Hæstiréttur íslands

Mál nr. 653/2009


Lykilorð

  • Kærumál
  • Gæsluvarðhald. B. liður 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008


Nr

Nr. 653/2009.

Þriðjudaginn 17. nóvember 2009.

 

Lögreglustjórinn á Suðurnesjum

(Alda Hrönn Jóhannsdóttir fulltrúi)

gegn

X

(Björgvin Jónsson hrl.)

Kærumál. Gæsluvarðhald. B. og d. liður 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008.

Úrskurður héraðsdóms um að X skyldi gert að sæta áfram gæsluvarðhaldi, á grundvelli b. og d. liða 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála, var staðfestur. Þá var einnig staðfestur úrskurður héraðsdóms um að hafna breyttri tilhögun gæsluvarðhalds.

 

Dómur Hæstaréttar.

Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Ólafur Börkur Þorvaldsson og Jón Steinar Gunnlaugsson og Viðar Már Matthíasson settur hæstaréttardómari. 

Varnaraðili skaut málinu til Hæstaréttar með kæru 11. nóvember 2009, sem barst réttinum ásamt kærumálsgögnum 13. sama mánaðar. Kærðir eru úrskurðir Héraðsdóms Reykjaness 11. nóvember 2009, þar sem varnaraðila var annars vegar gert að sæta áfram gæsluvarðhaldi allt til miðvikudagsins 2. desember 2009 klukkan 16 og honum gert að sæta einangrun meðan á gæsluvarðhaldi stendur og hins vegar var hafnað kröfu hans um breytta tilhögun gæsluvarðhalds. Kæruheimild er í l. lið 1. mgr. 192. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála. Varnaraðili krefst þess aðallega að hinir kærðu úrskurðir verði felldir úr gildi en til vara að gæsluvarðhaldi verði markaður skemmri tími. Þá krefst hann þess að þurfi hann að sæta gæsluvarðhaldi verði tilhögun gæsluvarðhaldsvistar þannig að takmörkunum samkvæmt c., d. og e. lið 99. gr. laga nr. 88/2008 verði aflétt. Skilja verður kröfu varnaraðila svo að átt sé við þær takmarkanir sem greinir í hinum kærða úrskurði um tilhögun gæsluvarðhalds.

Sóknaraðili krefst staðfestingar hinna kærðu úrskurða.

Af forsendum hins kærða úrskurðar um gæsluvarðhald varnaraðila má ráða að hann sæti gæsluvarðhaldi á grundvelli b. og d. liða 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008. Með þessari athugasemd en að öðru leyti með vísan til forsendna hinna kærðu úrskurða verða þeir staðfestir.

Dómsorð:

Hinir kærðu úrskurðir eru staðfestir.

 

Úrskurður Héraðsdóms Reykjaness 11. nóvember 2009.

Lögreglustjórinn á Suðurnesjum hefur krafist þess í dag fyrir Héraðsdómi Reykjaness með vísan til b. og d. liðar 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála að X, kt. [...],[...], verði með úrskurði gert að sæta áframhaldandi gæsluvarðhaldi allt til miðvikudagsins 2. desember 2009 kl. 16:00. Þess er jafnframt krafist að kærða verði gert að sæta einangrun í gæsluvarðhaldi samkvæmt b-lið 1. mgr. 99. gr. laga nr. 88/2008.

Kærði krefst þess aðallega að kröfunni verði hafnað en til vara að farbanni verði beitt. Til þrautavara krefst hann þess að gæsluvarðhaldi verði markaður skemmri tími. Þá er kröfu um einangrun mótmælt.

Krafan er reist á því að kærði sé undir rökstuddum grun um brot gegn 2. mgr. 218. gr. , 277. gr. a, 244. gr. og 248. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.

Í greinargerð lögreglustjórans á Suðurnesjum segir að hann hafi í samvinnu við önnur lögregluembætti, allt frá 10. október sl., haft til rannsóknar ætlað mansal ásamt fleiri brotum sem lögreglan telji að séu hluti af ætlaðri skipulagðri glæpastarfsemi. Sé kærði grunaður í því máli og hafi hann setið í gæsluvarðhaldi frá 18. október sl. Varðandi frekari málsatvik vísist til fyrri krafna um gæsluvarðhald fyrir dómnum svo og til gagna málsins.

Kærði hafi viðurkennt að hafa verið einn þeirra manna sem var að leita hins ætlaða fórnarlambs mansals. Kærði hafi einnig viðurkennt að hafa ætlað að sækja konu að nafni A í flugstöðina fyrir félaga sinn. Það sé jafnframt ætlun lögreglu að kærði hafi verið einn af þeim sem spurðist fyrir um konuna á lögreglustöðvum og heilbrigðisstofnunum seinna um nóttina og daginn eftir en jafnframt að hann hafi verið einn af þeim sem sótti konuna til Keflavíkur að kvöldi 12. október sl. í því skyni að koma henni undan lögreglu og sé vísað til framburða þess efnis. Þá liggi fyrir upplýsingar hjá lögreglu þess efnis að kærði stundi það ásamt meðkærðu að innheimta verndartolla af samlöndum sínum hér á landi og vísist til framburða þess efnis og gagna málsins.

Við húsleit á heimili unnustu kærða hafi fundist ætlað þýfi, sem tekið hafði verið í innbroti nokkrum vikum áður, en alls hefði verið tekið þýfi úr því innbroti að verðmæti um fjórar milljónir króna en jafnframt unnar skemmdir fyrir sambærilega fjárhæð. Munir úr sama innbroti hefðu fundist hjá meðkærðu Y og Z. Þá hafi lögreglan rökstuddan grun um að kærði hafi stungið mann í lærið með hníf fyrir nokkrum vikum síðan og að hann kunni að vera tengdur ætluðum tryggingarsvikum á Snæfellsnesi í ágúst sl. Sé vísað til gagna málsins og framburða þess efnis.

Verulegs ósamræmis og ótrúverðugleika gæti í framburði kærða og annarra aðila sem aðild eigi að málinu.

Rannsókn máls þessa sé mjög tímafrek og flókin og sé nú á lokastigi. Málið sé mjög umfangsmikið og teygi anga sína víða og telji lögreglan að rökstuddur grunur sé á að um sé að ræða verulega umfangsmikla skipulagða glæpastarfsemi sem kærði tengist ásamt meðkærðu. Rannsókn málsins hafi verið unnin í nánum samskiptum við erlend lögregluyfirvöld og sérstaklega við Litháen en fyrir liggi fjöldi gagna þaðan sem unnið sé að því að þýða og varði aðdraganda og forsögu að ferð konunnar hingað til lands. Sú háttsemi sem kærða hafi verið gefið að sök telji lögreglustjóri að kunni einkum að varða við ákvæði 2. mgr. 218. gr. , 277. gr. a, 244. gr. og 248. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.

Að mati lögreglu hafi sá grunur styrkst til muna að um verulega skipulagða glæpastarfsemi sé að ræða sem kærði tengist. Sé hann talinn einn af forsprökkum ásamt þremur öðrum meðákærðum er nú sitji í gæsluvarðhaldi. Telji lögregla rökstuddan grun til að ætla að þessi ætlaða skipulagða glæpastarfsemi tengist litháísku mafíunni og sé kærði einn af þeim aðilum er veiti þeim forystu hér á landi. Vísist nánar um það til hættumarks greiningardeildar ríkislögreglustjóra sem liggi fyrir í gögnum málsins.

Lögreglustjóri telji að öðru fólki stafi veruleg hætta af kærða en við rannsókn málsins hafi komið í ljós að fólk sé mjög hrætt við hann og sé jafnframt hrætt við að gefa framburð í málinu af ótta við hefndaraðgerðir. Þá sé kærði af erlendu bergi brotinn og verulegar líkur á að hann reyni að yfirgefa Ísland verði hann ekki látinn sitja í gæsluvarðhaldi. Þá vísi lögreglustjóri jafnframt til þess að meint brot varði helgustu réttindi fólks. Með vísan til alls þessa telji lögreglan nauðsynlegt að kærði sæti áfram gæsluvarðhaldi. Til stuðnings kröfu sinni um að kærði sæti einangrun í gæsluvarðhaldinu vísi lögreglustjóri til þess að hætta kunni leika á að kærði nái til vitna í málinu í gegnum aðila er tengist hinni meintu glæpastarfsemi. Ætla megi að kærði fái aðra aðila til að hefna eða hafa áhrif á framburð vitna áður en málið sé til lykta leitt fyrir dómstólum.

Krafa lögreglu er byggð á b. lið 95. gr. laga nr. 88/2008 um að hætta sé á, sæti kærði ekki áframhaldandi gæsluvarðhaldi, að hann muni reyna að komast úr landi og ennfremur er krafan byggð á d. lið sömu greinar, um að telja megi gæsluvarðhald nauðsynlegt til að verja aðra fyrir árásum sakbornings. Rannsókn málsins hefur beinst að erlendum ríkisborgurum sem lögreglan telur að stundi skipulagða glæpastarfsemi hér á landi m.a. með mansali, vændisstarfsemi og innheimtu svokallaðra verndartolla af samlöndum sínum sem hér eru búsettir. Í málinu hefur verið lagt fram hættumat greiningardeildar ríkislögreglustjóra vegna öryggis þriggja vitna og er niðurstaða matsins að öryggi vitnanna sé ógnað gangi kærði laus. Að öllu framangreindu virtu, sem og gögnum málsins að öðru leyti, verður fallist á með lögreglustjóra að skilyrði b. og [d.] liðar 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008 séu uppfyllt og verður því krafan tekin til greina eins og hún er fram sett í beiðni og nánar greinir í úrskurðarorði. Fallist verði  jafnframt á kröfu lögreglu um að kærði sæti einangrun.

Gunnar Aðalsteinsson héraðsdómari kveður upp úrskurð þennan.

ÚRSKURÐARORÐ

Kærði, X, skal sæta gæsluvarðhaldi allt til miðvikudagsins 2. desember 2009, kl. 16.00.

Kærði skal sæta einangrun meðan á gæsluvarðhaldinu stendur.

 

Úrskurður Héraðsdóms Reykjaness 11. nóvember 2009.

X var úrskurðaður í dag til að sæta áframhaldandi gæsluvarðhaldi til miðvikudagsins 2. desember 2009 kl. 16:00. Honum var jafnframt gert að sæta einangrun meðan á gæsluvarðhaldi stendur. Hann krefst þess nú að gæsluvarðhaldinu verði hagað þannig að ekki verði um takmarkanir að ræða samkvæmt c., d. og f. lið 1. mgr. 99. gr. laga nr. 88/2008 eins og fulltrúi lögreglustjóra hefur krafist.

                Af hálfu lögreglustjórans á Suðurnesjum er kröfu kærða mótmælt og þess krafist að tilhögun gæsluvarðhalds fari fram samkvæmt tilvitnuðum ákvæðum.

                Það liggur fyrir í máli þessi að kærði sæti gæsluvarðhaldi á grundvelli b- og d-liðar 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008 vegna gruns um brot gegn 227. gr. a almennra hegningarlaga nr. 19/1940. Er hagsmunum þeim sem liggja til grundvallar lýst í fyrrgreindum úrskurði um gæsluvarðhald. Með vísan til þess sem þar greinir, og að virtum öllum atvikum málsins, þykir skilyrðum fullnægt til að kærði sæti takmörkunum samkvæmt c., d. og f. lið  1. mgr. 99. gr. laga nr. 88/2008.

                Gunnar Aðalsteinsson héraðsdómari kveður upp úrskurð þennan.

ÚRSKURÐARORÐ

            Kærði, X, sæti takmörkunum á gæsluvarðhaldi samkvæmt c., d. og f. lið  1. mgr. 99. gr. laga nr. 88/2008.