Hæstiréttur íslands

Mál nr. 248/2014


Lykilorð

  • Niðurfelling máls
  • Málskostnaður
  • Gjafsókn


                                       

Fimmtudaginn 18. september 2014.

Nr. 248/2014.

K

(Margrét Gunnlaugsdóttir hrl.)

gegn

Reykjavíkurborg

(Kristbjörg Stephensen hrl.)

Niðurfelling máls. Málskostnaður. Gjafsókn.

K áfrýjaði fyrir sitt leyti dómi héraðsdóms þar sem hún og B voru svipt forsjá sona sinna að kröfu barnaverndarnefndar X. Með yfirlýsingu K féll hún frá áfrýjun málsins en hélt málskostnaðarkröfu sinni fyrir Hæstarétti til streitu. Talið var rétt að málskostnaður fyrir Hæstarétti félli niður og að gjafsóknarkostnaður K fyrir réttinum greiddist úr ríkissjóði. 

Dómur Hæstaréttar

Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Ólafur Börkur Þorvaldsson og Helgi I. Jónsson og Ingveldur Einarsdóttir settur hæstaréttardómari.

Áfrýjandi skaut málinu til Hæstaréttar 9. apríl 2014. Með bréfi 4. júlí sama ár féll áfrýjandi frá áfrýjun sinni, að öðru leyti en því að dómur gangi um málskostnað fyrir Hæstarétti án tillits til gjafsóknar sem henni hefur verið veitt fyrir réttinum.

Með vísan til c. liðar 1. mgr. 105. gr., sbr. 166. gr., laga nr. 91/1991 um meðferð einkamála er málið fellt niður.

Rétt er að málskostnaður fyrir Hæstarétti falli niður.

Um gjafsóknarkostnað áfrýjanda fer eftir því sem segir í dómsorði.

Dómsorð:

Mál þetta er fellt niður.

Málskostnaður fyrir Hæstarétti fellur niður.

Allur gjafsóknarkostnaður áfrýjanda, K, fyrir Hæstarétti greiðist úr ríkissjóði, þar með talin málflutningsþóknun lögmanns hennar, 400.000 krónur.