Hæstiréttur íslands

Mál nr. 4/2000


Lykilorð

  • Kærumál
  • Gæsluvarðhald. A. liður 1. mgr. 103. gr. laga nr. 19/1991


Miðvikudaginn 5

 

Miðvikudaginn 5. janúar 2000.

Nr. 4/2000.

Lögreglustjórinn í Reykjavík

(enginn)

gegn

X

(Karl Georg Sigurbjörnsson hdl.)

                                                   

Kærumál. Gæsluvarðhald. A. liður 1. mgr. 103. gr. laga nr. 19/1991.

Úrskurður héraðsdóms um að X skyldi sæta gæsluvarðhaldi á grundvelli A. liðar 1. mgr. 103. gr. laga nr. 19/1991 um meðferð opinberra mála var staðfestur.

 

Dómur Hæstaréttar.

Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Markús Sigurbjörnsson, Arnljótur Björnsson og Gunnlaugur Claessen.

Varnaraðili skaut málinu til Hæstaréttar með kæru 30. desember 1999, sem barst réttinum ásamt kærumálsgögnum 4. janúar 2000. Kærður er úrskurður Héraðsdóms Reykjavíkur 29. desember 1999, þar sem varnaraðila var gert að sæta gæsluvarðhaldi allt til miðvikudagsins 12. janúar nk. kl. 16. Kæruheimild er í 1. mgr. 142. gr. laga nr. 19/1991 um meðferð opinberra mála. Varnaraðili krefst þess aðallega að úrskurður héraðsdómara verði felldur úr gildi, en til vara að gæsluvarðhaldinu verði markaður skemmri tími.

Sóknaraðili hefur ekki látið málið til sín taka fyrir Hæstarétti.

Með vísan til forsendna hins kærða úrskurðar verður hann staðfestur.

Dómsorð:

Hinn kærði úrskurður er staðfestur

 

 

 

Úrskurður Héraðsdóms Reykjavíkur 29. desember 1999.

Ár 1999, miðvikudaginn 29. desember, er á dómþingi Héraðsdóms Reykja­víkur, sem háð er í Dómhúsinu við Lækjartorg af Hirti O. Aðalsteinssyni, hér­aðs­dóm­ara, kveðinn upp úrskurður þessi.

 

Lögreglustjórinn í Reykjavík hefur krafist þess að X, [...] verði gert að sæta gæsluvarðhaldi allt til miðvikudagsins 19. janúar nk. kl. 16:00.

 

Málavextir [...]

 

Kærði er undir rökstuddum grun um að hafa framið brot er varðar getur fang­els­is­refs­ingu samkvæmt 173. gr. a almennra hegningarlaga nr. 19, 1940. Rannsókn máls þessa máls er á frumstigi og er því nauðsynlegt að koma í veg fyrir að hann torveldi rannsókn málsins, svo sem með því að skjóta undan sönn­unargögnum eða hafa áhrif á vitni og samseka.

Með vísan til framanritaðs og a. liðar 1. mgr. 103. gr. laga nr. 19/1991 verður krafa lögreglustjórans í Reykjavík tekin til greina, þó þannig að kærða verður ekki gert að sæta gæsluvarðhaldi lengur en til miðvikudagsins 12. janúar nk. kl. 16.00.

Úrskurðarorð:

Kærði, X [...], sæti gæsluvarðhaldi, en þó eigi lengur en til mið­viku­dags­ins 12. janúar nk. kl. 16.00.