Hæstiréttur íslands

Mál nr. 176/2008


Lykilorð

  • Kærumál
  • Gæsluvarðhald. A. liður 1. mgr. 103. gr. laga nr. 19/1991


         

Mánudaginn 31. mars 2008.

Nr. 176/2008.

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu

(Jón H. B. Snorrason, saksóknari)

gegn

X

(Erlendur Þór Gunnarsson hdl.)

 

Kærumál. Gæsluvarðhald. A. liður 1. mgr. 103. gr. laga nr. 19/1991.

Úrskurður héraðsdóms um að X yrði gert að sæta gæsluvarðhaldi á grundvelli a. liðar 1. mgr. 103. gr. laga nr. 19/1991 um meðferð opinberra mála var staðfestur.

 

Dómur Hæstaréttar.

Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Árni Kolbeinsson, Gunnlaugur Claessen og Hjördís Hákonardóttir.

Varnaraðili skaut málinu til Hæstaréttar með kæru 28. mars 2008, sem barst réttinum ásamt kærumálsgögnum sama dag. Kærður er úrskurður Héraðsdóms Reykjaness 28. mars 2008, þar sem varnaraðila var gert að sæta gæsluvarðhaldi allt til mánudagsins 14. apríl 2008 kl. 16. Kæruheimild er í 1. mgr. 142. gr. laga nr. 19/1991 um meðferð opinberra mála. Varnaraðili krefst þess aðallega að hinn kærði úrskurður verði felldur úr gildi en til vara að gæsluvarðhaldi verði markaður skemmri tími.

Sóknaraðili krefst staðfestingar hins kærða úrskurðar.

Í gögnum sem lögð hafa verið fyrir Hæstarétt kemur fram að fjórir brotaþolar hafa við skýrslugjöf hjá lögreglu borið um að varnaraðili hafi verið meðal árásarmanna og hafa tveir þeirra borið að varnaraðili hafi verið vopnaður exi. Með þessari athugasemd en að öðru leyti með vísan til forsendna hins kærða úrskurðar verður hann staðfestur.

Dómsorð:

Hinn kærði úrskurður er staðfestur.

 

 

Úrskurður Héraðsdóms Reykjaness 28. mars 2008.

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu hefur krafist þess í dag fyrir Héraðsdómi Reykjaness með vísan til a-liðar 1. mgr. 103. gr. laga nr. 19/1991 um meðferð opinberra mála að X, [kt. og heimilisfang], verði með úrskurði gert að sæta gæsluvarðhaldi allt til mánudagsins 14. apríl 2008. kl.16:00.

Kærði mótmælir kröfunni og krefst þess til vara að beitt verði farbanni og til þrautavara að henni verði markaður skemmri tími

Krafan er reist á því að kærði sé undir rökstuddum grun um brot gegn 231.gr. og  2. mgr. 218. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.

Í greinargerð lögreglustjórans kemur m.a. fram að síðdegis laugardaginn 22. mars s.l. hafi lögreglu borist tilkynning um slagsmál í íbúð í A í Reykjavík. Sjúkrabifreið var send á vettvang þar sem að fyrir lágu upplýsingar um að menn á vettvangi væru alvarlega slasaðir.

Íbúi hússins greindi lögreglu frá því á vettvangi að hann hefði séð um 10-12 karlmenn koma á tveimur bifreiðum. Mennirnir hefðu verið vopnaðir járnrörum, slaghömrum og sleggju og farið inn í A. Í kjölfarið hefðu heyrst mikil læti og sagðist vitnið svo hafa séð hvar maður sem var blóðugur í andliti kom hlaupandi af vettvangi. Mennirnir hafi svo ekið á brott og tekið vopnin með sér.

Vitnið greindi lögreglu frá útliti bifreiða mannanna og númeri annarrar þeirra (...). Lögreglan á Suðurnesjum stöðvaði sama dag bifreið sem kom heim og saman við lýsinguna en í bifreiðinni voru fjórir karlmenn en í henni fundust einnig nokkur vopn og barefli, sleggja, blóðugt steypustyrkjarjárn, rörbútur og tveir hnífar. Mennirnir voru í kjölfarið úrskurðaðir í þriggja vikna gæsluvarðhald í héraðsdómi Reykjavíkur, þ.e. til mánudagsins 14. apríl nk. Úrskurðirnir hafi nú verið staðfestir af Hæstarétti Íslands.

Í íbúðinni í A voru tíu menn og voru sjö þeirra með mikla áverka, m.a opin beinbrot og með áverka á höfði. Brotaþolar eru allir Pólverjar og er ástand eins mannanna talið alvarlegt. Hefur einn brotaþola greint lögreglu frá því að hópur manna hafi ruðst inn íbúðina vopnaðir ýmsum vopnum og bareflum og umsvifalaust ráðist að mönnunum. Árásarmennirnir séu búsettir í B.

Ljóst er að enn eru nokkrir árásarmannanna ófundnir. Fimm menn sitja nú í gæsluvarðhaldi og lýst hefur verið eftir fimmta manninum, en einn brotaþoli hefur nefnt að sá hafi verið í hópi árásarmannanna.

Í framburði eins brotaþolans, C, kemur fram að kærði hafi verið í hópi árásarmanna. 

Í ljósi þess að ákærði hefur sérstaklega verið nefndur af brotaþola sem einn af árásarmönnunum þykir fram sé kominn rökstuddur grunur um að kærði framið brot gegn 2. mgr. 218. gr. sem getur varðað allt að 16 ára fangelsisrefsingu.

Rannsókn málsins standi nú yfir. Rannsóknarhagsmunir krefjast þess að kærða verði gert að sæta gæsluvarðhaldi. Ljóst er að enn eru nokkrir árásarmannanna ófundnir og ástæða til að ætla að kærði muni torvelda rannsókn gangi hann laus, til að mynda með því að vera í sambandi við aðra sakborninga. Málið sé alvarlegt og rannsókn málsins er viðamikil og enn á viðkvæmu stigi og brýnt sé að lögregla fái svigrúm til að sinna henni.

Ætluð brot teljast varða við 231. gr. og 2. mgr 218. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940. Með vísan til framanritaðs, framlagðra gagna og a- liðar 1. mgr. 103. gr. laga um meðferð opinberra mála nr. 19/1991, er þess krafist að krafan nái fram að ganga.

Af öllu framangreindu virtu, sem og gögnum málsins að öðru leyti, verður fallist á það með lögreglustjóra að fyrir hendi sé rökstuddur grunur um að kærði hafi átt aðild að fólskulegri árás. Getur háttsemin varðað allt að 16 ára fangelsi. Rannsókn málsins er á frumstigi. Haldi kærði frelsi sínu gæti hann torveldað rannsókn málsins, haft áhrif á framburð vitna og meðsekra og komið undan sönnunargögnum. Verður því talið að uppfyllt sé skilyrði a-liðar 1. mgr. 103. gr. laga nr. 19/1991 um meðferð opinberra mála til þess að kærða verði gert að sæta gæsluvarðhaldi. Krafa lögreglustjórans verður því tekin til greina eins og hún er fram sett og kærða gert að sæta gæsluvarðhaldi allt til mánudagsins 14. apríl 2008, kl. 16.00.

Sveinn Sigurkarlsson héraðsdómari kveður upp úrskurð þennan.

Úrskurðarorð:

Kærði, X, [kt.],  sæti gæsluvarðhaldi allt til mánudagsins 14. apríl 2008 kl. 16.00.