- Kærumál
- Gæsluvarðhald. A. liður 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008
Staðfestur var úrskurður héraðsdóms um að X skyldi sæta gæsluvarðhaldi á grundvelli a. liðar 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála.
Dómur Hæstaréttar.
Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Greta Baldursdóttir og Karl Axelsson og Ingveldur Einarsdóttir settur hæstaréttardómari.
Varnaraðili skaut málinu til Hæstaréttar með kæru 13. október 2015, sem barst réttinum ásamt kærumálsgögnum 14. sama mánaðar. Kærður er úrskurður Héraðsdóms Reykjaness 13. október 2015, þar sem varnaraðila var gert að sæta gæsluvarðhaldi til þriðjudagsins 27. október 2015 klukkan 16 og einangrun meðan á því stendur. Kæruheimild er í l. lið 1. mgr. 192. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála. Varnaraðili krefst þess að hinn kærði úrskurður verði felldur úr gildi.
Sóknaraðili hefur ekki látið málið til sín taka fyrir Hæstarétti.
Varnaraðili er undir rökstuddum grun um að hafa framið brot sem fangelsisrefsing liggur við. Þá er fullnægt skilyrðum a. liðar 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008 til þess að hann sæti gæsluvarðhaldi svo og einangrun meðan á því stendur, sbr. 2. mgr. 98. gr. sömu laga. Samkvæmt þessu verður hinn kærði úrskurður staðfestur.
Dómsorð:
Hinn kærði úrskurður er staðfestur.
Úrskurður Héraðsdóms Reykjaness 13. október 2015.
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu hefur krafist þess fyrir dóminum í dag að X, kt. [...], verði með úrskurði Héraðsdóms Reykjaness gert að sæta áframhaldandi gæsluvarðhaldi allt til þriðjudagsins 27. október 2015 og að honum verði gert að sæta einangrun á meðan á því stendur.
Í greinargerð með kröfunni segir að lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu hafi til rannsóknar stórfellt fíkniefnalagabrot er varði innflutning á sterkum fíkniefnum hingað til lands. Þann 22. september sl. hafi meðkærði, Y, komið hingað til lands ásamt erlendri konu á bifreiðinni [...] með ferjunni [...]. Lögreglan hafi haft eftirlit með bifreiðinni þar sem henni var ekið til Reykjavíkur og þaðan til Keflavíkur á tímabilinu 22. til 25. september. Föstudaginn 25. september hafi Y farið með flugi frá Íslandi, en hann hafi skilið bifreiðina eftir á bifreiðastæði við Keflavíkurflugvöll. Y hafi komið aftur til landsins þann 28. september sl. og sótt bifreiðina. Kærði, X hafi einnig komið með flugi til landsins þennan sama dag og hafi þeir ekið á sitt hvorri bifreiðinni sem leið lá inn í [...] á [...] að gistiheimili við [...] í [...]. Þar hafi kærði hitt meðkærða Y og hafi þeir báðir verið handteknir af lögreglu stuttu eftir komu þeirra í húsnæðið. Bifreiðin sem meðkærði Y ók hafi verið var haldlögð af lögreglu og við leit í henni hafi mikið magn af sterkum fíkniefnum fundist, sem voru vel falin í bifreiðinni.
Þá segir í greinargerðinni að X hafi neitaði sök við fyrstu skýrslutöku hjá lögreglu. X hafi nú játað að hafa tekið þátt í því að flytja inn ofangreinda bifreið en hann hafi ekki vitað að í bifreiðinni væru falin fíkniefni. X hafi lýst fyrir lögreglu hvernig skipulagningu innflutningsins hafi verið háttað og að hann hafi áður tekið þátt í sambærilegum innflutningi. X hafi greint lögreglu frá því að tveir [...] hafi átt þátt í skipulagningu innflutningsins. Nánar varðandi framburð kærða er vísað í gögn málsins. Kærði X, hafi sætt gæsluvarðhaldi í þágu rannsóknar málsins frá 29. september sl. sbr. úrskurðir Héraðsdóms Reykjaness nr. R-[...]/2015 og R-[...]/2016. Síðari úrskurðurinn hafi verið staðfestur í Hæstarétti sbr. dóm Hæstaréttar nr. [...]/2015.
Lögreglan vinni nú einnig að málinu í samstarfi við [...] yfirvöld og leiti lögreglan nú að þessum aðilum. Þá sé einnig unnið í því að afla gagna erlendis frá. Nauðsynlegt sé á þessu stigi máls að kærði sæti áfram gæsluvarðhaldi svo hægt sé að koma í veg fyrir að kærði geti sett sig í samband við meinta samverkamenn eða þeir sett sig í samband við hann. Þá geti kærði einnig komið undan gögnum með sönnunargildi sem lögreglan hafi ekki lagt hald á nú þegar. Þyki þannig brýnt að vernda rannsóknarhagmuni á þessu stigi málsins.
Með vísan til framangreinds, framlagðra gagna og a-liðar 1. mgr. 95. gr. laga um meðferð sakamála nr. 88/2008 og til að sæta einangrun samkvæmt b. lið 1. mgr. 99. gr. sömu laga, sé þess krafist að krafan nái fram að ganga eins og hún sé sett fram.
Kærði mótmælti framkomna kröfu en til vara að henni verði markaður skemmri tími. Kvað hann rökstuddan grun um refsiverða háttsemi ekki vera fyrir hendi né að nokkrir rannsóknarhagsmunir væru í húfi. Þá hafi kærði þegar setið í gæsluvarðhaldi og sætt einangrun í tvær vikur.
Eins og rakið hefur verið og sjá má í gögnum málsins er um mikið magn fíkniefna að ræða, sem má ætla að séu í sölu-og dreifingarskyni. Fallast verður á með lögreglustjóra að rannsókn málsins snúi að hugsanlegum samverkamönnum og skipuleggjendum sem fram komu í skýrslutöku á kærða. Má ætla að kærði geti haft áhrif á aðra samseka eða vitni, gangi hann laus. Skilyrði a. liðar 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála eru því uppfyllt í málinu.
Þá verður einnig fallist á þá kröfu lögreglustjóra að kærði sæti einangrun á meðan hann sætir gæsluvarðhaldi og fær sú niðurstaða stoð í því sem að framan er rakið varðandi tengsl kærða við Ísland og möguleika hans á að hafa samband við meðseka og vitni sæti hann ekki einangrun á meðan rannsóknarhagsmunir krefjast.
Með vísan til rannsóknargagna og þess sem nú hefur verið rakið, a. liðar 1. mgr. 95. gr. og b. liðar 1. mgr. 99. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála, er fallist á kröfu lögreglustjóra eins og hún er fram sett.
Ástríður Grímsdóttir héraðsdómari kveður upp þennan úrskurð.
Úrskurðarorð:
Kærði, X, skal sæta gæsluvarðhaldi til þriðjudagsins 27. október nk. kl. 16.00.
Kærði sæti einangrun á þeim tíma.