Hæstiréttur íslands
Mál nr. 792/2015
Lykilorð
- Kærumál
- Gæsluvarðhald. 2. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008
|
|
Föstudaginn 27. nóvember 2015. |
|
Nr. 792/2015.
|
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Jón H.B. Snorrason saksóknari) gegn X (Bjarni Hauksson hrl.) |
Kærumál. Gæsluvarðhald. 2. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008.
Staðfestur var úrskurður héraðsdóms um að X skyldi sæta gæsluvarðhaldi á grundvelli 2. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála
Dómur Hæstaréttar.
Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Greta Baldursdóttir og Helgi I. Jónsson og Ingveldur Einarsdóttir settur hæstaréttardómari.
Varnaraðili skaut málinu til Hæstaréttar með kæru 24. nóvember 2015, sem barst réttinum ásamt kærumálsgögnum degi síðar. Kærður er úrskurður Héraðsdóms Reykjaness 24. nóvember 2015, þar sem varnaraðila var gert að sæta áfram gæsluvarðhaldi allt til þriðjudagsins 22. desember 2015 klukkan 16. Kæruheimild er í l. lið 1. mgr. 192. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála. Varnaraðili krefst þess aðallega að hinn kærði úrskurður verði felldur úr gildi, til vara að honum verði gert að sæta farbanni, en að því frágengnu að gæsluvarðhaldi verði markaður skemmri tími.
Sóknaraðili krefst staðfestingar hins kærða úrskurðar.
Upphaf rannsóknar lögreglu í máli þessu verður rakið til þess að 22. september 2015 kom Y hingað til lands með ferjunni Norrænu, en bifreið með skráningarnúmerinu [1], sem hann hafði umráð yfir, var flutt með ferjunni. Lögregla veitti bifreiðinni eftirför, en henni var ekið frá Seyðisfirði til Reykjavíkur og þaðan til Keflavíkur á tímabilinu frá 22. til 25. september 2015. Y skildi bifreiðina eftir á skammtímastæði við Keflavíkurflugvöll 25. september 2015 og fór síðan úr landi. Lögregla hélt áfram eftirliti með bifreiðinni, en 28. sama mánaðar kom Y aftur hingað til lands. Þann sama dag kom varnaraðili til landsins með flugi og tók á leigu bifreið á flugstöðinni. Y og varnaraðili óku síðan hvor á sinni bifreið í átt að [...] að gistiheimili við [...], þar sem þeir voru handteknir. Í bifreiðinni sem Y ók fundust 19,5 kg af amfetamíni og rúmlega 2,5 kg af kókaíni.
Varnaraðili hefur játað að hafa komið að flutningi bifreiðar þeirrar sem fíkniefnin voru flutt í til landsins, en neitað að hafa vitað að í henni væru falin fíkniefni. Hann hefur jafnframt borið að tveir erlendir aðilar hafi komið að skipulagningu innflutningsins og hafi þeir verið í samskiptum við aðila hérlendis sem fylgst hafi með ferðum bifreiðarinnar. Varnaraðili kvað sitt hlutverk hafa verið að fjarlægja það sem í bifreiðinni var og afhenda það á tilteknum stað. Hann hafi síðan átt að fá skilaboð um peningagreiðslu fyrir sinn þátt í verkinu.
Samkvæmt framangreindu er varnaraðili undir sterkum grun um að eiga aðild að innflutningi á fíkniefnum þeim er fundust í bifreiðinni [1]. Sannist sök varðar brotið allt að 12 ára fangelsi samkvæmt 173. gr. a. almennra hegningarlaga nr. 19/1940. Þá er brotið þess eðlis að ætla megi varðhald nauðsynlegt með tilliti til almannahagsmuna. Er því fullnægt skilyrðum 2. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008 um gæsluvarðhald yfir varnaraðila. Verður hinn kærði úrskurður því staðfestur.
Dómsorð:
Hinn kærði úrskurður er staðfestur.
Úrskurður Héraðsdóms Reykjaness 24. nóvember 2015.
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu hefur í dag krafist þess með vísan til 2. mgr. 95. gr. laga um meðferð sakamála nr. 88/2008, að kærða, X, fd. [...], verði áfram gert að sæta gæsluvarðhaldi, allt til þriðjudagsins 22. desember nk., kl. 16:00.
Kærði mótmælir kröfu lögreglustjóra og krefst þess aðallega að henni verði hafnað, til vara að kærða verði gert að sæta farbanni í stað gæsluvarðhalds og til þrautavara að gæsluvarðhaldinu verði markaður skemmri tími.
I
Í greinargerð lögreglustjóra segir að lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu hafi til rannsóknar stórfellt fíkniefnalagabrot er varði innflutning á sterkum fíkniefnum hingað til lands.
Þann 22. september sl. hafi meðkærði, Y, komið til landsins ásamt erlendri konu á bifreiðinni [1] með ferjunni Norrænu. Lögreglan hafði eftirlit með bifreiðinni þar sem henni var ekið til Reykjavíkur og þaðan til Keflavíkur á tímabilinu 22. 25. september sl. Föstudaginn 25. september sl., hafi meðkærði Y, farið með flugi frá Íslandi og skilið bifreiðina eftir á bifreiðastæði við Keflavíkurflugvöll. Meðkærði, Y, hafi síðan komið aftur til landsins þann 28. september sl. og sótt bifreiðina. Kærði, X, hafi einnig komið með flugi til landsins þennan sama dag og þeir ekið á sitt hvorri bifreiðinni sem leið lá inn í [...] að gistiheimili við [...]. Þar hafi kærði hitt meðkærða Y, og hafi þeir báðir verið handteknir af lögreglu stuttu eftir komu þeirra í húsnæðið. Bifreiðin sem meðkærði Y ók hafi verið haldlögð af lögreglu og við leit í henni hafi fundist rúmlega 19,5 kg af amfetamíni og rúmlega 2,5 kg af kókaíni sem var búið að fela í bifreiðinni.
Kærði hafi neitað sök við fyrstu skýrslutöku hjá lögreglu en hafi nú játað að hafa tekið þátt í því að flytja inn ofangreinda bifreið, en kærði kvaðst ekki hafa vitað að í bifreiðinni væru falin fíkniefni.
Kærði, hafi nú lýst fyrir lögreglu hvernig skipulagningu innflutningsins var háttað og að hann hafi áður tekið þátt í sambærilegum innflutningi. Kærði hafi greint lögreglu frá því að tveir [...] hafi átt þátt í skipulagningu innflutningsins. Aðspurður mun kærði hafi sagt lögreglu að hlutverk hans hafa verið að koma til landsins og fjarlægja það sem var í bifreiðinni, og afhenda það aðila við [...]. Hann hafi síðan átt að fá skilaboð varðandi peningagreiðslu fyrir sinn þátt. Kærði mun einnig hafa upplýst lögreglu um það að hann hafi nokkrum sinnum hitt samverkamenn sína á fundum í [...], áður en haldið var til Íslands, þar sem ferðin var skipulögð. Vísar lögreglustjóri nánar til meðfylgjandi framburðarskýrslu kærða og önnur gögn sem liggja fyrir.
Kærði, hafi nú sætt gæsluvarðhaldi í þágu rannsóknar málsins frá 29. september sl., nú síðast með úrskurði Héraðsdóms Reykjaness nr. [...]/2015, en sá úrskurður hafi verið staðfestur með dómi Hæstaréttar.
Þá kemur fram í greinargerð lögreglustjóra, að rannsókn lögreglu hafi verið unnin í samstarfi við erlend yfirvöld og síðustu vikur beinst að því að hafa upp á samverkamönnum kærðu í [...], en einnig hafi verið óskað eftir aðstoð annarra erlendra lögregluyfirvalda. Þannig hafi verið óskað eftir húsleitum og skýrslutökum og vinni lögreglan að þeim aðgerðum í samstarfi við erlend yfirvöld.
Að mati lögreglustjóra sé kærði undir sterkum grun um aðild að broti gegn 173. gr. a almennra hegningarlaga nr. 19/1940 ásamt síðari breytingum, sem geti varðað allt að 12 ára fangelsi. Aðild kærða sé mikil og talin tengjast skipulagningu og flutningi fíkniefnanna hingað til lands. Þá sé einnig lagt til grundvallar kröfu um gæsluvarðhald, að um mjög mikið magn hættulegra fíkniefna sé að ræða. Hið ætlaða brot kærða þyki mjög alvarlegt og þess eðlis að nauðsynlegt sé að tryggja að kærði gangi ekki laus á meðan mál hans er til meðferðar. Telja verði, að ef sakborningur, sem orðið hefur uppvís að jafn alvarlegu broti og kærði gangi laus áður en máli ljúki með dómi, þá valdi það hneykslun í samfélaginu og særi réttarvitund almennings. Staða kærða í málinu þyki sambærileg stöðu sakborninga í öðrum svipuðum málum, sbr. mál Hæstaréttar nr. 763/2015, 152/2013, 149/2013, 269/2010, 164/2010 og 91/2010, þar sem sakborningum hafi verið gert að sæta gæsluvarðhaldi fram að uppkvaðningu dóms, þegar legið hefur fyrir sterkur grunur um beina aðild að innflutningi að miklu magni fíkniefna í ágóðaskyni. Sé skilyrðum 2. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála fullnægt í því máli sem hér um ræðir.
II
Kærði hefur setið í gæsluvarðhaldi frá 29. september sl. á grundvelli rannsóknarhagsmuna. Nú er krafist áframhaldandi gæsluvarðhalds á grundvelli 2. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála.
Kærði hefur neitað sök, um að hafa vitað af því að í bifreiðinni hafi verið fíkniefni, en játað að hafa flutt inn bifreiðina. Hafi hann áður tekið þátt í sambærilegum innflutningi. Jafnframt hefur kærði borið að hafa átt fundi með samverkamönnum í [...] þar sem ferðin var skipulögð.
Fallist verður á það með lögreglustjóra, að kærði sé undir sterkum grun um að hafa framið afbrot sem að lögum getur varðað allt að 12 ára fangelsi.
Þá er fallist á það með lögreglustjóra, með tilliti til þess mikla magns hættulegra fíkniefna sem um ræði í máli þessu, og ætla verður að hafi átt að selja hér á landi, að gæsluvarðhald sé nauðsynlegt með tilliti til almannahagsmuna. Krafa lögreglustjórans verður því tekin til greina eins og hún er fram sett og nánar greinir í úrskurðarorði.
Úrskurð þennan kveður upp Bogi Hjálmtýsson héraðsdómari.
Ú r s k u r ð a r o r ð :
Kærði, X, skal sæta áfram gæsluvarðhaldi, allt til þriðjudagsins 22. desember nk., kl. 16:00.