Hæstiréttur íslands

Mál nr. 629/2010


Lykilorð

  • Kærumál
  • Gæsluvarðhald. 2. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008


Mánudaginn 8. nóvember 2010.

Nr. 629/2010.

Ákæruvaldið

(Valtýr Sigurðsson ríkissaksóknari)

gegn

X

(Sigmundur Hannesson hrl.)

Kærumál. Gæsluvarðhald. 2. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008.

Úrskurður héraðsdóms um að X skyldi gert að sæta gæsluvarðhaldi, á grundvelli 2. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála, var staðfestur þar sem talinn var sterkur grunur um að X hafi gerst sek um brot sem varðað geta allt að 12 ára fangelsi.

Dómur Hæstaréttar.

Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Jón Steinar Gunnlaugsson, Páll Hreinsson og Viðar Már Matthíasson.

Varnaraðili skaut málinu til Hæstaréttar með kæru 4. nóvember 2010, sem barst réttinum ásamt kærumálsgögnum degi síðar. Kærður er úrskurður Héraðsdóms Reykjaness 4. nóvember  2010, þar sem varnaraðila var gert að sæta áfram gæsluvarðhaldi, þar til dómur fellur í máli hennar, þó eigi lengur en til 2. desember 2010 klukkan 16. Kæruheimild er í l. lið 1. mgr. 192. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála. Varnaraðili krefst þess aðallega að hinn kærði úrskurður verði felldur úr gildi, en til vara að henni verði gert að sæta farbanni í stað gæsluverðhalds. Að þessu slepptu krefst hún styttingar á gæsluvarðhaldstíma.

Sóknaraðili krefst staðfestingar hins kærða úrskurðar.

Sóknaraðili hefur upplýst fyrir Hæstarétti að sakamál á hendur varnaraðila vegna þeirra sakargifta, sem eru tilefni gæsluvarðhaldsvistar hennar, hafi verið tekið til dóms í héraðsdómi 5. nóvember 2010.

Fallist er á með sóknaraðila að sterkur grunur sé um að varnaraðili hafi gerst sek um brot sem varðað getur allt að 12 ára fangelsi og að fullnægt sé skilyrðum 2. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008 fyrir gæsluvarðhaldi hennar þann tíma sem í hinum kærða úrskurði greinir. Verður hann því staðfestur.

Dómsorð:

      Hinn kærði úrskurður er staðfestur.

Úrskurður Héraðsdóms Reykjaness 4. nóvember 2010.

Ríkissaksóknari hefur í dag krafist þess að Héraðsdómur Reykjaness úrskurði að X, þýskum ríkisborgara, fæddri [...], verði gert að sæta áfram gæsluvarðahaldi þar til dómur fellur í máli hennar, þó eigi lengur en til 2. desember 2010, kl. 16.00.

Í greinargerð ríkissaksóknara segir að ákærða hafi ásamt Y verið handtekin á Seyðisfirði hinn 17. júní sl. við komu þeirra til landsins með Norrænu. Í [...] bifreið, með skráningarnúmer [...], í eigu X, hafi fundist 19.750 ml af vökva, sem innihélt amfetamínbasa, falinn í eldsneytistanki bifreiðarinnar.

Við rannsókn málsins hafi X skýrt frá því að maður að nafni Z hafi gefið henni umrædda bifreið. Hann hafi farið með henni á bílasölu og greitt fyrir bifreiðina í peningum. Hann hafi einnig skilið eftir nokkurt magn af peningum hjá henni til þess að greiða fyrir Íslandsferð. Að hennar sögn hafi verið um að ræða vinagreiða. X og Y hafi farið saman á ferðaskrifstofuna en X hafi greitt fyrir Íslandsferðina með peningum frá Z. Í byrjun júní hafi X ekið [...] bifreiðinni, ásamt vinkonu sinni, A, frá Þýskalandi til Litháen. Hafi Z lagt út fyrir kostnaði ferðarinnar og hitt þær í Litháen. Þar hafi hann tekið við bifreiðinni og skilað henni daginn eftir með þeim tilmælum að aka einungis 300 km og taka svo eldsneyti. Hafi hann einnig tekið við upplýsingum um bifreiðina og ferðaupplýsingum hennar og Y til Íslands. Eftir ferð til Litháen hafi X og Y ekið frá Þýskalandi til Danmerkur og þaðan með farþegaferjunni Norrænu til Seyðisfjarðar.

Umræddur Z, fæddur [...], hafi hlotið fjögurra ára fangelsisrefsingu hér á landi með dómi Hæstaréttar í máli nr. 420/2006, fyrir að hafa flutt hingað til lands 2 lítra af amfetamínvökva og brennisteinssýru. Í samráði við litháísk yfirvöld hafi verið reynt að hafa uppi á Z, en án árangurs.

Ákærða Y, sem hafi verið farþegi bifreiðarinnar, hafi neitað allri aðild að málinu. Hún hafi skýrt frá því að hafa komið hingað til landsins í boði X. X og Y séu vinkonur og nágrannar til margra ára og tilgangur ferðarinnar hafi verið að fara í Bláa lónið.

Gögn málsins renni stoðum undir ætlaðan þátt ákærðu í hinu stórfellda fíkniefnabroti.  Það sé því mat ákæruvalds að sterkur grunur sé um að ákærða hafi átt þátt í að flytja til landsins mikið magn fíkniefna ætluðum til söludreifingar hér á landi.

Málið hafi borist ríkissaksóknara föstudaginn 3. september sl. Ákæra hafi verið gefin út 8. september sl. og send héraðsdómi. Þar sé X ákærð fyrir stórfellt fíkniefnalagabrot, með því að hafa fimmtudaginn 17. júní 2010, staðið saman með Y að innflutningi til Íslands á 19.750 ml af vökva sem innihélt amfetamínbasa, ætlaðan til söludreifingar hér á landi í ágóðaskyni en unnt væri að framleiða úr allt að 20,9 kg af hreinu amfetamínsúlfati sem samsvari 153 kg af efni miðað við 10% styrkleika. 

Ætlað brot ákærðu teljist varða við 173. gr. a almennra hegningarlaga, en brot gegn ákvæðinu varði fangelsi allt að 12 árum. Ákærða hafi neitað sök og aðalmeðferð farið fram í málinu 1. nóvember sl. og verði fram haldið 5. nóvember nk., en þá sé gert ráð fyrir því að málið verði lagt í dóm.

Ákærða hafi verið úrskurðuð í gæsluvarðhald 18. júní sl. og hafi verið í gæsluvarðhaldi síðan. Fyrst á grundvelli a- liðar 1. mgr. 95. gr. laga um meðferð sakamála nr. 88/2008 og frá 10. september sl. á grundvelli b-liðar 1. mgr. 95. gr. og 2. mgr. 95. gr. sömu laga, sem staðfest hafi verið með dómi Hæstaréttar í máli nr. 534/2010. Ákærða hafi síðast verið úrskurðuð í áframhaldandi gæsluvarðhald 7. október sl., sem staðfest hafi verið með dómi Hæstaréttar hinn 12. október sl. í máli nr. 581/2010.

Almannahagsmunir krefjist þess að ákærða verði í gæsluvarðhaldi uns dómur gengur í máli hennar og sé vísað til dómvenju í þeim efnum. Staða ákærðu í málinu þyki sambærileg stöðu sakborninga í öðrum svipuðum málum, sbr. t.d. mál Hæstaréttar nr. 635/2007, 376/2006, 377/2006, 378/2006, 154/2006, 368/2005, 93/2005, 488/2004, 269/2004, 417/2000 og 471/1999. Þar hafi sakborningum verið gert að sæta gæsluvarðhaldi fram að uppkvaðningu dóms en fyrir hafi legið sterkur grunur um beina aðild þeirra að innflutningi á miklu magni fíkniefna í ágóðaskyni. Ekki sé talin ástæða til að ætla að refsimat og réttarvitund almennings í slíkum málum hafi breyst frá því téðir dómar voru uppkveðnir, og sé talið að skilyrðum 2. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála sé fullnægt í því máli sem hér um ræðir.

Þá sé það mat ríkissaksóknara að einnig sé nauðsynlegt að kærðu verði gert að sæta gæsluvarðhaldi á grundvelli b-liðar 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008, þar sem ákærða hafi engin tengsl við landið og því líklegt að ákærða muni reyna að komast úr landi og þannig undan málsókn. Það sé því afar brýnt að tryggð verði nærvera hennar á meðan mál hennar til meðferðar hjá dómstólum.

Með vísan til framangreinds, framlagðra gagna, og tilvitnaðra lagaákvæða er þess krafist að framangreind krafa nái fram að ganga.

Eins og rakið hefur verið hefur ákærða sætt gæsluvarðhaldi frá 18. júní 2010, fyrst á grundvelli rannsóknarhagsmuna en síðan á grundvelli 2. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008, sbr. dómur Hæstaréttar 12. október 2010 í máli nr. 581/2010. Aðalmeðferð fór fram 1l. nóvember sl. og er gert ráð fyrir að henni verði framhaldið og lokið 5. nóvember nk. Með vísan til framangreinds verður fallist á kröfu ríkissaksóknara eins og hún er fram sett og nánar greinir í úrskurðarorði.

Úrskurð þennan kveður upp Gunnar Aðalsteinsson héraðsdómari.

Úrskurðarorð:

Ákærða, X, skal sæta áfram gæsluvarðahaldi þar til dómur fellur í máli hennar, þó eigi lengur en til 2. desember 2010, kl. 16.00.