Hæstiréttur íslands

Mál nr. 219/2007


Lykilorð

  • Kærumál
  • Gæsluvarðhald. C. liður 1. mgr. 103. gr. laga nr. 19/1991


Miðvikudaginn 25

 

Miðvikudaginn 25. apríl 2007.

Nr. 219/2007.

Ákæruvaldið

(Jón H. Snorrason saksóknari)

gegn

X

(Hilmar Ingimundarson hrl.)

 

Kærumál. Gæsluvarðhald. C. liður 1. mgr. 103. gr. laga nr. 19/1991.

Úrskurður héraðsdóms um að X skyldi sæta gæsluvarðhaldi á grundvelli c. liðar 1. mgr. 103. gr. laga nr. 19/1991 um meðferð opinberra mála var staðfestur.

 

Dómur Hæstaréttar.

Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Ingibjörg Benediktsdóttir, Jón Steinar Gunnlaugsson og Ólafur Börkur Þorvaldsson.

Varnaraðili skaut málinu til Hæstaréttar með kæru 23. apríl 2007, sem barst réttinum ásamt kærumálsgögnum 24. sama mánaðar. Kærður er úrskurður Héraðsdóms Reykjaness 23. apríl 2007, þar sem varnaraðila var gert að sæta gæsluvarðhaldi uns dómur gengur í máli hans, þó ekki lengur en til föstudagsins 11. maí 2007 kl. 16. Kæruheimild er í 1. mgr. 142. gr. laga nr. 19/1991 um meðferð opinberra mála. Varnaraðili krefst þess að hinn kærði úrskurður verði felldur úr gildi.

Sóknaraðili krefst staðfestingar hins kærða úrskurðar.

Með vísan til forsendna hins kærða úrskurðar verður hann staðfestur.

Dómsorð:

Hinn kærði úrskurður er staðfestur.

 

 

Úrskurður Héraðsdóms Reykjaness 23. apríl 2007.

             Lögreglustjórinn  á höfuðborgarsvæðinu hefur í dag krafist þess fyrir Héraðsdómi Reykjaness að X, kt. [kennitala] [heimilisfang] verði með úrskurði gert að sæta áframhaldandi gæsluvarðhaldi uns dómur gengur í málum hans, þó eigi lengur en til 11. maí nk. kl. 16:00.

             Krafan er reist á ákvæðum c-liðar 1. mgr. 103. gr. laga um meðferð opinberra mála nr. 19/1991.

             Kærði krefst þess að kröfunni verði hafnað.

             Í kröfu lögreglustjórans kemur fram að kærði hafi hinn 30. janúar sl. verið úrskurðaður til að sæta gæsluvarðhaldi til 2. febrúar á grundvelli rannsóknarhagsmuna, sbr. úrskurð héraðsdóms Norðurlands eystra í máli nr. R-6/2007.  Með dómi Hæstaréttar í máli nr. 73/2007 hafi kærða verið gert að sæta áfram gæsluvarðhaldi með vísan til c.-liðar 1. mgr. 103. gr. laga nr. 19, 1991 til 2. mars og með úrskurði héraðsdóms Reykjavíkur nr. R-153/2007, var gæsluvarðhaldið framlengt til 30. mars og aftur með úrskurði Héraðsdóms Reykjaness í máli nr. R-63/2007, sem staðfestur hafi verið með dómi Hæstaréttar 3. apríl sl. í máli nr. 183/2007, til dagsins í dag kl. 16.

             Með ákæru lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu, dags. 22. mars 2007, hafi verið höfðað opinbert mál á hendur kærða, þar sem honum sé gefið að sök að hafa á tveggja mánaða tímabili, frá 30. nóvember 2006 til 30. janúar 2007, framið fjölmörg auðgunar- og fjármunabrot, auk fíkniefna- og umferðarlagabrota. Við þingfestingu málsins 30. mars sl. hafi ákærði viðurkennt sök í 9 ákæruliðum af 16. Það sé því ljóst að hann eigi nú yfir höfði sér fangelsisrefsingu. Aðalmeðferð málsins fari fram föstudaginn 27. apríl nk. og megi ætla að dómur verði kveðinn upp fljótlega eftir dómtöku.

             Við rannsókn mála kærða hafi komið í ljós að hann sé í mikilli óreglu og án atvinnu. Brotaferill hans hafi verið samfelldur og sé það mat lögreglustjóra að hann muni halda áfram afbrotum verði hann látinn laus.  Nauðsynlegt sé því að kærði sæti áfram gæsluvarðhaldi uns dómur gengur  í málum hans.

             Með vísan til framangreinds, framlagðra gagna og c.-liðar 1. mgr. 103. gr. laga nr. 19, 1991 um meðferð opinberra máls er þess krafist að krafan nái fram að ganga. 

             Fyrir liggur að aðalmeðferð máls á hendur ákærða og fleirum er fyrirhuguð næstkomandi föstudag.

             Í úrskurði Héraðsdóms Reykjaness 30. mars sl. var fallist á að skilyrði væru til að ákærði sætti gæsluvarðhaldi á grundvelli c. liðar 1. mgr. 103. gr. laga nr. 19/1991 þar til mál hans væri til lykta leitt fyrir dómi. Hæstiréttur staðfesti það mat héraðsdóms með dómi 3. apríl sl. Aðalmeðferð í máli ákærða er fyrirhuguð nk. föstudag og mun dómur uppkveðinn í framhaldi af því. Er ekkert það fram komið að leiði til breytts mats á því að skilyrði nefndrar lagagreinar teljist uppfyllt. Verður því fallist á kröfu lögreglustjóra eins og hún er fram sett og nánar greinir í úrskurðarorði.

             Halldór Björnsson, settur héraðsdómari kveður upp úrskurð þennan.

                                                               Úrskurðarorð: 

             Kærði, X, sæti gæsluvarðhaldi uns dómur gengur í máli hans, þó eigi lengur en til 11. maí  nk. kl. 16:00.