hins kærða úrskurðar.
Með vísan til forsendna hins kærða úrskurðar verður hann staðfestur.
Dómsorð:
Hinn kærði úrskurður er staðfestur.
Úrskurður Héraðsdóms Reykjaness 16. mars 2010.
Ríkissaksóknari krafðist þess í dag fyrir Héraðsdómi Reykjaness með vísan til 2. mgr. 95. gr., sbr. 3. mgr. 97. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála að X, kt. [...], [...], [...], verði gert að sæta gæsluvarðhaldi á meðan mál hans er til meðferðar fyrir Hæstarétti, þó eigi lengur en til miðvikudagsins 26. maí 2010 kl. 16.00.
Dómfelldi krefst þess að kröfunni verði hafnað.
Krafan er reist á því að dómfelldi hafi verið dæmdur í héraði fyrir brot gegn 173. gr. a almennra hegningarlaga nr. 19/1940 og geti brot hans varðað allt að 12 ára fangelsi.
Í kröfu ríkissaksóknara kemur m.a. fram að dómfelldi hafi verið handtekinn þann 22. maí 2009 vegna rannsóknar stórfellds fíkniefnabrots en hann sé grunaður um að hafa gerst sekur um innflutning á samtals 6.149, 58 g af amfetamíni frá Hollandi til Íslands, ætluðu til söludreifingar í ágóðaskyni. Tollgæsla og lögregla hafi lagt hald á efnin 21. apríl 2009 í vörugeymslu á Keflavíkurflugvelli. Dómfelldi sé grunaður um að hafa lagt á ráðin við innflutninginn og verið í samráði við vitorðsmenn í Hollandi varðandi tilhögun sendinga efnanna til landsins. Ákæra á hendur dómfellda hafi verið gefin út 13. ágúst 2009 og hafi dómur verið kveðinn upp í málinu 25. nóvember 2009. Dómfelldi hafi verið sakfelldur fyrir stórfellt fíkniefnabrot, sbr. 173. gr. a almennra hegningarlaga nr. 19/1940, og dæmdur til að sæta fangelsi í þrjú og hálft ár. Dómfelldi hafi áfrýjað dóminum til Hæstaréttar og sé málið komið á dagskrá Hæstaréttar 28. apríl nk.
Dómfelldi hafi sætt gæsluvarðhaldi frá 22. maí 2009 og hafi það verið byggt á a-lið 1. mgr. 95. gr. laga um meðferð sakamála nr. 88/2008. Gæsluvarðhaldi hafi verið framlengt 17. júlí 2009 og þá hafi krafan verið byggð á 2. mgr. 95. gr. sömu laga, sbr. dóma Hæstaréttar frá 23. júlí 2009 í málinu nr. 410/2009, frá 13. október 2009 í máli nr. 580/2009 og frá 9. nóvember 2009 í máli nr. 639/2009. Jafnframt hafi krafan verið byggð á sömu lagagrein í úrskurðum Héraðsdóms Reykjaness frá 13. ágúst 2009, frá 10. september 2009, frá 8. október 2009, frá 5. nóvember 2009, frá 25. nóvember 2009 og 22. desember 2009.
Ríkissaksóknari vísar auk þess til alvarleika sakarefnisins og telur nauðsynlegt vegna almannahagsmuna að dómfellda verði gert að sæta áframhaldandi gæsluvarðhaldi á meðan mál hans er til meðferðar fyrir Hæstarétti. Vísar ríkissaksóknari til dómvenju í þeim efnum.
Fallist verður á með ríkissaksóknara skilyrði 2. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008 séu uppfyllt í málinu. Með vísan til 3. mgr. 97. gr. laganna verður krafa ríkissaksóknara tekin til greina eins og hún er fram sett í beiðni. Dómfelldi verður því úrskurðaður til að sæta áfram gæsluvarðhaldi á meðan mál hans er til meðferðar fyrir Hæstarétti, þó eigi lengur en til miðvikudagsins 26. maí 2010 kl. 16.00.
Úrskurð þennan kveður upp Gunnar Aðalsteinsson héraðsdómari.
Úrskurðarorð:
Dómfelldi, X, skal sæta gæsluvarðhaldi á meðan mál hans er til meðferðar hjá Hæstarétti, þó ekki lengur en til miðvikudagsins 26. maí 2010 kl. 16:00.