Hæstiréttur íslands
Mál nr. 430/2010
Lykilorð
- Kærumál
- Gæsluvarðhald. A. liður 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008
|
Þriðjudaginn 6. júlí 2010. |
|
|
Nr. 430/2010. |
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Stefán Eiríksson lögreglustjóri) gegn X (Sigmundur Hannesson hrl.) |
Kærumál. Gæsluvarðhald. A. liður 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008.
Úrskurður héraðsdóms um að X skyldi gert að sæta áfram gæsluvarðhaldi, á grundvelli a. liðar 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála, var staðfestur.
Dómur Hæstaréttar.
Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Ólafur Börkur Þorvaldsson og Hjördís Hákonardóttir og Viðar Már Matthíasson settur hæstaréttardómari.
Varnaraðili skaut málinu til Hæstaréttar með kæru 2. júlí 2010, sem barst réttinum ásamt kærumálsgögnum 5. sama mánaðar. Kærður er úrskurður Héraðsdóms Reykjavíkur 2. júlí 2010, þar sem varnaraðila var gert að sæta áfram gæsluvarðhaldi til föstudagsins 16. júlí 2010 klukkan 16 og sæta einangrun meðan á gæsluvarðhaldi stendur. Kæruheimild er í l. lið 1. mgr. 192. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála. Varnaraðili krefst þess aðallega að hinn kærði úrskurður verði felldur úr gildi, til vara að henni verði gert að sæta farbanni í stað gæsluvarðhalds, en að því frágengnu að gæsluvarðhaldi verði markaður skemmri tími.
Sóknaraðili krefst staðfestingar hins kærða úrskurðar.
Með vísan til forsendna hins kærða úrskurðar verður hann staðfestur.
Dómsorð:
Hinn kærði úrskurður er staðfestur.
Úrskurður Héraðsdóms Reykjavíkur 2. júlí 2010.
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu hefur krafist þess að Héraðsdómur Reykjavíkur úrskurði að X, f. [...], verði gert að sæta áfram gæsluvarðhaldi allt til föstudagsins 16. júlí 2010 kl. 16.
Í greinargerð lögreglustjóra kemur fram að með úrskurði héraðsdóms Reykjavíkur 18. júní sl. hafi kærðu verið gert að sæta gæsluvarðhaldi í þágu rannsóknar málsins. Úrskurðurinn hafi verið staðfestur með dómi Hæstaréttar Íslands nr. 393/2010.
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hafi til rannsóknar stórfellt fíkniefnabrot. Við tolleftirlit 17. júní sl. hafi tollverðir og lögregla fundið mikið magn fíkniefna, sjá nánar meðfylgjandi efnaskýrslu og matsgerð lyfjafræðistofnunar, í bifreiðinni [...], við komuna til Seyðisfjarðar með Norrænu.
Kærða, sem hafi verið ökumaður bifreiðarinnar, neiti allri aðild að málinu.
Rannsókn málsins sé á frumstigi. En málið sé nú unnið með aðstoð þýskra lögregluyfirvalda, sjá nánar réttarbeiðni, dags. 25. júní sl. Teknar hafi verið skýrslur af aðilum búsettum í Þýskalandi, jafnframt sem framkvæmdar hafa verið húsleitir þar í landi, þar sem lagt hafi verið hald á ýmis gögn og skjöl, sem talin séu hafa þýðingu við rannsókn málsins. Í ljósi ofangreindra lögregluaðgerða í Þýskalandi, sjá nánar samantekt, dags. í gær, verði ekki hjá því komist að taka frekari skýrslu af kærðu. Þá sé að finna mikið misræmi í framburði kærðu og meðkærðu Y, sjá nánar yfirheyrsluskýrslur.
Kærða sé undir sterkum rökstuddum grun um að hafa flutt hingað til lands gífurlegt magn hættulegra fíkniefna þannig að varði við 173. gr. a. almennra hegningarlaga nr. 19/1940. Þá sé rannsókn málsins á mjög viðkvæmu stigi og því afar brýnt að krafa lögreglustjóra verði tekin til greina, þannig að kærða fái ekki tækifæri til að torvelda rannsókninni, s.s. með því að koma undan munum, hafa áhrif á aðra samseka eða vitni.
Með vísan til framangreinds, framlagðra gagna og a-liðar 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamálamála sé þess krafist að krafan nái fram að ganga.
Samkvæmt framansögðu er kærða undir rökstuddum grun um að hafa brotið gegn 173. gr. a. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, sem varðað getur allt að 12 ára fangelsi. Verður fallist á það með lögreglu að hætta kunni að vera á því að hún muni spilla fyrir rannsókn málsins, s.s. með því að hafa áhrif á samseka eða vitni, verði henni sleppt úr gæslu. Verður krafa lögreglustjórans í Reykjavík því tekin til greina með vísan til a-liðar 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála.
Ásgeir Magnússon héraðsdómari kveður upp úrskurð þennan.
ÚRSKURÐARORÐ:
Kærða, X, f. [...], skal sæta áfram gæsluvarðhaldi allt til föstudagsins 16. júlí 2010 kl. 16.
Kærða skal sæta einangrun á meðan á gæsluvarðhaldinu stendur.