Hæstiréttur íslands
Mál nr. 788/2013
Lykilorð
- Niðurfelling máls
- Málskostnaður
- Gjafsókn
|
|
Fimmtudaginn 15. maí 2014. |
|
Nr. 788/2013.
|
K (Guðrún Sesselja Arnardóttir hrl.) gegn M (Valborg Þ. Snævarr hrl.) |
Niðurfelling máls. Málskostnaður. Gjafsókn.
K og M deildu um forsjá tveggja dætra sinna en K féll frá áfrýjun málsins. Með dómi Hæstaréttar var málskostnaður fyrir réttinum felldur niður en kveðið á um að gjafsóknarkostnaður M greiddist úr ríkissjóði.
Dómur Hæstaréttar
Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Ólafur Börkur Þorvaldsson og Helgi I. Jónsson og Ingveldur Einarsdóttir settur hæstaréttardómari.
Áfrýjandi skaut málinu til Hæstaréttar 17. desember 2013. Með bréfi 1. apríl 2014 féll hún frá áfrýjun. Stefndi krefst málskostnaðar úr hendi áfrýjanda án tillits til gjafsóknar sem honum hefur verið veitt fyrir réttinum.
Með vísan til c. liðar 1. mgr. 105. gr., sbr. 166. gr., laga nr. 91/1991 um meðferð einkamála er málið fellt niður.
Rétt er að málskostnaður fyrir Hæstarétti falli niður.
Gjafsóknarkostnaður stefnda fyrir Hæstarétti greiðist úr eins og nánar greinir í dómsorði.
Dómsorð:
Mál þetta er fellt niður.
Málskostnaður fyrir Hæstarétti fellur niður.
Allur gjafsóknarkostnaður stefnda, M, fyrir Hæstarétti greiðist úr ríkissjóði, þar með talin málflutningsþóknun lögmanns hans, 250.000 krónur.