Hæstiréttur íslands
Mál nr. 126/2016
Lykilorð
- Kærumál
- Farbann
Reifun
Dómur Hæstaréttar.
Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Helgi I. Jónsson og Benedikt Bogason og Guðrún Erlendsdóttir settur hæstaréttardómari.
Varnaraðili skaut málinu til Hæstaréttar með kæru 16. febrúar 2016, sem barst réttinum ásamt kærumálsgögnum degi síðar. Kærður er úrskurður Héraðsdóms Reykjaness 16. febrúar 2016, þar sem varnaraðila var gert að sæta áfram farbanni allt til þriðjudagsins 15. mars 2016 klukkan 16. Kæruheimild er í l. lið 1. mgr. 192. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála. Varnaraðili krefst þess aðallega að hinn kærði úrskurður verði felldur úr gildi, en til vara að farbanninu verði markaður skemmri tími.
Sóknaraðili krefst staðfestingar hins kærða úrskurðar.
Með vísan til forsendna hins kærða úrskurðar verður hann staðfestur.
Dómsorð:
Hinn kærði úrskurður er staðfestur.
Úrskurður Héraðsdóms Reykjaness 16. febrúar 2016.
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu hefur krafist þess að Héraðsdómur Reykjaness úrskurði að X, kt. [...], skuli sæta áframhaldandi farbanni, allt til þriðjudagsins 15. mars 2016, kl. 16:00.
Í greinargerð lögreglustjóra segir að hann hafi haft til rannsóknar stórfellt fíkniefnalagabrot er varðar innflutning á sterkum fíkniefnum hingað til lands. Þann 28. september sl. hafi lögreglan lagt hald á rúmlega 19,5 kg af amfetamíni og rúmlega 2,5 kg af kókaíni sem hafi fundist í bifreið sem hafi verið staðsett við gistiheimili að [...] í [...]. Tveir erlendir aðilar hafi verið handteknir inni í húsnæðinu grunaðir um aðild að innflutningi fíkniefnanna hingað til lands en annar þeirra hafi komið með bifreiðina til landsins með ferjunni Norrænu þann 22. september sl. Lögreglan hafi verið með eftirlit með bifreiðinni sem innihélt fíkniefnin í nokkra daga. Við það eftirlit hafi lögreglan ítrekað orðið vör við aðra bifreið sem virtist fylgja hinni eftir. Við frekari skoðun lögreglu hafi komið í ljós að um var að ræða bílaleigubifreiðar sem kærði X hafi verið skráður leigutaki að. Kærði hafi verið handtekinn skammt frá gistiheimilinu á bifreiðinni [...] og lögreglan fundið í henni sjónauka, lambhúshettu og rúmlega 15.600 evrur, sem svari til rúmlega 2,2 milljóna íslenskra króna. Lögregla telur að kærði hafi þar verið að fylgjast með meðkærðu og bifreiðinni. Við rannsókn lögreglu hafi einnig komið í ljós að kærði hafi verið staðsettur á Seyðisfirði sama dag og Norræna kom til landsins þann 22. september.
Kærði hafi neitað sök við skýrslutöku hjá lögreglu. Framburði kærða beri ekki saman við þau gögn sem lögreglan hafi undir höndum, framburð meðkærða og vitna. Kærði hafi að öðru leyti lítið kosið að tjá sig hjá lögreglu eða kveðst ekki muna eftir atvikum máls. Í framburðum meðkærðu hjá lögreglu hafi komið fram að erlendir aðilar hafi tekið þátt í skipulagningu innflutningsins og þeir verið í samskiptum eða í samstarfi við aðila hér á landi sem fylgdust með ferðum bifreiðarinnar. Það er ætlun lögreglu að kærði og meðkærði Y hafi verið samstarfsmenn þessara aðila hér á landi.
Með heimild Héraðsdóms Reykjaness hafi lögreglan skoðað síma og fjármálagögn kærða. Við þá skoðun hafi margt komið fram sem styrki grun lögreglu. Ljóst sé að kærði hafi nokkuð fjármagn í höndunum og virðist vera sem mikið fjármagn sé að fara á milli kærða og meðkærða Y hér á landi og erlendis. Meðkærði Y segi þó mjög lítil fjárhagsleg tengsl vera á milli þeirra og kærði neiti að tjá sig um það. Við skoðun á fjármálagögnum kærða og meðkærða Y hafi komið í ljós að á tímabilinu frá 22. júlí til 10. september hafi verið lagðar rúmlega 9 milljónir inn á 30 Ikort, en 25 þeirra hafi fundist á heimili kærða. Þá megi sjá að rúmlega 8 milljónir hafi verið teknar út af þessum kortum í hraðbönkum í Evrópu á tímabilinu frá 22. júlí til 17. september. Lögreglan telur að þessir peningar hafi verið notaðir til að fjármagna fíkniefnainnflutninginn. Kærði hafi neitað að tjá sig um það í hvaða tilgangi hann lagði inn þessa peninga og hver eða hverjir hafi tekið út þessar fjárhæðir og í hvaða tilgangi. Þá hafi lögreglan undir höndum gögn sem sýni það að kærði hafi á þessu tímabili tekið nokkrar bifreiðar til leigu. Bifreiðunum hafi verið ekið yfir 2000 km á meðan kærði hafði umráð yfir þeim og hafi komið í ljós að þrisvar sinnum á þessu sama tímabili hafi kærði verið staðsettur á Seyðisfirði. Í framburðum meðkærðu hafi komið fram að erlendir aðilar hafi tekið þátt í skipulagningu innflutningsins og þeir verið í samskiptum eða í samstarfi við aðila hér á landi sem fylgdust með ferðum bifreiðarinnar. Við leit á heimili og í bifreið meðkærða Y hafi fundist kassar utan af Blackberry símum. Einn kassinn hafi verið utan af síma sem kærði hafi verið með við handtöku og telur lögreglan að sá sími hafi verið notaður í samskiptum við erlenda samverkamenn. Við rannsókn lögreglu á þessum síma hafi komið í ljós að símtækið hafi eingöngu verið hægt að nota í þeim tilgangi að eiga dulkóðuð texta samskipti, en kærði neiti að tjá sig um það. Þá hafi komið í ljós að meðkærði Y hafi ítrekað keypt flugferðir fyrir kærða á þessu ári, en aðspurðir hafi þeir neitað að tjá sig um það hjá lögreglu.
Kærði þyki vera undir sterkum grun um aðild að broti sem geti varðað allt að 12 ára fangelsi. Að mati lögreglu þykir meint aðild kærða mikil en hún sé talin tengjast skipulagningu og flutningi fíkniefnanna hingað til lands. Þá sé einnig lagt til grundvallar kröfu að um mjög mikið magn hættulegra fíkniefna sé að ræða. Hið ætlaða brot kærða þyki mjög alvarlegt og þess eðlis að talið hafi verið að tryggja ætti að kærði gengi ekki laus á meðan mál hans er til meðferðar. Telja verði að ef sakborningur, sem orðið hefur uppvís að jafn alvarlegu broti og kærði sé látinn laus áður en máli lýkur með dómi, þá valdi það hneykslun í samfélaginu og særi réttarvitund almennings. Metur lögregla það svo að skilyrðum 2. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála sé fullnægt í því máli sem hér um ræðir en staða kærða þyki sambærileg stöðu sakborninga á öðrum svipuðum málum, sbr. dóma Hæstaréttar í málum nr. 736/2015, 152/2013, 149/2013, 269/2010, 164/2010 og 91/2010, þar sem sakborningum hafi verið gert að sæta gæsluvarðhaldi á grundvelli almannahagsmuna þegar legið hafi fyrir sterkur grunur um beina aðild að innflutningi að miklu magni fíkniefna í ágóðaskyni.
Kærði hafi sætt gæsluvarðhaldi í þágu rannsóknar málsins frá 29. september, síðast með úrskurði Héraðsdóms Reykjaness í máli nr. R-[...]/2015, en sá úrskurður hafi verið staðfestur með dómi Hæstaréttar. Þar sem kærði hafi sætt gæsluvarðhaldi í 12 vikur án þess að mál hafi verið höfðað á hendur honum hafi lögregla talið, í samræmi við 4. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008, að ekki væri unnt að úrskurða kærða áfram í gæsluvarðhald á grundvelli almannahagsmuna. Í samræmi við það hafi verið farið fram á og kærði í kjölfarið verið úrskurðaður í farbann og sá úrskurður verið staðfestur með dómi Hæstaréttar. Því sé farið fram á að kærði verði úrskurðaður í áframhaldandi farbann á grundvelli 100. gr. laga nr. 88/2008 en á því er byggt að skilyrði 2. mgr. 95. gr. séu uppfyllt, eins og áður er rakið. Jafnframt telur lögregla vera fyrir hendi skilyrði til að úrskurða kærða í farbann á grundvelli b-liðar 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008. Kærði sé íslenskur ríkisborgari en sé búsettur á [...]. Hann eigi von á barni með [...] unnustu sinni sem einnig sé búsett erlendis. Sæti hann ekki farbanni megi ætla að hann reyni að komast úr landi til að komast undan málsókn eða fullnustu refsingar. Að mati lögreglu er brýnt að tryggja nærveru kærða á meðan mál hans er til meðferðar fyrir yfirvöldum hér á landi og því nauðsynlegt að honum verði gert að sæta farbanni þar til mál hans er til lykta leitt.
Rannsókn lögreglu hafi að hluta til verið unnin í samstarfi við erlend yfirvöld þar sem óskað hafi verið eftir húsleitum og skýrslutökum. Rannsóknin sé nú á lokastigi og verði málið sent héraðssaksóknara á næstu dögum.
Til rannsóknar sé ætlað brot gegn 173. gr. a almennra hegningarlaga nr. 19/1940 ásamt síðari breytingum, sem geti varðað allt að 12 ára fangelsi. Um heimild til að úrskurða kærða í farbann sé vísað til b-liðar 1. mgr. 95. gr. og 2. mgr. 95. gr. laga um meðferð sakamála nr. 88/2008. Með vísan til alls framangreinds og framlagðra gagna málsins sé þess beiðst að krafa lögreglustjóra um farbann nái fram að ganga.
Með dómi Hæstaréttar 21. janúar 2016 í máli nr. 50/2016 var kærða gert að sæta farbanni á grundvelli 100. gr. laga nr. 88/2008, sbr. 2. mgr. 95. gr. sömu laga. Er ekkert fram komið í málinu sem leiðir til þess að ekki séu lengur fyrir hendi skilyrði til að kærða verði gert að sæta áframhaldandi farbanni, en rannsókn málsins, sem hefur verið mjög umfangsmikil, er á lokastigi og verður málið sent héraðssaksóknara á næstu dögum. Með vísan til framagreinds er fallist á kröfu lögreglustjóra, eins og nánar greinir í úrskurðarorði.
Úrskurð þennan kveður upp Sandra Baldvinsdóttir héraðsdómari.
Úrskurðarorð:
Kærði, X, kt. [...], skal sæta farbanni allt til þriðjudagsins 15. mars 2016, kl. 16:00.