Hæstiréttur íslands
Mál nr. 472/2006
Lykilorð
- Kærumál
- Gæsluvarðhald. 2. mgr. 103. gr. laga nr. 19/1991
|
|
Miðvikudaginn 30. ágúst 2006. |
|
Nr. 472/2006. |
Lögreglustjórinn í Reykjavík(Ingimundur Einarsson varalögreglustjóri) gegn X(Jón Egilsson hdl.) |
Kærumál. Gæsluvarðhald. 2. mgr. 103. gr. laga nr. 19/1991.
Úrskurður héraðsdóms um að X skyldi sæta gæsluvarðhaldi á grundvelli 2. mgr. 103. gr. laga nr. 19/1991 um meðferð opinberra mála var staðfestur.
Dómur Hæstaréttar.
Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Ingibjörg Benediktsdóttir, Jón Steinar Gunnlaugsson og Ólafur Börkur Þorvaldsson.
Varnaraðili skaut málinu til Hæstaréttar með kæru 24. ágúst 2006, sem barst réttinum ásamt kærumálsgögnum 28. sama mánaðar. Kærður er úrskurður Héraðsdóms Reykjavíkur 24. ágúst 2006, þar sem varnaraðila var gert að sæta áfram gæsluvarðhaldi allt til fimmtudagsins 5. október 2006 kl. 16. Kæruheimild er í 1. mgr. 142. gr. laga nr. 19/1991 um meðferð opinberra mála. Varnaraðili krefst þess aðallega að hinn kærði úrskurður verði felldur úr gildi en til vara að gæsluvarðhaldi verði markaður skemmri tími.
Sóknaraðili krefst staðfestingar hins kærða úrskurðar.
Með vísan til forsendna hins kærða úrskurðar verður hann staðfestur.
Dómsorð:
Hinn kærði úrskurður er staðfestur.
Úrskurður Héraðsdóms Reykjavíkur 24. ágúst 2006.
Ár 2006, fimmtudaginn 24. ágúst, er á dómþingi Héraðsdóms Reykjavíkur, sem háð er í Dómhúsinu við Lækjartorg af Sigrúnu Guðmundsdóttur héraðsdómara, kveðinn upp svofelldur úrskurður.
Lögreglan í Reykjavík hefur krafist þess að Héraðsdómur Reykjavíkur úrskurði að X, [kt. og heimilisfang], sæti áfram gæsluvarðhaldi allt til fimmtudagsins 5. október 2006, kl. 16:00.
Í greinargerð lögreglu kemur fram að ávana- og fíkniefnadeild rannsaki meintan innflutning á miklu magni af fíkniefnum til landsins. Kærða sé grunuð um aðild að hinu meinta broti. Meint aðild hennar sé a.m.k. talin varða skipulagningu, milligöngu og móttöku fíkniefnanna. A, [kt.], og B, [kt.], hefðu bæði verið handtekin þann 9. ágúst sl. af tollgæslu á Keflavíkurflugvelli við komuna til landsins frá Spáni. B hafi verið með fíkniefnin í farangri sem hún hafi verið með meðferðis en A hafi verið handtekinn skömmu síðar í flugstöðinni eftir að hann hafði farið í gegnum hlið tollgæslunnar.
Þau hafi bæði verið yfirheyrð. Í framburðarskýrslum A komi m.a. fram að hann og B hafi tekið að sér að flytja fíkniefnin til landsins að beiðni X, búsettri á [...] í Reykjavík. Í skýrslunni hafi A lýst aðdraganda ferðarinnar, fundi sem hann átti með X þar sem ferðin hafi verið skipulögð, móttöku fíkniefnanna á Spáni, milligöngu X við aðila á Spáni í tengslum við móttökuna, auk þess sem hann hafi greint frá þátttöku B í brotinu. Nánar sé vísað til framburðarskýrslna A varðandi meinta aðild kærðu að málinu, sem verði að teljast veruleg. Kærða hafi verið yfirheyrð vegna málsins og hafi játað aðild sína að meintu broti og sé það m.a. framburður hennar að hún hafi haft milligöngu með þessum innflutningi vegna þess að hún skuldi manni, sem hún vilji ekki nefna, peninga vegna fíkniefnaviðskipta. Nánar um framburð hennar sé vísað til framburðarskýrslna kærðu.
Rannsókn málsins standi enn yfir og sé á lokastigi. Sem stendur hafi bankagögn ekki borist lögreglu en muni berast á næstunni. Unnið sé að úrvinnslu símagagna. Rannsókn málsins sé umfangsmikil og verði flýtt eftir föngum. Kærða þyki vera undir rökstuddum grun um aðild að stórfelldu fíkniefnabroti. Kærða hafi sætt gæsluvarðhaldi frá 10. ágúst sl. Meint aðild kærðu þyki mikil en hún sé talin tengjast skipulagningu, milligöngu og móttöku fíkniefnanna. Frekari rannsókn málsins kunni að leiða í ljós enn meiri aðild hennar að málinu. Einnig sé lagt til grundvallar að um sé að ræða mjög mikið magn sterkra og hættulegra fíkniefna. Nær öruggt þyki að fíkniefnin hafi átt að fara í sölu og dreifingu til ótiltekins fjölda manna hér á landi. Hið meinta brot kærðu þyki mjög alvarlegt. Með tilliti til hagsmuna almennings þyki þannig nauðsynlegt að kærða sæti áfram gæsluvarðhaldi á meðan mál hennar sé til meðferðar en telja verður og reikna með að ef sakborningur, sem orðið hefur uppvís að jafn alvarlegu broti og kærða, gangi laus áður en máli ljúki með dómi þá valdi það hneykslun í samfélaginu og særi réttarvitund almennings. Staða kærðu í málinu þyki sambærileg stöðu sakborninga í öðrum svipuðum málum, sbr. mál Hæstaréttar nr.: 154/2006, 368/2005, 93/2005, 488/2004, 269/2004, 417/2000 og 471/1999, þar sem sakborningum hefur verið gert að sæta gæsluvarðhaldi fram að dómi þegar legið hefur fyrir rökstuddur grunur um beina aðild að innflutningi að miklu magni fíkniefna í ágóðaskyni. Sé ekki talið ástæða til að ætla að refsimat og réttarvitund almennings í slíkum málum hafi breyst frá því téðir dómar voru uppkveðnir, að skilyrðum 2. mgr. 103. gr. laga nr. 19/1991 um meðferð opinberra mála sé ekki fullnægt í því máli sem hér um ræðir.
Sakarefnið sé talið geta varðað við 173. gr. a. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, sbr. 1. gr. laga nr. 64/1974 og 1. gr. laga nr. 32/2001. Um heimild til gæsluvarðhalds er vísað til 2. mgr. 103. gr. laga um meðferð opinberra mála nr. 19/1991.
Kærða hefur sætt gæsluvarðhaldi frá 10. ágúst sl. Hún hefur játað aðild sína að hinu meinta broti. Dómurinn fellst á, að fyrir hendi sé sterkur grunur um að kærða hafi framið brot, sem að lögum getur varðað allt að 12 ára fangelsi, sbr. 173. gr. a. laga nr. 19/1940 með áorðnum breytingum. Brotin eru þess eðlis að telja verður gæsluvarðhald nauðsynlegt með tilliti til almannahagsmuna. Er því fullnægt skilyrðum 2. mgr. 103. gr. laga nr. 19/1991 til gæsluvarðhalds yfir kærðu. Verður því fallist á kröfu lögreglustjóra um áframhaldandi gæsluvarðhald, eins og nánar greinir í úrskurðarorði.
Sigrún Guðmundsdóttir héraðsdómari kvað upp úrskurð þennan.
Úrskurðarorð :
Kærða, X, [kt. og heimilisfang], sæti áfram gæsluvarðhaldi allt til fimmtudagsins 5. október 2006, kl. 16:00.