Hæstiréttur íslands

Mál nr. 390/2015


Lykilorð

  • Kærumál
  • Farbann


                                     

Föstudaginn 12. júní 2015.

Nr. 390/2015.

Lögreglustjórinn á Suðurnesjum

(Vilhjálmur Reyr Þórhallsson fulltrúi)

gegn

X

(Bjarni Hauksson hrl.)

Kærumál. Farbann.

Staðfestur var úrskurður héraðsdóms þar sem X var gert að sæta áfram farbanni á grundvelli b. liðar 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála, sbr. 1. mgr. 100. gr. sömu laga.

Dómur Hæstaréttar.

Mál þetta dæma Helgi I. Jónsson hæstaréttardómari og Ingveldur Einarsdóttir og Karl Axelsson settir hæstaréttardómarar.

Varnaraðili skaut málinu til Hæstaréttar með kæru 10. júní 2015, sem barst réttinum ásamt kærumálsgögnum 11. sama mánaðar. Kærður er úrskurður Héraðsdóms Reykjaness 10. júní 2015, þar sem varnaraðila var gert að sæta farbanni allt til föstudagsins 26. júní 2015 klukkan 16. Kæruheimild er í l. lið 1. mgr. 192. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála. Varnaraðili krefst þess að hinn kærði úrskurður verði felldur úr gildi.

Sóknaraðili krefst staðfestingar hins kærða úrskurðar.

Varnaraðili er undir rökstuddum grun um að hafa gerst sek um háttsemi sem fangelsisrefsing er lögð við. Að því gættu en að öðru leyti með vísan til forsendna hins kærða úrskurður verður hann staðfestur.

Dómsorð:

Hinn kærði úrskurður er staðfestur.

Úrskurður Héraðsdóms Reykjaness 10. júní 2015.

                Lögreglustjórinn á Suðurnesjum hefur í dag krafist þess að Héraðsdómur Reykjaness úrskurði að X, f.d. [...] 1997, verði gert að sæta áframhaldandi farbanni allt til föstudagsins 26. júní 2015, kl. 16:00.

                Kröfu sína byggir lögreglustjóri á b. lið 1. mgr. 95. gr. og 1. mgr. og 2. mgr. 100. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála.

Kærða mótmælir kröfunni og krefst þess að kröfunni verði hafnað.

                Í greinargerð lögreglustjóra segir meðal annars að föstudaginn 3. apríl 2015 hafi tollverðir á Keflavíkurflugvelli haft afskipti af tveimur farþegum, það er mæðgunum Y, fædd [...] og X, fædd [...] 1997, sem hafi komið til landsins með flugi [...] frá Amsterdam. Við leit í farangri þeirra hafi fundist meint fíkniefni, en Y og X kváðust vera mæðgur á leið í frí á Íslandi. Í framhaldinu hafi tollverðir óskað aðstoðar lögreglu.

                Y og X hafi undirgengist sneiðmyndatöku á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja vegna gruns um að þær hefðu einnig fíkniefni innvortis. Engir aðskotahlutir hafi fundist við þá skoðun. Hin meintu fíkniefni hafi verið send tæknideild lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu til frekari rannsóknar. Í tösku Y hafi reynst vera níu pakkningar af amfetamíni sem vógu samtals 9.053,55 grömm og ein pakkning af kókaíni sem vó 194,81 grömm. Í tösku X hafi reynst vera þrjár pakkningar af MDMA sem vógu samtals 10.027,25 grömm.

                Y hafi verið yfirheyrð í þrígang vegna málsins og X fjórum sinnum. Við skýrslutöku hafi X greint lögreglu meðal annars frá því að hún hafi verið að koma í fyrsta skiptið hingað til lands. Hafi hún einnig greint frá því að móðir hennar hefði boðið henni hingað til lands í þeim tilgangi að skoða landið. Hafi hún lýst aðdraganda ferðarinnar þannig að hún hefði afhent móður sinni fatnað sinn og móðir hennar hefði í framhaldinu séð um að pakka farangri þeirra. Hafi kærða jafnframt greint frá því að hún hafi ekki verið meðvituð um að í ferðatösku hennar hafi verið fíkniefni.

                Rannsókn málsins sé á lokastigi hvað varði hlutdeild kærðu. Enn sé þó nokkur vinna eftir við málið en lögregla sé bjartsýn á að rannsókninni, hvað varði hlutdeild kærðu, ljúki á næstu dögum. Bindi lögregla vonir við það að afhenda ríkissaksóknara málið til meðferðar 16. júní nk. Það sem lögregla vinni nú að við málið sé m.a. að fá endanlegar niðurstöður úr rannsóknum á hinum haldlögðu fíkniefnum, ganga frá þeim gögnum sem aflað hafi verið, taka þær skýrslur sem eftir sé að taka, t.d. af móður kærðu auk þess sem lögregla vinni náið með hollenskum yfirvöldum við rannsókn málsins og sé m.a. beðið gagna þaðan.

                Kærða liggi að mati lögreglu undir sterkum rökstuddum grun um brot gegn lögum um ávana- og fíkniefni nr. 65/1974 og 173. gr. a. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 en við því broti liggi allt að 12 ára fangelsisrefsing. Kærða hafi ekki náð 18 aldri og teljist því barn í skilningi 1. mgr. 3. gr. barnaverndarlaga nr. 80/2002. Í ljósi stöðu rannsóknar málsins og aldurs kærðu hafi lögregla ekki talið tilefni, m.a. með vísan til hagsmuna hennar sem barns, til að krefjast þess að kærðu verði gert að sæta gæsluvarðhaldi og þ.a.l. að vera vistuð í fangelsi innan um fullorðna einstaklinga á meðan henni sé gert að sæta frelsistakmörkunum vegna rannsóknar málsins, vísast í þessu skyni m.a. til c. liðar 37. gr. samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi barnsins, sbr. lög nr. 19/2013.

                Af þessum sökum telji lögregla að hagsmunum kærðu sé best borgið með því að henni verði gert að sæta farbanni á meðan rannsókn málsins fari fram. Kærða sé erlendur ríkisborgari sem virðist ekki hafa nein tengsl við land og þjóð en hún stundi hvorki atvinnu hér né eigi fjölskyldu eða vini hér á landi aðra en móður sína sem einnig hafi stöðu sakbornings í málinu og sæti gæsluvarðhaldi vegna þess. Í ljósi þessa telji lögregla hættu á að kærða muni reyna að komast úr landi eða leynast ellegar koma sér með öðrum hætti undan málsókn eða fullnustu refsingar gangi hún laus meðan mál hennar er til meðferðar hjá lögreglu. Að sama skapi telji lögregla nauðsynlegt að tryggja viðveru kærðu hér á landi á meðan málið sé til meðferðar innan refsivörslukerfisins en fyrir liggi að málið muni fara til ríkissaksóknara innan skamms til meðferðar. Af þessum sökum telji lögregla að skilyrðum b. liðar 1. mgr. 95. gr., sbr. 100. gr. laga um meðferð sakamála, um farbann, sé fullnægt í málinu. Vísist í þessu skyni einnig til dóms Hæstaréttar Íslands í máli nr. 350/2015 þar sem fallist hafi verið á að kærðu yrði gert að sæta farbanni frá 13. maí til 10. júní 2015. Að mati lögreglustjóra séu sömu forsendur fyrir hendi nú og voru þegar Hæstiréttur Íslands hafi tekið afstöðu til úrskurðarins hinn 18. maí sl.

                Með vísan til alls framangreinds, 173. gr. a. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, b. lið 1. mgr. 95. gr. og 1. og 2. mgr. 100. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála telji lögreglustjóri að öllum skilyrðum sakamálalaga sé fullnægt til að kærðu verði gert að sæta áframhaldandi farbanni allt til föstudagsins 26. júní 2015, kl. 16:00.

Krafa lögreglustjórans á Suðurnesjum um farbann er byggð á b. lið 1. mgr. 95. gr. og 1. og 2. mgr. 100. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála. Kærða er erlendur ríkisborgari og liggur fyrir að hún hefur engin tengsl við Ísland. Má ætla að kærða muni reyna að komast úr landi, leynast eða koma sér undan málssókn með öðrum hætti fari hún frjáls ferða sinna. Samkvæmt þessu, gögnum málsins og öðru því sem rakið hefur verið er fallist á það að þau skilyrði sem greinir í b. lið 95. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála séu fyrir hendi. Með vísan til þess ákvæðis og 1. mgr., sbr. 2. mgr. 100. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála til þess að kærðu verði gert að sæta áframhaldandi farbanni. Verður krafa lögreglustjórans á Suðurnesjum tekin til greina svo sem greinir í úrskurðarorði.

Jón Höskuldsson héraðsdómari kveður upp úrskurð þennan.

Úrskurðarorð:

                Kærðu, X, er bönnuð för frá Íslandi allt til föstudagsins 26. júní 2015, kl. 16:00.