Hæstiréttur íslands
Mál nr. 175/2004
Lykilorð
- Kærumál
- Gæsluvarðhald. C. liður 1. mgr. 103. gr. laga nr. 19/1991
|
|
Föstudaginn 7. maí 2004. |
|
Nr. 175/2004. |
Lögreglustjórinn í Reykjavík (Egill Stephensen saksóknari) gegn X (Sigmundur Hannesson hrl.) |
Kærumál. Gæsluvarðhald. C. liður 1. mgr. 103. gr. og 106. gr. laga nr. 19/1991.
X var gert að sæta áfram gæsluvarðhaldi meðan á áfrýjunarfresti stæði, sbr. c. lið 1. mgr. 103. gr. og 106. gr. laga nr. 19/1991 um meðferð opinberra mála. Þar sem dómurinn var birtur X 5. maí 2004 var gæsluvarðhaldinu ekki markaður lengri tími en til dagsloka 2. júní 2004.
Dómur Hæstaréttar.
Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Gunnlaugur Claessen, Árni Kolbeinsson og Ólafur Börkur Þorvaldsson.
Varnaraðili skaut málinu til Hæstaréttar með kæru 5. maí 2004, sem barst réttinum ásamt kærumálsgögnum 6. sama mánaðar. Kærður er úrskurður Héraðsdóms Reykjavíkur 5. maí 2004, þar sem fallist var á kröfu sóknaraðila um að varnaraðili sætti áfram gæsluvarðhaldi meðan á áfrýjunarfresti stendur en þó eigi lengur en til fimmtudagsins 3. júní 2004 kl. 12. Kæruheimild er í 1. mgr. 142. gr. laga nr. 19/1991 um meðferð opinberra mála. Varnaraðili krefst þess að hinn kærði úrskurður verði felldur úr gildi.
Sóknaraðili krefst þess að úrskurður héraðsdómara verði staðfestur.
Samkvæmt 106. gr. laga nr. 19/1991 getur dómari úrskurðað að gæsluvarðhald skuli haldast meðan á áfrýjunarfresti stendur, sbr. 2. mgr. 151 gr. laganna. Samkvæmt þeirri grein skal ákærði lýsa yfir áfrýjun dóms innan fjögurra vikna frá birtingu hans. Varnaraðila var birtur dómur í máli ákæruvaldsins á hendur honum og öðrum manni 5. maí 2004. Samkvæmt því verður gæsluvarðhaldi yfir varnaraðila ekki markaður lengri tími en til dagsloka 2. júní 2004. Með þessari athugasemd en að öðru leyti með vísan til forsendna hins kærða úrskurðar verður hann staðfestur með þeim hætti er í dómsorði greinir.
Dómsorð:
Varnaraðili, X, sæti gæsluvarðhaldi allt til miðvikudagsins 2. júní 2004 kl. 24.
Úrskurður Héraðsdóms Reykjavíkur 5. maí 2004.
Lögreglustjórinn í Reykjavík hefur krafist þess X verði með vísan til 106. gr. laga nr. 19/1991 um meðferð opinberra mála gert að sæta áfram gæsluvarðhaldi meðan á áfrýjunarfresti stendur en þó eigi lengur en til fimmtudagsins 3. júní nk. kl. 12.00.
Með dómi Héraðsdóms Reykjavíkur uppkveðnum í dag var dómfelldi dæmdur í fangelsi í 2 ár og 6 mánuði fyrir þjófnaðarbrot og fleiri brot. Frá refsingu dómfellda dregst með fullri dagatölu gæsluvarðhaldsvist hans frá 15. ágúst 2003 til 26. september 2003, frá 1. nóvember 2003 til 5. nóvember 2003, frá 16. desember 2003 til 23. desember 2003 og frá 23. desember 2003 til dagsins í dag að telja. Við uppkvaðningu dómsins tók dómfelldi sér lögmæltan áfrýjunarfrest.
Samkvæmt 106. gr. laga nr. 19/1991 lýkur gæsluvarðhaldi þegar dómur hefur verið kveðinn upp í málinu. Eftir kröfu ákæranda getur dómari þó úrskurðað að gæsluvarðhald skuli haldast meðan á fresti skv. 2. mgr. 151. gr. laganna stendur. Dómfelldi hefur sætt gæsluvarðhaldi á grundvelli c liðar 1. mgr. 103. gr. laganna vegna gruns um afbrot sem hann hefur nú verið sakfelldur fyrir. Skilyrði 106. gr. eru því uppfyllt og verður krafan því tekin til greina eins og hún er fram sett.
Kristjana Jónsdóttir héraðsdómari kvað upp úrskurðinn.
Úrskurðarorð:
Dómfelldi, X, sæti áfram gæsluvarðhaldi meðan á áfrýjunarfresti stendur, en þó eigi lengur en til fimmtudagsins 3. júní nk. kl. 12.00.