Hæstiréttur íslands
Mál nr. 652/2009
Lykilorð
- Kærumál
- Gæsluvarðhald. B. liður 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008
|
|
Þriðjudaginn 17. nóvember 2009. |
|
Nr. 652/2009. |
Lögreglustjórinn á Suðurnesjum(Alda Hrönn Jóhannsdóttir fulltrúi) gegn X (Brynjólfur Eyvindsson hdl.) |
Kærumál. Gæsluvarðhald. B. og d. liður 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008.
Úrskurður héraðsdóms um að X skyldi gert að sæta áfram gæsluvarðhaldi, á grundvelli b. og d. liða 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála, var staðfestur.
Dómur Hæstaréttar.
Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Ólafur Börkur Þorvaldsson og Jón Steinar Gunnlaugsson og Viðar Már Matthíasson settur hæstaréttardómari.
Varnaraðili skaut málinu til Hæstaréttar með kæru 11. nóvember 2009, sem barst réttinum ásamt kærumálsgögnum 13. sama mánaðar. Kærður er úrskurður Héraðsdóms Reykjaness 11. nóvember 2009, þar sem varnaraðila var gert að sæta áfram gæsluvarðhaldi allt til miðvikudagsins 2. desember 2009 klukkan 16, og sæta einangrun meðan á gæsluvarðhaldi stendur. Kæruheimild er í l. lið 1. mgr. 192. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála. Varnaraðili krefst þess aðallega að hinn kærði úrskurður verði felldur úr gildi, til vara að gæsluvarðhaldi verði markaður skemmri tími, en til þrautavara að hann verði settur í farbann.
Sóknaraðili krefst staðfestingar hins kærða úrskurðar.
Af forsendum hins kærða úrskurðar má ráða að varnaraðili sæti gæsluvarðhaldi á grundvelli b. og d. liða 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008. Fallist er á forsendur og niðurstöðu úrskurðarins um að skilyrði séu til þess að varnaraðili sæti áfram gæsluvarðhaldi. Hann hefur sætt gæsluvarðhaldi frá 14. október 2009 og verið í einangrun þann tíma. Í 2. mgr. 98. gr. laga nr. 88/2008 er lagt bann við því að sá sem er í gæsluvarðhaldi sæti einangrun lengur en í fjórar vikur samfleytt, nema sá sem um ræðir sé grunaður um brot sem varðað getur að lögum tíu ára fangelsi. Fram kemur í hinum kærða úrskurði að varnaraðili sé meðal annars grunaður um brot gegn 194. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940. Brot gegn því ákvæði getur varðað allt að sextán ára fangelsi. Það athugast á hinn bóginn að hvorki í greinargerð sóknaraðila í héraði né fyrir Hæstarétti er að finna upplýsingar um þá háttsemi sem varðað gæti við þetta lagaákvæði. Af gögnum málsins verður þó ráðið að rökstuddur grunur sé um að hann kunni að hafa framið brot sem við það varðar.
Með þessum athugasemdum verður hinn kærði úrskurður staðfestur.
Dómsorð:
Hinn kærði úrskurður er staðfestur.
Úrskurður Héraðsdóms Reykjaness 11. nóvember 2009.
Lögreglustjórinn
á Suðurnesjum hefur krafist þess í dag fyrir Héraðsdómi Reykjaness með vísan
til b. og d. liðar 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála að X,
kt. [...],[...], verði með úrskurði gert að sæta áframhaldandi gæsluvarðhaldi
allt til miðvikudagsins 2. desember 2009, kl. 16:00. Þess er jafnframt krafist
að kærða verði gert að sæta einangrun í gæsluvarðhaldi samkvæmt b. lið 1. mgr.
99. gr. laga nr. 88/2008.
Kærði
krefst þess aðallega að kröfunni verði hafnað en til vara að farbanni verði
beitt. Til þrautavara krefst hann þess að gæsluvarðhaldi verði markaður skemmri
tími. Þá er kröfu um einangrun mótmælt.
Krafan
er reist á því að kærði sé undir rökstuddum grun um brot gegn 277. gr. a og XXVI. kafla og XXVII. kafla almennra
hegningarlaga nr. 19/1940.
Í greinargerð lögreglustjórans á Suðurnesjum segir að hann hafi í
samvinnu við önnur lögregluembætti, allt frá 10. október sl. haft til
rannsóknar ætlað mansal ásamt fleiri brotum sem lögreglan ætlar að séu hluti af
ætlaðri skipulagðri glæpastarfsemi. Sé kærði grunaður í því máli og hafi hann
setið í gæsluvarðhaldi frá 14. október sl. Varðandi frekari málsatvik vísast
til fyrri krafna um gæsluvarðhald fyrir dómnum svo og til gagna málsins.
Kærði hafi viðurkennt að hafa verið einn þeirra manna sem leitaði hins
ætlaða fórnarlambs mansals og beðið hennar fyrir utan flugstöðina er hún kom
til landsins þann 10. október sl. og ennfremur að hafa beðið eftir konunni
fyrir utan lögreglustöðina við Hverfisgötu, Reykjavík, daginn eftir. Þá hafi
kærði viðurkennt að hafa ætlað að sækja konu að nafni A í flugstöðina fyrir
félaga sinn. Það sé jafnframt ætlun lögreglu að kærði hafi verið einn af þeim
sem sótti konuna til Keflavíkur að kvöldi 12. október sl. í því skyni að koma
henni undan lögreglu og er vísað til framburða þess efnis. Ennfremur hafi
lögreglan m.a. rökstuddan grun til að ætla að kærði kunni að standa að sölu
kvenna í vændi hér á Íslandi og taka greiðslu fyrir en fyrir liggi kæra þess
efnis á hendur kærða en kærði hafi neitað nauðung en viðurkennt að atvik og
staðsetningar passi við kæru kæranda. Þá liggi fyrir upplýsingar hjá lögreglu
þess efnis að kærði stundi það ásamt meðkærðu að innheimta verndartolla af
samlöndum sínum hér á landi og vísist til framburða þess efnis og gagna
málsins.
Verulegs ósamræmis og ótrúverðugleika gæti í framburði kærða og annarra aðila sem tengist málinu.
Rannsókn
málsins sé tímafrek og flókin og sé nú á lokastigi. Málið sé mjög umfangsmikið
og teygi anga sína víða og telji lögreglan að rökstuddur grunur sé á að um sé
að ræða verulega umfangsmikla skipulagða glæpastarfsemi sem kærði tengist ásamt
meðkærðu. Rannsókn málsins hafi verið unnin í nánum samskiptum við erlend
lögregluyfirvöld og sérstaklega við Litháen en fyrir liggi fjöldi gagna þaðan
sem unnið sé að því að þýða og varði aðdraganda og forsögu að ferð konunnar
hingað til lands. Sú háttsemi sem kærða hafi verið gefið að sök telji lögreglustjóri
að kunni einkum að varða við ákvæði 194. gr., 206. gr., 227. gr. a og XXVI.
kafla og XXVII. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.
Að mati lögreglu hafi sá grunur styrkst til muna að um verulega skipulagða glæpastarfsemi sé að ræða sem kærði tengist. Sé hann talinn einn af forsprökkum ásamt þremur öðrum meðákærðum er nú sitji í gæsluvarðhaldi. Telji lögregla rökstuddan grun til að ætla að þessi ætlaða skipulagða glæpastarfsemi tengist litháísku mafíunni og sé kærði einn af þeim aðilum er veiti þeim forystu hér á landi. Vísist nánar um það til hættumarks greiningardeildar ríkislögreglustjóra sem liggi fyrir í gögnum málsins.
Lögreglustjóri
telji að öðru fólki stafi veruleg hætta af kærða en við rannsókn málsins hafi
komið í ljós að fólk sé mjög hrætt við hann og sé jafnframt hrætt við að gefa
framburð í málinu af ótta við hefndaraðgerðir. Þá sé kærði af erlendu bergi
brotinn og verulegar líkur á að hann reyni að yfirgefa Ísland verði hann ekki
látinn sitja í gæsluvarðhaldi. Þá vísi lögreglustjóri jafnframt til þess að
meint brot varði helgustu réttindi fólks. Með vísan til alls þessa telji
lögreglan nauðsynlegt að kærði sæti áfram gæsluvarðhaldi. Til stuðnings kröfu
sinni um að kærði sæti einangrun í gæsluvarðhaldinu vísi lögreglustjóri til
þess að hætta kunni að leika á að kærði nái til vitna í málinu í gegnum aðila
er tengist hinni meintu glæpastarfsemi. Ætla megi að kærði fái aðra aðila til
að hefna eða hafa áhrif á framburð vitna áður en málið sé til lykta leitt fyrir
dómstólum.
Krafa
lögreglu er byggð á b. lið 95. gr. laga nr. 88/2008 um að hætta sé á, sæti
kærði ekki áframhaldandi gæsluvarðhaldi, að hann muni reyna að komast úr landi
og ennfremur er krafan byggð á d. lið sömu greinar um að telja megi
gæsluvarðhald nauðsynlegt til að verja aðra fyrir árásum sakbornings. Rannsókn
málsins hefur beinst að erlendum ríkisborgurum sem lögreglan telur að stundi
skipulagða glæpastarfsemi hér á landi m.a. með mansali, vændisstarfsemi og
innheimtu svokallaðra verndartolla af samlöndum sínum sem hér eru búsettir. Í
málinu hefur verið lagt fram hættumat greiningardeildar ríkislögreglustjóra
vegna öryggis þriggja vitna og er niðurstaða matsins að öryggi vitnanna sé
ógnað gangi kærði laus. Að öllu framangreindu virtu, sem og gögnum málsins að
öðru leyti, verður fallist á með lögreglustjóra að skilyrði b. og [d.] liðar 1.
mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008 séu uppfyllt og verður því krafan tekin til
greina eins og hún er fram sett í beiðni og nánar greinir í úrskurðarorði.
Fallist verði jafnframt á kröfu
lögreglu um að kærði sæti einangrun.
Gunnar Aðalsteinsson héraðsdómari kveður upp úrskurð þennan.
ÚRSKURÐARORÐ
Kærði,
X, skal sæta gæsluvarðhaldi allt til miðvikudagsins 2. desember 2009, kl.
16.00.
Kærði
skal sæta einangrun meðan á gæsluvarðhaldinu stendur.