Hæstiréttur íslands

Mál nr. 492/2009


Lykilorð

  • Kærumál
  • Gæsluvarðhald. A. liður 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008


Þriðjudaginn 1

 

Þriðjudaginn 1. september 2009.

Nr. 492/2009.

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu

(Jón H. B. Snorrason, saksóknari)

gegn

X

(Jón Höskuldsson hrl.)

 

Kærumál. Gæsluvarðhald. A. liður 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008.

Úrskurður héraðsdóms um að X skyldi gert að sæta áfram gæsluvarðhaldi, á grundvelli a. liðar 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála, var staðfestur.

 

Dómur Hæstaréttar.

Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Ólafur Börkur Þorvaldsson, Hjördís Hákonardóttir og Jón Steinar Gunnlaugsson. 

Varnaraðili skaut málinu til Hæstaréttar með kæru 28. ágúst 2009, sem barst réttinum ásamt kærumálsgögnum 31. sama mánaðar. Kærður er úrskurður Héraðsdóms Reykjavíkur 28. ágúst 2009, þar sem varnaraðila var gert að sæta áfram gæsluvarðhaldi allt til föstudagsins 4. september 2009 klukkan 16 og sæta einangrun meðan á gæsluvarðhaldi stendur. Kæruheimild er í l. lið 1. mgr. 192. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála. Varnaraðili krefst þess að hinn kærði úrskurður verði felldur úr gildi.

Sóknaraðili krefst staðfestingar hins kærða úrskurðar.

Varnaraðili hefur sætt gæsluvarðhaldi frá 14. ágúst 2009.

Með vísan til forsendna hins kærða úrskurðar verður hann staðfestur.

Dómsorð:

Hinn kærði úrskurður er staðfestur. 

 

Úrskurður Héraðsdóms Reykjavíkur, ár 2009, föstudaginn 28. ágúst.

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu hefur krafist þess að Héraðsdómur Reykjavíkur úrskurði kærða X, kt. [...], til að sæta áfram gæsluvarðhaldi allt til föstudagsins september  nk. kl. 16. Þá er þess einnig krafist að tilhögun gæsluvarðhalsins verði samkvæmt b-lið 1. mgr. 99. gr. laga um meðferð sakamála nr. 88/2008.

Í greinargerð lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu kemur fram að embættið hafi nú til rannsóknar gríðarlega umfangsmikið þjófnaðarmál, sem varði fjölmörg innbrot á síðustu dögum og vikum inn á heimili fólks og í bifreiðar á höfuðborgarsvæðinu.

Kærði, ásamt þremur samlöndum sínum, sæti nú gæsluvarðhaldi í þágu rannsóknar málsins, sjá nánar dóma Hæstaréttar Íslands nr. 474/2009, 476/2009 og 477/2009.  Kærði sé sterklega grunaður um að tengjast hópi manna, sem hafi verið afar virkur í brotastarfsemi að undanförnu, einkum innbrotum.  Við rannsókn málsins hafi komið í ljósa að kærði, ásamt meðkærðu, A, B, C og D, tengist neðangreindum þjófnaðarmálum með einum eða öðrum hætti, s.s. að þýfi úr málunum finnist í fórum þeirra eða framburður hjá lögreglu tengi þá við brotin:

i)              innbrot í íbúðarhúsnæði við Y í Reykjavík, sjá mál nr. 007-2009-27346, sem framið var 1. janúar sl.

ii)             innbrot í íbúðarhúsnæði við Z í Reykjavík, sjá mál nr. 007-2009-15507, sem framið var 14. mars sl.

iii)            innbrot í íbúðarhúsnæði við Þ í Reykjavík, sjá mál nr. 007-2009-39476, sem framið var 26. júní sl.

iv)            innbrot í Gistiheimilið Æ við [...] í Reykjavík, sjá mál nr. 007-2009-39529, sem framið var 26. júní sl.

v)             innbrot í bifreið sem stóð hjá Eiríksgötu við Hallgrímskirkju, sjá mál nr. 007-2009-41688, sem framið var um 6. júlí sl.

vi)            innbrot í bifreið sem stóð við Ö í Kópavogi, sjá mál nr. 007-2009-50033, sem framið var um 15. júlí sl.

vii)           innbrot í bifreið sem stóð við R í Kópavogi, sjá mál nr. 007-2009-50155, sem framið var um 15. júlí sl.

viii)          innbrot í bifreið sem stóð við S í Kópavogi, sjá mál nr. 007-2009-44660, sem framið var 21. júlí sl.

ix)            innbrot í íbúðarhúsnæði við T í Mosfellsbæ, sjá mál nr. 007-2009-45507, sem framið var 26. júlí sl.

x)             innbrot í íbúðarhúsnæði við U í Hafnarfirði, sjá mál nr. 007-2009-46033, sem framið var 28. júlí sl.

xi)            innbrot í íbúðarhúsnæði við Ú í Garðabæ, sjá mál nr. 007-2009-46547, sem framið var 31. júlí sl.

xii)           innbrot í íbúðarhúsnæði við V í Hafnarfirði, sjá mál nr. 007-2009-47083, sem framið var 2. ágúst sl.

xiii)          innbrot í íbúðarhúsnæði við YY í Kópavogi, sjá mál nr. 007-2009-46994, sem framið var 3. ágúst sl.

xiv)          innbrot í íbúðarhúsnæði við ZZ í Hafnarfirði, sjá mál nr. 007-2009-47784, sem framið var 6. ágúst sl.

xv)           innbrot í verslunina [...] við P í Reykjavík, sjá mál nr. 007-2009-47917, sem framið var 7. ágúst sl.

xvi)          innbrot í verslunina ÆÆ við [...] í Reykjavík, sjá mál nr. 007-2009-50344, sem framið var 7. ágúst sl.

xvii)         innbrot í íbúðarhúsnæði við ÖÖ í Reykjavík, sjá mál nr. 007-2009-48170, sem framið var 8. ágúst sl.

xviii)        innbrot í bústað prestsins við [...]kirkju við VV í Reykjavík, sjá mál nr. 007-2009-48566, sem framið var 10 ágúst sl.

xix)           innbrot í íbúðarhúsnæði við RR í Kópavogi, sjá mál nr. 007-2009-48511, sem framið var 10. ágúst sl.

xx)            innbrot í íbúðarhúsnæði að SS í Reykjavík, sjá mál nr. 007-2009-48726, sem framið var 11. ágúst sl.

xxi)           innbrot í íbúðarhúsnæði að TT í Reykjavík, sjá mál nr. 007-2009-48738, sem framið var 11. ágúst sl.

xxii)          innbrot í íbúðarhúsnæði við UU í Reykjavík, sjá mál nr. 007-2009-49002, sem framið var 12. ágúst sl.

xxiii)         innbrot í íbúðarhúsnæði við ÚÚ í Reykjavík, sjá mál nr. 007-2009-48965, sem framið var 12. ágúst sl.Auk þeirra muna sem lögregla hafi lagt hald á í ofangreindum málum á heimili kærða og meðkærðu hafi hún í vörslum sínum mikið magn muna sem hún ætli að séu þýfi.  Lögreglan vinni nú hörðum höndum að því að rekja hina haldlögðu muni til innbrota og séu lögreglu enn að berast upplýsingar og ábendingar um hvaðan munirnir séu tilkomnir.

Hinn 13. ágúst sl. hafi kærði verið handtekinn, ásamt sambýliskonu sinni, E, við verslunina [...] að [...] í Reykjavík.  Í fórum E hafi fundist skartgripir sem lögreglan hafi talið vera þýfi. 

Í framhaldi hafi lögreglan framkvæmt húsleit á heimili kærða að PP í Kópavogi, þar sem hald hafi verið lagt á mikið magn skartgripa, myndavéla og annarra muna sem lögreglan telji víst að séu þýfi.  (sjá nánar meðfylgjandi húsleitarskýrslu og myndir).

Á meðal þeirra muna sem hafi fundist á heimili kærða sé þýfi sem rekja  megi til neðangreindra tíu þjófnaðarmála:

·         innbrot í íbúðarhúsnæði að ÚÚ í Reykjavík, ( sjá lið nr. xxiii hér að ofan).   Kærði neitar að hafa brotist þarna inn, hann kveðst hafa keypt munina af manni að nafni F, sem lögreglan leitar en hefur ekki fundið.  Í máli þessu liggur fyrir framburður meðkærði A um að hafa brotist inn í umrætt húsnæði.  Nauðsynlegt er að taka frekari skýrslu af kærða og meðkærða um þennan þátt málsins.  En fyrir liggur að A og kærði eru góðir vinir frá því að þeir bjuggu saman í Póllandi í bænum Lomsa.

·         innbrot í bifreið sem stóð við hús nr. [...] að Holtagerði í Kópavogi, (sjá lið nr. viii hér að ofan)  Kærði neitar hér sök.

·         innbrot í íbúðarhúsnæði að Ú í Garðabæ, (sjá lið nr. xi hér að ofan).   Kærði neitar að hafa brotist þarna inn, hann kveðst hafa keypt munina af manni að nafni F, sem lögreglan leitar en hefur ekki fundið.  Fyrir liggur í málinu að munir úr þessu innbroti fundust einnig á heimili meðkærðu C,og D.  Þá liggur fyrir framburður meðkærða B, frá því í gær, um að hafa brotist þarna inn, ásamt þremur öðrum.  Hann kvaðst þó ekki vilja upplýsa hverjir voru með honum.  Nauðsynlegt er að bera þennan framburð undir kærða.

·         innbrot í bifreið sem stóð við Ö í Kópavogi, (sjá lið nr. vi hér að ofan). 

·         innbrot í bifreið sem stóð við R í Kópavogi, (sjá lið nr. vii hér að ofan).

·         innbrot í íbúðarhúsnæði að YY í Kópavogi (sjá lið nr. xiii hér að ofan).  Við húsleit hjá meðkærða A að QQ Reykjavík fannst tölva sem stolið var að YY.  Sömuleiðis fundust munir úr því innbroti á heimili kærða.  Lögregla hefur ekki enn yfirheyrt kærða vegna málsins.

·         innbrot í húsnæðið að P í Reykjavík, (sjá lið nr. xv hér að ofan).  Við húsleit á heimili meðkærðu C og D fundust fæðubótaefni, sem stolin voru í þessu innbroti.  Sömuleiðis fundust samskonar fæðubótaefni á heimili kærða.  Í þessu máli liggur fyrir framburður meðkærða B um að hafa brotist þarna inn, ásamt fjórum öðrum, sem hann ekki vill gefa upp hverjir eru.  Ekki hefur reynst unnt að taka skýrslu af kærða vegna þessa.

·         innbrot í bifreiðina M, þar sem hún stóð við Hallgrímskirkju, (sjá lið nr.v hér að ofan).    Munir úr þessu innbroti fundust á heimili kærða.  Ekki hefur reynst unnt að yfirheyra kærða vegna þessa.

·         innbroti í íbúðarhúsnæði að ÖÖ í Reykjavík, (sjá lið nr. xii hér að ofan).  Kærði neitar að hafa brotist þarna inn, hann kveðst hafa keypt munina af manni að nafni F, sem lögreglan leitar en hefur ekki fundið.  Við húsleit að Q í Kópavogi, þar sem meðkærðu D og C búa, fannst mikið magn af þýfi.  Meðal þeirra muna sem lagt var hald á var þýfi sem stolið var í innbrotinu að ÖÖ í Reykjavík.  Það liggur fyrir að taka frekari skýrslu af kærða og meðkærðu vegna þessara tengsla.

·         innbrot í íbúðarhúsnæði við U í Hafnarfirði, (sjá lið nr. x hér að ofan).  Í gærkvöld báru húsráðendur að U kennsl á muni sem þar var stolið.  Kærði hefur ekki enn verið yfirheyrður vegna þessa.

Af þessari reifun megi ljóst vera að kærði liggi undir grun um að tengjast a.m.k. 10 innbrots málum.  Þá séu uppi augljós tengsl milli kærða og meðkærðu málsins.  Þar sem hér sé um svo umfangsmikið mál að ræða hafi lögregla ekki enn náð að yfirheyra kærðu um alla þætti málsins.

Rannsókn málsins sé á viðkvæmu stigi og því afar brýnt að kærði fái ekki tækifæri til að torvelda henni, s.s. með því að koma undan munum, hafa áhrif á aðra samseka eða vitni. 

Með vísan til framangreinds, framlagðra gagna og a liðar 1. mgr. 95. gr.. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála sé þess krafist að krafan nái fram að ganga.

Með vísun til þess sem að framan var rakið úr greinargerð lögreglustjóra er það mat dómsins að kærði sé undir rökstuddum grun um að eiga aðild að fjölmörgum auðgunarbrotum sem þar er gerð grein fyrir.  Fallist er á það með lögreglustjóra að kærði geti torveldað rannsókn málsins, hafi hann óskert frelsi, en umfangmikil rannsókn lögreglu á brotunum er á viðkvæmu stigi. Þegar litið er til alls þessa telur dómurinn að uppfyllt séu skilyrði a liðar 1. mgr. 95. gr. 88/2008 til að verða við kröfu lögreglustjóra um gæsluvarðhald og er hún tekin til greina eins og hún er sett fram. Þá er með sömu rökum fallist á að kærði sæti einangrun skv. b lið 1. mgr. 99. gr. laganna.

Arngrímur Ísberg héraðsdómari kvað upp úrskurðinn.

Úrskurðarorð:

Kærði, X, kt. [...], skal  sæta áfram gæsluvarðhaldi allt til föstudagsins 4. september  nk. kl. 16.00. Kærði skal sæta einangrun á meðan á gæsluvarðhaldi stendur.