Hæstiréttur íslands
Mál nr. 12/2008
Lykilorð
- Kærumál
- Farbann
|
|
Fimmtudaginn 10. janúar 2008. |
|
Nr. 12/2008. |
Lögreglustjórinn á Suðurnesjum(Júlíus Magnússon, fulltrúi) gegn X (Ásbjörn Jónsson hdl.) |
Kærumál. Farbann.
Úrskurður héraðsdóms um að X skyldi sæta farbanni samkvæmt b. lið 1. mgr. 103. gr. og 110. gr. laga nr. 19/1991 um meðferð opinberra mála var staðfestur.
Dómur Hæstaréttar.
Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Jón Steinar Gunnlaugsson, Hjördís Hákonardóttir og Páll Hreinsson.
Varnaraðili skaut málinu til Hæstaréttar með kæru 8. janúar 2008, sem barst réttinum ásamt kærumálsgögnum 9. sama mánaðar. Kærður er úrskurður Héraðsdóms Reykjaness 8. janúar 2008, þar sem varnaraðila var gert að sæta áfram farbanni allt til þriðjudagsins 29. janúar 2008 kl. 16. Kæruheimild er í 1. mgr. 142. gr. laga nr. 19/1991 um meðferð opinberra mála. Varnaraðili krefst þess aðallega að hinn kærði úrskurður verði felldur úr gildi en til vara að farbanninu verði markaður skemmri tími.
Sóknaraðili krefst þess aðallega að krafa hans um að varnaraðili sæti farbanni allt til þriðjudagsins 5. febrúar 2008 kl. 16, verði tekin til greina en til vara krefst hann staðfestingar hins kærða úrskurðar. Sóknaraðili hefur ekki kært úrskurðinn fyrir sitt leyti. Kemst aðalkrafa hans því ekki að fyrir Hæstarétti.
Með vísan til forsendna hins kærða úrskurðar verður hann staðfestur.
Dómsorð:
Hinn kærði úrskurður er staðfestur.
Úrskurður Héraðsdóms Reykjaness 8. janúar 2008.
Lögreglustjórinn á Suðurnesjum hefur krafist þess að X, kt. [...], pólskum ríkisborgara með dvalarstað að [...], Reykjanesbæ verði með úrskurði Héraðsdóms Reykjaness gert að sæta áfram farbanni allt til þriðjudagsins 5. febrúar 2008 kl. 16:00.
Krafan er sett fram með vísan til a-liðar og b-liðar 103. gr. og 110. gr. laga nr. 19/1991 um meðferð opinberra mála, sbr. 215. gr. og 220. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 og 10. gr. umferðarlaga nr. 50/ 1987.
Af hálfu kærða er gæsluvarðhaldskröfunni mótmælt.
Í greinargerð lögreglustjóra kemur fram að laust upp úr kl. 17:00 föstudaginn 30. nóvember 2007 hafi bifreið verið ekið á fjögurra ára dreng, Kristinn Veigar Sigurðsson, á mótum Vesturgötu og Birkiteigs í Reykjanesbæ. Ökumaður bifreiðarinnar sem ók á drenginn hafi ekki stöðvað en ekið á brott af vettvangi án þess að huga að drengnum. Drengurinn lést á sjúkrahúsi laugardaginn 1. desember 2007 af þeim áverkum sem hann hlaut. Við eftirgrennslan lögreglu fannst bifreiðin Y, af gerðinni [...], blágræn að lit, kl. rúmlega 17.00 laugardaginn 1. desember og var kærði ökumaður bifreiðarinnar. Kærði var spurður um brotið vinstra framljós á bifreiðinni og sagði lögreglu þá að hann hefði lent í óhappi daginn áður, þ.e. 30. nóvember, en það er dagurinn þegar ekið var á drenginn. Bifreiðin bar merki ákomu vinstra megin að framan og var m.a. framljós þeim megin brotið. Lögregla telur skemmdir á bílnum nýlegar. Fram kemur í greinargerð lögreglu að kærði hafi ekki gengist við því að hafa ekið á drenginn en mikils ósamræmis hafi gætt í framburði hans, hann orðið margsaga m.a. um það hvar hann var staddur á þeim tíma þegar ekið var á barnið. Þá hafi komið fram ósamrýmanlegir framburðir um það, bæði hjá kærða og vitnum, hvenær og hvernig framljós bifreiðarinnar brotnaði.
Tæknirannsókn lögreglu á bifreiðinni hafi m.a. leitt í ljós að tautrefjar fundust á bifreiðinni en bráðabirgðaniðurstöður rannsóknastofu norsku lögreglunnar, sem send voru sýni til rannsóknar, sem lögreglu bárust upplýsingar um 11. desember sl., samrýmist því að vera úr rauðri fleecepeysu, sem barnið klæddist. Fullnaðarniðurstöður frá rannsóknarstofu norsku lögreglunnar séu hins vegar enn ókomnar til lögreglu hér. Hins vegar hafi tæknirannsókn lögreglu á bifreiðinni ekki leitt í ljós efni eða sýni sem talin séu tæk til DNA rannsóknar að svo stöddu. Fram kemur í greinargerð lögreglu að framburðir vitna, sem hafa verið yfirheyrð, hafi verið misvísandi innbyrðis og borið illa saman við framburði kærða þótt málið hafi skýrst. Ítarleg tæknileg rannsókn á bifreiðinni þyki renna sterkum stoðum undir að umræddri bifreið hafi verið ekið á barnið.
Meðal gagna sem aflað hafi verið frá 6. desember sl. sé skýrsla skráðs eiganda bifreiðarinnar, með vísan til 58. gr. umferðarlaga, um að kærði hafi einn haft aðgang að og ekið bifreiðinni.
Ljóst þyki að reynt hafi verið að villa um fyrir rannsókn lögreglu í málinu og verði að telja líklegt að það sé frá kærða komið. Bent er á skýrslur sem fylgdu gæsluvarðhaldsbeiðni dags. 6. desember s.l. sem fylgja beiðni þessari.
Öll framangreind atriði og gögn þykja rökstyðja að hætta sé á að kærði muni reyna að hafa áhrif á vitni eða samseka ef hann gangi laus.
Þá bendir lögregla á að fram hafi komið hjá kærða að hann hafi áformað að fara frá Íslandi mánudaginn 3. desember s.l. og væri ekki væntanlegur til landsins aftur.
Lögregla kveður rannsókn þessa máls vera mjög umfangsmikla og flókna. Eins og málið liggi nú fyrir eigi eftir að ljúka skýrslutökum og hafi ekki enn tekist að kanna nýja vísbendingu um vitni sem lögreglu hafi borist en yfirheyra þurfi mann, sem staddur er erlendis, vegna þessa.
Lögð er áhersla á það í kröfugerð að kærði sé útlendingur og að ætla megi að hann muni reyna að komast úr landi eða leynast verði honnum ekki gert að sæta gæsluvarðhaldi. Kærði sé grunaður um brot gegn 215. gr. og 220. gr. almennra hegningarlaga sem varðað geti fangelsi allt að 6 árum sem og brot gegn umferðarlögum. Telur lögregla með vísan til framanritaðs og framlagðra gagna að brýnt sé að kærði sæti áframhaldandi farbanni til 5. febrúar nk. en á þeim tíma verði leitast við að ljúka rannsókn málsins og senda það til ríkissaksóknara til ákærumeðferðar.
Í máli verjanda kærða við fyrirtöku kröfunnar kemur fram að hann mótmælir kröfu um farbann með vísan til þess að kærði hafi frá upphafi neitað að hafa ekið umræddri bifreið umrætt sinn.
Með því sem nú hefur verið rakið og með hliðsjón af framlögðum gögnum þykir hafa verið sýnt fram á að kærði sé undir rökstuddum grun um að hafa framið brot sem fangelsisrefsing liggur við. Fulltrúi lögreglustjóra hefur uppýst að rannsókn málsins sé langt komin en enn sé beðið endanlegrar niðurstöðu úr norskri tæknirannsókn, sem þó liggi nú þegar fyrir bráðabirgðaniðurstaða úr, jafnframt eigi eftir að kanna nýja vísbendingu um vitni. Kærði sætti gæsluvarðhaldi frá 2. til 11. desember sl. en kærði var þá úrskurðaður til að sæta farbanni til dagsins í dag og var sú niðurstaða staðfest með dómi Hæstaréttar Íslands 13. desember sl. í máli réttarins nr. 649/2007. Í ljósi framanritaðs, gagna, sem fyrir dóminum liggja, og með vísan til þess að kærði er erlendur ríkisborgari þykir rétt að beita ákvæði b-liðar 103. gr. laga nr. 19/1991 og gera ákærða að sæta áfram farbanni samkvæmt ákvæðum 110. gr. sömu laga. Hins vegar verður með vísan til þess sem fram er komið um framvindu rannsóknarinnar að telja að þrjár vikur nægi til að ljúka henni. Verður kærða því gert að sæta farbanni allt til þriðjudagsins 29. janúar 2008 kl. 16:00.
Arnfríður Einarsdóttir héraðsdómari kvað upp úrskurðinn.
ÚRSKURÐARORÐ
Kærði, X, sæti áframhaldandi farbanni allt til þriðjudagsins 29. janúar 2008 kl. 16:00.