Hæstiréttur íslands

Mál nr. 316/2009


Lykilorð

  • Kærumál
  • Gæsluvarðhald. A. liður 1. mgr. 103. gr. laga nr. 19/1991
  • Sératkvæði


Föstudaginn 12

 

Föstudaginn 12. júní 2009.

Nr. 316/2009.

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu

(Jón H. B. Snorrason saksóknari)

gegn

X

(Vilhjálmur H. Vilhjálmsson hdl.)

 

Kærumál. Gæsluvarðhald. A. liður 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008. Sératkvæði.

Niðurstaða héraðsdóms um að X skyldi gert að sæta áfram gæsluvarðhaldi, á grundvelli a. liðar 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála, var staðfestur. Þó var talið að ekki hafi verið sýnt fram á með fullnægjandi hætti að enn væri nauðsynlegt að úrskurða X í einangrun.

 

Dómur Hæstaréttar.

Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Ólafur Börkur Þorvaldsson og Jón Steinar Gunnlaugsson og Viðar Már Matthíasson settur hæstaréttardómari.

Varnaraðili skaut málinu til Hæstaréttar með kæru 9. júní 2009, sem barst réttinum ásamt kærumálsgögnum degi síðar. Kærður er úrskurður Héraðsdóms Reykjavíkur 9. júní 2009, þar sem varnaraðila var gert að sæta áfram gæsluvarðhaldi allt til þriðjudagsins 23. júní 2009 kl. 16 og sæta einangrun meðan á gæsluvarðhaldi stendur. Kæruheimild er í l. lið 1. mgr. 192. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála. Varnaraðili krefst þess aðallega að hinn kærði úrskurður verði felldur úr gildi en til vara að gæsluvarðhaldi verði markaður skemmri tími og honum verði ekki gert að sæta einangrun.

Sóknaraðili krefst staðfestingar hins kærða úrskurðar.

Varnaraðili hefur á grundvelli a. liðar 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008 sætt gæsluvarðhaldi frá 21. apríl 2009 og verið gert að sæta einangrun á þeim tíma, sbr. 2. mgr. 98. gr. sömu laga.

Með vísan til forsendna hins kærða úrskurðar verður hann staðfestur um að varnaraðili skuli áfram sæta gæsluvarðhaldi þann tíma sem krafist er. Varnaraðili hefur sætt einangrun um langa hríð og hefur sóknaraðili ekki sýnt fram á með fullnægjandi hætti að enn sé nauðsynlegt að úrskurða varnaraðila til slíkrar vistar. Verður því ekki fallist á þessa kröfu sóknaraðila.

Dómsorð:

Varnaraðili, X, skal sæta gæsluvarðhaldi allt til þriðjudagsins 23. júní 2009 kl.16.

Sératkvæði

Viðars Más Matthíassonar,

setts hæstaréttardómara

Ég tel að staðfesta beri hinn kærða úrskurð með vísan til forsendna hans.

 

 

Úrskurður Héraðsdóms Reykjavíkur 9. júní 2009.

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu hefur krafist þess aðallega að Héraðs­dómur Reykjavíkur úrskurði að X, kt. [...], verði áfram gert að sæta gæsluvarðhaldi, allt til þriðjudagsins 23. júní 2009 kl. 16:00.  Þess er krafist að X verði látinn vera í einrúmi á meðan á gæsluvarðhaldi stendur.

Til vara er þess krafist að X, [...], verði áfram gert að sæta gæsluvarðhaldi, allt til þriðjudagsins 7. júlí 2009 kl. 16:00. 

Í greinargerð lögreglu kemur fram að 18. apríl 2009 hafi lögregla fengið upplýsingar um að seglskúta stefndi í átt til lands.  Í tengslum við þessar upplýsingar hafi verið fylgst með ferðum þriggja manna á tveimur bílum sem hafi verið staddir á Djúpavogi, en þeir hafi verið með slöngubát með utanborðsvél með sér.  Síðar hafi komið í ljós að tveir af mönnunum og báturinn voru horfnir en einn mannanna á ferð um Djúpavog. 

Um kvöldið hafi sést til ferða slöngubátsins, þar sem honum hafi verið siglt inn í höfn í Gleðivík, vestan við aðalhöfnina á Djúpavogi.  Sá mannanna sem hafði verið á ferð um Djúpavog hafi komið akandi að höfninni þar sem báturinn hafi komið að landi.  Hafi töskur verið teknar út úr bátnum og þeim komið fyrir í bifreiðinni.  Bifreiðinni hafi í framhaldinu verið ekið á brott.  Við Höfn hafi bif­reiðin verið stöðvuð og ökumaður bifreiðarinnar handtekinn.  Í bifreiðinni hafi verið töskur sem inniheldu um 109 kg af efnum sem hafi gefið svörun hjá tæknideild lögreglunnar á höfuðborgar­svæðinu sem fíkniefni; amfetamín, MDMA, hass og marihuana.

Slöngubátnum hafi verið siglt úr höfninni í Gleðivík og inn í höfnina á Djúpavogi.  Fylgst hafi verið með tveimur mönnum sem hafi verið um borð í bátnum og hafi þeir síðar um kvöldið verið handteknir á bifreiðinni [...]. 

Landhelgisgæslan hafi hafið leit að skútunni og hafi skúta fundist á siglingu á hafinu á milli Íslands og Færeyja, á svæði sem hafi komið heim og saman við fyrri upplýsingar um staðsetningu skútunnar, tímasetningar, veður og fleira.  Hafi Land­helgis­gæslan gefið skútunni skipun um að stöðva, en hún ekki orðið við því.  Hafi skútunni því verið fylgt eftir og er varðskipið Týr hafi komið að skútunni hafi sérsveitarmenn frá Ríkislögreglustjóra farið um borð í skútuna og handtekið þar þá þrjá menn sem voru um borð, þeirra á meðal X.  Hafi skútan þá verið stödd á alþjóðlegu hafsvæði í efnahagslögsögu Færeyja og hafi færeyskum yfirvöldum verið gert viðvart um aðgerðirnar.  Unnið sé að því að afla eins nákvæmra upplýsinga um siglingaleið skútunnar og unnt sé.

                X hafi alfarið neitað sök vegna málsins. Fram hafi farið myndbending í málinu þar sem bent hafi verið á X sem einn aðila í áhöfn skútunnar.

Lagarök:

Aðalkrafa:

Rannsókn lögreglu miði áfram, en rannsóknin hafi verið mjög umfangsmikil. Rannsóknin miði að því að finna út hver/hverjir séu eigendur hinna ætluðu fíkniefna sem haldlögð hafi verið. Rannsaka þurfi þætti er snúi að aðdraganda brotsins, skipulagningu og fjármögnun. Til skoðunar séu símasamskipti aðila, staðsetningar fyrir og á þeim tíma sem ætlað brot sé framið, þættir er snúi að fjármálum þeirra og fleira. Gagnaöflun sé í fullum gangi og hafi nú þegar verið sendar út réttarbeiðnir þar sem óskað sé eftir aðstoð erlendra yfirvalda við ýmsa þætti er snúi að rannsókninni. Sem stendur hafi ekki öll gögn borist lögreglu erlendis frá en muni berast á næstunni. Meðal annars hafi lögreglan óskað eftir því við hollensk yfirvöld að tekin verði skýrsla af aðila að nafni Y. Að sögn Z, eins meðlims áhafnar skútunnar, sé Y faðir hans. Lögreglan hafi upplýsingar um að hringt hafi verið úr síma Þ, annars meðlims áhafnar skútunnar, eftir að Landhelgisgæslan hafði gefið skútunni skipun um að stöðva og áður en sérsveitarmenn frá Ríkislögreglustjóra fóru um borð í skútuna. Mikilvægt sé talið í þágu rannsóknarinnar að unnt sé að bera upplýsingar undir kærða sjálfstætt á meðan hann sæti gæsluvarðhaldi og að hann sæti einangrun á þessu stigi rannsóknarinnar. Þá liggi einnig fyrir mikil vinna við úrvinnslu þeirra gagna sem þegar liggi fyrir.

Rökstuddur grunur sé um stórfellt fíkniefnabrot X, en talið sé að haldlögð fíkniefni hafi verið sótt í áðurgreinda skútu. Nauðsynlegt sé talið að hann sæti gæsluvarðhaldi vegna málsins, svo honum sé fyrirmunað að setja sig í samband við ætlaða vitorðsmenn og/eða vitni og/eða að hann geti komið undan gögnum sem sönnunargildi hafi í málinu og hafi ekki verið haldlögð.  Þyki þannig nauðsynlegt að vernda rannsóknarhagsmuni málsins með því að X sæti gæsluvarðhaldi og að hann verði látinn vera í einrúmi á meðan á gæsluvarðhaldi stendur.

Til rannsóknar sé ætlað brot gegn 173. gr. a almennra hegningarlaga nr. 19/1940 ásamt síðari breytingum, sem geti varðað allt að 12 ára fangelsi. Um heimild til gæsluvarðhalds vísar lögreglan til a liðar 1. mgr. 95. gr. laga um meðferð sakamála nr. 88/2008 og til b liðar 1. mgr. 99. gr.  sömu laga hvað varðar kröfu um einangrun.

Varakrafa:

Kærði þyki vera undir sterkum rökstuddum grun um aðild að stórfelldu fíkniefnabroti. Þannig sé grunur lögreglu að það mikla magn fíkniefna sem haldlagt hafi verið,  hafi verið flutt hingað til lands á þeirri skútu sem kærði var handtekinn á og talið að ferð skútunnar hafi verið farin eingöngu í þeim tilgangi að koma fíkniefnunum til Íslands.  Kærði hafi sætt gæsluvarðhaldi frá 21. apríl en með úrskurði Héraðsdóms Austurlands frá 21. apríl nr. R-9/2009 hafi kærði verið úrskurðaður í gæsluvarðhald á grundvelli a-liðar 1. mgr. 95. gr. laga um meðferð sakamála nr. 88/2009, til 12. maí sl. Sá úrskurður hafi verið staðfestur með dómi Hæstaréttar nr. 194/2009. Með úrskurði Héraðsdóms Reykjavíkur, nr. R-191/2009, frá 12. maí hafi kærði verið úrskurðaður í áframhaldandi gæsluvarðhald, einnig á grundvelli a-liðar 1. mgr. 95. gr. laga um meðferð sakamála nr. 88/2008, til 29. maí. Sá úrskurður hafi verið staðfestur með dómi Hæstaréttar nr. 238/2009. Með úrskurði héraðsdóms nr. R-228/2009 þann 29. maí hafi kærða verið gert að sæta áframhaldandi gæsluvarðhaldi, til 9. júní, einnig á grundvelli a-liðar 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008.  Sá úrskurður hafi verið staðfestur með dómi Hæsta­réttar nr. 296/2009.

Meint aðild kærða þyki mikil en hún sé að minnsta kosti talin tengjast flutningi fíkniefnanna hingað til lands. Einnig sé lagt til grundvallar að um sé að ræða mjög mikið magn fíkniefna. Nær öruggt þyki að fíkniefnin hafi átt að fara í sölu og dreifingu til ótiltekins fjölda manna hér á landi. Hið meinta brot kærða þyki mjög alvarlegt. Með tilliti til hagsmuna almennings þyki þannig nauðsynlegt að kærði sæti áfram gæsluvarðhaldi á meðan mál hans sé til meðferðar en telja verði að ef sakborningur, sem orðið hefur uppvís að jafn alvarlegu broti og kærði, gangi laus áður en máli lýkur með dómi þá valdi það hneykslun í samfélaginu og særi réttarvitund almennings. Staða kærða í málinu þyki sambærilega stöðu sakborninga í öðrum svipuðum málum, sbr. mál Hæstaréttar nr. 635/2007, 376/2006, 377/2006, 378/2006, 154/2006, 368/2005, 93/2005, 488/2004, 269/2004, 417/2000 og 471/1999, þar sem sakborningum hafi verið gert að sæta gæsluvarðhaldi fram að uppkvaðningu dóms þegar legið hafi fyrir rökstuddur grunur um beina aðild að innflutningi að miklu magni fíkniefna í ágóða­skyni. Ekki sé talin ástæða til að ætla að refsimat og réttarvitund almennings í slíkum málum hafi breyst frá því téðir dómar hafi verið uppkveðnir, og sé talið að skilyrðum 2. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála sé fullnægt í því máli sem hér um ræði.

Til rannsóknar sé ætlað brot gegn 173. gr. a almennra hegningarlaga nr. 19/1940 ásamt síðari breytingum, sem geti varðað allt að 12 ára fangelsi. Um heimild til gæsluvarðhalds vísar lögreglan til 2. mgr. 95. gr. laga um meðferð sakamála nr. 88/2008.

Kærði er undir rökstuddum grun um að eiga aðild að smygli á miklu magni fíkniefna eins og rakið hefur verið hér að framan. Rannsókn málsins er ekki lokið og er fallist á það með lögreglunni að kærði geti torveldað rannsóknina hafi hann óskert ferðafrelsi. Með vísun til a-liðar 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008 verður því orðið við aðalkröfunni og kærði úrskurðaður í gæsluvarðhald eins og krafist er og nánar greinir í úrskurðarorði. Með vísun til sömu raka er fallist á kröfu um að kærði sæti einangrun meðan á gæsluvarðhaldinu stendur, sbr. b-lið 1. mgr. 99. gr. sömu laga.

Arngrímur Ísberg héraðsdómari kvað upp úrskurðinn.

Úrskurðarorð:

Kærði, X, kt. [...], skal sæta áfram gæslu­varðhaldi, allt til þriðjudagsins 23. júní 2009 kl. 16:00.

Kærði skal látinn vera í einrúmi á meðan á gæsluvarðhaldi stendur.