Hæstiréttur íslands

Mál nr. 791/2015


Lykilorð

  • Kærumál
  • Gæsluvarðhald. 2. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008


                                            

Föstudaginn 27. nóvember 2015.

Nr. 791/2015.

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu

(Jón H.B. Snorrason saksóknari)

gegn

X

(Sigurður Freyr Sigurðsson hdl.)

Kærumál. Gæsluvarðhald. 2. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008.

Staðfestur var úrskurður héraðsdóms um að X skyldi sæta gæsluvarðhaldi á grundvelli 2. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála

Dómur Hæstaréttar.

Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Greta Baldursdóttir og Helgi I. Jónsson og Ingveldur Einarsdóttir settur hæstaréttardómari.

Varnaraðili skaut málinu til Hæstaréttar með kæru 24. nóvember 2015, sem barst réttinum ásamt kærumálsgögnum degi síðar. Kærður er úrskurður Héraðsdóms Reykjaness 24. nóvember 2015, þar sem varnaraðila var gert að sæta áfram gæsluvarðhaldi til þriðjudagsins 22. desember 2015 klukkan 16. Kæruheimild er í l. lið 1. mgr. 192. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála. Varnaraðili krefst þess aðallega að hinn kærði úrskurður verði felldur úr gildi, en til vara að honum verði gert að sæta farbanni.

Sóknaraðili krefst staðfestingar hins kærða úrskurðar.

Upphaf rannsóknar lögreglu í máli þessu verður rakið til þess að hinn 22. september 2015 kom Y hingað til lands með ferjunni Norrænu, en bifreið með skráningarnúmerinu [1], sem hann hafði umráð yfir, var flutt með ferjunni. Lögregla veitti bifreiðinni eftirför, en henni var ekið til Reykjavíkur og þaðan til Keflavíkur á tímabilinu 22. til 25. september 2015. Á leiðinni til Reykjavíkur 23. þess mánaðar nam bifreiðin staðar við [...] og sá lögregla þar til bílaleigubifreiðar með skráningarnúmerið [2], en leigutaki hennar var Z sem hafði tekið hana á leigu 20. september 2015. Hinn 24. sama mánaðar var fyrrgreindur Y staddur við [...] við Laugaveg og sást þá til bifreiðarinnar [3] í nágrenninu. Leigutaki bifreiðarinnar var áðurnefndur Z, en hann hafði þá skilað fyrrnefndu bifreiðinni sem hann hafði haft á leigu. Við skil hennar 24. september 2015 kom í ljós að henni hafði verið ekið 1853 kílómetra. Á sama tíma og fyrrgreindur Y var við [...] sá lögregla til varnaraðila á Laugaveginum. Lögregla fylgdi bifreiðinni [1] eftir á leið til Suðurnesja 24. september 2015 og kom í ljós að bifreiðin [3] fylgdi henni eftir. Þegar bifreiðinni [1] hafði verið lagt í stæði við veitingastað í Keflavík urðu lögreglumenn aftur varir við bifreiðina [3]. Skömmu síðar stigu Z og varnaraðili út úr bifreiðinni. Þeir óku síðan á eftir bifreiðinni [1] er henni var ekið að hóteli í miðbæ Keflavíkur, en hurfu á brott eftir að Y hafði bókað sig á hótelið. Y fór með flugi frá Íslandi 25. september 2015 og skildi bifreiðina eftir á skammtímastæði við Keflavíkurflugvöll. Hann kom aftur til landsins 28. sama mánaðar, en þann dag kom Þ til landsins. Um sama leyti og Y sótti bifreiðina [1] á bifreiðastæðið við Keflavíkurflugvöll sáu lögreglumenn aftur til bifreiðarinnar [3]. Y og Þ óku síðan hvor á sinni bifreið í átt að [...] að gistiheimili við [...], þar sem þeir voru handteknir. Z var einnig handtekinn um 500 metrum frá gistiheimilinu, en þar beið hann í bifreiðinni [3]. Í bifreiðinni sem Y ók fundust 19,5 kg af amfetamíni og rúmlega 2,5 kg af kókaíni. Í bifreið Z fannst meðal annars umslag með 15.600 evrum og sjónauki. Er Z var handtekinn hafði hann undir höndum Blackberry síma, en samkvæmt gögnum málsins mun einvörðungu unnt að nota símann til að eiga dulkóðuð samskipti. Við leit  í bifreið varnaraðila er hann var handtekinn á heimili sínu fundust meðal annars umbúðir utan af téðum síma Z og blað með númerum á svokölluðum Ikortum sem síðar fundust á heimili Z.

Við skoðun á kortunum kom í ljós að á tímabilinu frá 22. júlí til 10. september 2015 voru lagðar inn rúmlega 9 milljón krónur á 30 Ikort, en 25 þeirra fundust á heimili Z. Bera gögn málsins með sér að tæplega 4,5 milljón krónur stafi af innlögnum frá varnaraðila og að rúmar 8 milljón krónur hafi verið teknar út af kortunum í hraðbönkum í [...] dagana 12. til 17. september 2015. Varnaraðili hefur kosið að tjá sig ekki um framangreint, en kveður lítil fjárhagsleg tengsl á milli sín og Z. Enn fremur liggur fyrir í málinu að varnaraðili hefur ítrekað keypt flugferðir fyrir Z á árinu, en á því hefur hvorki hann né Z gefið skýringar.

Samkvæmt framangreindu er varnaraðili undir sterkum grun um að eiga aðild að innflutningi á fíkniefnum þeim er fundust í bifreiðinni [1]. Sannist sök varðar brotið allt að 12 ára fangelsi samkvæmt 173. gr. a. almennra hegningarlaga nr. 19/1940. Þá er brotið þess eðilis að ætla megi varðhald nauðsynlegt með tilliti til almannahagsmuna. Er því fullnægt skilyrðum 2. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008 um gæsluvarðhald yfir varnaraðila. Verður hinn kærði úrskurður því staðfestur.

Dómsorð:

Hinn kærði úrskurður er staðfestur.

                                                                           

Úrskurður Héraðsdóms Reykjaness 24. nóvember 2015.

                Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu hefur í dag krafist þess með vísan til 2. mgr. 95. gr. laga um meðferð sakamála nr. 88/2008, að kærða, X, kt. [...], verði gert að sæta gæsluvarðhaldi, allt til þriðjudagsins 22. desember nk., kl. 16:00.

Kærði mótmælir kröfu lögreglustjóra og krefst þess að henni verði hafnað.

I

Í greinargerð lögreglustjóra segir, að lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu hafi til rannsóknar stórfellt fíkniefnalagabrot er varði innflutning á sterkum fíkniefnum hingað til lands.

Hinn 28. september sl. hafi lögregla lagt hald á rúmlega 19,5 kg af amfetamíni og rúmlega 2,5 kg af kókaíni sem fundust í bifreið sem staðsett var við gistiheimili að [...] í [...]. Tveir erlendir aðilar hafi verið handteknir í húsnæðinu, grunaðir um aðild að innflutningi fíkniefnanna hingað til lands. Lögreglan hafi verið með eftirlit með bifreiðinni í nokkra daga og við það eftirlit hafi lögreglan orðið ítrekað vör við aðra bifreið sem virtist fylgja hinni eftir. Við frekari skoðun lögreglu hafi síðan komið í ljós að um var að ræða bílaleigubifreiðar sem meðkærði Z var skráður leigutaki að. Þá hafi lögreglan einnig borið kennsl á kærða X í bifreiðinni. Kærði hafi verið handtekinn þennan sama dag ásamt fleirum og sæti nú gæsluvarðhaldi í þágu rannsóknar málsins.

Í greinargerð lögreglustjóra segir að kærði hafi neitað sök við skýrslutöku hjá lögreglu. Framburður kærða komi ekki heim og saman við þau gögn sem lögreglan hafi undir höndum, framburð meðkærða og vitna. Varðandi framburð kærða sé nánar vísað í framburðarskýrslur og önnur gögn sem liggja fyrir hjá dómnum. Þá vísar lögreglustjóri til framburða meðkærðu hjá lögreglu, en þar hafi komið fram að erlendir aðilar hafi tekið þátt í skipulagningu innflutningsins og hafi þeir verið í samskiptum eða í samstarfi við aðila hér á landi sem hafi fylgst með ferðum bifreiðarinnar. Það sé ætlun lögreglu að kærði X og meðkærði Z hafi verið samstarfsmenn þessara aðila hér á landi.

Nánar kemur fram í greinargerð lögreglustjóra, að við skoðun á þeim gögnum sem haldlögð hafi verið í málinu, hafi margt komið fram sem styrki grun lögreglu um aðild kærða að innflutningnum. Við leit á heimili kærða hafi fundist myndavél og við skoðun á henni fundist minniskort sem notað hafi verið í farsíma hans. Á því korti hafi fundist myndir frá því fyrr í sumar af ferjunni Norrænu, áður en henni var lagt að bryggju á Seyðisfirði og myndir sem sýni akstur bifreiða frá Norrænu sem og umhverfið í kringum skipið.

Við leit á heimili og í bifreið X hafi fundust kassar utan af Blackberry símum. Einn kassinn hafi verið utan af síma sem meðkærði Z hafi verið með við handtöku og telji lögreglan að sá sími hafi verið notaður í samskiptum við erlenda samverkamenn. Við rannsókn lögreglu á þessum síma hafi komið í ljós að símtækið hafi eingöngu verið hægt að nota í þeim tilgangi að eiga dulkóðuð texta-samskipti. Kærði kannist ekkert við það að hafa átt eða keypt slík símtæki. Í bifreið kærða hafi einnig fundist blað þar sem fram hafi komið upplýsingar sem lögreglan telji tengjast ofangreindum innflutningi fíkniefnanna hingað til lands, en þar hafi meðal annars verið kortanúmer á Ikortum sem lögreglan ætli að hafi verið notuð til að fjármagna innflutninginn. Þá hafi þar verið að finna upplýsingar um flutning á bifreið frá [...] til Íslands.

Með heimild héraðsdóms Reykjaness hafi lögreglan skoðað síma og fjármálagögn kærða. Við þá skoðun hafi margt komið fram sem styrki grun lögreglu. Ljóst sé að kærði hafði nokkuð fjármagn í höndunum og virðist sem mikið fjármagn hafi farið á milli kærða og meðkærða Z hér á landi og erlendis. Kærði hafi þó sagt að mjög lítil fjárhagsleg tengsl hafi verið á milli þeirra Z. Við skoðun lögreglu á fjármálagögnum kærða og meðkærða Z hafi komið í ljós, að á tímabilinu 21. ágúst til 25. ágúst lagði kærði inn rúmlega 4,3 milljónir króna á Ikort. Alls hafi verið lagðar inn rúmlega 9 milljónir króna inn á 30 Ikort á tímabilinu frá 22. júlí til 10. september. Þá hafi rúmlega 7 milljónir verið teknar út af kortunum í hraðbönkum erlendis. Lögreglan hafi undir höndum gögn sem sýni úttektir af Ikortum í hraðbönkum í [...] dagana 12-17. september sl. en fíkniefnin hafi komið hingað til lands þann 22. september. Kærði hafi neitað að tjá sig um það hver eða hverjir hafi tekið út þessa peninga sem hann lagði inn á Ikortin. Við leit í bifreið kærða hafi einnig fundist símanúmer, en það símanúmer hafi verið notað til að virkja hluta þeirra Ikorta sem lögreglan lagði hald á. Lögreglan telji að þessir peningar hafi verið notaðir til að greiða fyrir fíkniefnasendinguna.

Þá hafi komið í ljós að kærði hafi ítrekað keypt flugferðir fyrir meðkærða Z, en aðspurðir hafi þeir neitað að tjá sig um það hjá lögreglu. 

Kærði, hafi nú sætt gæsluvarðhaldi í þágu rannsóknar málsins frá 29. september sl., nú síðast með úrskurði Héraðsdóms Reykjaness nr. [...]/2015, en sá úrskurður hafi verið staðfestur með dómi Hæstaréttar.

Þá kemur fram í greinargerð lögreglustjóra, að rannsókn lögreglu hafi verið unnin í samstarfi við erlend yfirvöld og síðustu vikur beinst að því að hafa upp á samverkamönnum kærðu í [...], en einnig hafi verið óskað eftir aðstoð annarra erlendra lögregluyfirvalda. Þannig hafi verið óskað eftir húsleitum og skýrslutökum og vinni lögreglan að þeim aðgerðum í samstarfi við erlend yfirvöld.

Að mati lögreglustjóra sé kærði undir sterkum grun um aðild að broti gegn 173. gr. a almennra hegningarlaga nr. 19/1940 ásamt síðari breytingum, sem geti varðað allt að 12 ára fangelsi. Aðild kærða sé mikil og talin tengjast skipulagningu og flutningi fíkniefnanna hingað til lands. Þá sé einnig lagt til grundvallar kröfu um gæsluvarðhald, að um mjög mikið magn hættulegra fíkniefna sé að ræða. Hið ætlaða brot kærða þyki mjög alvarlegt og þess eðlis að nauðsynlegt sé að tryggja að kærði gangi ekki laus á meðan mál hans er til meðferðar. Telja verði, að ef sakborningur, sem orðið hefur uppvís að jafn alvarlegu broti og kærði gangi laus áður en máli ljúki með dómi, þá valdi það hneykslun í samfélaginu og særi réttarvitund almennings. Staða kærða í málinu þyki sambærileg stöðu sakborninga í öðrum svipuðum málum, sbr. mál Hæstaréttar nr. 763/2015, 152/2013, 149/2013, 269/2010, 164/2010 og 91/2010, þar sem sakborningum hafi verið gert að sæta gæsluvarðhaldi fram að uppkvaðningu dóms, þegar legið hefur fyrir sterkur grunur um beina aðild að innflutningi að miklu magni fíkniefna í ágóðaskyni. Sé skilyrðum 2. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála fullnægt í því máli sem hér um ræðir.

II

Kærði hefur setið í gæsluvarðhaldi frá 29. september sl. á grundvelli rannsóknarhagsmuna. Kærði kom í fylgd lögreglu í dómsal í dag, kl. 16:06, eða sex mínútum eftir að gæsluvarðhaldi hans samkvæmt a. lið 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála lauk. Er það aðfinnsluvert. Nú er krafist gæsluvarðhalds á grundvelli 2. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála

Kærði hefur neitað sök. Meðkærðu, hafa upplýst hjá lögreglu, að erlendir aðilar hafi tekið þátt í skipulagningu á innflutningi fíkniefnanna og hafi þeir verið í samskiptum eða í samstarfi við aðila hér á landi sem hafi fylgst með ferðum bifreiðarinnar sem fíkniefnin fundust í. Fram kemur í greinargerð lögreglu að kærði hafi verið að fylgjast með bifreiðinni sem fíkniefnin fundust í. Margvíslegar upplýsingar koma fram í greinargerð og framlögðum gögnum lögreglu, sem styrkja grun um tengsl kærða við kærða Z og innflutning fíkniefnanna. Kærði hefur lítið viljað tjá sig um sum þeirra atriða.

Er fallist á það með lögreglustjóra, að kærði sé undir sterkum grun, um að hafa framið afbrot sem að lögum getur varðað allt að 12 ára fangelsi.

Þá er fallist á það með lögreglustjóra, með tilliti til þess mikla magns hættulegra fíkniefna sem um ræðir í máli þessu, og ætla verður að hafi átt að selja hér á landi, að gæsluvarðhald sé nauðsynlegt með tilliti til almannahagsmuna. Krafa lögreglustjórans verður því tekin til greina eins og hún er fram sett og nánar greinir í úrskurðarorði.

Úrskurð þennan kveður upp Bogi Hjálmtýsson héraðsdómari.

Ú r s k u r ð a r o r ð :

Kærði, X, skal sæta gæsluvarðhaldi, allt til þriðjudagsins 22. desember nk., kl. 16:00.