Hæstiréttur íslands

Mál nr. 13/2004


Lykilorð

  • Kærumál
  • Gæsluvarðhald. A. liður 1. mgr. 103. gr. laga nr. 19/1991


Mánudaginn 12

 

Mánudaginn 12. janúar 2004.

Nr. 13/2004.

Lögreglustjórinn í Reykjavík

(Egill Stephensen saksóknari)

gegn

X

(Guðmundur B. Ólafsson hdl.)

 

Kærumál. Gæsluvarðhald. A. liður 1. mgr. 103. gr. laga nr. 19/1991.

Hæstiréttur staðfesti úrskurð héraðsdóms um að X skyldi sæta gæsluvarðhaldi á grundvelli a. liðar 1. mgr. 103. gr. laga nr. 19/1991 um meðferð opinberra mála.

 

Dómur Hæstaréttar.

Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Árni Kolbeinsson, Ingibjörg Benediktsdóttir og Ólafur Börkur Þorvaldsson.

Varnaraðili skaut málinu til Hæstaréttar með kæru 8. janúar 2004. Kærumálsgögn bárust réttinum degi síðar. Kærður er úrskurður Héraðsdóms Reykjavíkur 8. janúar 2004, þar sem varnaraðila var gert að sæta gæsluvarðhaldi allt til fimmtudagsins 22. janúar 2004. Kæruheimild er í 1. mgr. 142. gr. laga nr. 19/1991 um meðferð opinberra mála. Varnaraðili krefst þess að hinn kærði úrskurður verði felldur úr gildi, en til vara að gæsluvarðhaldi verði markaður skemmri tími. Þá krefst hann kærumálskostnaðar.

Skilja verður greinargerð sóknaraðila fyrir Hæstarétti svo að hann krefjist þess að úrskurður héraðsdómara verði staðfestur.

Samkvæmt skýrslu sem vitni gaf fyrir lögreglu 8. janúar 2004 kveðst það hafa séð varnaraðila með hníf reiddan til atlögu þegar hann réðst að A. Með þessari athugasemd og að öðru leyti með vísan til forsendna hins kærða úrskurðar verður hann staðfestur.

Kærumálskostnaður verður ekki dæmdur.

Dómsorð:

Hinn kærði úrskurður er staðfestur.

 

Úrskurður Héraðsdóms Reykjavíkur 8. janúar 2004.

                    Lögreglustjórinn í Reykjavík hefur krafist þess að X, óstaðsettum í hús, með dvalarstað að […], verði á grund­velli a-liðar 1. mgr. 103. gr. laga um meðferð opinberra mála nr. 19/1991 gert að sæta gæsluvarðhaldi allt til fimmtudagsins 22. janúar 2004 kl. 16:00.

          [...]

          Lögreglan í Reykjavík kveðst nú rannsaka ætlað brot kærða sem talið sé varða við 211. gr., sbr. 20. gr., eða 2. mgr. 218. gr. almennra hegningarlaga nr. 19, 1940. Með vísan til framanritaðs, framlagðra gagna og til a-liðar 1. mgr. 103. gr. laga nr. 19, 1991 sé þess krafist að krafa þessi verði tekin til greina eins og hún sé fram sett.

          Samkvæmt rannsóknargögnum er kærði undir rökstuddum grun um að hafa ráðist á og tvívegis lagt til A með hnífi á heimili hans að [...] 7. janúar sl. 

          Fyrir dómi skýrði kærði frá því að hann hefði lent í átökum við A út af ágreiningi þeirra á milli [...].  Hann kveðst hafa verið með hníf í hægri hendi þegar hann ruddist inn í svefnherbergi A í íbúðinni og A hafi hlaupið til sín og orðið fyrir hnífnum.  Framburður kærða að þessu leyti er ekki í samræmi við framburði vitna. 

          Samkvæmt bráðabirgðalæknisvottorði Torfa Þorkels Höskuldssonar, deildar­læknis á hjarta- og lungnadeild Landspítala við Hringbraut, dags. í dag, reyndist A vera með tvö stungusár við komu á slysadeild spítalans í Fossvogi í gærkvöldi. Annað stungusárið reyndist vera á vinstri síðu á milli VI. og VII. rifbeins og hitt vinstra megin ofan við viðbein. Þá reyndist hann vera með loftbrjóst og er hann nú á hjartadeild þar sem fylgst verður með honum.

          Ætlað brot kærða getur varðað við 211. gr. sbr. 20 gr. eða 2. mgr. 218. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.

          Rannsókn málsins er skammt á veg komin.  Eftir er að yfirheyra vitni sem ekki hefur náðst til og hnífurinn er ófundinn.  Kærði gæti torveldað rannsókn málsins ef hann gengur laus.

          Með vísan til þessa og rannsóknargagna í heild ber að fallast á að skilyrðum sé full­nægt fyrir gæsluvarðhaldi kærða skv. a-lið 103. gr. laga nr. 19/1991.  Verður krafa lögreglunnar í Reykjavík tekin til greina eins og hún er fram sett og nánar greinir í úrskurði.  Ekki þykja efni til að gæsluvarðhaldinu verði markaður skemmri tími en krafist er.

Eggert Óskarsson héraðsdómari kvað upp úrskurðinn.

               

Úrskurðarorð:

          Kærði, X, sæti gæsluvarðhaldi allt til fimmtu­dagsins 22. janúar 2004 kl. 16:00.