Hæstiréttur íslands

Mál nr. 551/2007


Lykilorð

  • Kærumál
  • Gæsluvarðhald. A. liður 1. mgr. 103. gr. laga nr. 19/1991


Mánudaginn 22

 

Mánudaginn 22. október 2007.

Nr. 551/2007.

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu

(Jón H. B. Snorrason, saksóknari)

gegn

X

(Bjarni Hauksson hdl.)

 

Kærumál. Gæsluvarðhald. A. liður 1. mgr. 103. gr. laga nr. 19/1991.

 

Úrskurður héraðsdóms um að X skyldi sæta áfram gæsluvarðhaldi á grundvelli a. liðar 1. mgr. 103. gr. laga nr. 19/1991 um meðferð opinberra mála var staðfestur.

 

Dómur Hæstaréttar.

Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Ólafur Börkur Þorvaldsson, Jón Steinar Gunnlaugsson og Páll Hreinsson. 

Varnaraðili skaut málinu til Hæstaréttar með kæru 18. október 2007, sem barst réttinum ásamt kærumálsgögnum 19. sama mánaðar. Greinargerðir málsaðila bárust réttinum 22. október 2007. Kærður er úrskurður Héraðsdóms Reykjavíkur 18. október 2007, þar sem varnaraðila var gert að sæta áfram gæsluvarðhaldi allt til fimmtudagsins 1. nóvember 2007 kl. 16. Kæruheimild er í 1. mgr. 142. gr. laga nr. 19/1991 um meðferð opinberra mála. Varnaraðili krefst þess aðallega að hinn kærði úrskurður verði felldur úr gildi, en til vara að gæsluvarðhaldi verði markaður skemmri tími. 

Í greinargerð sóknaraðila er þess krafist að varnaraðila verði gert að sæta áfram gæsluvarðhaldi allt til fimmtudagsins 8. nóvember 2007 kl. 16. Sóknaraðili reisir kröfu sína aðallega á rannsóknarhagsmunum, sbr. a. lið 1. mgr. 103. gr. laga nr. 19/1991, en til vara á því að gæsluvarðhald sé nauðsynlegt með tilliti til almannahagsmuna, sbr. 2. mgr. 103. gr. laganna. Varnaraðili mótmælir því að rannsóknarhagsmunir standi til gæsluvarðhalds en fellst á að honum verði gert að sæta gæsluvarðhaldi á grundvelli 2. mgr. 103. gr. laganna, verði á annað borð fallist á kröfu sóknaraðila.

Sóknaraðili hefur ekki kært úrskurð héraðsdóms fyrir sitt leyti. Kemur því ekki til álita krafa hans um að gæsluvarðhaldi verði markaður lengri tími en gert var hinum kærða úrskurði.

Með vísan til forsendna hins kærða úrskurðar verður hann staðfestur.

Dómsorð:

Hinn kærði úrskurður er staðfestur.

 

                          Úrskurður Héraðsdóms Reykja­víkur 18. október 2007.

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu hefur krafist þess að Héraðsdómur Reykjavíkur úrskurði að X, kt. [...], [heimilisfang], sæti áfram gæsluvarðhaldi allt til fimmtudagsins 8. nóvember 2007, kl. 16:00:

 

a) á grundvelli rannsóknarhagsmuna, sbr. a-lið 1. mgr. 103. gr. laga um       meðferð              opinberra mála nr. 19/1991 (aðalkrafa) eða

 

b) á grundvelli almannahagsmuna, sbr. 2. mgr. 103. gr. sömu laga. (varakrafa).

 

Í kröfu lögreglustjóra kemur fram að lögreglan á höfuðborgarsvæðinu rannsaki ætlaðan innflutning á stórfelldu magni fíkniefna til Íslands. Um kl. 6:00 þann 20. september sl. hafi Y og Z lagt skútu við bryggju á Fáskrúðsfirði og hafi þeir verið handteknir af lögreglu í kjölfarið vegna gruns um fíkniefnamisferli, en þeir hafi reynt að koma sér undan með því að sigla skútunni frá bryggju þegar þeir urðu lögreglu varir. Um borð í skútunni hafi fundist mikið magn af fíkniefnum. Litlu seinna hafi Þ ekið bifreiðinni [...] að bryggjunni, en lögreglumenn þekkt hann sem grunaðan í þessu máli og hafi hann því verið handtekinn vegna rannsóknar málsins. Séu vísbendingar um að þeir Y og Z hafi strax eftir afhendingu fíkniefnana til Þ ætlað að sigla til baka til Noregs. Kærði og Æ hafi síðar átt að fá fíkniefnin afhent fyrir milligöngu aðila sem hlutverk hafa í skipulagi þessarar brotastarfsemi.

Lögregla hafi í langan tíma búið yfir upplýsingum um skipulagningu innflutnings og dreifingar fíkniefna í miklu magni þar sem m.a. kærði sé talinn eiga hlut að máli.  Formleg lögreglurannsókn málsins hafi staðið yfir síðan í nóvember á síðasta ári og á þeim tíma hafi verið fylgst grannt með kærða og Æ og hafi það eftirlit leitt til þess að lögregla handtók Z, Y og Þ á Fáskrúðsfirði þann 20. september sl. eftir að skútan lagði að bryggju. Bæði kærði og Æ séu taldir tengjast umræddum innflutningi og sé það ætlun lögreglu að þeir hafi tekið þátt í að fjármagna og skipuleggja hann. Við rannsókn málsins hafi meðal  annars komið í ljós að kærði hafi tekið þátt í að senda peninga til Færeyja þegar Z og Y voru í Færeyjum vegna viðgerðar á skútunni. Hafi Þ verið ásamt kærða þegar peningarnir voru sendir. Kærði og Æ séu m.a. taldir láta af hendi peninga sem notaðir hafa verið til greiðslu þess kostnaðar sem fallið hafi til við brotastarfsemi þessa. 

Gögn og upplýsingar sem fundist hafa og aflað hafi verið gefa mynd af málinu og hlutverkum þeirra sem því tengjast. Meðal þess sem fannst hjá Þ við handtöku á Fáskrúðsfirði hafi verið gögn með upplýsingum sem svara til upplýsinga og áætlana sem séu í dagbók sem fannst hjá kærða, en í gögnum séu upplýsingar um símanúmer hjá kærða [...]. Talið sé að fíkniefnunum hafi verið pakkað í Kaupmannahöfn m.a. af Æ í Danmörku og hafa all margir aðilar verið handteknir þar og yfirheyrðir vegna málsins. Sjá nánar framburðarskýrslur í gögnum málsins. Þá hafi Ö verið handtekinn vegna málsins og sæti nú gæsluvarðhaldi á grundvelli rannsóknarhagsmuna en þáttur hans sé talinn hafa átt að vera að taka við fíkniefnasendingunni frá Þ þegar hún kæmi til landsins og geyma hana í sumarhúsi rétt austan Hellu á Rangárvöllum.

Grunsemdir, byggðar á nýjum upplýsingum, séu um að með sömu verknaðaraðferð hafi umtalsverðu magni fíkniefna verið komið til landsins með skútu til Fáskrúðsfjarðar árið 2005.  Lögreglu hafi borist ábendingar um að skútan [...] hafi verið notuð í þeirri ferð til þess að flytja fíkniefni til landsins, en skútan sé í eigu kærða og bróður hans A. Þá liggi fyrir grunur lögreglu um að kærði ásamt samverkamönnum sínum hafi notað ágóðann af sölu og dreifingu þeirra fíkniefna til þess að fjármagna þann fíkniefnainnflutning sem átti sér stað 20. september sl. Kærði hafi verið yfirheyrður vegna málsins og vísist til framburðaskýrslna í gögnum málsins.

Rannsókn þessa máls sem sé mjög umfangsmikil hafi miðað ágætlega en fram til þessa hafi rannsókn miðað að því að upplýsa um innflutning fíkniefnanna til Fáskrúðsfjarðar í september s.l. Rannsóknarmenn hafi yfirheyrt fjölda manns hér á landi og aflað upplýsinga í samræmi við það en þá hafi lögregla í Danmörku, Noregi og víðar í Evrópu unnið að rannsókninni einnig bæði með rannsóknaraðgerðum samkvæmt ósk frá íslenskum yfirvöldum og með því að rannsóknarmenn lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu hafa unnið í nefndum löndum við hlið hinna erlendu rannsóknarmanna að margskonar lögregluvinnu í þágu málsins.  Þessi rannsókn hafi nú á síðustu vikum rennt enn frekari stoðum undir grunsemdir um aðild kærðu að umfangsmiklu og skipulögðu smygli og dreifingu á fíkniefnum til landsins allt frá árinu 2005 sem sé, eins og rakið hafi verið, einnig til rannsóknar.

Kærði þyki vera undir rökstuddum grun um aðild að fíkniefnabroti. Meint aðild kærða sé talin varða skipulagningu, fjármögnun, útvegun og pökkun fíkniefnanna erlendis og flutningur þeirra til Íslands til dreifingar hér. Nauðsynlegt sé að upplýsa nánar um hvernig fjármögnun brotsins fór fram, en sterkur grunur lögreglu sé fyrir því að kærði hafi fjármagnað umræddan innflutning með smygli fíkniefna til landsins í byrjun árs 2005 og sölu og dreifingu hér á landi. Nauðsynlegt sé að rannsaka nánar fjármál kærða og fjármálatengsl við aðra með tilliti til eignamyndunar og notkun kærða á fjármunum á tímabilinu frá árinu 2004 til 2007, en talið sé að kærði flytji inn og selji fíkniefni í hagnaðarskyni og sér og öðrum til framfærslu. Rannsókn málsins  miði áfram, en málið sé talið umfangsmikið. Framundan sé frekari gagnaöflun með tilliti til fjármálaumsvifa kærða. Fyrir dyrum standi umfangsmikil rannsókn og gagnaúrvinnslu sem talið sé að geti skýrt fjárhagslegan ávinning og afrakstur af meintum brotum kærða og tengsl kærða við ætlaða vitorðsmenn, en kærði sé grunaður um þátttöku í skipulögðum innflutning fíkniefna og peningaþvætti. Nauðsynlegt sé að kærði sæti gæsluvarðhaldi, en ljóst sé að gangi kærði laus geti hann sett sig í samband við meinta vitorðsmenn sem ganga lausir eða þeir geti sett sig í samband við hann eða kærði komið undan gögnum sem hafa sönnunargildi sem ekki hefur verið lagt hald á. Þyki þannig brýnt að vernda rannsóknarhagsmuni á þessu stigi málsins með því að varna því að kærði gangi laus.

Framundan séu m.a. frekari yfirheyrslur af meintum samverkamönnum kærða, en þann 16. október sl. hafi Ö verið úrskurðaður í gæsluvarðhald vegna málsins vegna gruns um að hafa átt að móttaka umrædda fíkniefnasendingu. Sem stendur hafi ekki öll gögn borist lögreglu erlendis frá en munu berast á næstunni. Unnið sé að úrvinnslu gagna en rannsókn málsins sé umfangsmikil og verði flýtt eftir föngum. Kærði þyki vera undir sterkum rökstuddum grun um aðild að stórfelldu fíkniefnabroti. Kærði hafi sætt gæsluvarðhaldi frá 20. september sl. Meint aðild kærða þyki mikil en hann sé talin tengjast skipulagningu, fjármögnun, útvegun og pökkun fíkniefnanna erlendis eins og áður var nefnt. Einnig sé lagt til grundvallar að um sé að ræða mjög mikið magn sterkra og hættulegra fíkniefna. Nær öruggt þyki að fíkniefnin hafi átt að fara í sölu og dreifingu til ótiltekins fjölda manna hér á landi. Hið meinta brot kærða, sem hann hefur þegar játað aðild að, þykir mjög alvarlegt. Með tilliti til hagsmuna almennings þyki þannig nauðsynlegt að kærði sæti áfram gæsluvarðhaldi á meðan mál hans er til meðferðar en telja verði að ef sakborningur, sem orðið hafi uppvís að jafn alvarlegu broti og kærði, gangi laus áður en máli lýkur með dómi þá valdi það hneykslun í samfélaginu og særi réttarvitund almennings. Staða kærða í málinu þyki sambærileg stöðu sakborninga í öðrum svipuðum málum, sbr. mál Hæstaréttar nr.: 376/2006, 377/2006, 378/2006, 154/2006, 368/2005, 93/2005, 488/2004, 269/2004, 417/2000 og 471/1999, þar sem sakborningum hafi verið gert að sæta gæsluvarðhaldi fram að dómi þegar legið hefur fyrir rökstuddur grunur um beina aðild að innflutningi að miklu magni fíkniefna í hagnaðarskyni. Sé ekki talin ástæða til að ætla að refsimat og réttarvitund almennings í slíkum málum hafi breyst frá því téðir dómar voru uppkveðnir, og sé talið að skilyrðum 2. mgr. 103. gr. laga nr. 19/1991 um meðferð opinberra mála sé fullnægt í því máli sem hér um ræðir.

Verið sé að rannsaka ætluð brot gegn fíkniefnalöggjöfinni og megi ætla að ef þau sönnuðust, þá myndu þau geta varðað allt að 12 ára fangelsi, sbr. 173. gr. a. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, auk þess sé verið að rannsaka brot gegn 264. gr. sömu laga.  Um heimild til gæsluvarðhalds hvað varðar aðalkröfu er vísað til a-liðar 1. mgr. 103. gr. laga nr. 19, 1991 um meðferð opinberra mála, en hvað varðar varakröfu sé vísað til 2. mgr. 103. gr. sömu laga.

Með úrskurði þessa réttar uppkveðnum 20. september sl. var kærða gert að sæta gæsluvarðhaldi til kl. 16 í dag.

Á grundvelli gagna málsins er það mat dómara að fullnægt sé skilyrðum til að fallist verði á aðalkröfu lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu um gæsluvarðhald á grundvelli rannsóknarhagsmuna sbr. a-lið 1. mgr. 103. gr. laga nr. 19/1991. Niðurstaða úrskurðarins er sú er að fallast beri á kröfu lögreglustjórans um að kærði sæti áfram gæsluvarðhaldi en þó eigi lengur en til fimmtudagsins 1. nóvember 2007 kl. 16.

Sigurður H. Stefánsson héraðsdómari kveður upp úrskurðinn.

Ú R S K U R Ð A R O R Ð

Kærði, X, kt. [...], sæti áfram gæsluvarðhaldi allt til fimmtudagsins 1. nóvember 2007, kl. 16:00.