Hæstiréttur íslands

Mál nr. 103/2006


Lykilorð

  • Kærumál
  • Gæsluvarðhald. A. liður 1. mgr. 103. gr. laga nr. 19/1991


Þriðjudaginn 21

 

Þriðjudaginn 21. febrúar 2006.

Nr. 103/2006.

Lögreglustjórinn í Reykjavík

(Egill Stephensen saksóknari)

gegn

X

(Sveinn Andri Sveinsson hrl.)

 

Kærumál. Gæsluvarðhald. A. liður 1. mgr. 103. gr. laga nr. 19/1991.

Úrskurður héraðsdóms um að X skyldi sæta áfram gæsluvarðhaldi á grundvelli a. liðar 1. mgr. 103. gr. laga nr. 19/1991 um meðferð opinberra mála var staðfestur.

 

Dómur Hæstaréttar.

Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Ingibjörg Benediktsdóttir, Jón Steinar Gunnlaugsson og Ólafur Börkur Þorvaldsson. 

Varnaraðili skaut málinu til Hæstaréttar með kæru 17. febrúar 2006, sem barst réttinum ásamt kærumálsgögnum 20. sama mánaðar. Kærður er úrskurður Héraðsdóms Reykjavíkur 17. febrúar 2006, þar sem varnaraðila var gert að sæta áfram gæsluvarðhaldi allt til föstudagsins 24. febrúar 2006 kl. 16. Kæruheimild er í 1. mgr. 142. gr. laga nr. 19/1991 um meðferð opinberra mála.

Varnaraðili krefst þess að kröfu sóknaraðila um gæsluvarðhald verði hafnað en varnaraðili verði þess í stað látinn sæta farbanni. Þá krefst hann kærumálskostnaðar.

Sóknaraðili krefst staðfestingar hins kærða úrskurðar.

Það athugast að í hinum kærða úrskurði hefur kröfugerð sóknaraðila misritast, en sóknaraðili krafðist þess að varnaraðila yrði gert að sæta áfram gæsluvarðhaldi til 24. febrúar 2006 og var sú krafa tekin til greina. Með þessari athugasemd en að öðru leyti með vísan til forsendna hins kærða úrskurðar verður hann staðfestur.

Kærumálskostnaður verður ekki dæmdur.

Dómsorð:

Hinn kærði úrskurður er staðfestur.

 

Úrskurður Héraðsdóms Reykjavíkur 17. febrúar 2006.

Lögreglustjórinn í Reykjavík hefur krafist þess að X, [kt. og heimilisfang], verði á grundvelli a- liðar 1. mgr. 103. gr. laga um meðferð opinberra mála nr. 19,1991, gert að sæta gæsluvarðhaldi allt til föstudagsins 17. febrúar 2006, kl. 16.00.

Í greinargerð lögreglustjóra segir að ávana- og fíkniefnadeild lögreglustjórans í Reykjavík rannsaki meint fíkniefnabrot A, litháisks ríkisborgara, sem varði innflutning á fíkniefnum til landsins.  A hafi komið til landsins þann 4. þ.m. með flugi frá Kaupmannahöfn með mikið magn amfetamíns í fórum sínum.  Amfeta­mínið hafi verið í vökvaformi og hafi verið komið fyrir í tveimur léttvínsflöskum.  A þessi sæti nú gæsluvarðhaldi á grundvelli rannsóknarhagsmuna.

Lögregla hafi nú upplýsingar um að A hafi áður komið til Íslands í desember sl. og hafi hann gefið framburð um að sú ferð hafi verið í sömu erindagjörðum, þ.e. að flytja tvær vínflöskur frá Litháen.  A þessi hafi í skýrslutöku hjá lögreglu jafnframt lýst landa sínum sem búi hér á landi og hafi tekið á móti flöskunum í fyrri ferð hans hingað til lands.  Hann hafi lýst hvernig þessi aðili hafi farið með honum á nýlegri grárri bifreið af gerðinni [...] á söluskrifstofu Flugleiða til kaupa á flugmiða til Stokkhólms.  Í gögnum sem lögregla hafi aflað frá Flugleiðum komi fram að X, virðist hafa keypt umræddan flugmiða auk þess sem lýsingar A passi við kærða sem ekur um á grárri [...] bifreið.  Kærði hafi hins vegar gefið þær skýringar á farmiðakaupunum að hann hafi hitt þennan landa sinn fyrir tilviljun inni á söluskrifstofu Flugleiða og hafi greitt fyrir hann farmiða til Stokkhólms án þess að þekkja hann nokkuð.  Framburður kærða í heild verði að teljast ótrúverðugur en um þetta er vísað til gagna málsins.

Lögregla hafi aflað upplýsinga um að handhafi ótilgreinds frelsisnúmers hafi hringt oft í síma ofangreinds A eftir að hann hafi verið handtekinn með fíkniefnin í vörslum sínum og að sama símanúmer hafi hringt í númer sem kærði hafi verið handhafi að strax þar á eftir. 

 Skv. framansögðu og með vísan til gagna málsins þyki fyrir hendi rökstuddur grunur um aðild kærða að stórfelldu fíkniefnalagabroti sem kunni að varða fangelsis­refsingu ef sök sannist.  Á þessu stigi rannsóknarinnar þurfi að yfirheyra kærða frekar með tilliti til framburðar ofangreinds A og e.t.v. fleiri aðila sem kunni að tengjast málinu.  Jafnframt hafi lögregla undir höndum nýjar upplýsingar um tengsl kærða við A sem eftir sé að bera undir kærða.  Rannsókn lögreglu beinist nú m.a. að því að hafa uppi á fyrrgreindum handhafa frelsisnúmers sem hringt hafi verið úr  bæði í kærða og fyrrgreindan A. Enn sé verið að rannsaka muni og gögn úr húsleit sem framkvæmd hafi verið vegna málsins. Auk þess sé ekki lokið við að yfirfara símagögn vegna kærða og beðið upplýsinga um kærða frá erlendum lögregluyfirvöldum.  Gangi kærði laus á hann þess kost koma frá sér upplýsingum eða móttaka upplýsingar sem skaðað geta rannsókn málsins.  Þyki þannig brýnt að vernda rannsóknarhagsmuni á þessu stigi málsins. 

Sakarefnið sé talið geta varðað við 173. gr. a. almennra hegningarlaga nr. 19,1940.  Um heimild til gæsluvarðhalds sé vísað til a-liðar 1. mgr. 103. gr. laga um meðferð opinberra mála nr. 19,1991.

Kærði hefur ítrekað neitað aðild sinni að málinu og kveðst ekkert um það vita.  Í rannsóknargögnum málsins kemur fram að kærði hefur haft samskipti við A, litháiskan ríkisborgara, sem nú sætir gæsluvarðhaldi vegna málsins.  Þá benda nýjar upplýsingar einnig til þess að um tengsl sé að ræða milli kærða og A.  Þá liggur fyrir samkvæmt niðurstöðu rannsóknar lyfjafræðistofnunar Háskóla Íslands, að flöskur þær sem nefndur A hafði með sér til landsins, reyndust innihalda mikið magn amfetamínbasa.

Samkvæmt framansögðu og með vísan til rannsóknargagna þykir vera kominn fram rökstuddur grunur um aðild kærða að innflutningi fíkniefna, sem lögreglan er að rannsaka.  Sakarefnið varðar við 173. gr. a almennra hegningarlaga nr. 19,1940 en samkvæmt því ákvæði liggur allt að 12 ára fangelsi við broti.  Rannsókn málsins er ólokið og enn er eftir að rannsaka hugsanlega aðild fleiri aðila að málinu.  Með tilliti til rannsóknarhagsmuna er því fallist á að kærði gæti torveldað rannsókn málsins ef hann gengur laus.  Með vísan til a-liðar 103. gr. laga um meðferð opinberra mála nr. 19,1991, er því fallist á að kærða verði gert að sæta áfram gæsluvarðhaldi eins og krafist er og nánar greinir í úrskurðarorði.

Eggert Óskarsson héraðsdómari kvað upp úrskurðinn.

Úrskurðarorð:

Kærði, X, [kt.], skal sæta áfram gæsluvarðhaldi allt til föstudagsins 24. febrúar 2006, klukkan 16.00.