Hæstiréttur íslands

Mál nr. 302/2017

Ákæruvaldið (Björn Þorvaldsson saksóknari)
gegn
X (Reimar Pétursson hrl.)

Lykilorð

  • Kærumál
  • Kæruheimild
  • Frávísun frá Hæstarétti

Reifun

Kærður var úrskurður héraðsdóms þar sem hafnað var kröfu X um að Á yrði gert að afhenda varnaraðila nánar tilgreind gögn. Þar sem heimild brast til kæru úrskurðarins var málinu vísað frá Hæstarétti.

Dómur Hæstaréttar.

Mál þetta dæma Helgi I. Jónsson hæstaréttardómari og Ingibjörg Benediktsdóttir og Ingveldur Einarsdóttir settir hæstaréttardómarar.

Varnaraðili skaut málinu til Hæstaréttar með kæru 12. maí 2017, sem barst réttinum ásamt kærumálsgögnum 15. sama mánaðar. Kærður er úrskurður Héraðsdóms Reykjavíkur 11. maí 2017, þar sem hafnað var kröfu varnaraðila um að sóknaraðila yrði gert að afhenda varnaraðila nánar tilgreind gögn. Um kæruheimild vísar varnaraðili til p.liðar 1. mgr. 192. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála. Varnaraðili krefst þess að áðurgreind krafa verði tekin til greina.

Sóknaraðili krefst þess aðallega að málinu verði vísað frá Hæstarétti en til vara að hinn kærði úrskurður verði staðfestur.

Með hinum kærða úrskurði var hafnað kröfu varnaraðila um að lagt yrði fyrir sóknaraðila að leggja hald á tilgreind gögn ,,svo unnt verði að afhenda þau þar sem það eigi við“. Í p. lið 1. mgr. 192. gr. laga nr. 88/2008 segir að úrskurður héraðsdóms um heimild til að leggja fram sönnunargagn, skyldu til að láta það af hendi til framlagningar í máli eða hald til að fylgja þeirri skyldu eftir, sæti kæru til Hæstaréttar. Kæra á úrskurði héraðsdóms um skyldu til haldlagningar gagna verður hvorki reist á p. lið 1. mgr. 192. gr. né öðrum stafliðum málsgreinarinnar. Brestur þannig heimild fyrir kæru varnaraðila og verður málinu því frá Hæstarétti.

Dómsorð:

Máli þessu er vísað frá Hæstarétti.

 

 

Úrskurður Héraðsdóms Reykjavíkur 11. maí 2017.

I

                Í málinu er ákærði X ákærður, ásamt meðákærðu, fyrir markaðsmisnotkun. Hann hefur krafist þess að fá afhent eftirtalin gögn:

                1.  Bréfaskrif milli Fjármálaeftirlitsins og kærunefndar samkvæmt lögum um opinbert eftirlit með fjármálastarfsemi nr. 87/1998 vegna máls nr. [...], varðveitt í máli nr. [...] í skjalaskráningarkerfi Fjármálaeftirlitsins.

                2.  Eftirtalin gögn varðveitt sem hluti af máli nr. [...] í skjalaskráningarkerfi Fjármálaeftirlitsins:

                a.  Minnisblað um fund [...] með framkvæmdastjóra markaðsviðskipta [...], dags. [...].

                b.  Minnisblað um kynningu [...] frá framkvæmdastjóra [...] dags. 16. mars 2007.

                c.  Minnisblað um fund 7. mars 2007 með forstöðumanni [...], dags. 16. mars 2007.

                d.  Öll önnur gögn færð á sama mál í skjalaskráningarkerfi Fjármálaeftirlitsins.

                3.  Öll samskipti (í beiðni þessari vísar orðið „samskipti“ til gagna um hvers kyns samskipti, þ.m.t. tölvupóst, símaupptökur og spjallþræði) [...] við verðbréfamarkaðssvið Fjármálaeftirlitsins 2005 til 2008, en til vara lista yfir þau eftirlitsmál sem Fjármálaeftirlitið skráði í kerfi sín og varða verðbréfamarkaðssvið [...] eða eigin viðskipti [...].    

4.  [...] mat sem Fjármálaeftirlitið framkvæmdi á [...] í maí 2008, í heild og án útstrikana.

                5.  Kynningu A á starfsemi bankans á stjórnarfundi nr. 174.

                6.  Kynningu á vandamálum frá stjórnarfundi nr. 181, fundarliður nr. 13, ásamt samskiptum A, B og C sem þessu tengjast, sérstaklega hvað varðar lánsfjármögnun beint og óbeint gegn eigin hlutum bankans.

                7.  Bréfaskrif embættis sérstaks saksóknara við embætti ríkissaksóknara ásamt öllum minnispunktum um samtöl sem fóru fram án þess að vera tekin upp í hljóði eða mynd vegna samstarfs embættisins við D og E.

                8.  Bréf Fjármálaeftirlits til [...] dags. 18. apríl 2007 sem og svar Fjármálaeftirlitsins við bréfi sem [...] sendi eftirlitinu 24. apríl 2007 og önnur gögn sem tengjast því máli sem þar er til umfjöllunar. Þessi bréf eru liður í bréfaskiptum sem er að hluta að finna í skjölum II/1.4.16 og II/1.4.19 og eru flokkuð sem mál nr. [...].

                Í þinghaldi lét verjandi ákærða bóka að í kröfunni fælist að lagt yrði fyrir ákæruvaldið að haldleggja framangreind gögn „svo unnt verði að afhenda þau þar sem það eigi við.“

                Ákæruvaldið hafnaði kröfu ákærða. Það hafði áður hafnað kröfu sem verjandi hans hafði sett fram í bréfum um afhendingu framangreindra gagna og annarra gagna.

II

                Ákærði byggir kröfu sína á því að hann hyggist bera fyrir sig þá málsvörn að verulega bresti á skýrleika refsiheimildarinnar sem tilgreind sé í ákæru. Eftirlitsaðilum hafi verið kunnugt um að bankinn ætti viðskipti til að liðka fyrir verðmyndun á eigin hlutum í bankanum. Þeir hafi látið það átölulaust. Þá kveðst ákærði einnig ætla að bera fyrir sig staðreynda- og lögvillu. Máli sínu til stuðnings bendir hann á dóm Hæstaréttar sem hann kveður hafa túlkað lagaákvæðið, sem hann er ákærður fyrir að hafa brotið, með tilteknum hætti.

                Ákæruvaldið byggir höfnun sína á því að rannsókn málsins sé lokið. Það telji framangreind gögn ekki hafa sönnunargildi í málinu. Þá hefur komið fram að ákæruvaldið kveðst ekki hafa þessi gögn undir höndum.

III

                Eins og áður sagði er ákærða gefin að sök markaðsmisnotkun og er ætlað brot hans talið varða við tiltekin ákvæði laga um verðbréfaviðskipti. Við mat á sekt eða sýknu ákærða verður byggt á gögnum málsins eins og þau verða færð fram við aðalmeðferð málsins. Þá verður einnig lagt mat á atferli ákærða í ljósi túlkunar á þeim lagaákvæðum er honum er gefið að sök að hafa brotið. Krafa ákærða um öflun og afhendingu gagna virðist miða að því að upplýsa hvað aðrir, þar með taldar eftirlitsstofnanir, kunna að hafa haldið um þennan þátt í starfsemi bankans á þeim tíma sem ákæran tiltekur. Það hefur enga þýðingu við úrlausn málsins að leiða þetta í ljós umfram það er kann að koma fram við skýrslutökur. Krafa ákærða lýtur því að atriðum sem skipta ekki máli við úrlausn málsins og er kröfu hans hafnað, sbr. 3. mgr. 110. gr. laga nr. 88/2008

                Arngrímur Ísberg héraðsdómari kveður upp úrskurðinn.

Úrskurðarorð:

                Hafnað er kröfu ákærða X um öflun og afhendingu gagna.