Hæstiréttur íslands
Mál nr. 575/2010
Lykilorð
- Kærumál
- Rannsókn
- Lífsýni
- Frávísun frá Hæstarétti
|
|
Þriðjudaginn 5. október 2010. |
|
Nr. 575/2010. |
Lögreglustjórinn á Selfossi (Jónína Guðmundsdóttir fulltrúi) gegn X (Sigurður Sigurjónsson hrl.) |
Kærumál. Rannsókn. Lífsýni. Frávísun frá Hæstarétti.
X kærði úrskurð héraðsdóms, þar sem heimiluð var taka lífsýnis úr honum í þágu rannsóknar máls. Þar sem umbeðin rannsóknaraðgerð hafði þegar farið fram var málinu vísað frá Hæstarétti á grundvelli 4. mgr., sbr. 3. mgr., 192. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála.
Dómur Hæstaréttar.
Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Ólafur Börkur Þorvaldsson, Jón Steinar Gunnlaugsson og Viðar Már Matthíasson.
Varnaraðili skaut málinu til Hæstaréttar með kæru 30. september 2010 sem barst réttinum ásamt kærumálsgögnum 4. október sama ár. Kærður er úrskurður Héraðsdóms Suðurlands 29. september 2010 þar sem sóknaraðila var heimilað að taka lífsýni úr varnaraðila. Kæruheimild er í h. lið 1. mgr. 192. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála. Varnaraðili krefst þess að hinn kærði úrskurður verði felldur úr gildi. Þá krefst hann kærumálskostnaðar úr ríkissjóði.
Sóknaraðili hefur ekki látið málið til sín taka fyrir Hæstarétti að öðru leyti en því að með bréfi hans til Hæstaréttar sem barst réttinum 4. október 2010 er upplýst að umbeðin rannsóknaraðgerð hafi þegar verið framkvæmd. Stendur þannig eins á og um ræðir í 4. mgr., sbr. 3. mgr., 192. gr. laga nr. 88/2008 og verður máli þessu því vísað frá Hæstarétti.
Kærumálskostnaður dæmist ekki, sbr. 3. mgr. 220. gr. laga nr. 88/2008.
Dómsorð:
Máli þessu er vísað frá Hæstarétti.
Úrskurður Héraðsdóms Suðurlands 29. september 2010.
Lögreglustjórinn á Selfossi hefur gert um það kröfu fyrir dóminum, með vísan til 1. mgr. 77. gr., sbr. 2. mgr. 78. gr. laga um meðferð sakamála nr. 88/2008, að honum verði með úrskurði heimilað að taka lífssýni úr X, kt. [...], [...], [...].
Ofangreind krafa var tekin fyrir á dómþingi í dag og mótmælti kærði kröfunni.
Í greinargerð með kröfu lögreglustjóra kemur fram að að morgni mánudagsins 27. september 2010 hafi verið óskað eftir aðstoð lögreglu að [...] í [...] þar sem maður hafi ruðst inn í húsið og gengi þar berserksgang. Er lögregla hafi komið á vettvang hafi hún hitt fyrir brotaþola og tvö vitni. Hafi blætt mikið úr höfði brotaþola og verið óskað eftir sjúkrabifreið á vettvang. Í herberginu hafi mátt sjá mikið blóð á gólfi, blóðkám á veggjum og á rúmi. Gerandinn hafi yfirgefið vettvang en vitni gefið lýsingu á manninum og náð skráningarnúmeri bifreiðarinnar, [...], sem kallað hafi verið út til lögreglumanna. Bifreiðin hafi verið stöðvuð við [...] í Reykjavík og ökumaður hennar, X, hafi verið handtekinn. Í bifreiðinni hafi fundist blóðugt hnúajárn og blóðugir vettlingar, en jafnframt hafi verið blóð á peysu kærða.
Við yfirheyrslu hjá lögreglu hafi kærði neitað að tjá sig og jafnframt neitað að verða við ósk lögreglu um töku lífssýnis.
Það sé mat lögreglustjóra að rannsóknarhagsmunir málsins mæli eindregið með því að kærða verði gert að sæta töku lífssýna til þess að upplýsa málið þar sem blóð hafi fundist á peysu kærða þegar hann var handtekinn sem geti tengt hann við brotavettvang.
Með vísan til framangreinds, framlagðra gagna og með vísan til 1. mgr. 77. gr., sbr. 2. mgr. 78. gr. laga um meðferð sakamála nr. 88/2008, sé þess krafist að krafan nái fram að ganga.
Kærði var í gærdag úrskurðaður til að sæta gæsluvarðhaldi vegna rannsóknarinnar.
Samkvæmt skýrslu réttarmeinafræðings hafði brotaþoli talsverða áverka og er þeim lýst í skýrslunni. Kemur fram að brotaþoli hafi haft ýmis sár og blæðingar mest megnis á höfði og hálsi, en jafnframt á handleggjum og brjósti. Þá hafi hún kvartað undan verkjum í höfði, hálsi og brjósti.
Samkvæmt rannsóknargögnum var allnokkuð blóð á vettvangi. Í viðræðum við vitni á vettvangi kom fram að árásarmaðurinn hefði ekið burt á bifreið með númerinu [...], og lýstu vitni útliti og klæðnaði árásarmannsins að nokkru leyti. Samkvæmt rannsóknarskýrslu réttarmeinafræðings benda áverkar á brotaþola til þess að barefli eða öðru áhaldi hafi verið beitt við árásina.
Þegar kærði var handtekinn var hann við akstur við [...] í Reykjavík, á bifreiðinni [...]. Kærði var klæddur í peysu sem samræmist lýsingu vitna, m.a. samrýmist áletrun á peysunni lýsingu vitna. Lýsing á árásarmanninum fellur að útliti kærða. Við leit í bifreið kærða fundust hnúajárn og svartir hanskar og mátti sjá blóðkám á hlutum þessum og var það staðfest með prófun tæknideildar lögreglu. Þá mátti sjá blóðkám á peysu sem kærði var í við handtöku, skv. rannsóknargögnum.
Það er mat dómsins að kærði sé undir rökstuddum grun um að hafa framið þau afbrot sem vísað er til í kröfu lögreglustjóra og geta varðað hann fangelsisrefsingu ef sannast.
Dómari fellst á að lögreglu sé þörf á heimild til töku lífsýnis úr kærða í þágu rannsóknar málsins. Fyrir liggur að kærða var dregið blóð í gærdag vegna rannsóknar á ætluðu umferðarlagabroti hans, en fulltrúi lögreglustjóra upplýsti í þinghaldi að það sýni væri notað aðeins í þeim tilgangi og væri ekki unnt að nýta það til annars, m.a. vegna þess að rannsóknarstofa í Svíþjóð, sem rannsaki slík sýni, geri kröfur um að fá lífsýni á þann hátt að tekið sé strok með pinna innanvert úr munnholi, en krafa lögreglu beinist að því að tekið þesskonar sýni frá kærða.
Ber því að fallast á kröfu lögreglustjóra eins og nánar greinir í úrskurðarorði, en lagaheimild til rannsóknaraðgerðanna er í 1. mgr. 77. gr., sbr. 2. mgr. 78. gr. laga um meðferð sakamála nr. 88/2008.
Sigurður G. Gíslason héraðsdómari kveður upp úrskurð þennan.
Ú r s k u r ð a r o r ð:
Lögreglustjóranum á Selfossi er heimilt að taka lífssýni úr X, kt. [...], [...], [...].