Hæstiréttur íslands
Mál nr. 790/2015
Lykilorð
- Kærumál
- Gæsluvarðhald. 2. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008
|
|
Föstudaginn 27. nóvember 2015. |
|
Nr. 790/2015.
|
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Jón H.B. Snorrason saksóknari) gegn X (Hólmgeir Elías Flosason hdl.) |
Kærumál. Gæsluvarðhald. 2. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008.
Staðfestur var úrskurður héraðsdóms um að X skyldi sæta gæsluvarðhaldi á grundvelli 2. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála
Dómur Hæstaréttar.
Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Greta Baldursdóttir og Helgi I. Jónsson og Ingveldur Einarsdóttir settur hæstaréttardómari.
Varnaraðili skaut málinu til Hæstaréttar með kæru 24. nóvember 2015, sem barst réttinum ásamt kærumálsgögnum degi síðar. Kærður er úrskurður Héraðsdóms Reykjaness 24. nóvember 2015, þar sem varnaraðila var gert að sæta áfram gæsluvarðhaldi allt til þriðjudagsins 22. desember 2015 klukkan 16. Kæruheimild er í l. lið 1. mgr. 192. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála. Varnaraðili krefst þess aðallega að hinn kærði úrskurður verði felldur úr gildi, en til vara að honum verði gert að sæta farbanni.
Sóknaraðili krefst staðfestingar hins kærða úrskurðar.
Upphaf rannsóknar lögreglu í máli þessu verður rakið til þess að 22. september 2015 kom Y hingað til lands með ferjunni Norrænu, en bifreið með skráningarnúmerinu [1], sem hann hafði umráð yfir, var flutt með ferjunni. Varnaraðili hefur viðurkennt að hafa verið á Seyðisfirði er bifreiðin kom til landsins en bar hjá lögreglu að hann hafi verið þar á ferðalagi. Lögregla veitti áðurnefndri bifreið eftirför, en henni var ekið til Reykjavíkur og þaðan til Keflavíkur á tímabilinu 22. til 25. september 2015. Á leiðinni til Reykjavíkur 23. þess mánaðar nam bifreiðin staðar við [...] og sá lögregla þar til bílaleigubifreiðar með skráningarnúmer [2], en hana hafði varnaraðili tekið á leigu 20. september 2015. Hinn 24. september sama ár var fyrrgreindur Y staddur við [...] við Laugaveg og sást þá til bifreiðarinnar [3] í nágrenninu. Leigutaki bifreiðarinnar var varnaraðili, en hann hafði þá skilað fyrrnefndu bifreiðinni sem hann hafði haft á leigu. Við skil bifreiðarinnar 24. september 2015 kom í ljós að henni hafði verið ekið 1853 kílómetra. Á sama tíma og fyrrgreindur Y var við [...] sá lögreglan til Z á Laugaveginum. Lögregla fylgdi bifreiðinni [1] eftir á leið hennar til Suðurnesja 24. september 2015 og kom í ljós að bifreiðin [3] fylgdi henni eftir. Þegar bifreiðinni [1] hafði verið lagt í stæði við veitingastað í Keflavík urðu lögreglumenn aftur varir við bifreiðina [3]. Skömmu síðar stigu varnaraðili og fyrrgreindur Z út úr bifreiðinni. Þeir óku síðan á eftir bifreiðinni [1] er henni var ekið að hóteli í miðbæ Keflavíkur, en hurfu á brott eftir að Y hafði bókað sig á hótelið. Y fór með flugi frá Íslandi 25. september 2015 og skildi bifreiðina [1] eftir á skammtímastæði við Keflavíkurflugvöll. Hann kom aftur til landsins 28. sama mánaðar en þann dag kom Þ til landsins. Um sama leyti og Y sótti bifreiðina [1] á bifreiðastæðið við Keflavíkurflugvöll sáu lögreglumenn aftur til bifreiðarinnar [3]. Y og Þ óku síðan hvor á sinni bifreið í átt að [...] að gistiheimili við [...], þar sem þeir voru handteknir. Varnaraðili var einnig handtekinn um 500 metrum frá gistiheimilinu, en þar beið hann í bifreiðinni [3]. Í bifreiðinni sem Y ók fundust 19,5 kg af amfetamíni og rúmlega 2,5 kg af kókaíni. Í bifreið varnaraðila fannst meðal annars umslag með 15.600 evrum og sjónauki. Er varnaraðili var handtekinn hafði hann undir höndum Blackberry síma, en samkvæmt gögnum málsins mun einvörðungu unnt að nota símann til að eiga dulkóðuð samskipti.
Við húsleit á heimili varnaraðila var meðal annars lagt hald á svokölluð Ikort. Við skoðun á þeim kom í ljós að frá 22. júlí til 10. september 2015 voru lagðar inn rúmlega 8 milljón krónur á 25 slík kort af hálfu varnaraðila og Z. Þá voru rúmar 7 milljón krónur teknar út af kortunum í hraðbönkum í [...] dagana 12. til 17. september 2015. Þau kort sem fundust heima hjá varnaraðila voru virkjuð úr símanúmerum varnaraðila og Z. Varnaraðili hefur kosið að tjá sig ekki um framangreint. Enn fremur liggur fyrir í málinu að Z hefur ítrekað keypt flugferðir fyrir varnaraðila á árinu, en hvorki varnaraðili né Z hafa gefið skýringar á því.
Samkvæmt framangreindu er varnaraðili undir sterkum grun um að eiga aðild að innflutningi á fíkniefnum þeim er fundust í bifreiðinni [1]. Sannist sök varðar brotið allt að 12 ára fangelsi samkvæmt 173. gr. a. almennra hegningarlaga nr. 19/1940. Þá er brotið þess eðlis að ætla megi varðhald nauðsynlegt með tilliti til almannahagsmuna. Er því fullnægt skilyrðum 2. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008 um gæsluvarðhald yfir varnaraðila. Verður hinn kærði úrskurður því staðfestur.
Dómsorð:
Hinn kærði úrskurður er staðfestur.
Úrskurður Héraðsdóms Reykjaness 24. nóvember 2015.
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu hefur í dag krafist þess með vísan til 2. mgr. 95. gr. laga um meðferð sakamála nr. 88/2008, að kærða, X, kt. [...], verði áfram gert að sæta gæsluvarðhaldi, allt til þriðjudagsins 22. desember nk., kl. 16.
Kærði mótmælir kröfu lögreglustjóra og krefst þess aðallega að henni verði hafnað, en til vara að kærða verði gert að sæta farbanni.
I
Í greinargerð lögreglustjóra segir að lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu hafi til rannsóknar stórfellt fíkniefnalagabrot er varði innflutning á sterkum fíkniefnum hingað til lands.
Hinn 28. september sl. hafi lögregla lagt hald á rúmlega 19,5 kg af amfetamíni og rúmlega 2,5 kg af kókaíni sem fundust í bifreið sem staðsett var við gistiheimili að [...] í [...]. Tveir erlendir aðilar hafi verið handteknir í húsnæðinu, grunaðir um aðild að innflutningi fíkniefnanna hingað til lands. Lögreglan hafi verið með eftirlit með bifreiðinni í nokkra daga og við það eftirlit hafi lögreglan orðið ítrekað vör við aðra bifreið sem virtist fylgja hinni eftir. Við frekari skoðun lögreglu hafi síðan komið í ljós að um var að ræða bílaleigubifreiðar sem kærði X var skráður leigutaki að. Kærði hafi verið handtekinn skammt frá gistiheimilinu á bifreiðinni [3] og lögreglan fundið í bifreið hans, sjónauka, lambhúshettu og rúmlega 15.600 evrur sem svari til rúmlega 2,2 milljóna íslenskra króna. Lögregla telji að kærði hafi þar verið að fylgjast með meðkærðu og bifreiðinni sem innihélt fíkniefnin. Við rannsókn lögreglu hafi einnig komið í ljós að kærði var staðsettur á Seyðisfirði sama dag og ferjan Norræna kom til landsins þann 22. september sl.
Í greinargerð lögreglustjóra segir að kærði hafi neitað sök við skýrslutöku hjá lögreglu. Framburður kærða komi ekki heim og saman við þau gögn sem lögreglan hafi undir höndum, framburð meðkærða og vitna. Kærði hafi að öðru leyti lítið kosið að tjá sig hjá lögreglu eða ekki sagst muna eftir atvikum máls. Í framburðum meðkærðu hjá lögreglu hafi komið fram að erlendir aðilar tóku þátt í skipulagningu innflutningsins og voru þeir í samskiptum eða í samstarfi við aðila hér á landi sem fylgdust með ferðum bifreiðarinnar. Það sé ætlun lögreglu að kærði X og meðkærði Z hafi verið samstarfsmenn þessara aðila hér á landi. Vísar lögreglan til gagna málsins varðandi nánari framburð kærða, meðkærða og þau gögn sem liggja fyrir hjá lögreglu.
Nánar kemur fram í greinargerð lögreglustjóra, að með heimild Héraðsdóms Reykjaness hafi lögreglan skoðað síma og fjármálagögn kærða. Við þá skoðun hafi margt komið fram sem styrki grun lögreglu. Ljóst sé að kærði hafði nokkuð fjármagn undir höndunum og svo virðist sem mikið fjármagn hafi farið á milli kærða og meðkærða Z hér á landi og erlendis. Meðkærði Z segi þó hjá lögreglu að mjög lítil fjárhagsleg tengsl hafi verið á milli þeirra og kærði neiti að tjá sig um það atriði. Við skoðun á fjármálagögnum kærða og meðkærða Z hafi komið í ljós, að á tímabilinu frá 22. júlí til 10. september hafi verið lagðar rúmlega 9 milljónir inn á 30 Ikort, en 25 þeirra hafi fundist á heimili X. Þá megi sjá að rúmlega 8 milljónir hafi verið teknar út af þessum kortum í hraðbönkum í Evrópu á tímabilinu frá 22. júlí til 17. september. Lögreglan telji að þessir peningar hafi verið notaðir til að fjármagna fíkniefnainnflutninginn. Kærði hafi neitað að tjá sig um það í hvaða tilgangi hann lagði inn þessa peninga og hver eða hverjir hafi tekið út þessar fjárhæðir og í hvaða tilgangi.
Þá hafi lögreglan undir höndum gögn sem sýni að kærði hafi á þessu tímabili tekið nokkrar bifreiðar til leigu. Bifreiðunum hafi verið ekið yfir 2000 km á meðan kærði hafði umráð yfir þeim og hafi komið í ljós að þrisvar sinnum á þessu sama tímabili hafi kærði verið staðsettur á Seyðisfirði. Í framburðum meðkærðu hafi komið fram að erlendir aðilar hafi tekið þátt í skipulagningu innflutningsins og hafi þeir verið í samskiptum eða í samstarfi við aðila hér á landi sem hafi fylgst með ferðum bifreiðarinnar.
Við leit á heimili og í bifreið meðkærða Z hafi fundist kassar utan af Blackberry símum. Einn kassinn hafi verið utan af síma sem kærði var með við handtöku og telji lögreglan að sá sími hafi verið notaður í samskiptum við erlenda samverkamenn. Við rannsókn lögreglu á þessum síma hafi síðan komið í ljós að eingöngu var hægt að nota símtækið í þeim tilgangi að eiga dulkóðuð texta-samskipti, en kærði neiti að tjá sig um það. Vísar lögreglan um þetta atriði nánar til gagna málsins.
Þá hafi komið í ljós að meðkærði Z hafi ítrekað keypt flugferðir fyrir X á þessu ári, en aðspurðir hafi þeir neitað að tjá sig um það hjá lögreglu.
Kærði, X hafi nú sætt gæsluvarðhaldi í þágu rannsóknar málsins frá 29. september sl., nú síðast með úrskurði Héraðsdóms Reykjaness nr. [...]/2015, en sá úrskurður hafi verið staðfestur með dómi Hæstaréttar.
Þá kemur fram í greinargerð lögreglustjóra að rannsókn lögreglu hafi verið unnin í samstarfi við erlend yfirvöld og síðustu vikur beinst að því að hafa upp á samverkamönnum kærðu í [...], en einnig hafi verið óskað eftir aðstoð annarra erlendra lögregluyfirvalda. Þannig hafi verið óskað eftir húsleitum og skýrslutökum og vinni lögreglan að þeim aðgerðum í samstarfi við erlend yfirvöld.
Að mati lögreglustjóra sé kærði undir sterkum grun um aðild að broti gegn 173. gr. a almennra hegningarlaga nr. 19/1940 ásamt síðari breytingum, sem geti varðað allt að 12 ára fangelsi. Aðild kærða sé mikil og talin tengjast skipulagningu og flutningi fíkniefnanna hingað til lands. Þá sé einnig lagt til grundvallar kröfu um gæsluvarðhald, að um mjög mikið magn hættulegra fíkniefna sé að ræða. Hið ætlaða brot kærða þyki mjög alvarlegt og þess eðlis að nauðsynlegt sé að tryggja að kærði gangi ekki laus á meðan mál hans er til meðferðar. Telja verði að ef sakborningur, sem orðið hefur uppvís að jafn alvarlegu broti og kærði gangi laus áður en máli ljúki með dómi, þá valdi það hneykslun í samfélaginu og særi réttarvitund almennings. Staða kærða í málinu þyki sambærileg stöðu sakborninga í öðrum svipuðum málum, sbr. mál Hæstaréttar nr. 763/2015, 152/2013, 149/2013, 269/2010, 164/2010 og 91/2010, þar sem sakborningum hafi verið gert að sæta gæsluvarðhaldi fram að uppkvaðningu dóms, þegar legið hefur fyrir sterkur grunur um beina aðild að innflutningi að miklu magni fíkniefna í ágóðaskyni. Sé skilyrðum 2. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála fullnægt í því máli sem hér um ræðir.
II
Kærði hefur setið í gæsluvarðhaldi frá 29. september sl. á grundvelli rannsóknarhagsmuna. Nú er krafist áframhaldandi gæsluvarðhalds á grundvelli 2. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála.
Kærði hefur neitað sök. Meðkærðu, hafa upplýst hjá lögreglu, að erlendir aðilar hafi tekið þátt í skipulagningu á innflutningi fíkniefnanna og hafi þeir verið í samskiptum eða í samstarfi við aðila hér á landi sem hafi fylgst með ferðum bifreiðarinnar sem fíkniefnin fundust í. Kærði var handtekinn nærri þeim stað þar sem meðkærðu voru handteknir þar sem talið var að hann væri að fylgjast með bifreiðinni. Í bifreið kærða fannst meðal annars sjónauki og háar fjárhæðir í erlendum gjaldeyri. Kærði hefur lítið viljað tjáð sig um þetta atriði og önnur hjá lögreglu og kveðst ekki muna eftir atvikum máls.
Með vísan til þessa og annarra upplýsingar sem um getur í greinargerð og framlögðum gögnum, er fallist á það með lögreglustjóra, að kærði sé undir sterkum grun, um að hafa framið afbrot sem að lögum getur varðað allt að 12 ára fangelsi.
Þá er fallist á það með lögreglustjóra, með tilliti til þess mikla magns hættulegra fíkniefna sem um ræðir í máli þessu, og ætla verður að hafi átt að selja hér á landi, að gæsluvarðhald sé nauðsynlegt með tilliti til almannahagsmuna. Krafa lögreglustjórans verður því tekin til greina eins og hún er fram sett og nánar greinir í úrskurðarorði.
Úrskurð þennan kveður upp Bogi Hjálmtýsson héraðsdómari.
Ú r s k u r ð a r o r ð :
Kærði, X, skal sæta áfram gæsluvarðhaldi, allt til þriðjudagsins 22. desember nk., kl. 16:00.